Ísafold - 15.04.1891, Side 2
118
að mið og mark þýzfea flotans hlyti að vera,
að ráða mestu í Englandshafi og Eystra-
ealti.
Italía- Einn af ráðanautum Eudinis er
Nicotera, og er af frelsisvinaflokki. Hann
er miðlungi vinveittur sambandinu við f>ýzka-
land og Austurríki, en situr þó jafnast fyrir
Bvörum á þinginu. f>ar er helzt við kaun
þessa ríkis að koma, er um fjárhaginn skal
ræða, en ráðherrarnir lofa því stöðugt, að
fylgja öllu því ráðlegasta til sparnaðar —
og svo þar sem til útgjaldanna til hersins
kemur.
I Massuah, höfuðbænum í landnámi Itala
við Eauðahaf, hefir komizt upp um viðbjóðs-
leg illræði þess manns, er þar var fyrir lög-
gæzluliðinu og Livraghi heitir. Hann hefir
sett ýmsa þarleuda menn í höpt fyrir logn-
ar sakir, látið þá svo sæta aftökum eða öðr-
um banaráðum, en á eptir hirt fje þeirra.
En er þetta uppgötvaðist, var hann kominn
norður í Sviss. Nú hafa sendimenn Itala
fengið hann fram seldan.
þaðan má geta um lát Napóleons »keis-
arafrænda* , bróðursonar keisarans »mikla»,
sonar Jerómes konungs á Vestfali. Hann
dó í Eómaborg 17. þ. m. (f. 1822). Hann
var mægður við Italíukonung, en sinnti lítt
Klóthildi konu sinni, dóttur Viktors Emanú-
els. Hún var trúrækin, en hann fríhyggju-
maður. Hún var hjá honum alla banaleg-
una, en um presta og þjónustan vildi hann
ekki heyra talað. þrátt fyrir ósamþykki
þeirra feðga kom Viktor son hans þangað
að beiðni móðurinnar, en faðirinn vildi ekki
við hann sáttum taka.
Napóleon prinz var í allmiklum hávegum
hafður meðan frænda hans naut við, Napó-
leons III.; var honum þó óleiðitamur, þótt-
ist vera frelsisgarpur og spreytti sig á há-
fleygum frelsistölum.—Hann kom tillslands
1856, eins og menn muna.—þau hjón eignuð-
ust 2 syni og 1 dóttur. Eldri sonurinn,Vict-
or, er nú kallaður höfuð Napóleonsættarinn-
ar og keisaraefni Napóleonssinna. Hann er
nær þrítugur.
Austurríki- þar eru kosningar nýlega
um garð gengnar til ríkisþingsins í Vín, og
svo skipt um við þær í Böhmen, að »Gamal-
Tjekka»-flokkurinn er kallaður undir lok lið-
inn. Að hverju rekur í þessu fjölþjóðaríki,
er bágt að spá neinu um, en til samkomu-
lags horfir ekki betur en fyr.
Rússland- þaðan er þá nýnæmisfregn
að herma, að keisarinn hefir svarað ávarpi
finnska þingsins sem mildilegast, og heitið
að halda öll þau einkalög, sem forfeður hans
hefðu veitt Einnlandi.
Frá Norðurameríku. í New-Orleans
eiga heima 25,000 ítalir, og er helmingurinn
af Sikileyjarkyni. þareru misjafnir sauðir í
mörgu fje,og heimalýtin hafa fylgt þeim vestur
um haf, þar á meðal leyndarfjelög til illra
bragða og úrræða. »Mafía» er nafn bófafjelags á
Sikiley, og með Sikileyingum komst það til
New-Orleans. Löggæzlustjórar bæjarins hafa
gert sjer allt far um að eyða þessum ill-
þýðis-samtökum. Fyrir skömmu þótti bóf-
unum sá verða sjer skæður, sem hjet Hen-
nesy, og því myrtu þeir hann. Hendur
voru hafðar á 9 eða 11, en kviðdómurinn á
að hafa lýst sýknu fyrir þá, nema fjóra, sem
kviðmönnum gat þó ekki komið saman um.
f>egar þetta barst út, gerðist lýðurinn svo
óður og æfur, að til vopna var þrifið, brot-
izt inn í ráðhúsið og bandingjunum sálgað.
f>á skyndídóma heyir fólkið á allmörgum
stöðum í Ameríku, þegar svo ber undir.
