Ísafold - 02.11.1889, Síða 4
Proclama.
Samkvœmt opnu brjefi 4. jan. 1861 og lög- j
um 12. apríl 1878 er skorað á þá, er til _
skulda telja í dánarbúi Olaýs heitins Pjeturs-
sonar á ísafirði, er andaðist á yfirstandandi
sumri, að gefa sig fram og sanna kröfur sínar
fiyrir undirrituðum skiptaráðanda mnan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar auglýs-
ingar.
Svo er og skorað á erfingja hins látna, að
gefa sig fram og fœra sönnur á erfðarjett
sinn.
Bæjarfógetinn á ísafirði 15. okt. 1889.
Skúli Thóroddsen.
]par eð nú er fastráðið, að byggja hina
marg-umræddu
Eyrarbakka-kirkju
á næsta sumri, þá tilkynnist hjer með, að
öllum góðum húsasmiðum, einkum vönum
kirkjusmiðum, er boðið upp á, að gefa sig
fram sem fyrst um tilboð til að taka að sjer
verkið, því hún verður látin upp á akkorð.
Stærðin verður á aðalkirkjunni: 16 áln.
á lengd, 12 á breidd, tveggja tasía hús; kór 7
áln. í hvert horn, forkirkjan 5 áln. í hvert
horn, alls 28 áln. á lengd; setpallar uppi
inn að gafli á aðalkirkjunni.og áttstrendur turn.
jbess ber að geta, að í vetur verður smíðað:
prjedikunar-stóll, altari, allar hurðir, og allir
gluggar.
Fyrir hönd forstöðunelndarinnar:
Jón Björnsson, prestur.
S k r á
yfir kosningar-bæra menn í Reykjavíkursókn,
við prestskosningu í þ. m., er lögð fram í
þinghúsi bæjarins, á borgarasalnum, frá því
í dag til 9. þ. m., á hverjum degi frá kl.
10—2.
Reykjavík 2. nóvember 1889.
Sóknarnefndin.
Skósmíðaverkstæði
Og
leðurverzlun
Björns Kristjánssonar'^Bg
er í VESTURGÖTU nr. 4.
YhORVARDSON & JENSEN.
BÓKBANDS-VERKSTOFA.
Bankastræti 12 (hús Jóns Ólafssonar alþ.m.
þessar vörur fást hjá undirskrifuðum, og
flest af þeim með niðursettu verði, móti
peningum út í hönd í þessum mánuði:
Rúgmjöl. Kaffi. Kaffibrauð fínt í
Risgrjón. Exportkaffi. [pundum og í blikk-
Risinjö). Kandís. dósum, máluðum
Hveitimjöl. Melis niðurh. og ómáluðum.
Sagogrjón. og óniðurh. Blikkdósir tómar.
Semoulegrjón. Púðursykur. Sveitzerostur.
Stífelsi. Rúsínur. Mysuostur.
Sennep. Sveskjur. Nórskar sardínur.
Kanel. Gráfíkjur. Kristjaníubjór.
Pipar. Chocolade. —
tírennivín. Stearin-ljós Saumavjelar.
Rulla. Spil. Nálar og olía.
Rjól. Handsápa. —
Reyktóbak. Grænsápa. Millumverk og
Cigarar. — Blúndur.
Sjóhattar. Víravirki. Silkibönd.
Elauelsbönd.
M. Johannessen.
10 Aðalstræti 10.
Myndarammar
af ýmis konar gerð, bæði gylltir og öðruvísi,
fást hjá Jacobi Sveinssyni Í Reykjavík.
Havkallekutter »Oddeyn«, bygget 1884,
register tons, i udmærket Stand, er
til salgs.
E. Berentsen
Stavanger.
Litunarefni
vor, sem alstaðar eru viður-
kennd ágæt að vera og sæmd
voru verðlaunum á sýningunni í Khöfn 1888,
enda eru hin einu litunarefni í verzlunum, er
samsett eru af æfðum og dugandi efnafræð-
ing,—hin einu litunarefni, er hver húsmóðir
getur litað með fljótt og auðveldlega eins
fallega og beztu litarar, fást hjá herra P.
Thorsteinsson, Bíldudal.
Buch’s Farvefabrik.
Studiestræde 32. Kjöbenhavn K.
Bókaverzl. ísafoldarprentsm.
(Austurstræti. 8)
liefir til sölu allar nýlegar íslenzkar bækur
útgefuar hjer á laudi.
Enskunámsbók Geirs Zoéga er nú til
sölu hjá höfundinum og bóksölumönnum víðs-
vegar um land. Verð: 2 kr.
Líkkistur
af ýmsum stærðum og ýmiskonar gerð, handa
ungum og gömlum, bæði skrautlausar og
meira og minna skreyttar, eptir því sem
óskað kynni að verða, og svo ódýrar sem
unnt er, fást jafnan hjá
Jacobi Sveinssyni í Rvík.
Undertegnede Repræsentant fbr
Det Kongelige Octroierede Almindelige
Brandassurance Compagni
for Bygninger, Varer og Effeeter, stiftet 1798
i Kjöbenhavn, modtager Anmeldelser om
Brandforsikring for Syslerne Isafjord, Barda-
strand, Dala, Snæfellsnes og Hnappadal, samt
meddeler Oplysninger om Præmier etc.
N. Chr. Gram.
Lögfræðisleg formálabók (M. Step-
hensen og L. E. Sveinbjörn3son) fæst á af-
greiðslustofu Isafoldar. Ko3tar í kápu 3 kr.
