Ísafold - 11.04.1888, Blaðsíða 1

Ísafold - 11.04.1888, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg.fyrir l.okt. Afgreiðslu- stofa i Isafoldarprentsmiðju. XV 17. Reykjavík, miðvikudaginn 11. april. 1888. T). Innl. frjettir. Árgjald af Reynistaðar- brauði. Orðabókar-ritdómurinn. 67. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og Id. kl. t—'! Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 1—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. i hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr.J. Jónassen aprfl 1 Hiti (Cels.) | Lþmælir Veðurátt. ánóttu umhád., fm. em. fm. | em. M. 4. -r- 2| + 3 | 3°i4 30,3 0 d 0 h F. S- -f 21 + 8 | 3°>3 30,2 0 b 0 d F. 6. + 3 + 7 ! 30,i 3°, S h d S h b L. 7. -r- 1 + 3 30, 29,9 S h d Na h d S. 8. + 3 + 6 2b,7 29,7 Sa hv d Sa hv d M. 9. + 2 + 5 j 2 9,9 29.7 A h d Sv h d í>. 10. o| + i | 29,7 29.7 1 Sv h b Sv h b Fyista dag vikunnar var hjer logn og svört þoka mest allan daginn ; daginn eptir (5.) logn og bjart sólskin, siðan hægur sunnankaldi i tvo daga með nokkurri úrkomu og ýrði snjór úr lopti h. 7.; h 8. var hjer landsynningur hvass með skúrum við og við ; daginn eptir hægur á austan að morgni en gekk svo til og til útsuðurs með brimhroða og í dag 10. er útsynningshroði, bjartur á milli jelja^ en eptir miðjan dag genginn til vesturs með mikl- brimhroða og kafaldsbyljum. Reykjavík II. apríl 1888. Tiðarfar frjettist enn með póstum að vœri mikið gott hjer urn bil um land allt, þó að kulda- og stormahrinur hafi kornið við og við. Miðkafli vetrarins var samt allharður um Austurland. Austur-Skaptafellssýslu 10. marz : „Harður vetur til þrettánda. Siðan hagar, en þó öilum fjenaði gefið. Núna stórbylur í 3 daga, og mesta snjókoma, haglaust og ófærð“. Rorðxcr-Múlasýslu (Fljótsdal) 28. febr. : „Hjer i dalnum mátti heita haglaust frá því fyrir jólaföstu og til þorraloka ; en nú er hjer komin góð iörð og hin bezta tíð. (iripahöld góð. J^itið borið á lári í vetur“. pingeyjarsýslu, 20. marz : „Hríðasamt hjer það sem af er mánuðinum lengst af, enda hafís úti fyrir talsverður11. Skagafirbi (Fljótum) 21. marz : „Snemma i þessum mánuði gerði 10 daga kulda- og hríðar- skot; rak þá ísinn enn á ný að og var þá mikill að sjá til hafsins. Nú hefir hann aptur bægzt frá í austanátt, er verið hefir nokkra daga ; þó mun hann skammt undan og verða fljótur til að koma, ef norðanskot kæmi“. Rúnavatnssýslu (Víðidal) 25. marz : „Hryss- ingsleg tíð siðan í mið-góu og mjög skörp frost á milli, allt að 20°. Skepnuhöld góð, og menn vona að heybyrgðir verði nægar, þó að hey væri yfir höfuð mjög lítil í haust, enda er fjenaðurinn fjarska-fár viðast hvar. Bjargar- skortur er mjög almennur, og verður vist mjög tilfinnanlegur, ef sigling kemur seint og vor- harðindi verða, þvi þá geta menn ekkeit að sjer dregið eða neina útvegi haft“. Iiirkjan fauk í Holti undir Eyjaljöllum i ofviðri á pálmasunnudag, eptir því sem frjezt hefir, og komst 4 faðma frá grunni. Sömu- leiðis eiga 3 róðrarskip að hafa fokið þar út á sjó og brotiu af þeim rekið í Vestmannaevjum. Aflabrögð. þilskip kaupmanns G. Zoega lögðu út á hákarlaveiðar h. 10. f. m., en sökum umhleypinganna, er þá komu strax næstu daga, hjeldust þau ekki við i legu og urðu að hleypa inn aptur með lítinn afla : „Gylfi“ 12 tunnur, .,Reylcjavíkin“ 16 tn. og „Geir“ l7’/.> tn. Hinn 21. f. m. lögðu þau út aptur. 