Ísafold


Ísafold - 27.11.1889, Qupperneq 1

Ísafold - 27.11.1889, Qupperneq 1
KLemui út á miðvikudö'um og laugardögum. Verð árgangsins (I04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. (Jppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir I.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVI 95. Reykjavík, miðvikudaginn 27. nóv. 1889. Líf og lifsvon sjómanna. Síra Oddur V. Gíslason, sem er nýkominn heim úr ferðalagi austur um Arness- og Rang- árvallasýslur, til að leiðbeina almenningi þar í ýmsu, er sjávarútvegnum má verða til fram- fara, hefir ritað ísafold svo látandi skýrslu: Herra ritstjóri! A ferð minni 1,— 20. þ. m. um fiskiver Arness- og Rangárvallnasýslna átti jeg tal við hina helztu sjómenn, formenn og útvegsmenn, hjelt fyrirlestra um »bjarg- ráð« á öllum fundarstöðum í Rangárvallasýslu og 3 stöðum í Arnessýslu, til þess að skora á sjómenn, að neyta allra þeirra »bjargráða«, sem menn þekktu, »til að bjarga lífi sínu«. Var því hvervetna mjög vel tekið, og studdu beztu menn mál mitt, svo bjargráðanefndir voru kosnar og skipaðar æfðustu mönnum. Lofuðu menn alstaðar í Rangárvallasýslu að reyna »lýsið« sem sjólægi við hinn voða- lega »landsjó«, sem þar ér hættulegastur, og á nú að reyna sjerstaka lýsispoka, sem herra faktor P. Nielsen á Eyrarbakka sjer um, að búnir verði til. Álít jeg þá hentugri og betri heldur en tappalausar flöskur, sem vaualegast hafa verið notaðar erlendis í lág og brimi. þessa poka á að nota bæði af skipi og úr landi, svo lygnubrú myndist iit yfir landsjó, milli skips og lands. Sumstað- ar skulu ræktuð »hlið« með niðurburði feitar, grútar, lifrar eða lýsis. Lýsti sjer almennur áhugi og vilji á, að gjöra alvöru úr þessu, og efast jeg ekki um, að það verði á sínum tíma framkvæmt, og þá verðar raunin sönn- un fyrir því, .>að lýsið hjdlpar alstaðam, þótt örðugast sje við »landsjóina« að eiga. I Arnessýslu hefir lýsi verið brúkað stöð- ugt á Eyrarbakka og Stokkseyri, samkvæmt samþykkt þar að lútandi. I ITerdísarvík og Selvogi var lýsi haft á hverju fari síðastliðna vetrarvertíð, en í þor- lákshöfn og Loptsstaðasandi var það að eins á fáum skiputn. Bjargráðanefndirnar gjöra það, sem í þeirra valdi stendur, til að fá alla formenn til að hafa lýsi á sjó með sjer, og hvetja til þess, er sjómennsku getur verið til framfara og efiingar, og vona jeg, að árið 1890 beri þess vitni, að í bjai'gráðanefndun- um sje »kraptur ókomins tíma til nýrra' fram- kvæmda», því þær eru skipaðar þeim, sem sjómenn hafa bezt traust á, og sem þeir sjálfir þekkja að greind, dugnaði og fram- kvæmd. 1 Arness- og Rangárvallasýslum eiga sjó- menn að fagna fylgi og stuðning embættis- rnanna og verzlunarmanna, sem hafa allan hug á, að styðja og styrkja framfarir í sjó- mennsku, sem viðurkenna, að afnot erfiðis sjómanna eflir eiginn hag þeirra, og teljast þess vegna eigi undan samvinnunni, heldur taka þátt í henni með ánægju, sem aptur hvetur og örfar sjómanninn til nýrrar og ítrekaðrar áreynslu. þar sem áður hefir verið auglýst, hverjar og hvar væru nefndir (I. í Gúllbringusýslu og IV. Borgarfjarðarsýslu) bið jeg yður að auglýsa nefndir Arnes- og Rangárvallasýslna : II. Bjargráðanefndir í A r n e s s ý s lu, 1. porlákshöfn (2. S. G.). Jón Jónsson, Hlíðarenda (oddviti). Halldór Jónsson, þorlákshöfn. Jón þorsteinsson, Móhúsum. 2. Eyrarbakka. Guðmundur Isleifsson, Stóru-Háeyri. Jón Hannesson, Litlu-Háeyri (oddviti). Jóhann þorkelsson, Mundakoti. Jón Sigurðsson, Túni. Ólafur Gíslason, Götuhúsum. Eyvindur Jónsson, Eyvakoti. Magnús Ingvarsson, Einkofa. 3. Stokkseyri. Adolf Adolfsson, Stokkseyri. Jón Grímsson, Stokkseyri. Benedikt Benediktsson, Iragerði. Jón Jónsson, Holti. Sturlaugur Jónsson, Starkarhúsum. Hallgrímur Jóhannesson, Kalastöðum. Júníus Pálsson, Syðraseli. 4. Loptsstaðaveri. Jón Jónsson eldri, Loptsstöðum. Jón Jónsson yngri, s. st. (oddviti). Gísli Jónsson, s. st. Ari Andrjesson, Ragnheiðarstöðum. þorsteiun Oddsson, s. st. Hannes Magnússon, Baugstöðum. Guðmundur Hannesson, Tungu. 