Ísafold - 17.08.1889, Side 2

Ísafold - 17.08.1889, Side 2
262 c. um skipun lögregluliðs, er heldur uppi reglu, þá er eldsvoða eða önnur óvanaleg atvik ber að höndum, sem annaðhvort er sjer- staklega leigt til þessa eptir ákvæðum bæj- arstjórnarinnar eða á annan hátt. d. um allt eptirlit, sem lýtur að því, að fyrir- byggja brunahættu og eldsvoða, þar sem eigi þegar eru sett lög og samþykktir um slíkt efni. 3. gr. Hlutaðeigandi bæjarstjórn býr til frumvarp til samþykktarinnar, og skulu vera í henni reglur um, hvernig greiða skuli út- gjöld þau til lögreglunnar, er hin ýmsu á- kvæði hafa í för með sjer, er gjörð eru. Frum- varpið skal senda amtmanni, og gjörir hann við það þær athugasemdir, er honum þykir viðþurfa, og sendir það síðan landshöfðingja, er því næst gefur út samþykktina. Nú gjörir amtmaður eða landshöfðingi breytingar við frumvarpið, og skal þá leggja þær fyriv bæj- arstjórnina til álita. þær breytingar, sem bæjarstjórnin fellst ekki á, má eigi setja í samþykktina. Samþykktin skal prentuð á kostnað bæjarins og birt almenningi með því að prentast í B.-deild stjórnartíðindanna. Breytingar á samþykktinni skal gjöra og birta á sama hátt, sem hina upprunalegu sam- þykkt. 4. gr. Samþykktin gildir að öllum jafnaði um allt lögsagnarumdæmi kaupstaðarins. Ef rjett þykir vera að skipa svo fyrir, að ákvæði samþykktarinnar skuli eigi gilda á hlutum af landi því, er heyrir undir lögsagnarumdæmið, annaðhvort að nokkru eða öllu leyti, skal þess getið í samþykktinni, svo sem nauðsyn- legt er. 5. gr. Brot gegn samþykktunum varða sekt- um allt að 100 kr. Börn eldri en 10 ára og yngri en 15 ára skulu sæta vandarhöggum, ef þau hafa áður, eptir að þau voru orðinfullra 10 ára, gjört sig sek í þessum brotum, eða gjört eitthvað, sem ber vott um einstaka ó- náttúru, þó eigi fleiri vandarhöggum en 15, og sje að öðru leyti farið eptir 30. gr. í al- mennum hegningarlögum, eða sæta einföldu fangelsi allt að 8 dögum. Ef kenna má yfir- sjón, er barn drýgir, skorti á hæfilegri um- sjón foreldra eða annara, er barninu ganga í foreldra stað, þá skal refsa þeim fyrir yfirsjón- ina, en eigi barninu. Ef einhver lætur það ógjört, sem er skylda hans, samkvæmt samþykktinni, má lögreglu- stjórinn láta gjöra þetta, eða gjöra nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að hindra, að van- rækslan valdi tjóni. Kostnaður við þetta og kostnaður, sem leiðir af þeim ráðstöfunum, er lögreglustjórinn gjörir til þess að hindra brot gegn því, sem bannað er í samþykktun- um, greiðist af afbrotamanninum, eða, ef hann er eigi fær um það, af bæjarsjóði. 6. gr. Mál, er rísa út af brotum á sam- þykktunum, sal fara með sem almenn lögreglu- mál. Sektir allar fyrir brot á þeim renni í hlutaðeigandi bæjarsjóð. XXII. Lög um meðgjöf með óskilgetnum börnum o. fl. 1. gr. Heimilt er móður óskilgetins barns að krefjast þess, að föður þess verði gjört að skyldu, að greiða að minnsta kosti helming þess kostnaðar, er af barnsförunum leiddu fyrir hana, og ef þörf gjörist, þröngvað til þess, svo sem heimilað er í lögum til greiðslu á meðgjöf með óskilgetnum börnum. Yfir- völdin til taka upphæð þessarar fjárreiðslu, og getur móðir barnsins heimt hana eptir reglum þeim, sem