Helgapostilla fæst á afgreiðslustofu ísa-
foldar. Kostar í kápu 3 kr.
Ný bók.
Sagan af Hálfdáni Barkarsyni.
porleifiur Jónsson gaf út.
IV-f-i6 bls. Fæst í bókverzlun ísafoldar-
prentsmiðju (Austurstræti 8), og bjá út-
sölumönnum Bóksalafjelagsins. — Kostar
hept 15 a.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I_z
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 12___2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12_2
útlán md„ mvd. og ld. kí. 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. (
hverjum mánuði kl. 5—6
Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen.
okt. Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- mælir(millimet.) Veðurátt.
nóv. | ánóttu|um hád. fm. em. fm em.
Mvd.30. -f- 1 + 1 723-9 72i.4 iN h b N h d
Ftl. 31. -4- 3 —2 723-9 734-1 0 b N h b
Fsd. 1. Ld. 2. -p 1 -F 6 — I 744-2 746.8 751.8 Nhvb A h d N h d
Undanfarna daga hefur verið norðanveður stundum
æði hvass útifyiir þótt hægur hjer innfjarðar. Eptir
hádegi h. 30. gjörði hjer slyddubil af norðri
og síðan rigndi um tima; siðan nokkuð frost með
33gri norðanátt; aðfaranótt h. 2. hefur verið mest
frostið, en undir morgun fór að rigna af austii.
Ritstjóri Björn Jónason, cand. phii.
Prentsmið.ia ísafoldar.
frakknesku niður að ánni og kvöddú þá þar
með miklum virtum.
A klöppunum þar fyrir ofan, sem borgin
Alton stendur nú, fundu þeir Marquette
indverska uppdrætti, er þeir lýsa. |>eir voru
fremur viðvauingslegir. Spölkorn þar fyrir
neðan «steyptist ólgandi, gulleitt og grugg-
ugt vatnsfall með miklum gauragangi út í
himinbláan ægi árinnar Missisippi, freyðaDdi
og þyrlandi með sjer trjástofnum, greinum og
heilum eikum, er það hafði kippt með rót-
um«. þetta var mynnið á Missouri; hún
ruddist þar fram kolmórauð einhversstaðar
vestan úr fjöllum og firrnindum, er enginn
maður vissi deili á í þá daga, og hellti skólp-
inu og grugginu úr sjer í skaut hinnar hóg-
væru og blíðu systur sinnar, Missisippi.
Skömmu síðar bar þá fram hjá mynni ann-
ar þverár, fljótsins Ohio. ]>ar nærri hittu
þeir aðra Indianakynkvísl, hjer um bil mán-
uði eptir að þeir byrjuðu ferð sína. Loks
komust þeir þaDgað sem áin Arkansas renn-
ur í Missisippi. þar ruddist mikil sveit
villimanna fram úr skógi; þeir grenjuðu óg-
urlega og bitu í skjaldarrendur. En hinir
hjetu á Maríu mey til hjálpræðis sjer, og
snerist þá ófriðaralda þessi upp í fagra frið-
arhátíð og þægilegt blíðuhjal og alls konar
fögnuð.
Nú voru þeir það fróðari orðnir, að þeir
vissu, að Missisippi rann hvorki út í Kali-
forníuflóa nje út í Atlanzhaf. þóttust þeir
vita, að hún mundi renna út í Mexicoflóa.
þeir hurfu því aptur, og fluttu þessi tíðindi
heim til Kanada.
En það er sitt hvað að hyggja og að v'ta.
f>að átti fyrir La Salle að liggja, að verða
svo frægur að fá vissu fyrir því, hvar Missi-
seppi fjelli til sjávar. Hann hafði tafizt með
ýmsu móti og verið tepptur hvað eptir ann-
að af hrekkjum og svikum. Honum vildi
til hvert óhappið á fætur öðru. Veturinn 1681
hjelt hann loks ög förunautar hans, 18 Indí-
anar frá Nýja-Englandi og 23 Frakkar, á
ísum niður eptir Missisippi og drógu eptir
sjer bátana á sleðum.
|>egar lengra dró niður eptir, var áin auð,
en full þó af ísreki með köflum, þar sem
Ohio og Missouri nema í hana. Við Chicka-
saw-sker lentu þeir, og áðu þar um hríð, og
reistu þar kastalavígið Prudhorame.
Aptur stigu þeir í báta sína, segir Park-
mann, og við hverja dagleið var sem fyrir
sjónum þeirra væri svipt hjúpi af nýjum
heimi. Allt af bar þá nær og nær heim-
kynnum hins fjörsæla vors. Sólin hlúði bet-
ur og betur dag frá degi, loptið varð æ mýkra
og fegurra, jörð tók að grænka og skógar að
laufgast; allt boðaði endurlífgun náttúrunn-
ar.
Dag eptir dag þræddu þeir alla hina miklu
króka og sveiflur, sem áin gerir, í forsælu
hinna miklu skóga meðfram ánni. Loks
komust þeir þangað, sem áin Arkansas renn-
ur í Missisippi. Hin fyrsta kveðja, er þeir
fengu hjá villimönnum þar, var hin sama
sem þeir Marquette höfðu orðið fyrir—her-
trumbuhljómur og vopnagnýr. p>að var Mar-
ía mey, sem bjargaði Marquette; en friðar-
pípan hansLa Sallegerði sama gagn. þeir tókust
í hendur, hinir hvítu menn og rauðskinnung-
ungarnir, og sátu að veizlu saman í þrjá
daga samfleytt. Síðan reisti La Salle þar
upp krossmark eitt mikið, er »rauðskinnungar«