Ísafold - 10.09.1884, Blaðsíða 3
143
ila sinna, þó þau engan veginn sje fullnægj-
andi og hið versta er, að við þau er sá mikli
galli, að þau tvístra verzluninni og draga
úr henni allan krapt, gjöra hana einokun-
arlega og koma í veg fyrir alla verzlunar-
keppni. Ef rjett er að gáð, þá eru hinir
mörgu verzlunarstaðir eins og að nokkru
leyti er bent á hjer á undan, svo dýrir, að
undir þeim verður varla risið. Hið eina
ráð til þess, að sannarleg not verði að
verzlunarfrelsinu og verzlunin geti komizt
hjá oss í betra og hagfelldara lag, er það, að
sameina verzlunina sem mest á fáa kaup-
staði1, þar sem geti komið nokkurt vöru-
I) Meðan enginn kaupstaður er til í landinu, þar
sem er nokkur kraptur saman kominn til verzlunar
og verzlunarkeppni, er ekki að búast við öðru en
að verzlunin verði í höndum þeirra, sem hún hefir
verið hingað til, o: að dönsku kaupmennirnir hafa
miðpunkt íslenzku verzlunarinnar í Kaupmannahöfn
og allur hinn eiginlegi auður af verzluninni safn-
ast þangað. Sem sýnishorn upp á þetta eru nokkr-
ar tölur úr skýrslu kaupmanns Muus i Kaup-
mannahöfn I 119. bls. ísafoldar þ. á„ sem sýna
hvað mikinn ágóða og atvinnu íslenzka verzlunin
gefur af sjer fyrir Dani eina, auk þess, sem aðrar
þjóðir hafa gott af henni bæði Englendingar og
Norðmenn, og er þetta samanlagt fram undir 3
miljónir króna. Menn geta varla sagt að sú at-
vinna, sem kemur landinu til góða af verzluninni
hjer, nái, að þeim undantekningum fráteknum, leng-
ra en að taka á móti útlendri vöru úr útlendum
skipum, geyma hana og selja eða skipta henni fyr-
ir innlenda vöru með langri og brotamikilli reikn-
ingsfærslu og skuldalistum og koma svo þessari
innlendu vöru út á skip aptur, og svo stundum að
flytja vörurnar á ýmsar úthafnir til að gera bænd-
um hægra fyrir með að nálgast hana til heimila
sinna. Til þess, að geta orðið islenzk verzlunar-
vara verður hin ýmíslega útlenda vara af öllum
tegundum að dragast saman í Kaupmannahöfn á
eitt skip, lítið eitt af hverri tegund, og flytjast á
hina mörgu smákaupstaði eða verzlunarstaði lands-
ins, svo að hver verzlun komist sem næst því, að
hafa allar nauðsynjar bænda i einni krambúð, svo
er varan sem fyrir hana kemur flutt aptur til Kaup-
mannahafnar, safnað þar hverri tegund fyrir sig á
skip til útlanda til markaðanna. Yrði verzlunin
hjer á landi sameinuð eða söfnuð á fáa staði i
stað þess sem hún er nú tvistruð kringum allt land,
og gæti þessi sundurdreifing á vörunni farið fyrst
fram hjer á landi á þessum aðalkaupstöðum lands-
ins, gæti það gefið mörgum manni atvinnu og sömu-
leiðis útbúnaðurinn á henni til að flytja hana á
aðalniarkaðina. Allir hljóta að sjá hvaða lykkja
það er á leiðina fyrir fiskinn frá íslandi að verða
fyrst að flytjast til Kaupmannahafnar og skipast
þar upp og út áður en hann er fluttur til Spánar-
Með því að safna þannig vörunum, sem flytjast
eiga frá landinu á fáa staði og eins að flytja út-
lendu vörurnar hverja tegund fyrir sig á fáa staði
í landinu, og að bamdur sjáltír gætu stofnað fje-
lög til að sækja vörurnar á þessa staði og flytja
þangað sínar vörur, er fyrst hugsanlegt að baratto
verzlunin eða vöruskiptaverzlunin verði af numin
og jafnframt kaupstaðaskuldirnar, en þó því að
eins að peningamarkaður verði stofnaður í land-
megn saman og verzlunarkeppni, en það
verður ekki með öðru en að bændur í stað
þess, að stofna innlend verzlunarfjelög til að
verzla á útlendum mörkuðum, komi smá-
verzlunarfjelögum á fót, sém hafi færandi
verzlun á innlendum markaði, þar sem bezt
býðst. LÖggjöfin hefir nú búið í haginn
fyrir slíkurn fjelögum með lögum frá 7.
nóv. 1879 um sveitaverzlun, en hjer þarf
annað til og meira, sem er innlendur pen-
ingamarkaður eða seðlabanki, sem vonandi
er að ekki líði langt um þangað til hann
kemst á fót. En til þess að bændur geti
flutt vörur sínar á þá staði, sem þær eru
bezt borgaðar hjer innanlands og keypt
aptur vörur með sem lægstu verði og flutt
heim til sín, er bezta ráðið gufubátarnir,
þar sem þeim verður við komið og svo góð-
ir vagnvegir frá aðalkaupstöðum upp í sveit-
irnar þar sem ekki verður haft not af gufu-
bátnum.
