Ísafold - 25.07.1888, Blaðsíða 4
136
Hitt og þetta.
Prestur sjer af stólnum ungan sprjátrung
reka höfuóið inn fyrir kirkjudyrnar og skygnast
•nm Honum verður hermt við og segir, upp
úr miðri ræðuuni: rí>jer er óhætt að fara út
aptur, ungi svndari; hún er ekki hjer“.
Búforkur einn fekk mann til að sprengja
fyrir sig stein í túninu hjá sjer. Maðurinn
boraði stóra holu i steininn og tróð púðri niður
í hana með járnkarli. J>að kviknaði óvart i
púðrinu, og maðurinn og járnkarlinn hurfu
snögglega eitthvað út í himingeiminn. feir
komu báðir niður aptur; en svo var bóndi
smásmuglegur, að hann dró af kaupi mannsins
fyrir þessa svipstund, sem hann var í burtu.
Óvanur reiðraaður kom á bak ólmum hesti.
Hann varð upp numinn von bráðara og kom
illa niður, en hesturinn út í buskann. Kunn-
ingi hans fór að stumra yfir honum og spurði
hvernig þetta hefði atvikazt svona hastarlega.
„Atvikazt! — hastarlega! Sástu svo sem
nokkurn snaga upp í skýjunum fyrir mig að
halda mjer i?“.
AUGLÝSINGAR
{ samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu landsbankans og að undan-
gengu fjdrnámi hinn 11. p. m. verður hus
Skúla Jönssonar á Eiðstöðum (Selsholti)
hjer í bcenum, samkvcemt lögum 16. desbr.
1885 með hliðsjón af opnu brjefi 22. apríl
1817, selt við 3 opinber uppboð, sem hald-
in verða 2 hin fyrstu á skrifstofu bœjar-
fógeta laugardagana 4. og 18. ágúst þ. á.,
en hið 3. í húsinu sjálfu mánudaginn 3.
september nœst á eptir, til lúkningar veð-
skul 600 kr. með áföllnum vöxtum og kostn-
aði.
Uppboðin byrja kl. 12 á hád. nefnda
daga og verða söluskilmálar til sýnis hjer á
skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Bæjarfógetinn i Reykjavík 17. júlímán. 1888.
Halldór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu kaupmanns H. Th. A. Thom-
sens og að undangenginni fjámámsgjörð 11.
þ. m., verður hús Hermanns Andrjessonar á
Yegamótdbrú hér t bcenum selt við 3 opin-
ber uppboð, sem haldin verða 2 hin fyrstu
á skrifstofu bcejarfógeta laugardagana 4. og
18. ágúst þ. á., en hið 3. i húsinu sjálfu
laugardaginn 1. september þ. á., tit lúkn-
ingar veðskuld að upphceð 498 kr. 59 aur.
með vöxtum og kostnaði, samkvcemt lögum
16. desbr. 1885 og með hliðsjón af opnu
brjefi 22. apríl 1817.
Úppboðin byrja kl. 12 á hádegi nefnda
daga og verða söluskilmálar til sýnis hjer á
skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Bæjarfógetinn í Reykjavik 17. júlí 1888.
Halldór Daníelsson-
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu landsbankans og að undan-
genginni fjárnámsgjörð 21. f. m. verður
jörðin Hjarðarból í Eyrarsveit 11.5 hndr.
að dýrleika n. m., með hliðsjón af opnu
brjefi 22. apríl 1817 og samkv. Lög. 16.
desbr. 1885, 15. gr., seld við 3 opinber upp-
boð, sem haldin verða, 2 hin fyrstu á skrif-
stofu sýslunnar í Stykkishólmi þann 1. og
14. ágúst þ. á. og hið 3. á jörðinni sjálfri
5. septbr. þ. á., til lúkningar 300 kr. veð-
skuld með ógreiddum vöxtum frá 11. des.
1884, 2j° dráttarvöxtum og óllum kostnaði.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstof-
unni frá 1. uppboði. Uppboðin byrja kl.
12 á hádegi ofannefnda daga.
Skrifstofu Snæfellsness og Hnaappadalssýslu,
Stykkishólmi þann 7. júli 1888.
Sigurður Jónsson._____________
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu landsbankans og að undan-
genginm fjárnámsgjörð 4. þ. m. verður jörð-
in \ Haukatunga í Kolbeinstaðahreppi, með
hliðsjón af opnu brjefi 22. apríl 1817 og
samkv. lög. 16. desbr. 1885., 15. gr., seld
við 3 opinber uppboð, sem haldin verða 2
hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar í Stykkis-
hólmi þann 1. og 14. ágúst þ. á., og hið 3.
