Ísafold - 28.01.1888, Síða 4
15. Lög um að skipta Barðastrandar-
stjslu í 2 sýslufjelög.
16. Lög um löggilding verzlunarstaðar í
Vik i Vestur-Skaptafettssgslu.
17. Lög um stækkun verzlunarstaðarins
á Eskifirði.
18. Lög um breyting á landamerkjaiög-
um 17. marz 1882.
19. Lög sem nema úr gildi konungsúr-
skurð 22. apríl 1818 (biflíufjelagsstyrk).
011 staðfest 2. des., nema þurrabúðar-
mannalögin 12. janúar.
Óstaðfest níu.
Utanjijóðkirkjusöfnuðurinn í Keyðarfirði á
örðugt uppdráttar, eptir þvi sem segir í brjefi
frá merkum manni par í sýslunni nýlega :
„Eg fæ annars ekki sjeð, að þessi frikirkja geti
staðizt, þó aldrei sje nema efnanna vegna ; því,
þótt síra K. hafi nú, að sijgn, fært laun sín úr 1800
kr. ofan í 1200 kr., af því að hans menn hafa
þröngvað honum til þess, þá eru 1200 kr. svo
mikið aukagjald ofan á alla aðra þegnskyldu
hlutaðeigenda, að sveitarfjelagið fær með engu
móti undir því risið; enda er nú sagt, að sum
frikirkjumanna hjú, er eiga að greiða presti
minnst 8 kr., sjeu farin að neita að borga, eins
og líka E. á K„ efnaðasti maðurinn í fríkirkju-
flokknum, á að hafa skrúfað sitt prestsgjald úr
200 kr. niður i HO kr., elia mundi hann ganga
úr sambandinu við ii ikirkjufiokkinn.
En látum nú þetta vera, ef þessi fríkirkju-
stofnun gæti borið einhverja góða andlega á-
vexti, þá væri það góðra gjafda vert. En á-
vextirnir eru enn ekki aðrir sýnilegir en minuk-
andi megun og vaxandi ágreiningur, óánægja
og mjer liggur við að segja ófriður og fjand-
skapur“.
*
* *
Búast má við, að fríkirkjumenn telji sig af-
flutta í brjefi þessu, þótt frá skilríkum manni
sje, sem ekki mun vilja gera þeim rangt til af
ásettu ráði. En sjeu safnaðarmenn almennt,
bæði ríkir og fátækir, farnir að „skrúfa“ niður
prestsgjöld sin, þá er það sorglegur vottur um
drengskapar skort, kjarkleysi og framhaldsleysi
við það sem þeir hafa eflaust allir talið fagurt
og nytsaralegt fyrirtæki, er það var stofnað, og
ætlazt til að yrði sjer til ævarandi sóma og
frægðar meira að segja, og til heilla öldum og
óbornum meðlimum kristinnar kirkju hjer á
landi, beinlínis eða óbeinlínis.
Kosningarrjettur kvenna. Ut af ummæl-
um Isafoldar 4. þ. m. því viðvíkjandi, aö kona
neytti i fyrsta sinn hjer í Rvík kosningarrjettar
sins til bæjarstjórnar, skýrir hreppstjórinn í
Kjósarhreppi frá, að þar hafi kona kosið í
hreppsnefnd 21. júní 1884, — „hin eina kona
er þá hafði kosningarrjett þar í sveit, húsfrú
Guðný Oddsdóttir á Orjóteyri“.
Sjeu fleiri dæmi slik einhversstaðar á land-
inu, væri fróðlegt að fá vitneskju um það.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
Hjermeð er skorað á alla þá, er telja til
skulda í dánarbúi Arnfriðar porkelsdóttur’
er andaðist í Beykjavik 15. desember 1885,
að koma fram með kröfur sínar og sanna
fyrir skiptaráðanda hjer i sýslu innan 6
mánaða frá siðustu birtingu þessarar aug-
lýsingar. Ennfremur eru hjermeð samkv. 17.
gr. skiptalaganna allir þeir, er til arfs telja
i búi þessu, boðaðir á skiptafund, er haldinn
verður hjer á skrifstofunni 1. mai næstkom-
andi um hádegi kl. 12.
Skrifstofu tíarðastrandarsýslu, Geirseyri,
17. nóvember 1887.
__________A. L. E. Fischer.
Hjermeð er skorað á alla þá, er telja til
skulda i dánarbni Ara bunda Júnssonar á
Múla i Gufudalssveit, er andaðist 17. apríl
siðastl., að koma fram með kröfur sínar og
sanna fyrir skiptaráðanda hjer i sýslu inn-
an 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar
auglýsingar. Ennfremur eru hjermeð samkv.
17. gr. skiptalaganna allir þeir, er til arfs eiga
að telja í bid þessu, boðaðir á skiptafund,
er haldinn verður hjer á skrifstofunni 4.
apríl nœstkomandi um hádegi kl. 12.
Skrifstofu Barðastrandarsyslu, Geyrseyri,
15. desember 1887.
A. L. E. Fischer.
Proclama.
