Ísafold - 02.11.1889, Page 3

Ísafold - 02.11.1889, Page 3
351 sláttur á stærð. Bætti við stórum matjurtagarði, og sljettaði i túninu um 7 dagsláttur af þýfi. — Bæiim reisti hann upp alveg að nýju til, mest- allan úr timbri, þar sem voru torfhús áður: stórt íveruhús úr timbii, með útihúsi við endann og kjallara undir öllu húsinu. Timburhlöðu meðjárn- þaki, er tók 6C0 hesta; stórt og rúmgott fjós, og eldaskála sjer í lagi. Einnig kom hann upp nýjum peningshúsum. Torfkirkjuna, er á Leirá var, ljet hann rífa og reisa aðra nýja úr timbri, og lagði mikið i sölurnar til þess, án þess að fá nokkurn styrk til. Hann hafði og mikinn búpening. svo aldrei mun Leirá hafa ver- ið betur setin. J>essi framkvæmd og atorka i búnaði var líka viðurkennd af almenningi, æðri sem lægri, og var hann einn meðal hinna fyrstu, er verðlaunum var sæmdur af sjóði Kristjáns kon- ungs níunda. fórður á Leirá var kosinn sýslunefndarmaður undir eins og sýslunefndir komust á, og var það jafnan síðan til dauöadags. Hann var lika hrepp- stjóri og hreppsnefndaroddviti á síðustu árum sínum. Hann var ekki einungis stakur dugnaðar- maður fyrir sjálfan sig, heldur hvatti hann lika aðra til hins sama. Hann gekkst fyrir stofnun búnaðarfjelags í sveitinni árið 1874 og var forrnað- ur þess. Hann var fremstur í flokki að gangast fyrir, að koma á búnaðarskóianum á Hvanneyri; hann kom einnig upp barnaskóla hjá sjálfum sjer á Leirá, og gaf til þess skólahús, er nota skyldi í þarfir sveitarinnar. Yar hann þannig unnandi allri menntun og framförum, bæði i orði og verki, þótt hann hefði sjálfur litla menntun hlotið í æsku. Leirá liggur í mestu þjóðbraut og J>órður var hölðingi heim að sækja og mjög gestrisinn; þess vegna, var þar mjög gestkvæmt og þurftu allir að „tala við hann J>órð á Leirá“. Opt mun ekki hafa veriö annað erindið en að skrafa við J>órð ; því hann var jafnan ræðinn og skemmtilegur, ræddi um hvers konar framfarir, landsins gagn og nauðsynjar, hvers konar nýjungar og viðburði, og jafnan ureð þeim hætti, er vakið gat áhuga og i- hugun þeirra, er heyrðu; enda bar hann jafnan mál sitt fram snjallt og áheyrilega. Trúrækinn maður var hann, og hafði jafnan guðs orð um hönd í heimahúsum. J>au hjón eignuðust saman 15 börn; 10 þeirra sáluðust í æsku, en 5 lifa, 3 synir og 2 dætur. jþórður var maður vinfastur og trúlyndur, djarf- mæltur og hreinskilinn, hjálpsamur við alla hjálp- arþurfa og dagfarsgóður. Hann ól upp nokkur fósturbörn, sem hann fjekk > ldrei neitt fyrir, og hjálpaði um margt, sem hann fjekk aldrei endur- goldið. Hann hjelt hinni sömu rausn á heimili sínu, þó að hart væri í ári hin síðustu árín, sem hann lifði, og hefir þó eflaust mátt kenna á því ekki siður en aðrir; en hann bjóst við betri tím- um seinn'a; en æfin var þrotin þegar þeir gengu í garð. Hann hefði eflaust orðið mesti uppgangs- maður, ef árferðið hefði ekki verið svo erfitt eptir að hann var búinn að leggja svo mikið í sölurnar til húsabygginga, jarðabóta o. fl. Hann gat gjört sjer von um meira langlífi en raun varð á ; hann var lítt