segir í 3. gr. 2. gr. Nú deyr karlmaður og lætur eptir sig barn óskdgetið yngra en 16 ára, og skal þá greiða af fjánnunum dánarbúsin3 sem aðra skuld, er komin sje í gjalddaga, barnsfúlgu þá, er hinn dáni gjalda skyldi, svo framar- lega sem beiðni um það kemur til skiptaráð- anda áður en skuldlýsingarfrestur (Proclama) er liðinn eða 6 mánuðir frá láti hans, hafi skuldlýsingarfrestur eigi boðaður verið. Ef ekkja hins dúna eða skilgetin börn hans eru á lífi, þá skal eigi fje út leggja öðrum óskil- getnum börnum hans en þeim, er fædd voru fyrir hið síðasta hjónaband. f>ó skal þess jafnan gætt, að meðgjöf sú, er ætluð eróskil- getnu barni til framfærslu, skal aldrei nema meiru fje en því, er barnið skyldi í arf taka, ef skilgetið væri. Nú situr ekkja barnsföður í óskiptu búi, og heldur hún þá áfram að greiða meðgjöf þú, er barnsfaðirinn lúka skyldi, ef á lífi væri, en þó eigi meiri upphæð nje um lengri tíma en amtmanni hæfa þykir eptir efnum hennar og með hliðsjón til fyrtjeðra fyrirmæla, og aldrei lengur en þar til barnið er orðið 14 vetra, ef hún á skilgetin börn á lífi, ella þar til barn er 16 vetra. Um barns- fúlgu, er þannig er greidd af hendi í einu eptir lát föðurins, skal fara sem um fje ófor- ráðainanna (ómyndugra), að verja má að eins hvers árs meðgjöf barninu til framfærslu jafn- ótt, sem hún kemur í gjaldaga. Palli barns- fúlga niður að nokkru eða öllu, þá skal fje það, er óeytt er, koma til skipta meðal erfingja. 3. gr. Nú greiðir barnsfaðir eigi fúlguna góðfúslega, og móðirin fær vottorð um það frá veitir stjórninni í dvalarsveit sinni, að hún sje eigi einfær um að annast framfærslu og uppeldi barns síns, og er henni þá heimilt, ef hún á sveitfesti hjer á landi, að krefjast þess sjálf eða fyrir milligöngu sveitarstjórnarinuar, að meðgjöf föðurins' verði greidd af vistarsveit hans, en þó eigi nema síðasta ársmeðgjöf hvert sinn, og skal meðgjöfin eigi talinn sveit- arstyrkur veittur móðurinni, heldur föðurn- um. Nú hefur vistarsveit föðurins greitt barnsfúlgu hans, og gjört síðan árangurslaust tilraun til að ná fúlgunni hjá föðurnnm á þann hátt, er lög leyfa, og á hún þá rjett til endurgjalds hjá framfærslusveit föðurins, enda sje hann sveitfastur hjer á landi. Eram- færslusveit föðurins hefur á síðan allan hinn sama rjett, sem vistarsveit hans áður hafði, til að ganga eptir hjá föðurnum meðgjöf þeirri, er hún goldið hefur fyrír hann, eður og að heimta, að hann sje látinn afplána styrkinn, Ef barnsfaðir á eigi framfærslurjett hjer á landi, kemur í stað framfærslusveitarinnar vistarsveit sú, er faðirinn átti 40 vikum fyrir fæðingu barnsins. 4. gr. jpann hinn sama rjett, sem móðir að óskilgetnu barni hefur eptir 3. gr. laga þessara, hafa og þeir menn, er annast fram- færslu og uppeldi barnsins eptir móðurina látna, burtfarna eður af öðrum líkum orsök- um ; sama rjett hefur og sveitarstjórn, þá er barnið þiggur af sveit. Nú deyr móðir óskilgetins barns, og er þá rjett, að faðir barnsins fái það til sín, til framfærslu og uppeldis, ef hann annaðhvort ættleiðir það, eður hann fær til þess leyfi yfir- valdsins á þeim stað, er barnið er. 5. gr. Hve nær sem sveitarstjórn, sam- kvæmt lögum þessum, spyrzt fyrir um föður óskilgetins barns, á hún, ef þörf gjörist, rjett á, að krefjast fulltingis sýslumauns eður bæjar- fógeta til að leita upp verustað hans. XXIII. Lög um tollgreiðslu. 