Ísafold - 08.09.1886, Blaðsíða 3

Ísafold - 08.09.1886, Blaðsíða 3
147 þeim skilmálum, sem hann vildi, þrátt fyrir mikla rekistefnu og legáta-sendifarir til ritstjóra' Isafoldar, — legátarnir hafa sett nokkurs konar nótaríal-vottorð frá sjálfum sjer neðan á vott- orð doktorsins. Fjórði nefndarmaður, Benidikt Sveinsson, hefir ekki viljað skrifa undir þetta vottorð, heldur sett neðan.undir, að hann geti ekki „hermt“ [staðhœft eða svarið] sök upp á. doktorinn í þessu efni. En hjá hinum hefir ekkert fengizt. J>að er vissulega ekki ómaksins vert, að fara i langa röksemdastælu út úr ekki merkilegra efni en þessu. Hjer skal að eins hent á, að það er ekki mikið sagt með því, þó svo væri, að formaður nefndarinnar hafi haft nefndar- fundi, ,,þegar Jundar/œrt var“ (hvað gerði hann til þess, að fundarfært yrði ?), og í annan stað mun almenningur geta gengið nægilega úr skugga um, hvernig mál þetta muni vaxið, á eptirfarandi skýrslu frá einum höfuðmanninum i nefndinni : Eptir áskorun yðar, herra ritstjóri, viðvíkjandi ummælum yðar í ísafold í vetur um frammi- stöðu Dr. (irríms Thomsens sem formanns í stjórnarskrárnefndinni 1883, skal jeg lýsa því yfir, að jeg get alls eigi neitað þvi, að mjer fannst honum sem formanni hefði verið innan handar að láta málið ganga mikið greiðlegar áfram í nefndinni en það gekk, bæði með því að áminna þá nefndarmenn, sem ekki sóttu fundi hvað eptir annað, að rækja betur skyldu sína, og eins með því, að snúa sjer til forseta neðri deildar, ef hitt hefði eigi reynzt einhlítt. fetta get jeg því síður dregið dulur á gagnvart á- skorun yðar, sem jeg verð að viðurkenna, að jeg man eptir því, að jeg í samtali við yður, herra ritstjóri, ljet í ljósi megnan kvíða og óá- nægju mína yfir, að þetta gæti stuðlað til þess, að málið dagaði uppi á þinginu, eins og raun varð á. p. t. Reykjavík 26. ágúst 1886. B. Sveimson. ritstjóra „ísafoldar“. Sálinasafn yfir guðspjiill allra sunnu- og helgidaga, svo og við missiraskipti, eptir Pjetur prest Guðmundsson í Grimsey. J>etta sálmasafn er, að því er jeg veit til, hin fyrsta ritsmíð, sem sjezt hefir á prenti frá þessari nyrztu og afskekktustu byggð vors lands, og þótt það ekkert annað hefði til síns ágætis, væri það atvik nóg til þess að vekja á þvi eptirtekt manna. HöfundurinD, sjera Pjetur, er og þess verður, að riti hans eða ritum væri gaum- ur gefinn, bæði fyrir þá sök, að hann er áður kunnur sem merkur klerkur og sálma- skáld, og fyrir því, að flestum mun eins og furða þykja, að nokkur Grímseyjar- prestur skuli fást við ritsmíðar, listir og vísindi. Enda hafa útlendingar, sem kom- ið hafa við eyna síðan sjera Pjetur fluttist þangað (1868), borið honum svo sögu, sem þeir hafi síður en ekki búizt við að hitta þar mann með hans menntun og mann- kostum. En auk þessa verður hver maður, sem yfir fer nefnda sálma, að játa, að þeir sjeu í sjálfum sjer þess verðir, að þeirra sje minnzt í blöðum eða bókatíðindum. Safnið inniheldur 223 sálma og einstök vers. Jeg skal játa, að jeg hefi að eins fljótlega lesið þetta safn, get því ekki samið, nje vil seinja ítarlegan ritdóm um það, en þar aðrir þegja, vil jeg segja f fám orðum, hvernig mjer geðjast að því. Jeg hafði mjög lítið blaðað í kverinu áð- ur en jeg þóttist sjá það, sem þeir líka bera með sjer, að hvorki búningur sálma þessara nje efni muni falla anda vorra tíma vel í geð, enda er auðsjeð, að tízkan eða alþýðuhyllin hefir ekki verið aðal-mark og mið höfundarins. Hann hefir orkt eptir eiginni hvöt og eptir sjálfs sín hugsjón. Hvað búning eða brag- og söngháttu sálmanna snertir, er það merkilegt, að höf. hefir alls engan jambislcan hátt í öllu kver- inu1, sem hefir 80 lög eða háttu; hins vegar hefir höf. sjálfur myndað nálægt 30 söngbragháttu, og að eins notað 20 lög, sem finnast í sálmabókum hjer á landi. þessa einþykknis-stefna höf. (að forðast jambiska háttu), hefir valdið honum mikilla