Ekki að eins hafa hinir ítölsku borgarbúar
sent harmakvein sín til Washington, heldur
hefir Blaine orðið að sjá íyrir svörum við
sendiboða Italíukonungs og heita skyldum
rannsóknum. Hvað frekara gerist, verður
að bíða seinni sagna.
Til samanburðar við fjárhagsástand ríkj-
anna í vorn álfu er nóg að greina, að af-
gangur seinasta ársins í ríkisfjárhirzlu Banda-
manna var 410 milj. króna; þó fær hver
maður eptirlaun, sem stóð þriggja mánaða
tíma undir merkjum Norðurríkjanna í upp-
reisnarstríðinu. f>egar því var lokið, voru
ríkisskuldirnar meira en tíu þúsund miljónir
króna; nú eru þær kornuar niður í tæpar 3
þús. milj.
I Canada fóru fram þingkosningar á sam-
bandsþingið í Ottawa í öndverðum marz, að
undangengnu þingrofi af hendi stjórnarfor-
setans, Sir John Macdonalds, er setið hefir
þar að völdum lengstum meira en 20 ár og
þykir vera allmikill skörungur. Hann hafði
sigur í kosningunum, eða hefir rjettara sagt
enn meiri hluta á þingi, þótt nokkuð minnk-
aði flokkur hans. |>að eru íhaldsmenn, sem
honum fylgja. Hinir vilja meðal annars
leggja mest lag við Bandaríkin.og byrja á toll-
fjelagsskap við þau, hvað sem frekara kann
eptir að fara. f>að telja hinir landinu háska
og tjón.
Chili. Yiðskiptin verða hjer á báðar
hendur svo grimmdarleg, að ódæmum skiptir.
f>egar uppreisnarmenn—eða þingherinn, sem
betur þykirláta—, unnu Iquique, fengu bana
200 kvenna og barna, og meira mundi þó
hafa af hlotizt, ef flotaforingi Englendinga
hefði ekki hlutazt til við þá, er sókninni
rjeðu. Af öllum bardögum eru sögurnar
heiptarlegri en við mundi búizt á vorum
tímum, mannfallið mikið, en þeim opt ekki
þyrmt, er á velli liggja óvígir. Forsetinn
og hans liðar eru hjer engir eptirbátar, því
í þeirra augum eru hinir með öllu óhelgir,
og þá ekki síður fje þeirra og eignir. Sein-
ustu fregnir segja meira hlut landsins þegar
á uppreisnarmanna valdi, en bæta við, að
forsetinn hafi enn mikinn liðsafla fyrir og í
góðum vígstöðvum.
Kína- Keisarinn ungi hefir tekíð það úr
hirðsiðum, sem sendiboðum útlanda þótti
hneisublandið, er þeir sóttu á fund hans.
Frá Egiptalandi. Nálægt þebu, forn-
borg Egipta, eru fyrir ekki löngu mestu fá-
gætismunir upp grafnir, myndir og munir
og egipzkar bókfellsrollur, á gömlum greptr-
unarstað. Meir en 50 fet niður að sækja,
en aldurinn nær til 2500 fyrir Krists fæðing.
Strandferðaskipið Thyra- kapteinn
Hovgaard, kom hingað 12. þ. m. fyrstu
ferð sína umhverfis laudið. Hafði komizt á
allar hafnir samkvæmt ferðaáætluninni, en
hitti þó fyrir hafís hingað og þangað, mest-
an við Melrakkasljettu, og sigldi þar gegn-
um hann góðan spöl; má þakka djarfleik
og dugnaði skipstjóra, að eigi var aptur snú-
ið þar. Við Horn og á Isafjarðardjúpi var
íslaust orðið aptnr.
Fiskiafli í Noregi- Frá Khöfn skrif-
að 21. f. m., að vertíð hafði brugðizt mjög
í Lófót til þessa tíma, ekki komið þar á
á land nema rúmar 6 miljónir fiskjar, í stað
rúml. 12£ milj. að meðaltali að undanförnu
í sama mund 15 ár samfleytt. Eins er í
syðri veiðistöðunum: í Bomsdals-amti t. d.
2f milj., í stað 4f milj. í sama mund í
fyrra. Verða á fiski í Lófót hærraendæmi
eru til áður, 27—29 kr. hundraðið (100) af
slægðum fiski. Síðustu frjettir sögðu, að
heldur væri farið að glæðast með aflabrögð
við Lófót og fiskur genginn á grunn þar.
þar róa nær 7000 skipa til fiskjar.