Samkvœmt lögum 12. apríl 1878 og opnu
brjefi 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á alla
þá, sem til skulda eiga að telja í dánarbid
Jóns sál Jónssonar frá Eeynisvatni í Mos-
fellshreppi, er andaðist hinn 12. febr. f. á.
að gefa sig fram og sanna kröfur sínar fyr-
ir undirskrifuðum skiptaráðanda innan 6
mánaða frá síðustu birtingu auglýsingar
þessa.rar.
Skiptaráðandinn í Kjósar- og Gullbringusýslu
hinn 19. janúar 1888.
Franz Siemsen.
Proclama.
Með því að bóndinn Jóel Friðriksson í
Hlöðunesi i Vatnsleysustrandarhreppi hefir
framselt sem gjaldþrota bú sitt tiL skipta
meðal skuldheimtumanna sinna, þá innkall-
ast hjermeð samkvœmt opnu brjefi 4. janúar
1861 og lögum 12. apríl 1878 allir þeir,
sem til skuhla eiga að telja hjá tjeðum Jóel
Friðrikssyni, til þess innan 6 mánaða frá
síðustu birtingu auglýsingar þessarar að gefa
sig fram og sanna kröfur sínar fyrir undir-
skrifuðum skiptaráðanda.
Skiptaráðandinn í Kjósar- og Gullbringusýslu
hinn 19. janúar 1888.
Franz Siemsen.
Samkvœmt reglum um «Gjöf Jóns Sig-
■urðssonar*, staðfestum af konungi 27. apr.
1882 (Stjórnartiðindi 1882 B, 88. bls.) og
erindisbrjefi, samþykktu á alþingi 1885
(Stjórnartiðindi 1885 B, 144. bls.), skal
hjer með skorað á alla þá, er vilja vinna
verðlaun af tjeðum sjóði fyrir vel samin
vísindaleg rit, viðvíkjandi sögu landsins eða
bókmenntum, lögum þess, stjórn eða fram-
förum, að senda slík rit fyrir lok marz-
mánaðar 1889 til undirskrifaðrar nefndar,
sem kosin var á síðasta alþingi til að gjöra
að álitum, hvort höfundar ritanna sjeu
verðlauna verðir fyrir þau, eptir tilgangi
gjafarinnar.
Ritgjörðir þcer, sem sendar verða í því
skyni að vinna verðlaun, eiga að vera nafn-
lausar, en auðkenndar með einhverri ein-
kunn. Nafn höfundarins á að fylgja í
lokuðu brjefi með sömu einkunn sem rit-
gjörðin hefur.
Reykjavík 19. desember 1887.
Eirikur Briem. Kristján Jónsson.
Steingrimur Thorsteinsson.
Til leigu fæst í næstkomandi fardögum:
1. jöröin Grísatunga,
2. afrjettarladið Staðartunga og
8. afrjettarlandiö tíjarnadalur
allt tilheyrandi Stafholtspreatakalii.
Stafholti 8. jan. 1888.
Jóhann þorsteinsson.
|>egar Yigdís Guðmur.dsdóttir, ekkja á Auðn-
um á Vatnsleysuströnd, fór hjcðan á siðastliðnu
sumri alfarin til Vesturheims, þá skildi hún
eptir í húsi sínu við sjóinn verkaðan og þurk-
aöan saltfisk, sem hún, mjer vitanlega, hafði
enga ráðstöfun gjört fyrir, áður hún fór.
Fiskurinn var auðsjáanlega ekki hennar eign,
heldur aö líkiudum einhvers sveitamanns, sem
þar hefir róið um vetrarvertíðina. Sá, sem
getur sannað eignarrjett sinn að ofannefndum
saltfiski, með því að lvsa rjett tölu og einkenni
(markij á fiskinum, getur fengiö andvirði hans
borgað út úr búð í Keykjavik til 1. júlí þ. ár,
að frádreginni borgun fyrir hirðingu og þessa
auglýsingu.
Landakoti 20. janúar 1888.
Guöm. Guðmundsson.
[þAKKARÁV.] Eg finn mjer skylt að þakka
opinberlega höfðingsmanninum herra kaup-
manni Sigurði Bachmann fyrir hið einstaka
veglyndi, sem hann auðsýndi syni mínum J>or-
va:öi,þegar haun í síðastl. júlímán. var lagöur
veikur á land á Vatneyri al' fiskiskipinu „And-
rea“ frá Flatey. I rúmar 10 vikur lá sonur
minn á heimili velnefiids kaupmanns, þjáður af
megnri garnabóigu, lengi nær dauða en lífi.
Varð opt að vaka yfir honum, og ávallt þurfti
hann nákvæmrar og stöðugrar pössunar. Ailt
þetta var honum veitt á heimili herra Bach-
manns, sem Ijet sjer annt um hann sem bezti
faðir, vildi ekki láta hann burtu fara, fyr en
áreiðanlegt væri, að hann væri á batavegi.
J>á fyrst Ijet hann hann fara frá sjer, ljeði
honum fylgd og hest til að líomast heim á leið,
og sagði honum að skilnaði. að hann vildi
enga borgun þiggja fyrir alla þá hjálp og hjúkr-
un, sem hann hafði látið honum í tje. Eg bið
guð að launa þetta mikla góðverk, og treysti
því, að hann muni gjöra það, því að sá heiðrar
skaparann, sem miskunnar sig yfir fátækan.
Flatey 20. desbr. 1887.
Jörgen Jóhannsson Moul.
Ritskjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.