Ísafold - 16.10.1889, Qupperneq 1
KLemur út á miðvikudögum og
laugardögum. Verð árgangsins
(104 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrir miðjan júlímánuð.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir I.okt. Af-
greiðslust. í Austurstrœti 8.
XVI 83.
Reykjavík, miðvikudaginn 16. okt.
1889.
Útlendar frjettir.
Khöfn 29. sept. 1889.
Veðrafar. Eigningasanit um meiri hluta
Evrópu, en víða með hvassviðri. Frá norð-
urhluta Ameríku sagt af stormum meðfram
hinum nyrðri ströndum við Atlanzhaf, sem
hafa valdið bæði skiptöpum og stórfióðum.
— Nýjar sögur af ógurlegum stórflóðum,
vatnshellingum og hlaupavöxtum í ám í
Japan; heilum bæjum skolað á burt, og
10,000 manna fórust í þeim ósköpum í út-
suðurhluta landsins, í ágústmánuði.
Danmörk- Seinustu tignargestir kon-
ungs vors hafa verið: Svíakonungur með
t.v^eim sona sinna—- krónprinsinum og Eugen
prinsi — og Victoria drottning, ekkja Eriðriks
öisara 3., með þremur dætra sinna. Svía-
onungur hjelt heimleiðis samdægurs, en
dtottningin dvaldi á Fredensborg nokkra
daga. |>ar hitti Sofía dóttir hennar unnusta
sinn, Konstantín, krónprins Grikkja. jpeir
likkjakonungur og prinsinn eru nú á heimleið.
"•fjm stjórnarþref Dana ekki lystilegt að
VÆða. Fundir í sífellu um allt.land til und-
frbúnings kosninga, og eigast vinstrimenn
*íelzt við í þeim orrahríðum. Svo mætti
fealla, að þar bannfæri tveir páfar hvor ann-
jn, sem þeir eru Holsteinn Hleiðrugreifi og
-Rerg. Berg þykist þar mæla naprast til
hins, er hann segir: »Já, þið eruð liðlegir
mótstöðumenn stjórnarinnar, eða hitt heldur.
þ>að er einmitt fyrir ykkar fulltingi, nýmæla-
samvinnuna og samþykktirnar, að þeir Estrup
sitja blýfastir í sætum sínum. I stuttu at-
kvæði sagt: þið hafið einmitt sjálfir gjört
ykkur að þingafla Estrúps !«
Noregur Og Svíþjóð. Frá þeim ríkj-
um ekkert frjettnæmt að flytja. Vinstriblöð
Norðmanna gjöra sjer far um, að koma
vinstrimönnum úr tvístringi, og blað Jóh.
Sverdnips (»Kristjamupósturinn«) gengur hjer
fremst í flokki.
Af Órientalista-fundunum mætti allmargt
segja, en við þá mest að meta, að fræði-
menn frá svo margkynjuðum þjóðum heims-
ins hafa aldrei fyr á fundum saman setið,
' eða til samkynninga verið saman leiddir.
Trú og skoðanir margbreyttar, en hjer voru
• allir á griðastað bróðernisins komnir. Frá
Stokkhólmi haldið til Uppsala, og þar af því
drykkjarhorni (úr silfri) drukkið, sem kon-
ungur gaf til minja, og framvegis mun fram
borið í þeirra fundagildum. í skilnaðarveizl-
unni í Stokkhólmi söng sendiboði Baróda-
•furstans (á Indlandi) þakkarljóð, ort á san-
skrít, til Oskars konungs. Líkt gjörðí á
sínu máli einn frá Arabíu og annar frá E-
giptalandi. Viðtökurnar i Kristjaníu virkta-
fullar og með mestu risnu. Einn daginn far-
ið með gestina til fagurs og svipmikils há-
lendis, en dagveizlan stóð undir dynjanda
ÍOS8Í, er Hænufoss heitir. A einu Kristjaníu-
mótinu talað um frumbyggðir Germana («Indo-
Germana«) eða kynfeðra þeirra, sem sumir
hafa ætlað heldur hafi verið í vorri álfu en
í Asíu. Ný stuðning8rök fyrir hinu síðara,
eða fyrir öndverðum sböðvum þeirra nærri
Himalaja, færði sá fræðimaður fram frá Ber-
lín, er Schmidt heitir.
England- Verkaföllunum miklu lokið, en
vinnuveitendur ljetu undan fyrir meðalgöngu
og fortölur góðgjarnra og viturra skörunga, en
þeir þar fremstir taldir, borgarstjórinn í Lun-
dúnum og Manning kardínáli. Burns hjet
sá, sem helzt hafði forustu fyrir verkamönn-
um og hjelt þeim saman. Eptir unninn sig-
ur minnti hann þá á að neyta hans sem
sæmdi eða í þarfir heimila sinna, en sneiða
meira eptirleiðis hjá ölskálunum.
I miðjum september var í Whitechapel, af-
hrakahverfinu í Lundúnum, nýtt morð fram-
ið á kvennmanni, eða hið níunda með líkum
hætti og fyr. Bannsóknarar löggæzlunnar
vaða þó í sömu þoku sem áður. þau skeyti
send blöðum frá »Jóhanni kviðristara (Jack
the Ripper)<t, að þetta morð eigi hann ekki,
en hann skuli bráðum gjöra við sig vart.
A Irlandi hafa hinir ensku landeignamenn
gjört fjelag með sjer, sem þeir kalla »lands-
drottnafjelagið«, til að andæfa á móti land-
fjelagi eða þjóðvinafjelagi Ira. Með liðum
hvorra um sig þegar harðar viðureignir í
Tipperay-hjeraði.
jþýzkaland. Nú er það talið áreiðan-
legt, að Bússakeisari heimsæki frænda sinn í
Berlín, og gjaldi svo kurteisina, er Vilhjálm-
ur keisari vitjaði hans fyr en annara í fyrra.
