Ísafold - 20.09.1884, Blaðsíða 2

Ísafold - 20.09.1884, Blaðsíða 2
146 ræðu á þingi; sum fá framgang, ýmist með miklum eða litlum atkvæða mun, sem bezt lýsir samkomulagi eða ósamkomulagi þing- manna; sum eru felld, því fleiri eru á móti þeim; en menu gæta þess opt lítið, hvaða þingmenn það eru, sem málin fella; enda er ekki ætíð svo hægt að sjá það, þegar at- kvæði eru ekki greidd með nafnakalli, því margir tala lítið, sumir alls ekkert í ýmsum málum, og svo er ekki örgrant um að mönn- um virðist éinstöku þingmenn greiða atkvæði í nokkuð óllka stefnu við það, er þeir hafa talað. — Sum málin verða ekki fullrædd fyrir tímaleysi, stundum af því að einstakir þingmenn, sem þeitn eru mótfallnir, reyna til að tefja þau, allt hvað þeir geta; treysti þeir sjer ekki til að fella málið strax bein- línis, þá með því, að koma málinu í nefnd, vekja síðan tvídrægni í nefndinni og stund- um þrídrægni, svo hún sitji yfir málum sem lengst, allt fram undir þinglok, sbr. stjórn- arskrármálið á síðasta þingi. þegar þau málin, sem útrædd verða af þinginu, koma til stjómarinnar, þá virðist mörgum hún samþykkja greiðlegast þau málin, sem minnst sje í varið, en neita hinum, einkum þeim, sem snerta þjóðfrelsi vort og komast í bága við yfirttjórn Dana yfir oss, sbr. afnám amtmannaemb., fjórðungaráðin og presta- kosningarmálið; eða þeim sem snerta at- vinnufrelsi vort, og virðast geta komiðíbága við Dani eða þá, sem orðnir eru eitt með Dönum, svo sem Færeyingar, því sumurn þykir líta svo út, sem að dönskum Islands- ráðgjafa, sem situr við Eyrarsund, só Ólafr pá (Danir) og Ólafur uppá (Færeyingar) eitt og hið sama; sbr. málið um fiskiveiðar í landhelgi frá síðasta þingi. Slíkum málum neitar stjórnin smátt og smátt og sumum máske ekki fyr en komið er undir næsta þing; af því léiðir, að vjer höfum svo lítinn tíma til að búa málin undir þing aptur. En hvernig er varið hinni tvískiptu steínu þingsins? Vjer getum kallað aðra þeirra þjúðstefnu en hina stjórnstefnu. þjóðstefn- an leitast við að efla þjóðfrelsi vort og at- vinnufrelsi. Stjómstefnan virðist lúta að því að draga stjórnfrelsi vort og jafnvel líka atvinnufrelsi sem mest inn undir yfirráð danskrar ráðgjafastjómar, og þó að stjórn- arskráin ákveði Islandi sjerstök landsrétt- indi, þá vill stjórnarstefnan haga þannig löggjöf allra vorra aðalmála og allri fram- kvæmdarstjórninni, að þessi sjerstöku lands rjettindi miðlist oss í framkvæmdinni úr stjúpmóðurhendi hinnar dönsku stjórnar, að nokkuru leyti með ráði hins danska þjóð- þingis. Stjórnarstefnan vill, að í stað þess sem Lslendingar voru áður eins og Danir und- ir dönskum einvöldum kouungi, þá skuli þeir nú og hjer eptir verða háðir danskri ráð- gjafastjórn, og að því leyti líka dönsku þjóð- þingi, eem ráðgjafarnir era því meir eða minna háðir ; en þjóðstefnan vill að vjer sjé- um hvorki háðir danskri ráðgjafasjórn nje dönsku þjóðþingi, heldur að vjer sjeum að eins undir konungi Dana, með því stjórn- arfyrirkomulagi hjer hjá oss, að vjer sjeum jafnfrjálsir með tilliti til vorra sérstöku mála eins og Danir era með tilliti til sinna sjer- stöku mála; þjóðstefnan vill að Islendingar sjeu bróðurlég sambandsþjóð Dana, en ekki undirlægjur þeirra. þegar vér lítum til alþingis, þá ér ekki við öðru að búast, en að þar komi fram báðar þessar stefnur; því svo mun það vera á flestum þingum : hægri og vinstri menn í Danmörku; Torymenn og Viggar á Eng- landi; þjóðstjómarmenn og einvaldssinnar á Frakklandi, þó þar sje nú enginn einvalds- höfðingi. þegar til alþingis er litið, þá virðast hinir konungkjörnu með stjórnarfulltrúanum í broddi fylkingar vera hinir eiginlégu stjóm- arstefnumenn; því þó sumir þeirra sjeu þjóðlega lyndir, þá virðast þeir optast nær vera bundnir í báða skó, og enginn veit jafnvel hvar skórinn kreppir að fætin- um eins og sá sem ber hann. En hinir greindustu og þjóðhollustu af hinum þjóð- kjörnu, fyr meir með Jóni sál. Sigurðssyni