Ísafold - 12.11.1884, Side 4
180
til að hagnýta sjer hann að neinu ráði.
f>ar sem hans þurfti helzt við, og hægast
var að ná til hans og nema af honum, gat
hann ekki komizt að, af því að þar voru
hinir innlendu vegagjörðasnillingar fastráðn-
ir fyrir og þurftu að afla sjer fjár og frama
eitt sumarið enn. Niðurstaðan varð þá sú,
að hann var sendur út á landshorn og lát-
inn dunda þar við lítinn vegarspotta, með fá-
einum hræðum.er Joru fengnar að föngum til,
sinn maðurinn hvern daginn,þegar þeir höfðu
ekki annað að stunda, og sem ekki skildu
hinn útlenda mann. í stað þess að fá hon-
um valið lið, svo margt, sem efni leyfðu,
saman safnað úr öllum landsins fjórðung-
um, til þess að leiðbeiningin yrði sem bezt
notuð og kunnáttan dreifðist sem allra-víð-
ast undir eins, eptir því sem kostur var á.
Hinum norska vegfræðing—hann hjet Hov-
denak—bæði blöskraði og sárnaði þessi ráðs-
ménnska svo mjög,að hann vildi eigi gefa kost
á sjer optar hingað til lands til slíkra hluta.
Hann var ötull maður, vel að sjer og sam-
vizkusamur, og undi því mjög illa, að för
hans hafði borið hálfu minni ávöxt en til
var ætlazt, þótt öðrum væri um að kenna.
Fjarri fór því samt sem áður, að för hans
yrði árangurslaus. þessir vegarspottar, sem
hann gerði, báru langt af því, sem sjezt
hafði áður hjer á landi. þeir voru lausir
við óþarfa-hlykki og mishæðir, með vel-
gjörðum rennum á báðar hliðar. Voru
því hálfu greiðfærari fyrir það og vörð-
ust miklu betur skemmdum. En það sem
mest var í varið, var það, að þessi fyrsti
norski vegfræðingur, er hjer vann að vega-
gjörð, tók fyrir sig þegar í upphafi að
hafa vegina eigi brattari en svo, og þannig
gerða að öðru leyti, að vel mætti koma þar
við vagni. Aður hafði h'tið verið hugsað
um að forðast miklar brekkur. Menn vor-
kenndu ekki mikið lungunum í skepnunum.
Og að hugsa til að hafa hjer vagnvegi, þótti
þá slíkt stórræði, að það væri eigi takandi
í mál. því hefir orðið að gera að nýju nær
alla vegi, sem lagðir voru hjer á landi fyrstu
10—12 árin framan af.
(Niðurlag).
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m. smáletii kosta 2 a. (Jakkaráv. 3 a.) hverl orí 15 stala trekasl
m. ö3ru lelri eía setoinj 1 kr. fjnr jmmlnnj dálks-lenjiar. Borjun út i hönd.
pareð innköllnn skulda með rjettarfari er
óþcegileg og kosnaðarsöm fyrir hlutaðeigendur
þá vil jeg hjermeð leyfa mjer ennþá einusinni
að skora á þá sem ekJci hokið skuldum sínum
til verzlunar »The Icelandic Trad. Co«. að
borga þoer sem fyrst og bið jeg þá sem eru hjer
i Beykjavík og í nágrenninu að gjöra það i
þessum mánuði áður enn nœsta póstskip fer,
svo komist verði hjá málaferlum.
Innskript í reikning minn hjá kaupmönn.
um hjer í bœnum er gild borgun.
Beykjavík 11. nóvember 1884.
G. E. Briem.
Fram að komu næsta póstskips verður i
Glasgow selt saltkjöt og tólgur í tunnum og
smávigtum.
Reykjavík u/n 84. G. E. Briem.
Nœstkomandi viku, frá 12. —18. yfir-
standandi nóvembermán. verða, móti pen-
ingum, seldar í Glasgow hjer í bœnum ýms-
ar útlendar vórur með niðursettu verði, þar
á meðal: hvít Ijerept og ýms önnur álnavara,
nœrfatnaður kvenna ýmislegur, karlmanns-
fatnaður og reiðfrakkar, milliskyrtur og
hálsbúnaður, línlök og ullarteppi, hvít glugga-
tjöld, baðhandklœði og klútar, silki- og bóm-
ullartvinni, heklugam, bómullargarn og ull-
arband, hvítir bendlar, svört bönd, teygju-
bönd og kantabönd, línsterkja, hveiti i smá-
pökkum (corn flour), nBrusepulveu, ýmislegt
niðursoðið, hvítt sykur niðurhöggvið í tunn-
um fyrir 30 aura pundið, í 20 punda vigt 32
aura p., púðursykur hvitt 28 — 30 a. p., te-
gras 1 kr. p., sútað leður, þakskrúfur, báts-
hakar, og keipar, saumavjelar, nálar, hnapp-
ar og tölur, ritföng ýmísleg.
