Ísafold - 11.07.1891, Blaðsíða 1

Ísafold - 11.07.1891, Blaðsíða 1
K.emu. út á mlðvikudögum og laugardögum. Verð árg. (um IOO arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlimánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. i Austurstrœti 8. xvm. 55 Reykjavík, laugardaginn 11. júlí. 1891 Enn um brúartoll. Til herra Tryggva Gunnarssonar, frá jpoKLÁKi Guðmundssynx. J>ó vjer hvorki biðjum uje bjóðum, fáum vjer opt það sem vjer viljum. Hr. Tryggvi Gunnarsson hefir í 48. tbl. ísafoldar 17. júní þ. á. sagt, að jeg verði enn að taka hina fyrri grein hans um brú- argæzlu til íhugunar. Jeg get ekki þekkt, að jeg hafi neitt gott af að lesa þessa rit- gjörð hans optar en jeg er búinn, og má vera að mjer takist ekki heldur að sann- færa hann. Bn þó okkur ekki takist að sannfæra hvor annan um það, sem okkur hjer ber á milli, þá er ekki óhugsandi, að við getum sann- fært fleiri eða færri nær eða fjær um það, hvort hyggilegra sje, að setja fastan brúar- Vörð við Olvesárbrúna og tolla hana, eða hafa eptirlitið lauslegt og tolla hana ekki. |>að sem okkur hjer ber á milli, er ekki annað en það, að hann vill hafa lengjuna breiða, en jeg vil hafa hana mjóa og ná sama tilgangi, hvað endingu á brúnni við kemur. Mjer hefir aldrei dottið í hug að halda því fram, að brúargæzla væri óþörf. jþvert á móti hefi jeg verið honum samdóma um það, að hirða á brúm og vegum og við- hald hafi ekki verið í því lagi, sem það hefði átt að vera og vel getað verið,—án þess þó að setja fasta gæzlumenn. jpað eru eins miklar ástæður til að hugsa og segja, að þó nú væri sett föst brúargæzla og lagður á brúartollur, að eptir lengri eða skemri tíma yrði það niðurstaðan, að afnema hvoru- tveggja — eins og að segja, að síðan verð1 það niðurstaðan, þó brúin nú ekki verði tolluð, að tolla hana og hafa fastan brú- arvörð. jpað hefir ólíklegra verið spáð og | þó rætzt. Og það mun samkvæmara fram- farastefnu tímans, að gera allar samgöngur sem Ijettastar og greiðastar. Að gólfið í brúnni slitni o. fl., verður ó- umflýjanlegt, úr því að hún er gerð til al- ménnra afnota, og fúnaði jafnt þó engin skepna stigi fæti á hana, og enginn brúar- vörður getur varnað því. jþað getur þó ekki verið hugsunin, að brú- arvörðurinn eigi að teyma undir hverjum tnanni. Nú vita það allir, að einn maðurinn fer harðara en annar, án þess að sagt verði að hann fari ógætilega, einn hesturinn er hrað- ari í spori en annar, hvort sem honum er riðið eða hann er rekinn eða han er teymd- ur. Pæri nú brúarvörður að gerast mjög smámunalegur í þessu, mundi hann fljótt verða óvinsæll, og staðan yrði honum allt annað en þægileg. Til að mála brúna, sjá allir að ekki þarf fastan mann, því ekki getur komið til þess, hvernig sem á stendur, að mála hana optar en tvisvar á sumri, enda væri tilgangslaust að gera það á vetrum. þó það ætti að sópa hana á hverjum degi og þvo hana á hverju laugardagskvöldi, þá gæti bóndinn á Selfossi sjeð um það. Við göngum nú báðir jafnt fram hjá reynsl- unni í þessu efni — þar sem þetta er nú fyrsta brú í sinni röð, sem lögð ér hjer á landi. Hefði Olvesá og jpjórsá báðar verið búaðar undir eins, svo verið settur fastur brúarvörður við aðra, en hinnar gætt laus- lega, þá væri það fyrst eptir 10 ár eða lengri tíma, að sjá hefði mátt, hver munurinn var. Hann vill byggja allt á erlendri reynslu. Við því hættir mörgum, sem lengi hafa verið erlendis—og getur opt verið gott en stund- um viðsjált. Við höfum marga fallega flík- ina fengið bæði frá Dönum og öðrum þjóð- um, en betra hefirverið að sníða margar af þeim upp, ef vel átti að fara. Ekki skal jeg gera lítið úr verklegri þekk- ingu hans, reynsluvísindum og ferðafrægð, og kemur honum nú allt þetta í góðar þarfir, og getur þurft á öllu því að halda, áður þessu verki sje lokið. Jeg vildi að hann hefði bæði heiður og hag af brúarsmíðinu. Verði brúin traust gerð, verður