1. gr. f>á er tollskyldar vörur flytjast tií astaverzlunar, getur kaupmaður sá, sem tolli á að svara komizt hjá að greiða meira en. helming af hinum ákveðna tolli þá þegar, með því að fá lögreglustjóra í hendur öll um- ráð yfir vörum þeim, sem frestað er að greiða toll af. Vörur þessar eru veð fyrir eptir- stöðvum tollsins, og skal kaupmaður geyma þær í sinni ábyrgð á þann hátt, er lögreglu- stjóri álítur fulltryggjandi, og má kaupandi hvorki taka þær til afnota eða útsölu, nje farga þeim á annan hátt. 2. gr. Nú vill kaupmaður fá uniráð yfirvör- um þeim, sem að veði eru, og getur hann þá krafizt, að lögreglustjóri afhendi sjer þær til fullra umráða, en jafnframt er hann skyldur til að greiða að fullu eptirstöðvar tollsins. Ef lögreglustjóri þarf að takast ferð á hendur til að takaviðumráðumyfir vörum samkvæmtl.gr., eða til að afhenda vörur þær, sem að veði eru, skal kaupmaður greiða honum ferðakostn- að eptir reikningi. 3. gr. Aldrei má líða meira en 3 mánuðir frá því að vörur flytjast til verzlunar, þangað til tollinuin af þeim er að fullu lokið. 4. gr. Ef kaupmaður verður uppvís að því, að hafa tekið eitthvað af vörum þeim, sem að veði eru, án leyfis lögreglustjóra, skal hann gjalda þar af þrefaldan toll, og auk þess sæta allt að 100 kr. sekt, er renni í landssjóð. Svo skal hann og hafa fyrirgjört rjetti sínum til frests á tollgreiðslu framvegis. 5. gr. Lögreglustjóri heldur bók yfir allar aðfluttar vörur, þær er tollskyldar eru, og skal rita þær í nákvæma skýrslu um greiðslu tollsins af hendi þeirra, er honum eiga að svara, svo og um vörúr, sem að veði eru fyrir tolli, og aptur leystar úr veðbandi. Bók þá löggildir amtmaður. fiiig'.sályktuiiiirtillögiir þessar hafa verið samþykktar frá því síðast, afbáðum deildum aljringis. 7. Um skilyrði fyrir landssjóðsstyrk til barnakennslu. Alþingi ályktar. að skilyrðin fyrir styrk- veitingu úr landssjóði til barnakennslu skuli ve a þessi: I. Til barnaskóla í sjóþorpum og verzl- unarstöðum öðrum en kaupstöðum; 1. Að kennt sje auk kristindóms og lesturs: skript, reikningur, rjettritun, meginatriði landafræðinnar, einkum Is- lands og helztu grundvallaratriði náttúrufræðinnar (svo sen- um bygg- ingu, líkama mannsins, lopt, hita og þyngd), samkvæmt reglugjörð, er stiptsyfirvöldin samþykkja. 2. Að skólinn standi ekki skemur en 6 mánuði, og að minnsta kosti i2nem- endur njóti þar tilsagnar allan skóla- timann, og gangi undir árspróf í öll- um þeim námsgreinum, sem skylt er að kenna samkvæmt reglugjörð skól- ans. 3. Að við lok hvers skólaárs sje haldið opinbert próf yfir börnum þeim, er kennslunnar hafa notið. Prófdóm- endur sjeu hlutaðeigandi sóknarprest- ur og annar maður, er sýslunefnd kýs, og taki þeir til spurningarnar .við prófið. 4. Að skólinn njóti jafnmikils styrks annarsstaðar frá og þess, er honum veitist úr landssjóði. 5. Styrkbeiðslum frá skólunum skal jafn- an fylgja nákvæm skýrsla um árs- próf skólans, svo og endurrit af síð- asta ársreikningl um tekjur hans og gjöld.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.