Ísafold - 15.04.1891, Blaðsíða 3

Ísafold - 15.04.1891, Blaðsíða 3
119 6 formenn syðra orðið fyrir þessum óskunda nú á einni viku, síðan farið var að leggja, að sögn skilríkra manna, og er slíkt herfilegur ó- fögnuður og óþolandi lagaleysi. Sumir þora ekki að hætta netum sínum út í Garðsjó, bæði vegna þessa ófriðar og vegna straum- hættu þar. — I Grindavík tregt um afla ; þar verða eigi net höfð fyrir brimi, þótt nógur fiskur sje fyrir. Mannalát. Með kaupskipi, er hingað kom frá Khöfn í gær eptir 10 daga ferð, frjettist lát etazráðs Tlans A. Glausens, er tií skamms tíma var eigandi margra verzl- »,na vestanlands (á Isafirði, í Stykkishólmi, Ólafsvfk, Búðum, Borðeyri) og rekið hafði verzlun hjer við land fram undir 60 ár, enda var hann nokkurs konar ættarjöfur íslenzkra kaupmanna og þeirra öndvegis- höldur um langan aldur. Hann mun hafa verið kominn langt nokkuð á níræðisaldur. Hann þótti vera mikils háttar maður og margt mjög vel um hann að ýmsu leyti. Hann var um mörg ár generaikonsúll Grikkja- konungs í Danmörku. Kona hans er lifir mann sinn. var Ása Sandholt, systir þeirra Arna og Bjarna Sandholts kaupmanna, er dánir eru fyrir mörgum árum. Synir þeirra hjóna eru þeir Holger kaupmaður Clausen í Stvkkishólmi og Vigant Clausen í Khöfn, en dóttir Henriette, kona stórkaupmanns csnd. juris Zoylners, er nú á Hæstakaups- staðarverzlanina á Isafirði. Hinn 26. október f. á. dó í Kansas Gity í JSandaríkjnum cand. phil. Emil Schou, sonur fyrverandi verzlunarstjóra Ludvig Schon’s og bróðir frú Bjargar, konu síra Halldórs þorsteinssonar á Bergþórshvoli. Hann var fæddur 25.okt.1860, kom í latínu- skóla 1874, útskrifaðist 1880, sigldi samsum- ars til Ka,upmannahafnar, og tók árið eptir heimspekispróf við háskólann, stundaði svo nokkur ár guðfræðisnám, en áður en hann tæki próf. flutttist hann algerlega til Vestur- heims. þar vegnaði honum allvel upp á síðkastið.— »Hann var vandaður maður, vel gáfaður, skemmtilegur í viðmóti og vel lát- inn af öllum sem honum kynntust». Sagður er dáinn síra Berqur próf. Jónsson í Vallanesi. Bn áreiðanleg frjett ekki fengin. MÁLSÓKK kvað Jón kaupmaður Jónssun frá Borgarnesi vera hyrjaður á f Biörgvin £egn vtór- kaupmanni Joh Lange, og heimtar af honum mörg þús. króna skaðabætur fyrir atvinnuspjöll eða þess háttar; þeir höfðu talsverð viðskipti áður og skildu i styttingi. Ágætur málfærslumaður norskur hefir tekið að sjer málið fyrir Jón. Dellu-ofsjónik Cambkidge-meistakans. það ersiðast, að segja afbankadellufargani meist- arans í Cambridge, að í ,Heimskringlu‘ 18. febr. þ. á. kemst hann þannig að orði: „Síðan eg skrifaði Heimskringlu, hefi eg enn(!) hugsaðf!!) þetta mál, og er nú kominn að þeirri niðurstöðu, að landssjóður, aulc þess taps, sem hann bíður á seðlakaupum sínum, tapar 100°/0 í peningum á hverjum seðli, sem inn í hann er borgaður upp í skyldir og skatta landsmanna. því að honum eru borgaðar annara skuldir við hann með eigin skuld hans við þá. Hannerlát- inn taka tekjur sínar undir sjálfum sjer, og það þýðir: honum eru engar tekiur borgaðár, sem aptur þýðir: hann tapar 100°/0 á þessum inn- borgunum seðla sinna, skuldabrjefa sinna“(!!!). Stendur heima: fyrst er flugan á veggnum ekki nema ein, en von bráðar verða tvær úr einni, og þegar búið er að glíma við þær stund- arkorn árangurslaust, eru þær allt í einu orðnar fjórar, siðan átta o. s. frv. Fyrst einna 100 °/0 tap fyrir landssjóð, siðan annara 100 °/0 tap, samtals tvennra 100 °/0 ~ 200 °/0 tap, og svo koll af kolli áfram endalaust, eptir því sem dellan ágerist. Leiðarvísir ísafoldar. 719. Jeg er ekki fullveðja, en ætla mjer að læra handverk að vetrinum til, og hef gjört um það skriflegan samning við hinn fyrirhugaða kennara minn. Er mjer þá ekki heimilt að leita mjer atvinnu að sumrinu, hvar sem mjer sýnisti án þess að vera annara hjú, ef jeg á einhvers- staðar lögheimili ? Sv.: Spyrjandi mun verða talinn lausamaður, nema hann sje ársmaður kennarans og stundi sumaratvinnuna fyrir hans reikning. 720 Árið 1888 tók jeg lán í búð og voru engir skilmálar settir utan jeg lofaði að borga 50 kr. árlega þar til skuldinni væri lokið, en nú hef jeg borgað nær því 100 krónur árlega; að tveim árum liðnum tekur kaupmaður úr reikn- ing minum vexti af þvi sem eptir stendur af skuldinni án þess að hafa áður nefnt það við mig, er það leyfilegt ? Sv,: Nei. Vexti er ólöglegt að reikna nema svo hafi verið um samið. 