Ísafold - 09.02.1887, Side 3

Ísafold - 09.02.1887, Side 3
þess verða, að rjófa vináttusambandið við Bússland. Ekki get jeg heldur trúað því, að Eússland ráðist á oss, eða að það ríki sje að leitast við að fá komið á ríkjasam- bandi gegn oss. Oss má, standa alveg á sama, hvað um Búlgaríu verður, eða hver þar ríkir. Jeg tek það upp aptur, sem jeg hefi þegar sagt fyrri: allt austræna málið er oss ekki svo mikils virði, að fyrir það sje leggjandi í sölur bein eins einasta »grena- diers« [einvala-liðsmanns] frá Pommern. Enginn þarf að ætla, að vjer látum draga snöru oss að hálsi til að fá oss teygða frá Bússlandi. Vinátta Bússlands er oss miklu meira virði en vinátta Búlgaríu og hennar vina hjer í landi. Vandinn að fá viðhaldið friðnum liggur í sambandi Bússlands og Austurríkis, og vort starf og viðleitni er, að reyna að miðla þar málum og jafna niður hagsmunastríði beggja velda. þetta er vandaverk, og hætt við, að Austurríki, en einkum þó Ungam, þyki vjer draga taum Bússlands um of, og að Bússlandi þyki vjer halda fram hófi framar hluta Austurríkis. En vjer verðum að halda fram uppteknum hætti og eiga slíka dóma á hættu. En þar er til Frakklands kemur, verð jeg að játa, að oss hefir eigi lánazt að ná sama sáttarsambandi við það land eins og við Austurríki .... Oss dettur ekki í hug, að hefja styrjöld á hendur Frökkum. Jeg var lengi í efa, hvort jeg ætti að taka (kastalaborgina) Metz 1871; en þegar menn sem vit höfðu á hermálum, töldu mjer trú um, að Metz væri hundraðþúsund manna virði í ófriði síðar meir, sagði jeg við sjálf- an mig — þá tökum við hana. [Hlátur]. En bvað getum vjer nú tekið frá Frakk- landi ? það hefir ekkert að bjóða, er oss geti leikið hugur á; og hver sem segir, að vjer búum yfir herhlaupi á Frakkland, hann lýgur. Gleymið eigi því, að á Frakklandi er það minni hluti, en ekki meiri hluti, er úr málum sker. Jeg veit það, að sú stjórn, er nú situr að völdum, eins og stjórn Frey- cinets og Ferrys, er friðlynd; en hver getur sagt fyrir, hver að völdum kunni að sitja þar eptir 24 klukkustundir? Jeg held að þar að reki, að vjer megum til að eiga ófrið við Frakkland. Jeg get ekki sagt, hvort það muni verða innan tíu daga eða tíu ára. það er undir því komið, hvað lengi þessi stjórn situr að völdum, sem nú er. þegar nú málið er þannig úfað, get jeg enga vissu von gefið um frið. 011 orð mín í þá átt yrðu þýðingarlaust mál. Haf- ið þjer nokkurn tíma heyrt nokkurn frakk- neskan ráðherra segja: »Vjer beygjum oss fyrir því sem orðið er og afsöium oss öllu tilkalli til Elsass-Lothrmgen ?« Hættan, sem yfir vofir af Frakklands hálfu, er ástæðan fyrir því, að þetta frum- varp er borið upp. Gætið að, hvílíkt böl ófriðurinn við Frakkland hefir í för með sjer, og þessu böli verður ef til vill undan stýrt eða skotið á frest um langan tíma með því að samþykkja frumvarpið; því ófriðurinn hefst jafnskjótt sem Frakk- land hyggur sig munu hafa við oss. Und- ir eins og Frakkar halda, að þeir hafi meira lið, fullkomnari byssur eða betra púður en vjer, þá byrjar ófriðurinn að vörmu spori. Að vjer munum bera lægra hluta í slík- um ófriði, held jeg nú ekki; en hættan er mikil, og er hershöfðingjar vorir, sem ekki kunna að hræðast, segja afdráttar- laust, að oss sje nauðsynlegt að auka her vorn, þá þarf hug til að mótmæla því. Frakkland er auðugt land ogvoldugt,og vjer megum vara oss á að gera of lítið úr því. það er ekki nóg, þótt vjer nöfum sigrazt á Frakklandi einu sinni ; vjer verðum að búa svo um, að vjer getum öruggir ábyrgzt oss nýjan sigur. Ef Frakkland sigrast á oss, munu hinar sömu hörmungar yfir oss ganga sem 1807. Elzass-Lothringen mundi verða tekið frá oss og Bínarlöndin, kon- ungsríkið Hannóver sett á stofn aptur, og vjer pmdir til hins síðasta