Ísafold - 14.08.1889, Blaðsíða 2

Ísafold - 14.08.1889, Blaðsíða 2
258 talað um hversdagsefni á dönsku svo skiljanlegt sje; 11. að hafa lesið kafla í enskri bók, eigi minna en 100 bls., og geta útlagt hann munnlega á íslenzku; 12. að þekkja hin helztu lagaákvæði, er snerta rjett og skyldur skipstjóra. 4. gr. Prófin eru bæði munnleg og skrifleg. J»au skulu haldin opinberlega af prófnefnd, og skal fyrir þeim standa sá af nefndarmönnum sem landshöfðingi skipar sem oddvita. Við hið minna stýri- mannspróf eru i henni hinn fasti kennari við skólann og tveir aðrir menn, er lands- höfðingi setur til þess í hvert skipti, ann- an eptir uppástungu stiptsyfirvaldanna, en hinn eptir uppástungu bæjarstjórnarinnar í Reykjavík. Við hið meira stýrimanns- próf eru í prófnefndinni hinn fasti kenn- ari við skólann og tveir menn aðrir, er stjórnarráð íslands setur til þess í hvert skipti; til að eiga þátt í að dæma um kunnáttu í atriðum þeim, sem nefnd eru í 4 síðustu töluliðum 3. greinar, getur þó landshöfðingi sett tvo aðra menn. Kenn- arinn í hverri grein heldur hið munnlega próf, en verkefnin til skriflega prófsins í stærðafræði og siglingafræði skal stýri- mannakennslu-forstjórinn í Kaupmanna- höfn búa til og senda landshöfðingja í umslagi, sem innsigli er sett fyrir. 5. gr. Stjórnarráð íslands seturákvarð- anir þær, sem með þarf, viðvíkjandi til högun á prófinu. þ>eim, sem prófið hefir tekið, skal veitt skýrteini um það, og skal þar telja þær kennslugreinir, sem hann hefir verið reyndur í, og tilgreina í tölum einkunn þá, sem gefin er, og jafnframt bæði hina iægstu tölu, er útheimtist til að standast prófið, og þina hæstu tölu, sem unnt er að ná við það, og skulu allir nefndar- mennirnir undirskrifa skýrteinið. Nöfn þeirra, sem undir próf ganga, skal rita f bók, sem til þess er löguð og sem stiptsyfirvöldin geyma; skal í henni skýrt frá fullu nafni hvers eins, fæðingarstað, fæðingar-degi og ári, svo og frá einkunn þeirri, sem gefin var við prófið. 6. gr. Rjett til þess að ganga undir hin íslenzku stýrimannspróf eptir reglum þeim, sem settar eru að framan, eiga ekki að eins lærisveinar stýrimannaskól- ans, heldur hver sá, sem 3 mánuðum áð- ur en prófið er haldið, sendir til stipts- yfirvaldanna beiðni um aðmega gangaundir próf, og skal henni fylgja vottorð um kunnáttu hans frá þeim manni eða þeim mönnum, sem hafa kennt honum siglinga- fræði. Enginn getur gengið undir hið minna próf, nema hann hafi verið háseti á þiljuskipi í 4 mánuði að minnsta kosti. Undir hið meira próf getur enginn geng- ið nema hann hafi verið háseti eða yfir- maður á þiljuskipi eigi skemuren 15 mán- uði og að minnsta kosti þriðjunginn af þeim tíma verið í förum milli landa; svo verður hann og að sanna, að sjón hans sje svo fullkomin, sem nauðsynlegt er fyrir stýrimenn. 7. gr. Hver sem staðizt hefir hið meira íslenzka stýrimannspróf og eptir það ver- ið i förum i 8 mánuði, hefir ijett til að mega vera stýrimaður á seglskipum, sem eru í förum á milli landa, og sje hann búinn sem stýrimaður að vera í förum 2 ár, og á þeim tíma fara að minnsta kosti tvisvar milli landa, þá hefir hann rjett til að mega vera skipstjóri á seglskipi, er fer milli landa. XX. Viðaukalög við tilsk. um veiði á ís- landi 20. júni 1849. 