Enn fremur er til sölu :
Haframjel, hrísgrjón, klofnar ertur, hvítar
baunir, bygg og aðrar fóðurtegundir, járnrúm
með dýnum, Ijáblöð, önglar, netagam, járn-
katlar, pönnur, blikkvörur ýmsar, leirvörur
og glervörur, jám, stál, jámþynna, amboltar,
smiðakol, leirrörfrá 4 —18" í þvermál, múr-
steinn eldfastur, kalk, munntóbak, neftóbak,
kandissykur, gamalostur, nMarmelade«, Pick-
lesn og fl. —
Reykjavík u/n 84. G. E. Briem.
Lögtak.
Uborguð bæjargjöld fyrir árið 1884 verða
tekin lögtaki, sjeu þau eigi greidd innan 8
daga.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 5. nóvember 1884.
E. Th. Jónassen.
Undirskrifaður býðst til að útvega harmoníum
af ýmsri gerð frá þýzkalandi, Frakklandi og
Ameríku fyrir lægra verð, en menn hafa átt
kost á hingað til. Myndir af harmonium hefi
jeg til sýnis.
Reykjavík hinn M/„ 84.
Björn Kristjánsson.
Eg nndirskrifaður leyfi mjer að gjöra kunnugt
að jeg get útvegað íslenzkum sjúklingum, hvort sem
þeir þjást af langvinnum eða skammvinnum sjúk
dómi, aðgöngu að sjúkrahúsinu i Edinburgh, svo
þeir fái þar læknahjálp hjá háskólakennurunum i
læknisfræði, meðul, aðhjúkrun og fæði, meðan þeir
eru á sjúkrahúsinu, án nokkurrar borgunar. Sjúk-
lingurinn þarf aðeins að snúa sjer til mín, þegar
hann kemur i Leith eða Granton. Ef sjúklingur-
inn hefir verið undir hendi íslenzks iæknis áður
en hann fór frá íslandi, þá ætti hinn að hafa
skýrslu frá honum um nppruna, eðli og ýms atvik
sjúkdómsins. þó er þetta ekki alveg nauðsynlegt,
þvf að menn geta fengið aðgöngu að sjúkrahúsinu
án nokkurs læknisvottorðs. Sjúklingurinn getur ver-
ið á sjúkrahúsinu, þangað til hann annaðhvort er
heilbrigður eða hann er talinn ólæknandi.
Seafield Villa ,M 2. H. 0. Fischer.
Leith.
Fræðandi og skemmtandi.
Við undirskrifaðir leyfum okkur að tilkynna hin-
um heiðruðu bæjarbúum, ásamt ferðamönnum er
koma til Reykjavíkur, að við munum sýna, ef
nægileg aðsókn verður, kl. 8 hvert laugardags- og
sunnudagskvöld fyrst um sinn
fallega
Panorama
eða myndasýningu í hinum nýja sal hjá kaupmanni
þorláki Ó. Johnson.
Helztu myndirnar sem sýndar veröa eru:
frá Edinborg, París, írlandi, ítaliu (þar á
meðal rústirnar af Pompeii), Afríku, Ameríku
(Niagarafossinn), egipzka stríðið seinasta
(brend Alexandría),
ýmsar skemmtilegar og hlœgilegar myndir
fyrir bórn
t. d. litli Tumi, er átti að taka mynd af.
Einnig
ýmsar myndir frá íslandi
svo sem:
ýúngvelli, Almannagjá, fossinn í Almanna-
gjá, Strokk að gjósa, Gullfoss, Brúará, Hvítá
í Borgarfirði, Leirá, Hvítárvelli, Barna-
foss, Hvalfjarðarbotn, Reykjavík (ýmsar mynd-
ir), höfnina x Reykjavík.^forngripasafnið að
innan o. fl.
Jafnvel þó salurinn, sem myndirnar eru sýndar i
sje ekki stór, hefir hann þó það til sins ágætis, að
hann stendur ekki í sambandivið neinar veitingar,
er svo margir hafa á móti, og vonum við þvi, að
þessar kvöldskemtanir verði vel sóttar.
Á hverju kveldi verða sýndar 50 myndir, og má
það heita ódýr skemtuu að sjá hveija mynd fyrir
1 eyri.
Bílætin verða seld af herra bóksala Kr. Ó. J>or-
grimssyni og kaupmanni þorl. Ó. Johnson frá kl.
12 —7 (snnnud. 4—7) sama dag sem myndirnar eru
sýndar.
Bilætið fyrir fullorðinn 50 aura dag hvern.
do. fyrir börn 25 — —
Virðingarfyllst
porl. 0. Johnson. Sigfús Eymundarson.
Barnalærdómskver Helga Hálfdánarsonar
fæst hjá mér undirskrifuðum og hjá þeim bóksöl-
um á íslandi, sem ég hef viðskifti við, sér l lagi
hjá póstmeistara Ó. Finsen i Reykjavík og bóksala
Kristjáni Ó. þorgrímssyni sama staðar. Kverið
kostar innbundið i sterkt band 60 aura, i materíu
45 aura.
Gyldendals bókaverzlun í Kaupmannahöfn.
tGs* Nærsveitamenn eru beðnir að vitja
ísafoldar á afgreiðslustofu hennar, sem er
í ísafoldarprentsmiðju, við Bakarastíginn,
1. sal.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.