721. Ef jeg er ráðinn á skósmiðaverkstofu um tiltekinn árafjölda, hvað ber mjer að vinna marg- ar stundir á dag á meðan námstíminn stendur yfir? Sv.: það fer eptir venju í þvi plássi; en ekki má það lengur vera en venjulegan vinnutima fyrir iullorðna sveina við þá iðn (10—11 stundir á að gizka). 722. Eru þeir útgjörðarmenn, sem ráðnir eru upp á víst kaup, 60—70 kr. yfir vetrarvertiðina, sömu lögum háðir og þeir, sem ráðnir eru upp á víst af hverju hundraði, nefnil. með að vera ekki skyldir til að vinna hverja forsvaranlega landvinnu án sjerstakrar borgunar? Sv.: J>að fer eptir sveitarvenju i því plássi, ef ekki hefir verið neitt um það samið. 728. Hvað má sýslumaður lengi draga að leit- ast við að feðra barn, sem prestur og hreppstjóri hafa tilkynnt honum að ófeðrað sje, af því sá, sem lýstur er faðir að þvi, vill ekki kannast við faðernið ? Sv.: Ekki lengur en aðrar brýnar embættis- annir heimta. Kæra til amtmanns, ef dráttur- inn þykir meiri en svo. 724. Hefur sýslumaður nokkra heimild til að leysa menn undan því að greiða aukaútsvar til fátækra, sem hreppsnefnd hefur lagt á, án þess að gjaldandi hafi áður löglega borið sig upp við hreppsnefnd og sýslunefnd undan útsvarsálög- unni ? Sv.: Nei. 725. Má ekki koma ábyrgð fram á hendur sýslumanni fyrir slíkan slettirekuskap í sveitar- sökum ? Sv.: Áminningu fær hann sjálfsagt hjá yfir- manni sínum (amtmanni), ef hann er kærður. 726. Eg er ráðin fyrir ráðslconu á vissan stað og mjer er sagt upp vistinni mánuði fyrir kross- messu; er mjer skylt að líða það bótalaust ? Sv.: Nei. 727. Er vinnumaður, sem er i vist, skyldur til að hlýða húsbónda sínum í þvi, að fara til róðra, óráðinn og allslaus, um hávetur, og á móti sinum vilja ? Sv.: Ekki nema það sje sveitarvenja í því plássi og vinnumaður hafi eigi skilið sig undan þeirri kvöð, er hann vistaðist, og hafi þó verið kunnugt um hana. I 728. Á Hvalsnes-kirkja i öullbringusýslu ekki löglegan rjett til sætisfisks af hverjum utan- hreppssjómanni er rær til fiskiveiða úr sókn kirkjunnar, vetrar- og vorvertið ár hvert ? Sv.: Jú. 729. Af hverjum, húsbónda eða sjómanni, eða eptir hvaða gjaldmáta á eigandi kirkjunnar að innkalla sastisfiskinn ? Sv.: Af sjómanninum, og í fiski, eða eptir verðlagsskrár-verði á fiski í gjalddaga, ef sjó- maður kýs það heldur. Proclama. Eptir lögtim 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjermeð skoraff á þá, sem hl skulda telja í dánarbúi Steingríms Jónssonar frá Nýjabæ í Rosmkvalaness- hreppi, er andaðist hinn 4. júlí f. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mán- aða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Grullbringus. 31. marz 1891. Franz Siemsen. Proclama. Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi pórðar Jóns- sonar frá Gerðum í Rosmhvalanesshreppi, sem andaðist hinn 6. janúar p. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skipta- ráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringus 31. marz 1891. Franz Siemsen. Proclama Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi Einars Gott- skálkssonar frá Bala í Rosmhvalaness- hreppi, sem andaðist hinn 8. nóvember f. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjðsar- og Gullbringus. 31. marz 1891 Franz Siemsen. Proclama. Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjer með skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi Guðmundar sál. Guðmundssonar frá löðugerði í Vatsleysustrandarhreppi, sem andaðist hinn 20. þ. m., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir mjer innan 6 mánaða frá síð- ustu birtingu auglýsingar þessarar. Jafn- framt er skorað á þá, sem skulda tjeðu dánarbúi, að greiða til mín skuldir sínar innan sama tíma. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringus. 31. marz 1891. Franz Siemsen. Proclama. Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi Jóns Helga- sonar frá Kothúsum í Garði, er drukkn- aði hmn 21. þ. m., að lýsa kröfum sín- um og sanna þœr fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síðustu birtmgu auglýsmgar þessarar. Skrifstof'u Kjósar-og Gullbringus. 31. marz 1891. Franz Siemsen. Proclama. Eptir lögum 12. aþrríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi Sigurðar Sig- urðssonar frá Krókskoti í Miðnesshreppi, er andaðist hinn O.febrúar þ. á., að gefa sig fram og sanna skuldir sínar fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mán- aða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringus. 2. apríl 1891. Franz Siemsen. Proclama Samkvœmt opnu brjefi é. janúar 1861 og lögum 12. apríl 1878 innköllum við undir-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.