1. gr. Hver sá, sem drepur æðarfugl af ásettu ráði, skal auk sekta þeirra, er getur um í 11. gr. tilsk. um veiði á Is- landi 20. júní 1849, gjalda í sekt fyrir hvern fugl 10—100 kr.; sje brotið ítrek- að, tvöfaldast sektin. 2. gr. Engir, hvorki varpeigendur nje aðrir, mega selja nje kaupa æðaregg. Brjóti nokkur móti þessu, ska! hann gjalda 10—100 kr. sekt; sje brotið itrek- að, tvöfaldast sektin. 3. gr. Enginn má kaupa eða selja, hirða eða hagnýta, nokkurstaðar á íslandi dauða æðarfugla eða hluti að þeim. Brjóti nokkur hjerá móti skal hann gjalda 10—100 kr. sekt. 4- gr- Sektir þær, sem ákveðnar eru í !•» 2. og 3. gr„ renna að ‘/s hluta í sveit- ar- eða bæjarsjóð, þar sem brotið er framið, en 2/s til uppljóstarmanns. 5. gr. Mál þau, er risa út af brotum gegn lögum þessum, skal farið með sem opinber lögreglumál. Í>ingsályktunartill0gur þessar eru enn- fremur samþykktar af þinginu, í neðrideild. 5. Um landsbankann í Reykjavík. Neðri deild alþingis skorar á landshöfðingja að hlutast til um: 1., að bankinn komist sem allra fyrst í viðskiptasamband við banka erlendis, einkum í Danmörku og Skotlandi. 11., að bankinn samkvæmt 9. gr. bankalag- anna stofni sem allrafyrst útibú. 111., að þær breytingar, sem nú segir, verði gjörðar á reglugjörð landsbankans ö. júní 1886 og viðauka við hana 10. marz 1887: 1. Við 13. gr., að burt verði fellt á- kvæði um, að sjálfskuldarábyrgðar- menn sjeu búsettir í Beykjavík eða þar í grennd. 2. Að 17. gr. falli burt (um 1 árs fyr- ir fram borgun vaxta). 3. Við 22. gr., að fyrirfram greiddir vextir verði endurgoldnir þeim, sem borga skuld sína fyrir gjalddaga. 4. Að varasjóði bankans megi verja eigi að eins í kgl. skuldabrjef, heldur og í önnur handhæg verðbrjef, er á skömm- um tíma má koina í peninga. 5. Að bankinn borgi af innlögum með sparisjóðskjörum eigi lægri vexti en If minna en hann tekur af fje því, er hann lánar út. 6. TJm ábyrgðargjald fyrir póstsendingar með tilgreindu vcrði. Neðri deild alþingis skorar á ráðgjafa Is- lands, að hlutast til um með samDÍngi við hiua dönsku póststjórn, að ábyrgðargjald fyrir sendingar, sem verð er tilgreint á, og látnar eru á pósthús á Islandi til að flytjast til Danmerkur, verði hið sama, sem borgun sú, er greiða þarf fyrir sendingar á sömu upp- hæðum með póstávísunum. Stjórnarskrárxnálið. Nefndin í efri deild hefir klofnað. Minni hlutinn, Skúli þorvarðarson, vill samþykkja frumvarpið óbreytt, eins og það kom frá neðri deild. Meiri hlutinn, B. Th. Jónassen, Priðrik Stefánsson, Jón A. Hjaltalín og Jón Ólafsson (form. nefndarinnar) hefir þar á móti «komið sjer saman um, að gjöra þær breytingar við frumvarpið, sem þeir ætluðu, að fyr eða síð- ar mundu draga til samkomulags milli þeirra málsaðila, sem í þessu máli hafa verið and- vígir hvor öðrum hingað til, og vonar nefnd- in, að þetta geti leitt til heillaríkra úrslita fyrir land vort». Með sjerstakjegu tilliti til agnúa þeirra, er taldir voru í hinni kgl. auglýs. 