Ísafold - 06.04.1889, Page 3
111
Gagnfræðakennsla í Reykjavík eða í
Flensborg?
Svar til hr. slcólastjóra Jóns pórarinssonar.
Ut af því í grein hr. J. |>. í Isafold 23.
jan. 1889, sem höf. beinir að mjer, skal jeg
geta þess, að það gleður mig að heyra, að
fleiri en 2 unglingar hafa gengið á alþýðu-
skólann í Flensborg í fyrra vetur, því að jeg
óska, eins og hinn heiðr. höf., að skólar vorir
geti orðið sem flestum að liði. Hins vegar
má höf. vera mjer þakklátur fyrir það, að jeg
skyldi geta um þetta í formála bæklings míns
»Um menningarskóla»; því að þá fjekk hann
tækifæri til þess að leiðrjetta það. jpess skal
og getið, að þetta hefir eigi orsakazt af
skakkri eptirtekt frá minni hálfu, og að hlut-
aðeigandi kandídat sagði mjer það optar en
einu sinni og nefndi sinn sögumann ; þar sem
hann er nákunnugur skólanum, og engin á-
stæða var til þess að rengja hlutaðeiganda,
tók jeg það trúanlegt.
Hinar aðfinningar höf. eru aptur á móti
báðar byggðar á rnisskilningi, og mun hann
sjálfur sjá það, ef hann vill gera sjer grein fyrir
því, hvað aðrar menntaðar þjóðir kalla al-
þýðu- og gagnfræðaskóla, en það hafði jeg í
huga^ er jeg var svo djarfur að kalla »al-
þýðuskólann og gagnfræðaskólann í Flens-
borg» bekk úr alþýðuskóla, eins og jeg bendi á
til samanburðar hjá Dönum. (Um menningar-
skóla, bls. 4 neðanmáls).
Ganfræðaskólar í ýmsum menntuðum lönd-
um Evrópu eru venjulega 6 bekkir; sumar-
leyfið þetta einn mánuður (hjer í Danmörk 6
vikur), en í Flensborg 6—sex mánuðir (sbr.
6. gr. reglug. fyrir alþýðusk. og gagnfræða-
skóla í Flensborg, Stjórnartíðindi 1882 B, bls.
125—7), og þar sem Flensborgarskólinn er 2
bekkir í 6 mánuði, að jólaleyfinu meðtöldu,
verður það að eins 12 mánuðir eða eins árs
nám fyrir þá, sem eru 2 vetur í skólanum,
sinn veturinn í hvorum bekk, eða lj-U- úr
bekk í alþýðu- eða gagnfræðaskólum erlendis,
°g -J- úr bekk raeð 9 mánaða skólaári; og
skemrnra má það ekki vera í gagnfræða- og
menningarskólum vorum, eins og jeg hef sýnt
fram á í bækling mínum, ef skólarnir eiga að
geta staðið í því sarnbandi hver við annan,
sem nauðsynlegt er.
5. gr. reglug. skólans, sem jeg og hafði
fyrir mjer, skipar eigi, að ávallt sjeu 2 bekkir
í alþýðu- og gagnfræðaskólanum, enda væri
líklega eigi-gott að koma því við, þegar læri-
sveinarnir eru mjög ÍEáir, en börnin í barna-
skólanum margfalt fleiri, og kennararnir 3 við
báða skólana.
Eptir þessu og því, sem cand. theol. Jóh.
Sigfússon, hinn góðkunni kennari við Flens-
borgarskólann, var svo velviljaður að segja
mjer 1886 um skólann, einkum frá aðsókn
hans og fyrirkomulagi þá um veturinn, var
eigi gott að sjá þá, að það væri meira að
jafnaði en sem svaraði einum bekk úr al-
þýðu eða gagnfræða við barnaskólann í Flens-
borg.
