Ísafold - 16.07.1884, Blaðsíða 2

Ísafold - 16.07.1884, Blaðsíða 2
114 um endurbótum. Margir hafa allmikla löng- un til að bæta jarðir sínar, en hjá nokkrum þeirra kemur hún sjaldan eða aldrei í ljós vegna ýmissa kringumstæða, er þeim finnst vera því til fyrirstöðu, að þeir sýni löngun sína í verkinu; en þó erviðar kringumstæður banni mönnum á stundum algjörlega allar framkvæmdir í þessu tilliti, þá gjöra þær það ekki eins opt og menn álíta, ef viljinn er eindreginn, og ekki tekið meira fyrir í einu en kraptarnir leyfa og sú tilhögun við höfð, sem kostnaðarminnst er og mönnum hægast að koma við. Nokkrir sýna að vísu í verk- inu vilja sinn á jarðabótum, en þeir eru að eins örfáir, sem hafa stöðugt framhald á þeim ; hinir eru, fleiri sem hætta algjörlega við, þegar litlar tilraunir eru komnar,og taka svo aldrei á þeim tíðara, rjett eins og jarða- bæturnar hafi stórkostlega hrekkjað þá og þeir fyrir þá skuld þori aldrei optar að glettast við jörðina í því skyni að bæta hana. Vjer viljum nú spyrja, hverjar orsakir sjeu til þessa mikla framhaldsleysis í þessu efni hjá mönnum. Svarið hlýtur þá að hljóða þannig, að þær sjeu margar, þó ekki sjeu það allt lögleg forföll. Sú fyrsta er hverflyndi og staðfestuleysi hjá svo mörgum, sem þykir það þjóðráð og þarfasta iðja einn daginn, er þeir skoða sem mestu ráðleysu og óþarfa hinn, án þess að nokkrar sjáanlegar orsakir breyti skoðun- um þeirra. Onnur er sú, að þær htlu jarðabætur sem eru gjörðar eru svo opt látnar eiga sig sjálf- ar, þegar þær einu sinni að nafninu til óru búnar, og enga ögn skeytt um að halda þeim við það, er þær hafa fengið og því síður að umbæta þær ; en með þessu móti ganga þær óðum úr sjér og verða á skömmum tíma einkis nýtar og eru stundum orðnar það um sama leyti sem maður hefði getað búizt við mestum arðinum af þeim, ef þær hefðu ver- ið vel þrifnar, og heldur lagaðar en aflagað- ar. Af þessum vanþrifum á jarðabótunum leiðir, að þær geta eigi einu sinni borgað það, er til þeirra hefir verið kostað, hvað þá held- ur að ágóðinn verði nokkur; svo menn skoða þær sem hin arðminnstu og ómerki- legustu fyrirtæki, er þeir forðast sem heitan eld jafnan síðan; en gá ekki að því, að óþrifnaði þeirra og hirðuleysi er um að kenna. það sannast eigi síður á jarðabót- unum en mörgu öðru, að eigi er minna vert að gæta fengins fjár en afla. þriðja orsökin er, að menn byrja stund- um á meiru en þeir hafa efni eða kringum- stæður til að koma af, og verða því að hætta við hálfgjört verk, eða steypa sjer í þá fjár- þröng, sem gjörir þeim ómögulegt að hafa nokkurt verulegt framhald á jarðabótum, með því líka viljinn fer þá opt æ þverrandi. Fjórða orsökin er tíðum sú, að jarðabæt- umar eru illa og óráðlega gjörðar í fyrstu, og verða fyrir þá skuld annaðhvort bráð- lega ónýtar, eða þær útheimta langtum meira kostnað sjer til viðurhalds og umbóta en þurft hefði til að gjöra þær vel í fyrstu, svo að kostnaðurinn verður á endanum meiri en arðurinn af þeim, þegar þær eru loks fullgjörðar. Hin fimmta er iðulega sú, að menn hafa þá tilhögun á jarðabótunum, sem útheimtar langtum meiri kostnað en þyrfti að vera, og gjörir þær óhæfilega dýrar. Báðar þessar síðasttöldu orsakir hafa þær afleiðingar, að menn hrekkjast á að gjöra nokkrar jarðabætur, þegar þeim reynist kostnaðurinn eins mikill eða meiri, en á- góðinn af þeim, en geta eigi sjeð, að van- högun sinni er um að kenna; það verður líka mörgum ómögulegt sökum efnaleysis, að leggja fjármuni hvað eptir annað í það, sem engan ávöxt færir þeim. |>á er að hugleiða, hver ráð liggja helzt til við þessum óförum. Um hina fyrstu orsökina er ekki til neins að tala, því hún er meðfæddur kvilli sumra manna, sem eflaust er ólæknandi. Um aðra orsökina er nokkuð öðru máli að gegna; eins og allir sjá, er hægt að kom- ast í veg fyrir hana og hennar vondu afleið- ingar, með stöðugri árvekni og hirðusemi, en litlum kostnaði, og þar eð ávallt