Ísafold - 17.10.1891, Blaðsíða 1

Ísafold - 17.10.1891, Blaðsíða 1
K.emu. út a miðvíkudögum og laugardögum. Verð árg. (um IOO arka) 4 kr.; erlendis 5 ki. Borgist fyrir miðjan júlimánuð ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógildnema komin sje til útgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. i Austurttrceti 8. XVIII. 83 Reykjavík, laugardaginn 17- okt. 1891 Vegargjörð upp frá Ölfusár- brúnni. Til þess að Ölfusárbrúin yrði notuð und- ir eins tálmunarlaust, þurfti að gjöra ferða- mönnum fært yfir vegleysu þá, mýri og móa, sem er á milli alfaravegarins meðfram Xngólfsfjalli og brúarsporðsins vestari, eins ■og skýrt var frá í ísafold í fyrra. En úr því svo var, þótti rjettast að gjöra þar þeg- «,r fullkominn veg, góða akbraut, eins og hinir nýju vegarkaflar hafa verið hafðir, er lagðir hafa verið á landssjóðs kostnað hin síðari árin, frá því lærðir vegfræðingar fóru að skipta sjer af því. Fyrir því var að undirlagi landshöfðingja vegarstæði um þetta pláss skoðað í vetur sem leið, af Erlendi Eakaríassyni, og tekið til starfa á miðju sumri, skömmu eptir að alþingi var sett og fengið vilyrði þingmanna fyrir áætlaðri fjár- veitingu til vegarspotta þessa. Hefir verk- inu síðan verið haldið áfram til skamms tíma, eða 10 þ. m., er því var að fullu lok- ið, en byrjað var það 7. júlí. Verkstjóri hefir Erlendur Zakaríasson verið, og segja þeir, sem sjeð hafa, veginn mjög vel af' hendi leystan; enda er þetta eigi fyrsti vegurínn, «em Erlendur hefir gert og gert vel. En vegarspotti þessi er að líkindum ein- hver ’ninn dýrasti, er hjer hefir gerður verið. Hann er rjett viðlíka á lengd og ráð var fyrir gjört í áætluninni, og kunnugir vita, að ekki er um miklar torfærur að tefla á því svæði, er hann liggur um. Mundu því flestir hafa fortekið, að faðmurinn af hon- um mundi geta kostað stórum meira en á var ætlað, 4 kr., eða um 5,000 kr. vegurinn allur. En raunin mun hafa orðið sú, að vegurinn kosti þriðjungi meir, eitthvað á 8. jþúsund, líklega nær 8 en 7 þúsundum. Unnu að honum um 30 manna til jafnaðar hjer um bil 80 daga virka, með 8 — 10 hest- um og 4—5 vögnum, auk mikilla vinnutóla annara (100 planka til að aka eptir o. s. frv., m. m.). í stað-4 kr. kostaði vegurinn 10 kr. faðmurinn á einum kafla, eigi all- stuttum, um 150 faðma, en á sumum köfl- um öðrum 6—7 faðma. Lengd vegarins alls er 1322 faðmar. |>á er nú eigi tiltökumál, þótt slíkar á- ætlanir standi engan veginn fyllilega heima. En að svona stórkostleg skekkja skuli geta átt sjer stað, það er eitthvað bogið, nú þegar búið er þó í mörg ár að fást við slík- ar áætlanir og leggja vegi eptir þeim. Ann- aðhvort hlýtur svx iðn enn að vera í furðu- mikilli bernsku hjá oss, eða þá að hjer er um slysalega handvömm að tefla. það mun ekki leyna sjer, að þetta, sem síðar var nefnt, hafi hreppt vegargjörð þá, er hjer ræðir um. Eptir uppástungu Erl. Zak. átti vegurinn að liggja nokkuð á snið upp frá brúnni út á við upp undir fjallið. Með þeirri stefnu mælti þegar það atriði, að þá styttist veg- urinn með fjallinu nokkuð, en hann verður að gjöra að akvegi fyr eða síðar, og er þá hreinn gróði hver faðmur, sem sparast af honum, að öðru jöfnu. því lengra en að brúarveginum þarf eigi Jyófl-vegurinn með fjall- inu ekki að ná nokkurn tíma; framhald hans kemur eigi að notum nema örfáum bæjum lengra upp með því. þar að auki var mik- ið -jafnlent á þessu svæði, svo að hvergi þurfti að grafa niður nje hækka upp svo teljandi væri, til þess að fá veginn hæfilega jafnsljettan. Loks hagar svo til, að þótt vegurinn þannig lagður kæmi talsvert utar saman við Ingólfsfjallsveginn heldur en ef stefnt var þverbeint frá brúuni upp undir fjallið, þá hefði hann samt eigi orðið hóti lengri, heldur jafnvel nokkrum föðmum styttri, 1300 faðmar í stað 1322. Og geri maður 400 faðma langt bilið með fjallinu milli þessara tveggja vegarstefna, þá er það, að kjósa hina eystri, beint upp undir fjallið, sama sem að láta landssjóð kosta 1722 faðma veg þar, sem komast mátti af með 1300 faðma. Hver stefnan gizka menn nú á að kosin hafi verið á endanum? Hver nema einmitt sú