Eptir reglugjörð skólans að dæma er það
og fullkomlega rjett hjá mjer, »að skólaveran
er óákveðin og ekkert ákveðið burtfararpróf»
(sbr. Menningarskóla bls. 70). þ>ar er hvergi
ákveðin skóla-veran, og »burtfararpróf» er þar
ekki nefnt. Skóla-arið er ákveðið, og gert
Svo dæmalaust stutt; annað próf en miðs-
vetrarpróf og árspróf er þai' ekki nefnt. það
eru ekki einu sinni ákveðnar eða nefndar
neinar einkunnir fyrir reglulegt burtfararpróf,
eins og gert er í báðum reglugjörðum Möðru-
vallaskólans. Ef höf. ber saman reglugjörð
Möðruvallaskólans og Flensborgarskólans, get-
ur hann sjeð muninn, og að í þessu tvennu
er Flensb.skólinn líkastur kvennaskólanum,
þar sem nemendurnir taka eigi annað full-
komnara próf en árspróf, og ekki einu sinni
það allar. I annan stað getur Flensb.skólinn
eigi iafuast á við þá nje heldur barnaskól-
ann í Reykjavík og Mýrarhvisum, er til skóla-
ársins kemur ; en vonandi er, að höf. reyni
að ráða bót á því. Svo stutt skólaár gerir
ekki annað en að efla hjá almenningi þá
skökku skoðun, að menn geti orðið allvel
menntaðir á einum vetri, á fáeinum mánuð-
um, og svo, er það kemur upp úr kafinu, að
nemendurnir hafa eigi orðið það, þá er skuld-
inni optast skellt á skólana, og þeir kallaðir
ónýtir.
Jeg skal fúslega játa, að jeg er eigi mjög
kunnugur aðsókn og innra fyrirkomulagi Flens-
borgarskólans; og hvernig ætti jeg að vera
það ? Flensb.skólinn hefir eigi átt því láni
að fagna, að skýrslur um hann hafi að nokkr-
um mun verið birtar í blöðunum. Frá kvenna-
skólunum fá menn þó venjulega að sjá »skóla-
röð». En fæstir eiga aðgang að öðru en því,
sem prentað er og fæst keypt. —- Vilji menn
vita eitthvað meira, kostar það bæði mikiun
tíma og fyrirhöfn. Hins vegar er jeg Flens-
borgarskólanum nógu kunnugur til þess, að
sjá, að það er miklu hagfeldara fyrir landið,
að gagnfræðakennsla sje í Reykjavík í sam-
bandi við lærða skólann (sbr. Um menning-
arskóla), en að fara að koma upp gagn-
fræðaskóla í Flensborg; og það er þetta, sem
er aðalatriðið, og sem okkur höf. greinir á
um. Höf. hefir lieldur aldrei leitt rök að því,
að hagfeldara sje að hafa gagnfræðaskóla í
Flensborg en í Rvík, og meðan hann gerir
það eigi, fær hann tæplega marga á sitt mál.
Annað mál er það, að gagnfræðakennsla í
Flensborg er eigi óþörf, á meðan engin er í
Reykjavík.
það hefir hingað til verið fjarskalegt stefnu-
leysi í skólamálinu ; það hefir verið byrjað á
sumu í hálfgerðri blindni. Að sýna fram á
það, var nauðsynlegt; því að svo virtist, sem
sumum þætti sjálfsagt að halda áfram lengra
í blindni, t. a. m. að koma á stofn kennara-
skóla í Flensborg. það er svo sem sjálf-
sagt, að Flensborg er mikið menntaból; en
höf. verður að gæta að því, hve hægra það
er fyrir almenning að nota skóla í Reykja-
vík en í Flensborg, að gagnfræðakennsla f
Reykjavík í sambandi við lærða skólann hefir
mjög lítinn kostnaðarauka í för með sjer fyrir
landið, að lærði skólinn getur ráðið til sín
bezta kennara landsins, og fengið t. a. m.
beztu kennarann frá Flensborg, ef hann vill;
en það getur Flensborgarskólinn ekki, o. s.
frv.
Annars er jeg mjög þakklátur kennurun-
um í Flensborg fyrir þann áhuga, sem þeir
hafa á kennslumálum vorum ; þeir eiga, á-
samt Ögmundi Sigurðssyni, þakkir skilið fyrir
tímaritið sitt litla; en jeg vil sjerstaklega
biðja hinn heiðraða höf. og skólastjóra, að
líta dálítið betur út fyrir Hafnarfjörð og
Garðahverfið, og taka tillit til alls landsins.