það honum til sóma, og er hann þá líka vel að því kominn, þó hann hefði hag af samningn- um. Ein brú, allt svo góður gripur hvin er fyrir austursýslurnar, vegur lítið á móti þeim þægindum, sem gufuskipaferðirnar veita þeim, er þær geta notað, þó að brúin sje ótolluð og fargjald verði að greiða fyrir menn og muni, sem með gufuskipum er flutt. Hann játar það, að í öllum löndum sjeu margar brýr, sem ekki sjeu tollaðar; því má þá ekki eins taka það sjer til fyrirmyndar til að byrja með hjer? jpað er fullkomin alvara mín, að ekki veiti af að hafa lögregluþjón við hvorn brúar- sporð. Hann segir sjálfur, að svo sje það í öðrum löndum, og hann vill steypa þetta allt í erlendu móti, svo það eru í rauninni hans orð, en ekki mín. En svo eru ástæður mínar fyrir, að þessa þyrfti hjer, með öllu óhraktar, ef brot ættu sjer stað og sektirnar ættu að nást. En nú sannfærist jeg æ betur og betur um, að brot í þessu efni vart munu eiga sjer stað, því svo viturlega mun fyrir sjeð, að brúin ekki sje of breið, og handriðin ekki of há, svo hún leyfir ekki að þar sje danzað eða farið í kappreið. Jeg segi því enn sem fyr, að brúin mun bezt gæta sín sjálf, hvað það atriði snertir. |>ó að fjeð verði kyrrt í landinu, vil jeg ekki búa til ný embætti að óþörfu einungis handa einni fjölskyldu til að lifa á, enda er nú á tfmum engin trygging fyrir því, að menn ekki fari af landi burt með fjeð, sem þeir hafa grætt á feitum embættum eða á annan hátt, eins og selstöðukaupmenn. Við erum nú að vísu vanir því, að verða að taka fje úr vasa margra barnanna, og leggja einni fjölskyldu; en ekki er ráð að fjölga eymdum vorum í því efni. Töludæmi hans er, eins og hann sjálfur játar, að það má setja slík dæmi á marga vegu. það má eins vel segja, meðan að alla reynslu vantar hjer í þessu efni, að brú, sem staðið hefir í 30 ár, haft fastan brúarvörð og búið er að kosta til beinlínis í laun, auk viðhalds, 30—40,000kr., sje eða verði ekki neitt betri en önnur jafngömul, sem ekki hefir haft nema lauslegt eptirlit og ekki hefir verið til kostað nema 6000 kr. eða 200 kr. á ári. Eins og brýr og vegir ekki verða fluttir um allt land, eins eru hinir æðri dómstólar, að það verður að brúka þá á sínum stað. En svo eru vegir gerðir fyrir mennina, en mennirnir ekki fyrir vegina. Ef að Hall- ur á Horni þarf að fara yfir brúna á Ölvesá, á hann ekki að þurfa að borga brúartoll, hvort hann hefir greitt nokkuð eða ekki neitt í landssjóð. jpetta dugar ekki að mæla á hreppakvarða. Hann hefir nú gert mjer svo hægt fyrir að svara með því einungis að telja upp mest af ástæðum mínum. Jpetta er nú lík- lega gert af góðmennsku og vorkunnsemi við mína veiku krapta. |>að segir sig sjálft, að allir geta ekki jafnfljótt fengið bót meina sinna, hvað samgöngurnar snertir. Ekki get jeg haft samkomuiag við hann um það að koma neinu af því sem jeg hef skrifað um þetta mál, yfir á prentarana, því það er ekki minn vani og á ekki við mitt skap. Geti jeg ekki varið það sjálfur eða það verji sig sjálft, þá falli það á mig. Jeg skal ekki hót afsaka þekkingarleysi mitt í þessu efni; en eins og jeg hefi áður tekið fram, vantar hann reynslu og þekk- ingu með slíka brú sem þessa hjer á landi. jpar sem hann segir að mig vanti þekk- ingu á því, hvernig verja eigi járn og trje fyrir áhrifum loptsins, þá þakka jeg fyrir kenninguna, en tek hana ekki til greina; — það er víst að fjöldi manna hjer á landi þekkír það eins vel og hann, og jeg hefi talað við marga slíka menn, svo að jeg hefi Ijósa hugmynd um það. Ef gert er ráð fyrir, að enginn nema hann einn hafi grundaða þekkingu á húsasmíði og vilji landinu vel, þá hefi jeg hann all- an og einn í móti mjer. Svo mun jeg að mestu gefa honum eptir síðasta orðið í þessu máli, því eg er ekki vanur að leggja mál í langvinnar þrætur, hvort sem jeg á við rauða eða hvíta.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.