Ísafold - 02.11.1887, Blaðsíða 4

Ísafold - 02.11.1887, Blaðsíða 4
204 sinni, er nágrannaþjóðirnar rjeðust á hana og legðu hana að velli. Svo hart er þessi hnútur riðinn. Og hann harðnar æ því meir, þangað til sá sannleikur er búinn að ryðja sjer til rúms, að það gildi ekki annað siðferðislögmál fyrir þjóðirnar heldur en fyrir einstaka menn. Ný og mikil styrjöld gerir ekki annað en að auka hefndarhuginn og við- búnaðar-þrautina undir næsta ófrið. þegar ríkin eða rjettara sagt þjóðirnar, eins hmar lægri sem hinir æðri, telja það skyldu sína og sóma sinn, að sleppa því, sem þær eiga ekki með rjettu, og að taka ekki það sem aðr- ir eiga,—þá, en fyr ekki, er skálmöldin und- ir lok liðin. Handalögmálið verður aldrei til annars en þess, að álögurnar verði æ þyngri og þyngri, sem ínenn bera og verða að bera, þangað til loks tekst að innræta það hugarfar öllum einstökum mönnum, að það er lítill frami, að eiga ræningjabæli fyrir föðurland, en hitt mikið lán, að eiga rjett- láta óðalstorð. (»Yerdens Gang» 3. sept. 1887). Hitt og þetta. 600,000 manna afl. pað er í frásögur fært og þykir firrmrm sæta, að fornkonungurinn Keops á Egiptalandi hafði 30,000 manna til að hlaða hinn mikla steinvarða (pýramída), sem við hanu er kenndur. En ekki er það mikið á borð við mannafla þann, er Ferdinand Less- eps, hinn nafntogaði stórvirkjameistari Frakka, höfundur Súez-skurðar, þarf á að halda til að grafa sundur eiðið við Panama, eða, rjettara sagt, mundi þurfa á að halda, ef ailt skyldi vii.na með manna höndum. Mestur hluti þess er unnið með vinnuvjelum margvíslegum, með samtals 57,400 hesta afli, en það er sama sem 574,000 manna afl, því að hestaflið í vinnuvjel- um er talið jafnt 10 manna afli. En þar að auki hefir hann þar í vinnu 20,000 manna með holdi og blóði. það verður nær 600,000 manna afl! „En af hverju veiztu þá, Stína mín, að hon- um Jóni líztáþig? Hefir hann sagt þjer það?“ —„Nei, mamma; en þú ættir bara að sjá, hvernig hann horfir á mig, þegar jeg veit ekki af“. l'veir hreppsnefndarmenn voru að kýta. „þjer ferst um að tala“, sagði Jón; „þú sem aldrei hefir lokið upp munni í nefndinni“. „Ekki er það satt“ segir Guðmundur, „jeg hefi geispað, þegar þú hefir verið að halda löngu ræðurnar“. Bakarabrauðin. Herra ritstjóri! Mjer væri talsverð þægð i, að þjer vilduð gjöra svo vel að votta það, sem er, að jeg er ekkert viðriðin nje á hinn minnsta þátt i grein þeirri, er stóð í ísafold 2í. f. mán. um „bakarabrauðinu. f>að er ekki af því, að jeg sje ósamþykk þvi, sem þar stendur, beldur hitt, að jeg vil ekki láta eigna mjer það, sem jeg ekki á, en það heíir náunginn fundið upp á að gjöra með grein þessa, líklega vegna nábýlis míns við einn af bökurunum. p. t. Reykjavík 20. okt. 1887. Sigríður Einarsdóttir frá Cambridge. * ♦ * Hið umbeðna vottorð veilist hjer með. Bitstj. AUGLÝ SINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útíhönd IS" Jarðarför frú Kristínar Briera fer fram næstkomandi föstudag kl. 12. Samkvœmt lögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. jan 1861 er hjermeð skorað á aUa bá, er telja tit skulda i dánarbúi Jóns Sig- urðssonar á Bauðsgili í Hálsasveit, er and- aðist 2. maí þ. á., að koma fram með kröf- ur sínar og sanna fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá siðustu birtingu þessarar auglýsingar. Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðars. 24. sept 1887. Sigurður J»órðarson. Skiptafundur. Fimmtudaginn hinn 10. nóv. nœstkom. kl. 12\ e. h. verður í þinghúsinu í Hafn- arfirði haldinn skiptafundur i búi Sigurðar sál. Guðmundssonar á Knararnesi i Vatns- leysustrandarhreppi, er andaðist hinn f f 1884, og Jóns sál. Magnússonar í Suðurkoti í sama hreppi, er andaðist hinn 26. sept. f. á. A fundi þessurn verður lagt fram yfir- lit yfir tekjur og skuldir búa þessara og tekin ákvörðun viðvíkjandi þeim. Skrifstofu Kjósar- og Gulibringus. 29. okt. 1887. Franz Siemsen. Fundarboð. Föstudaginn hinn 11. dag nóvembrmán. nœstkom. kl. 11. f. h. vcrður almennur fundur haldinn i Good-Templara-húsinu i Hafnarfirði, fyrir Kjalarneshrepp (frá Kjal- arnestöngum að Leirvogsá), Beykjavík, Sel- tjarnarneshrepp, Bessastaðahrepp, Garða- hrepp, Vatnsleysustrandarhrepp og Bosm- livalaneshrepp til þéss að ræða og greiða at- kvæði um frumvarp til samþykktar um notkun ýsulóðar á svæðinu frá Kjalarnes- töngum suður að Garðskaga, og verður á sama fundi rœtt um frumvarp til samþykkt- ar um breyting á samþykkt fyrir Bosmhvala- neshrepp, Vatnsleysustrandar-, Garða- og Bessastaðahreppa um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum, staðfestri 9. júní 1885, er samþykkt var á síðasta fundi sýslunefndarinnar l Kjósar- og Gullbringu- sýslu hinn 21. þ. m, Atkvæðisrjett áfund- inum eiga allir í því hjeraði, sem œtlazt er til að hvor samþykkt nái yfir, þeir, er kosn- ingarrjett hafa til alþingis. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringus. 29. okt. 1887 Franz Siemsen. Hið konunglega oktrojeraða ábyrgðarfjelag tekur í ábyrgð hús, alls konar vörur og innanhúss muni fyrir lægsta endurgjald. Afgreiðsla í J. p. T. Brydes verzlun í Reykjavík. Af þvi mörgum hefir líkað vel við hið svo- kallaða bú-kajfi, sem húsbóndi minn í sumar flutti hingað, þá leyfi jeg mjer hjer með að auglýsa, að nú með Lauru er komið mikið af þessum kaffiblendingi, sem vel má nota ein- göngu í kaffi stað, og er mikill sparnaður á hvert heimili, þar eð prísinn er að eins 55 a. pundið, hvar á móti kaffi kostar hjer um bil helmingi meira. Lika er komið aptur til verzlunar H. Th. A. Thomsens : ekta carbolineum, sem er ágætt meðal til að verja trje og timb- ur frá fúa, og kostar 30 aura pundið í smá- kaupum, en 28 aura í stórkaupum. Reykjavík 14. október 1887. Joh. Hansen, faktor við verzlun H. Th. A. Thomsens. Söngf'elagið ,,Harpa“ hefir mist söngbók (nótnabók) innbundna í velskt band ; á kjöln- um stendur: Odinsl. og Lundag. Flerst. sánger. 1. Tenor. Harpa. Hver sem kynni að sjá þessa bók einhvers- staðar er vinsamlega beðinn að koma henni til einhvers af meðlimum „Hörpu“. Fjármark Magnúsar Magnússonar á Hross- haga í Biskupstungum : tvírifað í sneitt apt. h„ tvær standfj. apt. vinstra biti fr. Undertegneöe Repræsentant for Det Kongelige OcirGÍerede Aimindelige Brandassurance Compagni for Bygninger, Varer og Effecter, stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modtager Anmeldelser om Brandforsikring for Syslerne Isaf;ord, Bardastrand, Dala, Snæfallsnes og Hnappa- dal, samt meddeler Oplysninger om Præ- mier etc. N. Chr. Gram. Munió eptir lotteriinu, sem aug- lýst var 1. júni p. á. Sálmabókin fyrir 1 kr. til 1 kr. 40 aur. «1111» ýniis konar, skrifbækur, penn- A ar, blek o. fl. ágæt ritföng fást á afgreiðslustofu ísafoldar, allt rneð mjög góðu verði. Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil. Prentsmiðja ísafoldar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.