31. kom ,.Reykja- ríkin„ aptur með 35 tn., og gat ekki lagzt aptur eptir norðanrokið 27. f. m., sökum þess að bugspjótaði losnaði. „Gylfi“ kom 6. þ. m. og hafði afiað 98 tn. og „Geir•• kom daginn eptir með 158 tunn. |>orskveiða- þilskipin hafa fiskað fremur lítið ; frá 1 —10 hndr. Langhæstur er „Xjáll", er kom 5. þ. m. með 3’/2 þús. A opnum skipum hefir til þessa verið góður atíi í (Tarðsjó og hafa menn róið þangað hjeð- an þessa daga og fengið frá 30— 50 til hlutar, mest allt á lóðir, og yfirborðið af því þorskur, en hann fremur magur. Aunarstaðar ekki fiskvart í flóanum enn þá. Austanfjalls bezti afli: á Eyrarbakka 20—50 í hlut 5. þ. m„ og á Loptsstöðum 70—120 dag- inn áður (þar af 2/3 þorskur). En salt á þrotum á Eyrarbakka, og er það einstaklega slysalegt. Saltlaust var líka orðið í Olafsvík, en þangað kom saltskip seint í f. m. Afmælisdagur Christians konungs IX., hinn 70., 8. þ. m„ var hátíðlegur haldinn hjer í bænum með fjölmennu samsæti (30—40) á hotel Alexandra. Bæjarfógetinn mælti fyrir rainni konungs, og landshöfðingi fyrir minni Islands. Mannalát og slysfarir. porleifur bóndi porleifsson (læknis) í tíjarnarhöfn í Snæfellsnes- sýslu andaðist 10. f. m., maður rúmlega fertug- ur, röskleikamaður og vel að sjer gjör. — Lú- ther Helgason, yngsti sonur Helga bónda Magn- ússonar í Birtingaholti, andaðist 3. þ. m. úr f'ót- armeini. — í miklu hlákunni um raiðjan janú- ar drukknaði maður í Gönguskarðsá, Daníel bóndi frá Ingveldarstöðum á Reykjaströnd. — Á Kyndilmessu urðu 2 feðgar frá Mallandi á Skaga úti á Skagaheiði, komu vestan úr kaup- stað. — Sama dag varð stúlka úti í tílönduhlíð í Skagafirði. — Hinn 6. febr. varð kvennmaður úti í Alptatirði evstra. Árgjald af Reynistaðarbrauði. J 57. bl. Isaf. f. á. eru talin ógoldin ár- gjöld af 11 brauðum, sem landshöfðingi hati lagt fyrir stiptsyfirvöldin að innheimta með málssókn, ef þau verði ekki greidd innan tiltekins tíma. |>ar á meðal er tal- ið300 kr. árgjald af Reynistaðarbrauði, sem jeg var fyrir löngu búinn að borga til Ríp- urprestakalls; en það gjörði jeg eptir fyr- irmælum Norður- og Austuramtsins, sem tílsagði mjer, að halda árgjaldinu eptir af prestmötu prestakallsins af Reynistaðar- klausturs-umboði, og greiða það til Rípur- prestakalls frá 6. júní f. á. samkvæmt ráð- gjafabrjefi 18. apr. s. á. Nú hefir uppgjafaprestur Tóinas j>or- steinsson á Oddeyn sknfað mjer 24. f. m., að hann viti eigi annað, en að málsókn verði skipuð gegn sjer innan skamms, fyrir vanskil á þessu árgjaldi- |>að lítur því svo út, sem jeg hafi gjört býsna rangt með því að borga Rípurprestinum árgjaldið. En viðurkenning síra Bjarna Pálssonar, sem er fylgiskjal með klausturreikning mínum fyrir næstliðið ár, mun þó fríja landssjóð við að borga honum þær 300 kr., sem gjald- ast áttu til Rípurprestakalls, svo það virð- ist koma í sama stað niður. En hafi jeg sarat gjört rangt í þessu tilliti, vil jeg und- irgefnast biðja hin háu stiptsyfirvöld, að tilreikna ekki síra Tómasi þá synd, heldur mjer. Asi 16. marz 1888. Olafur Sigurðsson. Orðabókar-ritdómurinn. Nokkrar leiðrjettingar á helztu villum í ritdómi hr. G. T. Zoega í síðasta bl. Isaf., uin hið 1. hepti orðabókar minnar. »Að finna á sjer«, þ. e.: avoir le vin gai, er skökk aðfinniug hjá hr. G. að segja að það sje : «að vera kátur við vín» — «Man siger: »qu'un homme a le vin gai«, for at sige at han er munter og lystig efter et Glas Vin, eller naar han, som man siger, har noget for Panden«, þ. e. hefir í krumm- anum, er drukkinn eða kenndur. Smbr. Dictionnaire Royal dfrönsk) bl. 552. 2. d. Ecaillé er prentvilla undir ábrystur í stað: caillé.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.