bilaður að líkamsfjöri og kröpt- um. Hann lifði i ástríku hjónabandi með konu sinni, er veitti honum trúa og dygga stoð. með því hún reyndist að sínu leyti eins góð búkona og hann var búmaður; og þurfti þess með, því |>órður var opt í löngum ferðalögum; enda heyrði jeg hann opt viðurkenna þetta. J>órður á Leirá andaðist laugardaginn 2. marz 1889, 58 ára gamall. flafði hann fengið ákafan verk í hægra fótinn, er færðist svo upp eptir lík- amanum og loks í hjartað. Laugardaginn 16. marz var hann jarðsunginn, í viðurvist fjölda manna, bæði utansveitar og innan. S. AUGLYSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í höíid. Uppboðsauglýsing. priðjudaginn 5. nóvember nœstkom., og eptirfarandi daga verður opinbert uppboð hald- ið '1 nr. 1 i Kolasundí hjer í bcenum, á stofu- gögnum, rúmfatnaði, íverufötum og eldhús- gögnum m. fi. tilheyrandi dánarbúi kaupmans J. 0. V. Jónssonar. Uppboðið byrjar kl. 11 fyrir hád. á þriðjudaginn, og verðá þá sölu- skilmálar birtir á uppboðsstaðnum. Bæjarfógetinn í Reykjavík 26. okt. t88ó. Halldór Daníelsson. Vottorð. Dóttir mín, seru er 14 ára gömul, hafði þjáðzt mjög undanfarin ár af jómfrúgulu, lystarleysi og meltingarleysi. Jeg hafði því reynt allt, sem mjer datt í hug við hana, þar á meðal Brama-lífs-elixlr þeirra Mansfeld- Biillners og Lassens, en ekkert af þessu stoð- aði grand. Síðan keypti jeg hjá herra kaup- manni M. H. Gram í Fjeldsö eina fiösku af Kína-lifs-elixír herra Valdemars Petersens í Friðrikshöfn, og er það mjer nú sönn gleði, að geta vottað, að dóttir mín við brúkun bittersius hefir orðið albata af ofangreindum kvillum. Fjeldsö pr. Gjedeted, 4. október 1887. Ekkja Lausts Rytters. Kína-líf8-elixírinn fæst ekta hjá : Hr. K. Felixsyni. Eeykjavík. — Helga Jónssyni. Beykjavík. — Magnúsi Tli. S. Blöndahl. Hafnarfirði. — J. V. Havsteen. Oddeyri pr. Akureyri„ aðalútsölumanni norðanlands. Valdemar Petersen, er býr til hinn eina ekta KLína-lifs-elixír. Frederikshavn. Danmark. 100 Kroner tilsikkres enhver Lungelidende, som efter Benyttelsen af det verdensberömte Mal- tose-Præparat ikke finder sikker Hjælp. Hoste, Hæshed, Asthma, Lunge- og Luft- tör-Katarrh, Spytning o. s. v. ophörer allerede efter nogle Dages Forlöb. Hun- drede og atter Hundrede have benyttet Præparatet med gunstig Resultat. Mal- tose er ikke et Middel, hvis Bestanddele holdes hemmeligt; det erholdes forme- delst Indvirkning af Malt paa Mais. At- tester fra de höieste Autoriteter staa til Tjeneste. Pris 3 Flasker med Kasse Kr. 5, 6 Flasker Kr. g, 12 Flasker Kr. 15. Albert Zenkner, Opfinderen af Maltose- Præparatet. Berlin (26), Oranienstr. 