Ísafold - 16.07.1884, Side 1

Ísafold - 16.07.1884, Side 1
toui úl á miðvikudajsmorgna. íert áqanjsias (50 arta) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist !jrir raiðjan júl'iuámt. ÍSAFOLD. Uppsögn (skníl.) bundra vi5 áramót, 6- jild nema komm sje til úlj. íjrir L akí Mgreiðslustola i lsaloldarprenlsm. i. sai. XI 29. Reykjavík, mióvikudaginn 16. júlimán. 1884. 113. Innlendar frjettir. Tálmanir fyrir jarðyrkju hjer á landi og nokkur ráð við þeim. 115. Um synodus. *j" Árni þorvaldsson (kvæði). 116. Auglýsingar. Forngripasafntð opið hvern mvd. og ld. kl. I 2 Landsbókasafnið opið hvern rámhelgan dag kl. 12—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4—5 Veðuratlmgaiiir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen JúH. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttu|urahád. fm. em. fm. em. M. 9- + 9 + 14 30 3° 0 d 0 b F. IO. + 8 + •7 30,1 30 0 b 0 b F. II. + IO + 18 3° 30 0 b 0 b L. 12. + 9 + 15 29,9 29,9 0 d 0 d S. 13- + 10 + 14 29.9 29.9 Sv h d S h d M. 14. + 8 + 15 29,9 29.9 V h b S h d í>. 15. + 8 + i4 29.9 29,9 V h b Sv h d Athgr. Alla umliðna viku hefir veður verið einstaklega hlýtt og stöðugt. Loptþyngdamælir varla hreift sig úr skorðum. Stöku sinnum hefir rignt mikið með köflum einkum siðari part h. 12. Fyrir miAjan þennan mánuð (júlí). tás* Heiðraðir kaupendur ísafoldar eru beðnir að minnast þess, að, eins og í yfir- skriptinni stendur, d andvirði árgangsins, 4 krónur, að greiðast fyrir miðjan þennan mánuð (júlí). Reykjavík 16. júli 1884. Bókmcnntafjelagsfundur var hald- inn aptur hjerí deildinni í gær.til forsetakosn- ingar, með því að Dr. Jón rektor þorkels- son, sem ekki var á fundi síðast, skoraðist undan að taka á móti kosningu, aunríkis vegna og heilsubrests. Stýrði varaforseti deildarinnar, landshöfðingi Bergur Thorberg, fundinum, sem var haldinní Alþingishúsinu. Fyrir forsetakosningu varð Björn Jónsson, ritstjóri ísafoldar, með 33 atkv.; adjunkt Steingrímur Thorsteinsson hlaut 31 atkv., og adjunkt Dr. Björn M. Olsen 6 atkv. Til skrifara var síðan kosinn í stað Björns Jónssonar landritari Jón Jensson (31. atk), og til ritnefndarmanns fyrir Tímaritið ad- junkt Steingrímur Thorsteinsson (25 atkv.). þess var vangetið síðast, að skólastjóri H. E. Helgesen, fyrverandi skrifari deildar- innar, mæltist einnig undan kosningu aptur. Skipstrand. Fimmtudag 10. júlí um morguninn braut norskt kaupskip, Grandál, á skeri við Reykjanes, skammt frá vitanum, 1 logni og þoku; hafði selt hjer viðarfarm og var á leið til Skotlands. Skipverjar björguðu sjer á bát til lands. Skipið fór í spón. Hralrekar. Hvalur fannst rekinn sama morguninn á Kalmannstjarnarreka í Höfnum, þrítugur eða þar um bil. Annar var róinn í land á sunnudaginn var í Garða- hverfi á Alptanesi, viðlíka stór. Camoens, hrossakaupaskip Slimons, sem fór hjeðan 28. júní og átti að koma hingað aptur 9. júlí, er ókomið enn. Er ekki annað líklegra en að því hafi hlekkzt á hing- að í leið; hefði það orðið á útleiðinni, mundi annað skip hafa verið sent í þess stað og vera nú hingað komið. Stjórnartíðindi. J.andshöfðingi hefir 11. júní veitt Vestmannaeyjasýslu 1500 kr. lán úr viðlagasjóði til byggingar á skólahúsi þar á eyjunum. Tveir embættismenn, Halldór kennari Briem á Möðruvöllum og Jón sýslumaður Á. Johnsen á Eskifirði, hafa með samþykki stjórnarherrans féngið 4000 kr. úr viðlaga- sjóði hvor, kennarinn til að byggja handa sjer íveruhús á Möðruvöllum, sýslumaður- inn