Kaupmannahöfn, 21, febr. 1889.
Boai Tii. Melsteð.
>
JlL GAGNS OG GAMANS.
Ný aðferð til að strokka smjör.
Sænskur vinnumaður, C. A. Johansson að
nafni, hefur í vetur fundið upp nýja aðferð
til þess að ná smjörinu úr nýmjólkinni undir
eins, án þess að láta hana standa neitt..
Hann hafði unnið á mjólkurbúi (Meieri), þar
sem undanrenningin var síuð frá rjómanum
með miðflótta-afli (með áhöldum, sem kölluð
eru centrifúgar).
það er farið að tíðkast mjög í útlöndum,
að greina þannig rjómann frá undanrenning-
unni, að mjólkinni er hellt í ker, sem snýst
mjög ótt um ás í miðju kerinu, en á kerinu
eru smáholur, eins og á síu; þegar kerið
snýst, slengist það, sem þyngst er (undan-
renningin) langt út frá ásnum, en það, sem
Ijettara er (rjóminn), verður eptir. Með
þessu móti leitar undanrenningin út um hol-
urnar á kerinu. Eru áhöld þessi kölluð
miðflótta-áhöld eða centrifúgar.
Sá annmarki hefir þó verið á aðferð þess-
ari, að rjóminn þjappast svo fast saman, að
hann heldur eptir í sjer dálitlu af undan-
renningunni, sem ekki kemst út að holunum.
Til þess að gjöra við þessum agnúa, hefir
Johansson hugkvæmzt, að hafa valtara úr
vír niðri í kerinu, og festa hann við lokið á
því á þann hátt, að hann slengist út og inn
í kerinu. |»egar kerið snýst, klífur vírinn
rjómann og gjörir þannig göng fyrir undan-
renninguna. þegar þá fituefnið í mjólkinni
er orðið laust við öll önnur efni, er það orðið
að smjöri; er það látið síga niður um op í
botninum á kerinu, og er þá ekki annað eptir
en að kæla það og hnoða, eins og vandi er
til að gjöra.
Að breyta mó í steinkol.
1 Rússlandi er nýlega fundin aðferð til
þess að breyta mó í kol. |>ykir þetta harla
mikilsvert, þar eð mór er þar mjög mikill í
jörðu. Stjórnin hefur látið rannsaka aðferð-
ina og reyna kolin í járnbrautarvögnum og í
verksmiðjum, og er mælt að þau hafi alstaðar
þótt mikið góð. þau eru lítið eitt hitaminni
en ensk kol, en hitameiri en viður. þann
kost hafa þau, fram yfir venjuleg steinkol, að
í þeim er mjög lítið af brennisteini, en hann
skemmir járnið í ofnunum.
Af aflabrögðum er hið sama að frjetta
og síðast. Allgóður afli í Garðsjó og Leiru-
sjó, en þó nokkuð misjafn, nálega allur fisk-
urinn mjög rýr og magur, varla nokkur lifur
hirðandi. Hjeðan ekki róið til Sviðs hina
síðustu daga, enda varla fiskvart síðast er
reynt var, og sama var að frjetta af Akranesi
um miðja þessa viku. —Frakkneskt fiskiskip
kom hjer 3. þ. mán., hafði það fengið nál.
4 þús. frá því það kom ’til landsins, og mest
af því á 100—120 faðma dýpi um 5 mílur
suður af Eyrarbakka. Ljet lítið yfir afla.
annarsstaðar. Innlend þilskip hafa verið
vestur í Garðsjó þessa viku, en óvíst hve
mikið þau hafa aflað eða hvort það hefur
nokkuð verið.
Að sunnan er skrifað 3. þ. m.: «Aflabrögð
voru hjer fremur lífleg seinni hluta marz-
mánaðar á ýsulóðir og haldfæri; en seinast,
þegar róið var, leit helzt út fyrir, að fiskur-
inn væri farinn að hörfa aptur til djúps
undan lóðamergðinni. Menn tóku sig að vísu
saman um það, seint og síðar meir, að hætta
við ýsulóðir; en þau samtök náðu ekki nema