það sem jeg hefi hugsað mjer að ætti að
vera ætlunarverk gufubátaferðanna er:
1. Að gjöra mönnum hægra fyrir að nálg-
ast nauðþurftir sínar úr kaupstað held-
ur en nú er, jafnvel þó fjölgað sé verzl-
unarstöðum og undireins ódýrara, held-
ur en þeir eru og útsendingar kaup-
manna gjöra það, og ekki að eins að
flytja það sem þeir þurfa úr og í kaup-
stað, heldur einnig bæði skreið frá ver-
stöðum og rekavið til húsagjörðar það-
an, sem hann er að fá og í einu orði að
ljétta alla flutninga fyrir bændum og
ferðalög og efla með því viðskipti, við-
kynningu og fjelagsskap þeirra á milli
til framfara og þjóðþrifa.
2. Gjöra bændum unnt með sveitaverzlun
og verzlunarfjelagsskap að losa sig
smámsaman við hin mörgu ýmislegu
vankvæði og mein, sem eru á verzlun-
inni, en gjöra þeim unnt að sækja verzl-
un á þá staði í landinu, þar sem sam-
keppni er mest og hagfeldust og hagn-
aðarmest að kaupa þarfir sínar og
koma út vöru sinni innanlands.
Hver maður, sem nokkuð hugsar um það,
hlýtur að geta gjört sjer það ljóst fyrir huga
sínum, að það er allt annað að ætla sjer að
koma upp verzlunarfjelögum til að sækja
vörur og selja á erlendum mörkuðum heldur
en innlendum, því bæði eru slík fjeiög svo
kostnaðarmikil að menn hafa engan krapt
til þess að reka slíka færandi verzlun nema
iuu sjálfu eða seðlabanki, og að bændur komi sjer
upp sveitaverzlunum i smáfjelögum og flytji þang-
að vörurnar og þaðan aptur til aðalkaupstaðanna á
gufubátum eða þá á vögnum þar sem gufubátum
verður ekki komið við. þessir aðalkaupstaðir tækju
þá við nokkru af hlutverki Kaupmannahafnar meir
og meir, eptir sem þeir efldist og bændur við hlut-
verki íslenzku verzlunanna og smáverzlunarstaðanna.
með erlendu fje, en þar sem fjeð er þang-
að dregst allur ágóðinn. Hjer geta menn
verzlað með sínu eigin fje og haft svo all-
an hagnaðinn. þar verða menn að sjá allt
með annara auguin og leggja út í það, sem
menn aldrei geta gjört sjer neina ljósa hug-
mynd um, en hjer geta menn kynnt sjer
allt til hlítar og sjeð sjálfir eptir öllu með
því að hafa þá menn til umsjónar, sem
menn þekkja og trúa, og hjer ér allt svo
einfalt og óbrotið og það sama að mestu
leyti, sem menn eru vanir, svo að menn
þurfa ekki að eiga eins mikið á hættu þó
menn leggi fram fje til þessa. Sumir hafa
reyndar þá ímyndun að það geti ekki orðið
eins ábatasamt að verzla innanlands og
taka dæmi af forfeðrum vorum, sem sóttu
vörur til útlanda, en þeir gæta þess ekki, að
nú er verzlunin erlendis orðin öldungis ólík
því sem hún var þá, og það að hjer eru út-
lendar vörur hjá kaupmönnum optast dýr-
ari, en menn geta fengið þær með því að
panta þær frá útlöndum, sannar öldungis
ekki, að svo mundi verða, ef hingað yrðu
fluttar vörur hver tegund fyrir sig og svo að
miklu numdi á einn stað og keyptar aptur
í dálítið stærri kaupum en nú tíðkast og
einkum, ef þær væru keyptar fyrir borgun
út í hönd. það liggur einnig í eðli hlutar-
ins, að eins og nú er komið með gufuskips-
ferðir og flutninga þá gjöra nokkrar hnatt-
mílur frá eða til, som vörurnar eru fluttar,
ekki mjög mikið til, heldur hitt að mikið
verði flutt að og frá einum stað. Hin önn-
ur mótbára eða efasemi, sem opt heyrist er
sú að sveitaverzlararnir muni verða allt eins
miklir einokarar eins og smákaupmennirnir,
en til þess er auðsvarað, að fyrst og fremst
geta bændur haft sjálfir sveitarverzlunina
og ágóðann, þeir sem leggja fram fje til
verzlunarinnar og hvort sem það eru fjelög
eða einstakir menn, sem hagnaðinn hafa,
þá kemur það aptur sveitunum til hags, og
þær þurfa þess einnig sannarlega víðast
hvar við, svo að hvernig sem það er haft
þá rennur ágóðinn af sveitarverzluninni all-
ur inn til sveitarinnar sjálfrar.
Menn kunna að vantreysta þvf, að gufu-
bátaferðir og sveitaverzlanir geti komizt
hjer á, vegna efnaskorts og fleira, en þessu
þarf ekki að kvíða, ef almenningur á ann-
að borð vill leggja kapp og áhuga á það
með samheldi og fjárframlögum eptir megni
hvers eins. Hreppa- og sýslunefndir þurfa
með beztu manna ráði að koma sjer saman
um það, hvaða hafnir þeim sje héntugastar
og hve margar til þess, að gufubáturinnkomi
við á þeim og skipta sjer eptir því í smá
fjelagsdeildir. Velja sjer deildarstjóra er
gaugast fyrir því, að koma upp hæfilegum
húsum við hafnirnar til að láta vörurnar í,