til að fullgera og stækka hús sitt á Eskifirði. Landshöfðingi hefir 23. júní svarað svo fyrirspurn frá landlækni um það, hvort skottulæknar, er nefna sig smáskamtalækna, hafi heimild til að reka nokkra lyfjaverzlun hjer á landi,—að það sje vitaskuld, að með því að apótekararnir hafi einkaleyfi til með- alaverzlunar, þá hafi skottulæknar ekki heimild til að brjóta á móti þessu einkaleyfi, þótt þeir kalli sig smáskamtalækna. Strandasýslu hefir landshöfðingi veitt 2. júlí 6000 kr. lán úr viðlagasjóði til að kaupa fyrir bjargrœðisgripi handa þurfandi sýslu- búum. Sömuleiðis Skagafjarðarsýslu 25. júní 1000 kr. lán úr viðlagasjóði til að af- stýra hallæri í sýslunni. Jarðeldastyrktarsjóðurinn er nú eða var í árslok 1883 orðinn 28,341 kr. eptir reikningi í síðustu Stjt. Hann hefir aukizt í fyrra um rúmar 4000 kr., er komu fram í dánarbúi Jóns landritara Jónssonar, af innlendum samskotum á árunum næstu eptir eldgosin 1875, og sem kann hafði geymt í sparisjóði Reykjavíkur, f sjerstakri bók. Búnaðarskólinn í Ólafsdal. Lands- höfðinginn hefir veitt eptir tillögu amtsráðs- ins f vesturamtinu búfræðiskennslustofnun- inni í Olafsdal 2466 kr. af þ. á. búnaðar- styrk úr latidsjóði. Búnaðarskóli í Suðuraintinu. Amts- ráðið í suðuramtinu kvað nú hafa veitt Borgarfjarðarsýslu leyfi til að kaupa jörðina Hvanneyri í Borgarfirði, í þvf skyni að koma þar upp fyrirmyndarbúi og búnaðarskóla, er Sveinn búfræðingur Sveinsson veiti forstöðu. Eins og kunnugt er, er jörð þessi einkar vel fallin til slíkra hluta, að áliti Sveins og ann- ara, er vit hafa á. Hvað mega hafa þar um 60 kýr og 800 fjár. Hin fyrsta fríkirkja ú jslandi. Eptir því sem frá er skýrt í »þjóðólfi« 5. þ. m. hafa utanþjóðkirkjumenn í Reyðarfirði, sem nú eru búnir að fá til sín síra Lárus Halldórsson fyrir prest, efnt til kirkjubygg- ingar á Éskifirði (Lambeyri), og mun húsið nú vera komið upp eða um það leyti. f>að hefir verið smíðað í Norvégi í vor, undir um- sjón eins af forstöðumönnum utanþjóðkirkju- safnaðarins, sem jafnframt leitaði styrks til kirkjubyggingarinnar hjá kristniboðsfjelög- um þar, og ekki vonlaust um að hann fáist dálítill, með því skilyrði, að norskir sjómenn megi og halda guðsþjónustu í kirkjunni. Jafnframt leita og forstöðumennirnir sam- skota innanlands f sama skyni, og eru þegar innkomnar 122 kr. 6 skrifstofu »f>jóðólfs«, sem veitir viðtöku samskotum hjer syðra til kirkjunnar. Sýslumaður J. A. Johnsen á Eskifirði hefir gefið lóð undir kirkjuna. Söfnuðurinn hefir ábyrgzt presti sínum all-rífleg laun f 3 ár, og lagt á sig þunga byrði til þess, svo að út lítur fyrir, að þeim sje full alvara, meiri alvara en annars eru dæmi til hjer á landi í slíkum málnm. Fyr- irtæki þessara fríkirkjumanna er hin fyrsta verklega framkvæmd á margítrekaðri ósk og vilja almennings um sjálfsforræði í safnaðar- málum, og ættu menn þvf vissulega að árna því allrar blessunar, hvemig sem litið er á upptök þessarar kirkjuhreyfingar þar eystra. Tálmanir fyrir jarðyrkju hjer á landi og nokkur ráð við þeim. I. f>að er eitt hið nauðsynlegasta fyrir alla þá, sem vilja endurbæta jarðir sínar, eins og við hvert annað fyrirtæki, að athuga ná- kvæmlega og leita sjer fræðslu um það, með hverju móti þeir komist ljettast af að gjöra þær, eða hver tilhögun muni bezt að hafa við jarðabætur, í tilliti til kostnaðarins, samfara nokkum veginn góðum og varanleg

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.