á jörðinni sjálfri 1. sept. þ. á., til lúkn-
ingar 200 kr. veðskuld með vóxtum frá 1.
oktbr. f. á. og öllum kostnaði.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstof-
unni frá 1. uppboði. Uppboðin byrja kl.
12 á hádegi ofannefnda daga.
Skrifstofu Snæfellsness og Hnappadalssýslu,
Stykkishólmi þann 7. júlí 1888.
Sigurður Jónsson. __________
þar sem ýmsir þeir, er mó hafa tekið
upp í mýrinni fyrir ofan Lœkjarbakka, hafa
fiutt hann til sjávar yfir túnið þar, þá að-
vara jeg alla, að gjöra það eigi framvegis,
en fyrirbýð alla umferð um nefnt tún, hvort
heldur með hesta eða gangandi.
Rnykjavík ís/7 88.
H. Kr- Friðriksson.
Sýningin í Khöfn. Farbrjef með
niðursettu verði (100 kr. fram og aptur
m. m.) á sýninguna í Khöfn með þessari
ferð Lauru fást enn hjá ritstj. Isafoldar,
einnig fyrir handiðnamenn, eptir sjerstöku
leyfi frá stjórn gufuskipafjelagsins.
Hjer með auglýsist, að samkvæmt breytingu
þeirri á fjallskilareglugjörð Strandasýslu, er
gjörð var á fundi amtsráðsins í Vesturamtinu
1887, verða lögrjettir Bæjarhrepps að Melum
og Kollá lagðar niður á yfirstandandi sumri
og ein rjett byggð fyrir sveitina, í Hlaðhamars-
landi.
Aðvarast því þeir utansveitarmenn er sjálfir
þurfa að sjá sjer fyrir dilkum, um að hafa þá
byggða í tíma, og allir er fjárvon kunna að
eiga af fjalllöndum Bæhreppinga, um það, að
þess verður á næstkomandi hausti að leita til
hinnar nýju rjeitar, að Hlaðhamri.
Fyrir hreppsnefndina i Bæjarhreppi 18. júlí 1888.
Vald. Bryde
pt. oddviti.
„Temperance-Hotel“
á Hlíðarhúsastígnum í Reykjavík.
Jeg undirskrifaður leyfi mjer hjermeð að
mæla fram með hinu nýja hoteli, sem sjer-
lega þægilegu fyrir alla ferðamenn.
Auk þess, sem þetta hotel hefur hið
sama að bjóða, sem hin hotelin, að frá-
skildum vínum einum, þá hefur þetta þó
framyfir hotel þau, sem hjer undir eru,
að hjer þurfa menn ekki að óttast allan
þann óróa, sem af vínsölu leiðir.
þannig er hotelið einnig þægilegur stað-
ur fyrir hina heiðruðu Good-Templara til
að koma saman á, þareð hotelið hefur
stóran og vel möbleraðan sal, sem nær
eingöngu er ætlaður fyrir Good-Templara.
Húsaleiga og matur ódýrari, en í öðrum
veitingastöðum bæjarms.
Frammistaða fljótt og vel af hendi leyst.
Reykjavík 24/7 88.
m Virðingarfyllst,
B. H. Bjarnason.
Frimærker,
brugte islandske kjöbes. Der betales frá i‘/a til
50 K.roner pr. 100 Styk. Sendelser afregnes
omgaaende og nöiere Prisfortegnelse meddeles paa
Forlangende.
Olaf Grilstad, Banksekretær
Throndhjem, Norge.
Brún meri óaffext og ójárnuð, mark: sýlt
hægra biti framan, hefir tapazt aí Seltjarnar-
nes um síðast liðna Krossmessu. Hver sem
meri þessa hittir er beðinn að koma henni til
skila til porkels Guömundssonar í Káravík.
Nýtt með Lauru.
Niðursoðin mjólk í dósum frá Sviss, á-
gæt fyrir þá sem ferðast, eður geta ekki
fengið mjólk.
Dósin 0,60.
Fæst einungis á íslandi hjá
porl. 0. Johnson.
Pröv
tilberedt Java-Kaffe.
Koster kun 50 öre pr. I’d.
1 Pd. af denne anerkjendte gode Kaffe
giver 100 Kopper velsmagende Kaffe.
Forsendes mod Efterkrav.
Landemærkets Damp-Kaffebrænderi.
53 Landemærket 53.
Kjöbenhavn. K.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.