5. Selvogur og 6. Herdisarvík er enn þá óákveðið, hvort myndi eina eða tvær nefndir, og verður það síðar auglýst. III. Bjargráðanefndir i Bang ár v alla- sý s lu. 1. pykkvabce. þórður Guðmundsson, Hala (oddviti). Ólafur Ólafsson, Hábæ. Kristján Pálsson, Borgartúni. Jón Benediktsson, Unhól. 2. Vestur-Landeyjahreppi. Arni Jónsson, Sperðli. Tómas Jónsson, Gerðum. Kjartan Olafsson, þúfu (oddviti). Einar þorsteinsson, Arnarholti, Jón Halldórsson, Strönd. Jón Nikulásson, Alfhól. 3. Austur-Landeyjahreppi. Oddur Pjétursson, Krossi (oddviti). Guðni Guðmundsson, Skækli. Sigurður Guðmundsson, Litlu-Hildisey. Sigurður þorbjörnss., Kirkjulandshjáleigu. Bjarni Guðmundsson, Búðarhjáleigu. Guðlaugur Nikulásson, Hallgeirsey. 4. Vestur-Eyjafjallahreppi. Bergsteinn Einarsson, Pitjarmýri. Jón Sighvatsson, Efriholtum (oddviti). Auðunn Einarsson, Syðrirofum. Jón Einarsson yngri, Skála. Sigurður Arnason, Steinmóðarbæ. ð. Austur-Eyjafjallahreppi. Magnús Jónsson, Steinum (oddviti). þorsteinn Jónsson, Drangshlíð. Sigurður Ólafsson, Hrútafellskoti. Vigfús Einarsson, Hlíð. Að þessu sinni var mjer ekki hægt að að gjöra meira, þar sem tími minn var bund- inn; en ef jeg lifi (þá kemur tími og þá kem- ur ráð) mun jeg reyna að koma í flest fiski- ver, í þeirri von, að einhver not verði að ferðum mínum, og hefir þessi ferð mín hvatt mig mjög til þess, þar sem jeg ekki varð annars var en vilja og áhuga til framfara í sjómennsku, og mjer var sem hjá bræðrum væri. Jeg tel sjálfsagt, að nefndir Arnessýslu reyni að sjá þeim 2000 manns, sem á vertíð verða mílli Ólfusár og þjórsár, fyrir viðunan- legri læknishjálp, því það á sjer hvergi stað í heimi, að svo fjölmenn og náin fiskiver sjeu læknislaus (þ. e. hafi eigi sjerstakan lækni) og hjer er betra »að veifa röngu trje en engu«, ef eigi verður úr því bætt. Reykjavík 23. nóv. 1889. O. V. Gíslason. * * * Hinn mikli áhugi og þolgæði síra O. V. Gíslasonar við þá sjerstaklegu framfaravið- leitni, er hann hefir tekið að sjer, er líklegt til þess að bera muni góðan ávöxt. Undir- tektirnar eru, að hans sögn, víðast mikið góðar. »En efndanna er vant, þótt heitiu sjeu fengin»: allt er undir því komið, að fram- kvæmdirnar verði sæmilegar. Sjervizka og hleypidómar gera auðvitað vart við sig innan um móti þepsari framfaranýbreytni sem ann- ari, þótt hann hafi ekki orð á þvi, enda kann hann manna bezt tök á að yfirbuga það með lipurð og þolinmæði; en við deyfðina og skeytingarleysið, þegar til framkvæmdanna j kemur og talsmaðurinn er hvergi nærri, — við það er erfiðara að fást. En takist að yfirbuga það líka í þessu máli, þá munfleira á eptir fara : meira fjör og framtakssemi til annara hluta líka ; og því á þetta og því um líkt að vera áhugamál fyrir þjóðina í heild sinni. Fjártökuviðskipti Zöllners og Kaupfjelags Arnesinga (Niðurlag), Eptir að skip Z. var farið hjeðan, skrifað jeg austur, hvort jeg ætti að afhenda þessa 354 sauði hjer til geymslu eða selja. Var mjer svarað aptur, að vissast væri að selja þá, þar sem engin trygging væri fyrir frá Z. hálfu, að fjelagið biði engan halla, bæði við kostnað fjárins hjer eins og sölu þess seinna meir. Aleit jeg þó hyggilegra að hinkra við með söluna, ef Z. seinna sendi mjer skriflega trygging fyrir því, að fjelagið skyldi engan halla bíða við þessa bið fjárins hjer; en það reyndist óþarfa hinkrun. Dróst því sala fjárins undir það í 2 vikur. Að vísu fjekk prófasturinn »privat«-brjef frá J. V., og stóó þar, að þeir væru fúsir á, að borga allan kostnað af bið fjárins hjer, og hefði þeim dottið í hug, að senda lítið gufuskip eptir báðum fjárhópunum og hross- unum; en þar sem þeir ekki vissu nema búið væri að selja kaupfjelags-fjeð, þá þyrðu þeir ekki að ráðast í að senda skip. þetta «

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.