blóðdropa. i Neyðumst vjer aptur á móti til ófriðar [ við Frakkland, og komumst vjer þá til Par- J ísar aptur, þá munum vjer ekki heldur I fara vægilega, heldur ganga svo frá, að j j Frakkland geti ekkert illt af sjer gert hinn j næsta mannsaldur. Friðurinn, sem saminn var 1871, yrði barnaleikur í samanburði við friðarsamn- inginn segjum t. a. m. 1890«. Aldrei þykir Bismarck hafa orð bermálli á þingi en nú, aldrei voðalegri í rödd, nje ófrýnni álits. Níu kollur af köldu »groggi« j tæmdi karlinn meðan hann ljet dæluna ganga. En þrátt fyrir allar fortölur hans,Moltkes og hermála-ráðgjafans, felldi ríkisdagurinn frumvarp stjórnarinnar 14. jan., með því að samþykkja, að lögin skyldu ná að eins til þriggja ára, og sleit þá Bismarck þingi í fundarlok og boðaði til kosninga 21. febrúar. þykir mönnum helzt líkur til, að glímuskjálfti taki nú þjóðverja, svo að! Bismarck fái öflugan meirihluta með sjer I á þingi, og hafi fram mál sitt eins og honum líkar. Bendingar um hagnýtingu hunaóarstyrksins ur landssjcði. (Niðurlag). Víða mun nokkrum hluta styrksins vera varið til að launa búfræðingum, sem ferð- ast um á sumrum til að leiðbeina mönn- um. En ekki er kunnugt, að það sje nein venja, að fela þeim aðrar erindagjörð- ir en þær: að koma til þeirra bænda, sem beiðast þess, skoða það sem borið er und- ir álit þeirra og leiðbeina í þeim efnum, sem þeir eru spurðir um. þetta er þó ekki nema önnur hliðin af gagni því, er þeir gætu gert og ættu að gera með því, að ferðast um hjeröðin. Jafnframt ætti að fela þeim, að afla sjer kunnngleika um ásigkomulag sem flestra jarða í sveitum þeim, er þeir ferðast um, aðgæta í hverju þær geta einkum tekið umbótum, halda bók yfir það og skýra frá því, eigi að eins hlutaðeigendum munn- lega, heldur og opinberlega í skýrslum, sem prenta ætti, t. a. m. í búnaðarriti. Auðvitað er, að eigi getur einn maður afkastað miklu á stuttum tíma í þessu efni; en komist þetta á rekspöl, mætti með góðri alúð gera mikið með tímanum. það er líka í von, að búnaðarskólarnir fari bráðum að fjölga búfræðingum og þá verður fleirum á að skipa. Gagnið af þess gæti orðið ómetanlegt: með því mætti safna góðum fjársjóði þekkingar á þvi, hvað helzt má vérða til eflingar búnaði á þeim og þeim stað, og á því, hver framfaravon landsins er yfir höfuð. Sú hvöt og sú leiðbeining, sem með þessu fengist, gæti orðið einhver bezta framfara-undirstaða. það segir sig sjálft, að hjer er gjört ráð fyrir, að búfræðingarnir sjeu menn »prakt- iskir«, er jöfnum höndum kunni að nota sínar eigin athuganir og reynslu greindra búmanna, og sjeu færir um að draga þar af heppilegar ályktanir. En það segir sig bka sjálft, að verk þeirra verður sífellt að standa til bóta, því heldur sem eigi verð- ur gert ráð fyrir öðru, en að til þess verði jafnan að eins litlu fje varið, þar eð svo margt og mikið annað er við búnaðar- styrkinn að gera. Br. J. Nokkrar athugasemdir um alþýðumenntunarmálið. Eptir al|iingÍ8tn. Jakob Guðmundsson. V. (Niöurl.). A þingi eru líka einbættismenn, sem margir hverjir eru frjálslyndir og þjóðlegir framfaramenn, og sem opt hafa gjört sjer far um að fá alþýðu manna í lið með sjer, til að efla margt það, sem til fram- fara og þjóðþrifa miðaði, en sem opt hafa, ekki síður en framfarabændurnir, átt um sárt að binda, einmitt vegna þess, hvað meiri hluti alþýðunnar hefur verið sljófskyggn að sjá, hvað til sannarlegs þjóð- frekis og þjóðþrifa horfði, og það einmitt vegna menntunarleysis. A þinginu eru líka nokkrir menn, sem hafa tekið sjer þá stöðu, að vera, jeg vil ekki segja ófrjáls- lyndir apturhaldsmenn, heldur vareygðar- samir íhaldsmenn, sem reynt hafa að halda j því föstu og óbreyttu, sem verið hefir, með-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.