Ísafold - 13.08.1890, Page 1
tCemur át á miðvikudögum og
laugardögum. Verð árgangsins
(104 arka) 4 kr.; erlendis 5 kf.
Borgist fyrir miðjan júlímánuð.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin \ ð
áramót, ógild nema komin sjt
til útgefanda fyrir t.okt. Af-
greiðslust. í Austurstrœti 8.
XVII 65.
Reykjavik, miðvikudaginn 13 ágúst.
———»'.V
1890.
Strandferðaskipið Thyra, kapt. Hov-
gaard, kom hingað í gærkveldi norðan um
land og vestan, og með henni fjöldi farþegja:
landshöfðinginn, norðan af Húsavík; biskupinn,
úr vísitazíuferð sinni um Múlasýslur; póst-
meistarinn, frá Húsavík; sýslum. Jóh. Olafs-
son frá Sauðárkrók með frú sinni; Sig-
urður Vigfússon fornfræðingur; kaupmeun-
irnir Zöylner og Lárus Snorrason frá ísafirði
áleiðis til Khafnar, og Holger Clausen frá
•Stykkishólmi, og margir fleiri.
Gufubátur Asgeirs kaupmanns Ásgeirs-
sonar, «Ásgeir litli», var kominn til Isafjarð-
■ar og nýbyrjaður á ferðum um Djúpið, milli
Arngerðareyrar og Isafjarðarkaupstaðar, með
8 viðkomustöðum. Báturinn ber 17 smálest-
ir, sama sem 100 skpd. hjer um bil, og
tekur talsvert af farþegjum. Er látið allvel
af honum. Hann á að halda áfram ferðum
sínum um Djúpið að staðaldri til hausts (októ-
berloka), þar á meðal við og við norður í
Jökulfirði.
Hafís varð Thyra vör við nú fyrir Strönd-
um, spöng allvæna, 2—3 mílur undan landi,
úti fyrir Húnaflóa, og hrafl lltilsháttar við
land innar. tJr Fljótum (Skagaf.) er Isafold
skrifað 3. ágúst: «Hákarlamenn eru nú að
koma upp aflalausir og segja hafísinn breiða
sig yfir allt Strandagrunn, vera 3 mílur uud-
an Horni og 6 mílur undan Skagatá».
Barðastr -sýslu vestanverðri 6. ágúst:
Sama góðviðris- og hlýindatíð helzt enn í dag,
en nú um nokkurn tíma hefir verið nokkur
rigning með köflum, svo töður liggja enn á
túnum að nokkru leyti. Um miðjan júlí
voru mjög miklir hitar, allt að 16° B. eða
meira í skugga um hádaginn, og langvinnir
.þurkar langt fram í mánuðinn. Kringum
hinn annau var mikil rigning.
Hinir miklu þurkar á vorinu og fram á
slátt drógu mikið úr grasvextinum, svo tún
hafa orðið miklu ver sprottin en út leit
fyrir í vor, og verða töður að líkindum alls
eigi meiri en í meðalári eða vel það, sum-
staðar í lakasta lagi, helzt á harðlendum
túnum. Víða hefir brunnið til skaða af tiin-
um. Slátt hefði verið mátulegt að byrja 9
vikur af sumri. Eptir það gerði grasið eigi
annað en skrælna. En þá voru menn al-
mennt enn í veri, og gat sláttur sökum þess
eigi byrjað víðast fyr en vant er. Yfir engj-
um kvarta margir líka, þótt sagt sje, að þær
sjeu sumstaðar góðar.
Hlutarhceð á vorinu verið í betra lagi, eink-
um af steinbít. fúlskipin afla líka dável, og
útlit er fyrir, að fiskur muni fást inn í fjörð-
inn í haust.
nlnflúenzat-veikin hefir nú geysað hjer sið-
an um miðjan júní, er hún barst á Patreks-
fjörð með fiskiskipi úr Hafnarfirði, og út-
breiddist þaðan í allar áttir smátt og smátt.
Flestir voru veikir um sláttarbyrjunina og um
það leyti sem komið var úr veri. Má full-
jrða, að þótt veikin hafi sumstaðar eigi lagzt
onjög þungt á, þá hefir hún valdið allmiklu
vinnutjóni, því að þeir, sem eigi lögðust,
voru lengi margir lasnir og þróttlausir. Sum-
ir lágu 2 daga, nokkrir lengur, en flestir lögð-
ust eigi, en voru meira og minna lasnir.
Skagafirði (miðjum) 6. ág. Veðurátta
mjög góð allan júlí, óþurkar nú um tíma, og
hey undir skemmdum; gras sprottið i meðal-
lagi yfir höfuð.
lnflúenza hefir gengið yfir sýsluna næstlið-
inn mánuð; kom frá hátíðahaldinu á Oddeyri
hingað með þeim, sem hjeðan fóru þangað,
seint í júní, hefir ekki verið mannskæð, sár-
fáir dáið, en verkatjón hefir hún mikið gert.
Mjög væg hefir hún verið á börnum og gam-
almennum. Eptirköst hennar, einkum lungna-
bólga, hafa verið langverst. Euglsafli við
Drangey í vor varð ágœtur, og fiskafli sumra
mikið góður, einkum austanfjarðarins. Næst-
liðinn mánuð hefir verið mikill afli vestan
fjarðarins, og á Sauðárkrók, en enginn að
austan. Nú er fiskurinn að ganga austur að
landinu; 2. og 3. þ. m. hefir aflazt austan
megin 90—100 í hlut af vænum fiski upp
undir landsteinum. Hann aflazt að eins á
núja síld, sem veiðist hingað til einkum á
Sauðárkrók.