kostar meira eður minna að gjöra jarðabætur, og á hinn bóginn að þær gefa optast af sjer mik- inn ávöxt, ef þær geta haldizt í góðu lagi, þá ætti mönnum að véra um það hugað, að láta þær ekki verða undir eins ónýtar, fyrir ein- tómt hirðu- og hugsuuarleysi. það þarf ekki nema einn hnaus að hrynja úr stíflu- garði til þess að vatnið komizt inn í hann og rífi hann allan í sundur, og flytji á burt, svo að ekki einn einasti hnaus verði eptir, og getur það kostað mikla peninga að gera hann að nýju, en einungis fá handtök að setja hnausinn í, meðanekki var meira rask- að. Eins getur vatnið jetið sig út úr skurði og gert hann ónýtan, og jafnvel jörðina, sem að honum liggur, ef ekki er reynt að koma í veg fyrir þetta undir eins og sjest votta fyrir, að svona geti farið. Sama er að segja um túnasljetturnar, að þær verða bráð- lega að engu nýtar, ef ekki er hirt um að bera á þær í tæka tíð, og verja þær fyrir skepnuágangi með fleiru. Ekki þarf nema að hleypa fjenaði einu sinni inn í maturta- garð eptir að búið er að sá í hann, til þess að úti sje að mestu eða öllu um arðsemi hans það árið. þannig fer um alls konar jarðabætur, sem á einhvern hátt eru van- hirtar, eins og mörgum hlýtur að vera al- kunnugt um. Til þess að hamla hinni þriðju orsökinni frá að verða jarðræktinni að tjóni, útheimt- ist alls ekki annað en að beita skynseminni sjer til aðstoðar með að sníða sjer stakk eptir vexti, en ætla sjer ekki meira en efni og kringumstæður leyfa; það er að segja: byrja ekki á meiru í senn en maður sjer sig hafa krapt til að fullgera, en vinna það heldur upp með iðninni, því margt smátt gerir eitt stórt, og sú aðferðin er og verður jafnau affarasælust fyrir alla efnalitla; en ekki er áhorfsmál fyrir þá, sem í engri fjárþröng éru, að vera ósárir á að leggja fjármuni í góðar og varanlegar jarðabætur, því þær eru viss- ar að borga þá betur en mörg önnur fyrir- tæki, en allir ættu að forðast, bæði ríkir og fátækir, að gera sjer þær dýrari en þörf er á. Til þess að komast í veg fyrir fjórðu or- sökina, nfl. að jarðabæturnar sjeu illa og óráðlega gerðar, er ekki annað betra ráð en að leita sjer fræðslu hjá búfróðum mönnum, helzt þeim sem geta haft nokkurn veginn reynslu fyrir sjer í ráðleggingum sínum um það, hverjar jarðarabætur maður skal helzt gera og hvernig þær eiga að vera; einnig að afla sjer þeirrar eigin þekkingar á þeim, sem föng eru á, af ritum þeim, er um þær hljóða, sem eru nú orðin nokkur á íslenzku og von- andi að heldur fjölgi, auk ritgerða þeirra sem komið hafa og koma kunna í blöðunum; sömuleiðis er einkar nauðsynlegt fyrir þá sem vilja afla sjer þekkingar í þessu efni, að skoða vel gerðar jarðarbætur hjá bændum, sem öðrum eru fremri í jarðarrækt og geta því verið góð fyrirmynd í því tilliti. Menn ættu alls ekki að telja á sig töluvert ómak í þessum erindum ; jafnvel þó menn ferðuð- ust langar leiðir til að skoða vandaðar jarða- bætur, þá mundi það borga sig, því varla geta menn með öðru móti fengið ljósari og betri þekkingu á þeim, en með því að skoða þær sjálfir og leita sjer upplýsingar um leið hjá þeim sem hefir gert þær eða látið gera, og hyggjum vjer að þetta yrði mönnum að meiru gagni en þó að sumir ferðasnígla þeirra, semvfða erunúorðið á reiki á sumrum um sjerstaka landsparta í því skyni að leið- beina mönnum í landbúnaði, hjali eitthvað um jarðyrkju við bændur meðan þeir eru að bíða eptir kaffi eða öðrum greiða, og jafn- vel þó þeir skjótist út á túnið með bónda og bendi honum til þeirra kraptaverka, er það megi gera, ef hann hefir þá hentugleika til að sinna nokkru slíku, sem ekki er ætíð víst, einkum þegar það er um heyskapar- tímann og bóndi er óviðbúinn komu þessa postula. Til að forðast fimmtu orsökina og hennar skaðlegu verkana á jarðræktina, þarf tölu- veröa hagsýni í mörgu tilliti, sem ckki verð- ur kennd með fáum orðum ; en lítilfjörlega

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.