í broddi fylkingar, nú fyrirliðalitlir eða fyr- irliðalausir, eru hinir eiginlegu þjóðstefnu- menn. Sumir virðast vera, eins og ætíð má við búast um nokkra, alstaðar og hvergi; og það er þá komið undir dugnaði og lagi stjórnstefnu- og þjóðstefnumanna, má ske stundum undir blindri tilviljun, í hvem flokkinn þessir lausamenn dragast. Meðan Jón sál. Sigurðsson lifði með fullu fjöri, þá voru þjóðstefnumenn greinilegur meiri hluti þings, og þótti þá við ærið ramman reip að draga, því minni hlutinn hafði optast ör- ugga viðspyrnu í stjórninni; en hvað skyldi þá vera, nú þegar stjórnstefuumenn virðast vera orðnir greinilegur meiri hluti þingsins og hafa sömu viðspyrnuna og áður? Af því að allir finna það, að stjórnstefna og þjóðstefna ættu að vera eitt og hið sama, eða að hinir svo nefndu stjórnarmenn og þjóðarmenn ættu að stefna að sama tak- marki, þá munu stjórnstefnumennirnir hugsa og segja: Vjer viljum ekki síður en þjóð- stefnumenn, að þjóðin nái framförum og farsæld. En þeir bæta máske þessu við: Vjer einir og hin danska stjórn erum þess umkomnir að leiða þjóð vora til framfara og farsældar, því vjer einir kunnum stjórn- fræði og hagfræði, og þessar vísindagreinir eru svo háfleygar, að þær eru ekki meðfæri almenuiugs, því það liggur stundum nærri að vjer sjálfir ekki skiljum þessa háfleygu speki, eins og hún hefir í sumum atriðum myndazt í höfðinu á Dönum viðvíkjandi Is- landi; en þegar skilninginn þannig skorta fer, þeir skrafa í hljóði: Vjer skiljum ekki, vjer trúum; vjerviljum ekki, vjer hlýðum, því hlýðnin og trúmennskan eru vorar meg- inlífsreglur, og heiðurinn, sem þeim fylgir, vort eptiræskta hnoss.—Jeg þykist ekki hafa neinn rjett til að ætla annað, en að slíkir menn vilji þjóðinni vel; en mjer virð- ist þeir álíta það hættuspil fyrir almenning að hnýsast inn í hinn háfleyga leyndardóm stjórnfræðinnar, þeir virðast álíta þá menn stofna þjóðinni í hættu, sem upp hafa lokið og upp vilja ljúka fyrir alþýðu hinni lengi lokuðu bók stjórnarathafnanna; því, segja þeir, síðan alþýða fór að lesa í bók þessari, hafa ýmsir, sem áður þóttust vera frjálsir og fullsælir, farið að álíta sig ófrjálsa og vansæla, síðan hefir stjórnin og vjer, sem settir höfum verið við stjórntaumana, átt í harða höggi að halda í rjettu horfi, því frekið verður hinum fáfróða lýð að sjálf- ræði; og þetta hefir valdið nokkurri misklíð milli stjórnstefnunnar og þjóðstefnunnar, og af því hefir leitt, að stjórnin og stjórnar- sinnar hafa álitið þá, sem upp höfðu lokið og upp vildu ljúka hinni lokuðu bók stjórn- arathafnanna, nokkurs konar æsingamenn ; en þetta álit ætla jeg miður rjett og miður þjóðhollt. Fyrst nú bók þessari er einu sinni lokið upp og þjóðin lærir að lesa línurnar og sumir máske milli línanna, þá ætla jeg hollast að hvetja alþýðu til að halda áfram að lesa, og að lesa rækilega. Jeg álít það skyldu hvers manns, sem um það er fær, að hvort sem hann er kallaður stjórnstefnu- eða þjóðstefnumaður, að leiðbeina alþýðu í þessum lestri og koma henni í sem rjett- astan skilning á því sem hún les. þeir menn, sem þannig leitast við að leiðbeina alþýðu manna, virðast eiga allt annað skilið en að vera álitnir og kallaðir æsingamenn, því slík viðleitni mundi verða til að sefa én ekki til að æsa; þá mundu stjórnstefnu- og þjóðstefnumenn smátt og smátt koma sjer æ betur og betur saman, ekki að eins um takmarkið, sem þeir stefna að, heldur og um aðferðina til að ná þessu takmarki. Að þessu mundi það styðja meðal annars, ef menn gætu almennt fengið sem rjettasta skoðun á stjórninni og þinginu, á verksviði þeirra hvérs fyrir sig og sameiginlegum störfum þeirra og þeim áhrifum, sem þau hljóta og eiga að hafa hvert á annað. þegar menn tala hjer um stjórnina og og þingið, þá virðist opt svo, sem menn ætl- ist til að þingið hafi fyrirleikinn að flestu því, sem þjóðinni horfir til framfara. Sum-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.