Verði ekki enn af heimsókninni á heimleið
keisarans, mun blöðunum enn þykja, sem á
verra viti. .
Til brúðkaups Sofíu, systur keisarans, sem
á að standa í Aþenu27. okt., fara þau keis-
ari, drottning hans og móðir, en nú staðráð-
ið, að hann í þeirri ferð heimsæki soldán í
Miklagarði.
Frakkland. Svo er skemmst frá kosn-
ingunum að segja, að þjóðveldisvinir hafa
unnið fullan og tryggilegan sigur. Endur-
kjósa verður í 186 kjördæmum, en að því lík-
legast verður talið, verður þingafli þjóðveldis-
manna um 340 eða meiri, hinna samtals um
230. Alls eru þingmenn (neðri- eða fulltrúa-
deildarinnar) 576. |>að sem beztu þykir
gegna, er, að tala hófsmanna hefir vaxið til
muna, en hinum fækkað, sem hikuðu sjer
ekki við að hlaupa í lið með fjandmönnum
þjóðveldisins, þegar þeim þótti svo undir bera.
Að eins 19 eða 20 eru taldir Boulangers liðar,
en kosning kempunnar sjálfrar í París er lýst
ógild. Fæstum kemur annað í hug, en að
þessum óvætti þjóðveldisins sje nú svo hnekkt,
sem þarf, en að einveldis sinnar hafi kámað
mál sitt og spillt því með mökum sínum við
haun. Við þetta kannast jafnvel þegar sum
blöð greifans af París.
Fyrir ekki löngu var Gladstone í París, og
í veizluboði, er honum var haldið, voru þeir
Jules Simon og Tirard forseti stjórnarinnar.
Fyrir minni hans mælti Jules Simon. þetta
var í Bvari Gladstones : »Jeg óska þess ásamt
löndum mínum af heilum hug, að Frakkland
bregðist aldrei hlutverki sfnu, eu að það
haldi þar stöð sinni meðal kristinna þjóða,
er þeim skilar áleiðis á framfarabrautum.
Jeg óska, að Frakkland megi halda framveg-
is forustuveg sínum meðal Evrópuþjóðanna !«
Belgía. Frá þeim voðaviðburði í Ant-
verpen að segja, að skotstikill sprakk í skála,
þar sem slíkt er til búið, og 50 miljónir þeirra
skeyta voru geymdar. En þar voru önnur
búr ekki allfjarri, með steinolíuámum, og
þangað flugu tundurstiklarnir, og kviknaði í
öllu. Hjer tóku voðafeiknin yfir, og eldstrók-
arnir stóðu 600 fet í lopt upp á sumurn stöð-
um. Borgin lengi sem á reiðiskjálfi, og skot-
hríðin hjelzt uns tundurstiklarnir vor gjör-
eyddir. Mikil spell húsa og skipa, sem nærri
lágu. Steinolíuskaðinn metinn á 2,800,000
franka. Lífi týndu hjer 40—50 manna, en
nokkuð á annað hundrað fengu sár og lemstr-
ar.
Italía. I miðjum mánuðinum varð Crispi
stjórnarforseti fyrir því tilræði í Napóli, að
iðnaðarsveinn hljóp að vagni hans, þar sem
hann ók um stræti með dóttur sinni, og
kastaði steini framan í hann. Af því sprakk
illa fyrir á hökunni og lá hann af áverkanum í
nokkra daga. þótt blöðin gerðu sveininn að
flugumanni þjóðveldis-sinna, mun hitt satt,
sem sagt er, að hann hafi verið atvinnulaus, en
borizt heiptarverkið fyrir í ráðieysi og örvinglan.
Hann mun sem fleiri hafa kennt ráðherran-
um um þann atvinnuskort, sem sótt hefir
fólkið á seinustu tímum, eða síðan allt fór
út um þúfur um verzlunar-samninginn við
Frakka.
Austurríki. Talað um í blöðum, að nú
muni gamalt og mikið mál upp tekið, en það
er, að Franz Jósef keisari hafi í hyggju, að
láta krýna sig til konungs í Böhmen. Málið
miklum vanda háð, er vart má búast við að
Ungverjum lítist á blikuna; þeim þyki tví-
deild alríkisins raskað. Um þetta ekki meira
að sinni, en bezt að sjá, hverju fram vindur.
Tyrkland. Óeirðirnar á Krít bældar nið-
ur og deilumálum kristinna manna og Mriha-
meðsjátenda sett með óhlutdrægni(?) af
erindreka soldáns (Schakir pasja), að því
kallað er f enskum blöðum. Framvegis eiga
hjer griða að gæta 40 þúsundir hermanna,
og ætti þá að takast að láta eyjarskeggja
halda sættirnar og sitja á strák sínum.
Ameríka. Mörgum mun kunnugt, að á
ríkjaþinginu í Washington hafa ýms nýmæli
gengið fram til að sporna við vistaferlum Sín-
lendinga til Bandaríkjanna og bólfestu. Af
þessu mikið þref við stjórn Sínlandskeisara,
en nú gránar gamanið, er stjórn hans hefir í
hyggju, að gera hvern þannmann frá Banda-
ríkjunum landrækan, sem atvinnu hefir feng-
ið í umboðsstjórn keisarans, en gera öðrum,
t. d. kaupmönnum og kristniboðum, vistina
svo erfiða og óyudislega, sem við verður
komizt.
Bíkjatalan Bandamanna fjórum aukin, en
þau hin nýju hafa sett greinir í skrár sínar,
sem miklum nýjungum sæta, og hafðar munu