Hvalur er ný-rekinn á Hrauni á Skaga.
Skagafirði (Fljótum) 3. ágúst: «Nú í £
mánuð óþurkasamt og töður farnar að hrekj-
ast, enda kvað hafísinn ekki langt í burtu.
Lítið um fisk þegar róið er, en hafsíld að
koma þessa dagana upp að landinu, veður þó
lítið ofan sjáfar enn sem komið er.
Inflúenza gekk hjer yfir sem annarstaðar
og gjörði stórmikið vinnutjón, en ekki hefir
hún reynzt mannskæð. Henni er nú að
mestu ljett af, en mjög lengi hafa menn
kennt afleiðinga af henni».
Norðurmúlasýslu (Vopnaf.) 30. júlí:
«Aflabrögð hafa verið hjer framúrskarandi í
sumar. Við verzlun Orum & Wulff hjer er
mesti af fiskinum lagður inn blautur, komin
8—900,000 pd. f>ó salta nokkrir innlendir.
Inflúenzaveikin gerði hjer vart við sig, en
fáa leiddi hún til bana. Veikin var mjög
sóttnæm, svo að rjett hver maður, sem hing-
að kom meðan veikin var mest, flutti hana
með sjer um sveitina og hjeraðið».
Ný lög. f>essi tvenn lög frá siðasta
alþingi hefir konungur staðfest n. f.
mán. :
25. Lög um styrktarsjóð handa aþýðu-
fólki (prentað orðrjett f ísafold 3. á-
gúst f. á.).
36. Lög um breytingar nokkrar á til-
skipun 4. maí 1872 um sveitarstjórn
á íslandi o. fl. (sjá ísaf. 24. ágúst
f. á.).
f>á eru 4 lög eptir óstaðfest frá siðasta
þingi, auk þeirra er synjað hefir verið
staðfestingar.
Ágrip af norskum fiskiveiðalögum.
Lög 21. desbr. 1792 (og 23. júlí 1788
og 10. júlí 1789 fyrir Kristjáns-
sand og þrándheim).
1. gr. leyfir að leggja megi þorskanet, hver
sem vill, samhliða lóða- og haldfærabrúkun,
allt eptir tilteknum reglum.
2. gr. bannar að leggja þorskanet nema á
kvöldin, og skipar að þau skuli takast upp á
næsta morgni, að viðlögðu aflatjóni og sekt.
3. gr. «|>ar eð það er misjafnt, og ómögu-
legt á visan að róa með það, hvenær þorsk-
urinn gengur að landi, þá er ómögulegt að
ákveða með lögum tímann, á hverjum brúka
skuli þorskanet, nje heldur að gefa almennar
reglur fyrir, hvenær þau skuli leggjast svo, að
arður eða tjón sje að ; til þess að geta gert
sjer hugmynd um það, þurfa vanir og gætnir
fiskimenn að athuga hrognin í þeim færafiski,
sem þeir fá; þeir þurfa að athuga, hversu
þau eru þroskuð, því að eptir því fer, hversu
langt er þangað til að gangan stóðvast við
botninn og kyrrist. Hlutaðeigandi yfirvald
skal á hverju hausti útnefna 6 hina reyndustu
og gætnustu fiskimenn í hverri veiðistöð til
þess að vera tilsjónarmenn næsta ár. þeg-
ar svo vetrarvertíð byrjar næsta ár, þá ákveða
tilsjónarmennirnir og koma sjer saman við
íbúa sinnar veiðistöðvar um, hvenær brúka
megi þorskanet. Hver sá fiskimaður, sem
ekki hlýðir tilsjónarmönnum, heldur leggur
þorskanet fyrir þá tíð, sem tilsjónarmenn
hafa til tekið, skal missa afla sinn eg borga
10 ríkisdala sekt».
Lög 13. sept. 1830 (Finnmörk)
1. gr. í hverri veiðistöð skulu vera til-
sjónarmenn; tala þeirra fer eptir því, hversu
mörg skip komast að að róa frá þeirri veiði-
stöð ; og fer tala skipanna aptur eptir víð-
áttu þess sjáfarsvæðis, sem tilheyrir veiði-
stöðinni; skal einn tilsjónarmaður settur yfir
hver 6 skip, sem róa með ióð, Jog einnj yfir
hver 9 netaskip.
2. gr. Formennirnir kjósa þessa tilsjónar-
menn, hverjir í sinni veiðistöð. Undir eins
og 20 skip eru komin til sjóróðra í einni
veiðistöð, skulu kosnir tilsjónarmennirnir; en
sjeu skipin færri, þá koma formennirnir sjer
saman við yfirtilsjónarmann fiskiveiðanna um,
hvernig haga skuli fiskiveiðunum, og hvenær
megi fara að leggja net.
3. gr. Tilsjónarmennirnir eru kosnir á ári
hverju; enginn er skyldur að taka við kosn-
ingu lengur en 2 ár í senn; en að öðru leyti
getur enginn skorazt undan kosningu, að við-
lögðum dagsektum.
5. gr. í hverri veiðistöð útnefnir yfirvald
einn yfirumsjónarmann.
6. gr. Formaðurinn fyrir hverju skipi seg-
ir í byrjun vertíðar yfirumsjónarmanninum í
þeirri veiðistöð, þar sem hann ætlar að róa,
til sín, og tjáir honum, hvert veiðarfæri hann
ætlar að brúka. Yfirumsjónarmaður heldur
bók, löggilta af yfivaldinu, og innfærir hann
í hana nafn og heimili allra þeirra formanna,
sem róa frá hans veiðistöð. Að viðlögðu afla-
tjóni og sektum má enginn fara að stunda