sem ver gegndi, hin eystri, sem skapar landssjóði á að gizka 1732 faðma vegarlengd til laguingar að upp- hafi og síðan til viðhalds um aldur og æfi, í stað 1300. Vitanlega getur svo staðið á og stendur margsinnis svo á, að betri er krókur en kelda, aö betri er meiri vegarlengd, vegna miklu greiðara vegarstæðis þar og þar af leiðandi kostnaðarminni að öllu samtöldu, þrátt fyrir lengdarmuninn. En því fer svo fjarri, að slíku væri hjer til að dreifa, að eystra vsgarstæðið var eiomitt miklu ógreiðara, miklu torfærumeira, sem sýnir sig bezt á því, hve dýrt hefir orðið að leggja þar veg- inn, um mikinn kafla af því að minnsta kosti. jpar er sem sje mishæðótt, svo grafa þurfi stórum niður veginn sumstaðar og hækka upp þess á milli, en sumstaðar hvik- syndis-dý og -fen, er gerði vegarvinnuna afar-erfiða og kostnaðarsama. En hverjum gátu orðið svona mislagðar hendur í eigi meira vandamáli en þetta virðist hafa verið? Svo ógeðfelt sem það er að hallmæla manni á bak, en svo má það heita, að rita um hann ámæli á honum ókunna tungu í fjarlægu landi, þá verður að segja hverja sögu eins og hún gengur. Sagan er þá sú, að það var hinn danski verkfræðingur, v. Ripperda, er Kaupmannahafnarstjórnaraeild- in hafði útvalið til umsjónar af sinni hálfu við Olfusárbrúarsmíðið í sumar, — það var hann, er rjeð þessari óhappabreytingu á vegarstefnunni, mældi hinn nýja veg og sagði fyrir um alla tilhögun á honum. Hafði landshöfðingja að sögn verið boðin hans liðveizla til að segja fyrir um vegagjörð þar, sem hann næði til frá brúnni í sumar, kostnaðarlaust, með því að hann hafði fullt kaup frá öðrum hvort sem var. Hefir landshöfðingi að líkindum eigi þótzt mega eða viljað hafna svo góðu boði, þar sem hann hafði og engan lærðan verkfræðing sjer við hönd. Hvað hann hefir haft fyrir sjer, er hann hafnaði vegarstefnu Erlendar, og færði sig svona langt austur á við, af jafnlendi á ó- sljett land, fenjótt og dýjótt, mun flestum óljóst. þ>ví látum svo vera, að honum hafi Verið talin ranglega trú um, frá mönnum, er af sjerplægnisástæðu var ekki sama hvar vegurinn var, að hann lægi miklu fremur undir vatnságangi og snjóa á vetr- um á vestari staðnum, fram hjá Árbæ, þá var honum eigi ofætlun, að sjá hið rjetta, að sjá það sem kunnugum ber saman um, að álíkt er um snjóþyngsli og þ. h. á báð- um stöðunum, en jafnlendið og sjerhvað annað, er áður hefir talið verið, mælti með Árbæjarvegarstefnunni. f>ar við bættust svo býsna miklar hallajafna-reikningsvillur hjá honum, er aukið hefðu enn kostuaðinn mikið, ef þær hefðu fengið að standa. Loks sparaðist þó nokkur hundruð króna kostnaður fyrir það, að horfið var frá veg- arstefnu hans, er niður eptir dró, niður fyrir mýrina, eptir að landshöfðingi var búinn að sjá hana, þegar hann kom austur að vígja brúna, og leizt eigi betur á en svo, að sögn; enda kom hinn útlendi verkfræðingur eigi nærri verkinu upp frá því. Tvö — þrjú þúsund krónur er reyndar eigi mikið fje í sjálfu sjer, og vitaskuld er alls eigi við að búast, að ekki vilji til því líkur halli við og við á nokkuð stórum fyr- irtækjum, er sjá má eptir á, að hægt hefði verið að komast hjá. En það er mikið fje þar, sem lítið er af að taka og ekki meiri en aðalupp’næðin er: allur kostnaðurinn til þessa ofurlitla vegarspotta. Lærdómurinn, sem leiða má út úr þessu óhappi, þessari handvömm, — hann er sá, sem ísafold hefir margsinnis vikið á, hvílík ráðleysaþað er.aðætlasjer að bjargast að föng- um til með verkfróða aðstoð við mannvirki á almennings kostnað, 1 stað þess að hafa hjer fastan, vandlega valinn verkfræðing, útlendan eða innlendan, mann, sem ekki þarf að fara hót eptir annara sögusögn, og hefir von bráðara í huganum greinilegt yfir- lit yfir, hvernig vegir eigi að liggja um landið, og framfylgir því, svo eigi þurfi að vera að hlaupa í vegargjörð hingað og þang- að að handa hófi, án þess að vita, hvernig þeir molar falla í aðalbygginguna, nje ann- að, sem vita þarf og leggja niður fyrir fram, eigi nokkurn tíma að fást sæmileg trygg- ing fyrir því, að vegabótafje landsins sje

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.