118. Nóttina mili hins n. og 23. sept. síáastl. hyarf úr Steinkots-hraunum á Eyrarbakka: brún-glámskjóttur hestur, glaseygður á báðum augum, burstar-affextur; mark: blaðstýft framan h. Finnandi er beðinn að koma hestinum að Egilsstöðum í Flóa. p. t. Rvík. 31. okt. 1889. Oddg. Guðmundsson. Ain Missisippi og saga hennar_______ viðbúnir að prjedika villiþjóðum kvalir hel- vítiso. Hinn 17. júní 1673 komu þeir Joliet og Maquette og förunautar þeirra á eintrjánings- báturn sínum að ármótum Missisippi og Wis- consin. Parkmann segir svo frá : #Nú varð fyrir þeim mikið vatnsfall og straumhart mjög, er stefndi þvert í leið fyrir þá, en breiðir hálsar á báðar hendur og vaxnir þjett- um skógi að neðan«. »þ>eir beygðu suður á við« segir hann, »og reru niður eptir ánni; þar var allt kyrrt og hljótt; þar hafði eng- inn maður stigið fæti áður«. Einhver sjóskepna rak sig á bátinn, sem Marquette var á, og skaut honum miklum skelk í bringu, sem vonlegt var; því Indían- ar höfðu varað hann við þessu ferðalagi og sagt honum ýmsar kynjasögur af skrímslum og óvættum, er leyndust í fljótinu. J>ar væri óvætt ein, er öskraði svo hátt, að heyrðist langar leiðir, og hefði það til að draga þá fjelága niður í djúpið, þar sem hún byggi. Skepnan, sem gerði þá Marquette og hans förunauta svo skelkaða, var háköttur, —eins konar hákarlakyn. Jeg hef sjálfur sjeð einu sinni Missisippi hákött, sem var meira en 3 álna langur og meira en 25 fjórðungar á þyngd. Hafi sá, sem Marquette rak sig á, verið viðlíka dólpungur, þá var honurn meira en vorkunn, þótt hann hjeldi, að þar væri árinn sjálfur á ferð. Loks fóru vísundarnir að láta sjá sig, rás- andi í stórhópum um engjaflákana fram með ánni, og lýsir Marquette því átakanlega, hve grimmúðlegt var allt útlit þeirra, er þeir blíndu á þá fjelaga eins og tröll á heiðríkju, með samanflækt faxið niður fyrir augu. þeir fjelagar hjeldu áfram leiðar sinnar með allri gætni. þegar myrkva tók, gengu þeir á land, kveiktu þar bál og mötuðust; slökktu síðan eldinn vandlega, ljetu frá landi aptur og reru spölkorn lengra niður eptir, lögðust þar við akkeri, og ljetu halda vörð á skipinu þar til er lýsti af degi. Svona gekk dag eptir dag og nótt eptir nótt; liðu svo 14 dagar, að ekki sást nokkur mannskepna. f>að var inndæl byrð yfir öllu fljótinu í þá daga. Og svo er raunar enn á löngum kafla af þessu mikla vatnsfalli. En þegar hálfur mánuður var liðinn, urðu þeir loks varir við mannsspor í leirnum á vesturbakka árinnar. Hverjum manni, er slíkt ber að honum, mun mjög bylt við verða fyrst í stað. þeim hafði verið sagt, að Indí- anar þeir, er bjuggu fram við Missisippi, væru jafngrinnnir og geigvænlegir eins og vatnaárinn sjálfur, og væru þeir vanir að ráðast á ferðamenn að fyrra bragði, og ganga af þeim dauðum. En þrátt fyrir það rjeðust þeir Joliet og Marquette á land upp og röktu sporiu. Eptir alllanga leit fundu þeir þá, sem sporin áttu. |>eir fengu þar góðar við- ur og góðan beina, að svo miklu leyti sem það geta heitið góðar viðtökur, að lenda í greipum Indíana-höfðingja, sem hefir tínt af sjer hveria spjör til þess, að geta látið sjá sig sæmilega búinn, og svo framarlega sem það getur heitið góður beini, að láta. bera sjer allsnægtir af fiski og alls konar villibráð, þar á meðal hundakjöt, og láta stinga þessu góðgæti öllu upp í sig með berum fingrum Indíana. Morguninn eptir fylgdi höfðinginn sjálfur og 600 manna hans þeim fjelögum

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.