umsvifa og baráttu. Sjera Pjetur vandar mjög mál og kveðandi, og er optlega bæði orðhagur og gagnorður, en tjeð stefna hans eða fyrir- tekt hefir þó auðsjáanlega tafið hann mjög í kveðskapnum, og,— það sem lakara er — truflað blæ, anda og meðferð efnisins. Að smíða sjálfur form eða háttu sálma, er tor- velt verk og seinlegt, og, að minni ætlun, nálega óvinnandi fyrir aðra en þá, sem sjálfir hugsa lagið eða sönginn jafnóðum og þeir hugsa orð og efni. 011 lyrik skapast eðlilegast gegnum söng, en nú eiga sálmar (hymnar) að vera hin hreinustu og hrifnustu söngljóð. Samt sem áður eru sálmar Pjet- urs á sinn hátt dável kveðnir, og sumir að búningnum til meðal vorra smellnustu sálma. Torveldir og miður viðkunnanlegir eru ekki fáir hættir eða sálmar, svo sem nr. 51, 95, 130, 135,153, 149, 194 (þó furðu- vel sje kveðnir), og 212. Annar galli á formi sálmanna er sá, að þeir eru flestir of langir. Af braglýtum og smekkleys- um finnst aptur ótrúlega fátt. Sálmarnir eru hvað efnið snertir mjög fornlegir, bæði í þessa orðs betri og lakari merking. í betri þýðing orðsins eru þeir flestir fornlegir að biflíulegri trú og ein- faldri guðrækni, en í lakari merkingunni eru þeir margir fornir í anda hvað fátækt nýrri hugmynda og andríkis snertir. |>eir 1) Rök fyrir þeirri stefnu sinni tilfærir höf- undur í formála kversins. þau fellst jeg alls ekki á. eru að vísu margir gáfulegir á sinn hátt, en fjöldi þeirra nær ekki lengra en að mega heita guðspjalla-skýringar í ljóðum. Lær- dómsríkir í gömlum skilningi, eða uppbyggi- legir, eru sálmárnir nr. 4, 21, 31, 54, 57, 60, 69, 70, 84, 85, W6, 118, 125, 149, 152, 161, 170, 191, 200, o. fl. Fallegir Dýir hættir þykja mjer nokkrir, helzt nr. 23 (nema of dýrt kveðinn), 42, 45, 98, 164. Versin eru flest ljettmeti; bálfleygi, hiti og skörp tilhrif eru ekki skáldeinkunnir höfund. þ>ó eru lagleg versin nr. 25, 56, 80, 163 og 169. Hverjir eru þá kostir þessa sálmasafns? J>eir eru fyrst og fremst: ekki fáir góðir og velortir sálmar eða kaflar og vers úr sálm- um, því sakir lengdarinnar og þess, að höfund. er ekki hrifið skáld, heldur hugs- andi, eru fáir sálmarnir jafn-góðir frá upp- hafi til enda. Af góðum sálmum vil jeg sjerstaklega nefna nr. 29, 42, 45, 66, 78, 79, 81, 88, 158, 159, 164, 167, 182, 185, 195, 206, 215, 221. Nr. 132, 144 og 141 og fl. hafa og margt gott að bjóða. Kostir sálma sjera Pjeturs er einkennileg fegurð, fegurð meðfædds og óbrjálaðs skarpleiks, sem bæði kemur fram í orðfæri (diction) og efni eða röksemdum, þótt hans röksemdaleiðsla sæki opt dæmi sín of langt, einkum til hins gamla testamentis. Onnur fegurð sálmanna er fegurð hjartans, hins hreina hjarta; sú fegurð er sálmanna góði engill, og þeim, sem verða hennar varir, mun þykja mest í þá varið. f>að er fegurð barnanna, sem frelsarinn hefir blessað og knjesett. — Eius og áður er sagt: sökum hins fornlega og einræna forms rnun safnið varla verða alþýðu-kver, en hins væntir mig, að það muni með tíð og tíma ávinna sjer ekki svo fáa vini. Sálmarnir leyna kostum. Á sinn hátt eru þeir mikið hugsunarverk, sem ber vott um elju og táp þess manns, sem ytzt á bekk í hinni sýnilegu kristni hafði ungur einráðið að helga guðsríki hjarta sitt og viðleitni. Sálmar þessir eru Pjeturs- kirkja, byggð norður í hinni eyðilegu Gríms- ey, harðla ólík þeirri, sem þeir Leó hinn 10. og Júlíus 2. reistu í Rómaborg, en þó hafa báðar sína hagleiks fegurð, og eru báðar byggðar fyrir Pjeturs peninga, sú í Rómaborg fyrir skattpeninga postulans, en hin fyrir 1000 kr. úr vasa höfundarins. Hver mun hærri og hreinni frá himnum að sjá? (Matth. Joch.). •Nokkur orð um frakkneska fiski- menn«. Eptir því sem lesa má 1 rjettar- prófum þeim, er haldin voru yfir hásetum Tómasar í Gerðakoti eptir slysið 7. apríl, bæði af bæjarfógetanum í Reykjavík og af sýslumanninum í Gullbringu- og Kjósar-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.