I Verzlunarfrjettir frá Khöfn. Skrif-
að þaðan 21. marz: Hvít vorull seldist síðast
á Englandi á 8£ d. pundið (64 a.). Hjer hefir
síðast selzt haustull A 48 a., mislit vorull á
48 a., og svört vorull á 50—55 a.
Lýsi : ljóst gufubrætt hákarlslýsi á 36 kr.,
pottbrætt 34£—35 kr., dökkt hákarls- og
þorskalýsi 28—30 kr., allt grómlaust.
Fiskur : lítið sem ekkert fyrirliggjandi ó-
selt. Verðið þetta víðast : stór fiskur á 50—
55 kr., smáfiskur 35—38 kr., ýsa 28—30 kr.,
langa 45—48 kr.
Kjöt : 55—56 kr. tunnan.
Söltuð sauðskinn : 4f—4£ kr. Sundmagar
30 a. Dúnn 11—-12 kr.
Kaífi 77—79 a., lakara 72—75 a.
Hvítasykur 18 a., kandís 18—19 a., púður-
sykur (farin) 14 a., allt heldur að hækka.
Hrísgrjón 8J pd.
Eúgur 610—615 a. 100 pd, rúgmjöl 650 a.,
bankabygg 8£—7f a. pundið eptir gæðum.
Brennivln 16—17 a., en útlit fyrir að muni
hækka í verði, vegna hins háa verðs á rnais
og korni.
Tjón af ofviðri. Sunnudagskvöldið að
var, 12. þ. m.. gerði hjer fádæma-ofviðri af
austri, er stóð nær 3 klukkustundum og
gerði ýmsar skemmdir, bæði á sjó og landi:
fauk þak af húsum m. m., en á höfninni,
Eeykjavíkurhöfn, sleit upp mörg skip, fiski-
skútur, og rak hvert á annað og sum á grunn
við Orfirisey. þar á meðal var franskt brigg-
skip, er hingað kom fyrir skömmu með vistir
handa nokkrum frönskum fiskiskipum og að
sækjafisk úr þeim. Var það nær ferðbúið apt-
ur. það strandaði algjörlega við Orfirisey.
Tvær fiskiskútur franskar löskuðust til muna,
og tvær íslenzkar sörnuleiðis (heita »Einingin«
báðar). Gufuskipið norska, »Anna«, er lá
hjer á höfninni í hálfgerðum lamasessi, rak á
kaupskipið »Eagnheiði«, eign Christensens
verzlunar, og skemradi það til muna, — skað-
inn metinn um 1500 kr.; það var ferðbúið til
Englands.
Sigling- I gær kom kaupskipið August
hingað frá Khöfn, eptir 10 daga ferð, hlaðið
ýmsum vörum til þeirra Geirs Zoéga & Co.
|>ilskipa-afli- þau þrjú af þilskipum
Geirs Zoéga & Co., er hákarlaveiðar stunda
hafa fengið í sínum fyrsta »túr« þetta : Geir
(skipstj. Sig. Símonarson) 66 tunnur lifrar,
Gylfi (F. Finnsson) 63, og Matthildur (J.
T. Zoeéga) 60. Af þorskveiðum hafa önnur
þrjú skip hinna sömu komið með þetta:
Margrjet (Guðmundur Kristjánsson) 5500
fiskjar, To Venner (Jón þórðars.) 3000,
Haraldur (Asg. þorsteinsson) 1500.
»Einingin« (Eyþórs) hefir fengið 1700, og
»Engeyin«, er getið var 1 síðasta bl., 2000.
Höfrungahlaup. Hafísinn færði þing-
eyingum það happ, að þar veiddust að sögn
nær 400 höfrungar í vök við Tjörnes.
Landeigandi er Sigurjón bóndi á Laxamýri.
Aflabrögð. það er að segja af aflabrögð-
um hjer á aðalfiskistöðvunum við Faxaflóa
sunnanverðan, Garðsjó og Leiru, að þar er
»góður reytingur í net; sumir koma tómir til
lands, sumir vel fiskaðir, sumir betur fiskaðir
en skyldi«, og lýtur það til þeirrar afdæmis-
egu ósvinnu, að menn róa á náttarþeli, fara
í annara net, skera þau frá duflfærunum og
stela svo öllu saman, bæði netunum og fisk-
inum í þeim, eða þá fleygja netunum eptir að
þeir eru búnir að taka úr þeim fiskinn. Hafa