2. nóv. 1885 á stjórnarskrárfrv. því, sem þá lá fyrir, vill meiri hlutinn skjóta inn í frumvarpið beinni tilvitnun í stöðulögin frá 2. janvíar 1871, og í annan stað fyrirgirða aðfinnsluna um ótil- hlýðilega rýring á valdi hans hátignar konungs- ins með því að breyta 6. gr. þannig, að þar sem stendur í frv. «Konungur lætur landsstjóra — framkvæma hið æðsta vald*, þá koma í þess stað: Konungur getur látið jarlinn-----fram- kvæma o. s. frv. (Nefndin vill hafa jarl í stað landsstjóra). Jarlinn skal geta þess við hverja stjórnar athöfn, að hann gjöri hana í nafni og umboði konungs. Samkynja breytingum er og stungið upp á í greinum, þar sem líkt stendur á, þ. e. að konungur skuli geta látið jarlinn gera það og það. Um laga-staðfestingarvaldið vill nefndin búæ á þessa leið: «Nú er lagafrumvarp, er báðar deildir þings- ins hafa samþykkt, lagt fyrir jarlinn til stað- festingar konungs, skal hann lýsa yfir innan mánaðar, hvort hann staðfestir það eða neit- ar því staðfestingar í nafni konungs, eða hann. geymir sjer rjett til að leita vilja konungs í því efni. þegar jarlinn hefir í nafni konungs staðfest eitthvert lagafrumvarp, skal hann við fyrstu hentugleika senda ráðgjafa kon- ungs (sbr. 3. gr.) nákvæmt samrit laganna. Nú þykir konungi rjett, áður en 12 mánuðir- eru liðnir frá því, er ráðgjafi konungs tók við lögunum, að synja þeim staðfestingar,, þá skal ráðgjafinn senda jarlinum synjun þessa, og geta þess um leið, hvenær hann hafi tekið við lögunum. Gerir þá jarlinn kunuuga synjunina eptir þeim lögum, sem gilda um birtingu laga, og falla þá lögin úr gildi frá þeim degi, er birtingin er dagsett. Nú hefir jarlinn geymt sjer rjett til að leita vilja konungs um eitthvert lagafrum- varp, og hefir það þá eigi lagagildi, nema jarlinn hafi birt, áður en 12 mánuðir eru frá því, er fagafrumvarpið var lagt fyrir hann til staðfestingar konungs, að konungur hafi staðfest það». Landsdóm vill nefndin og engan hafa, held- ur skal landsyfirrjetturinn ganga í hans stað og dæma einn í þeim málum, er jarlinn eða neðri deild alþingis býr til á hendur ráð- gjöfunum. Landsyfirdómendur skulu og eigi kjörgeng- ir á þing. A skipun efri deildar vill nefndin gera gagn- gjörða breyting bæði frá því sem nú er og frá því sem neðrideild hafði stnngið upp á. Segir, að hver deildin fyrir síg þurfi að vera sjálfstæð og hinni óháð, og því stoði eigi að láta neðri deildina kjósa hina, fyrst tvo þriðj- unga hennar og að lokum hana alla. Með því nú að eigi verði við komið hjer, að binda þingmennskuskilyrði við eign, eins og gert er annarsstaðar víða, þar sem hjer sje svo lítill muuur á eignum manna, þá stingur nefndin upp á því, «sem nóg eru dæmi til, að konungur í fyrsta sinn og síðan jarlinn kveðji menn í þessa deild». Verða fyrirmælin um skipun efri deildar þá eptir tilætlun nefndarinnar á þessa leið: Á alþingi eiga sæti 36 menn; í fyrsta skipti, sem alþingi kemur saman samkvæmt stjórn- arskrá þessari, taka sæti 24 þjóðkjörnir al- þingisménn, og 12 alþingismenn, er konung- ur kveður til þingsetu. Alþingi skiptist í tvær deildir, efri þingdeild og neðri þingdeild. I efri deildinni sitja þeir 12 þingmenn, sem konungur kveður til þing- setu, 3 úr fjórðungi hverjum. Eigi skal

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.