Ísafold - 17.10.1891, Qupperneq 1
K.emu. út a miðvíkudögum og
laugardögum. Verð árg. (um
IOO arka) 4 kr.; erlendis 5 ki.
Borgist fyrir miðjan júlimánuð
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógildnema komin sje
til útgefanda fyrir l.okt. Af-
greiðslust. i Austurttrceti 8.
XVIII. 83
Reykjavík, laugardaginn 17- okt.
1891
Vegargjörð upp frá Ölfusár-
brúnni.
Til þess að Ölfusárbrúin yrði notuð und-
ir eins tálmunarlaust, þurfti að gjöra ferða-
mönnum fært yfir vegleysu þá, mýri og
móa, sem er á milli alfaravegarins meðfram
Xngólfsfjalli og brúarsporðsins vestari, eins
■og skýrt var frá í ísafold í fyrra. En úr
því svo var, þótti rjettast að gjöra þar þeg-
«,r fullkominn veg, góða akbraut, eins og
hinir nýju vegarkaflar hafa verið hafðir, er
lagðir hafa verið á landssjóðs kostnað hin
síðari árin, frá því lærðir vegfræðingar fóru
að skipta sjer af því. Fyrir því var að
undirlagi landshöfðingja vegarstæði um þetta
pláss skoðað í vetur sem leið, af Erlendi
Eakaríassyni, og tekið til starfa á miðju
sumri, skömmu eptir að alþingi var sett og
fengið vilyrði þingmanna fyrir áætlaðri fjár-
veitingu til vegarspotta þessa. Hefir verk-
inu síðan verið haldið áfram til skamms
tíma, eða 10 þ. m., er því var að fullu lok-
ið, en byrjað var það 7. júlí. Verkstjóri
hefir Erlendur Zakaríasson verið, og segja
þeir, sem sjeð hafa, veginn mjög vel af' hendi
leystan; enda er þetta eigi fyrsti vegurínn,
«em Erlendur hefir gert og gert vel.
En vegarspotti þessi er að líkindum ein-
hver ’ninn dýrasti, er hjer hefir gerður verið.
Hann er rjett viðlíka á lengd og ráð var
fyrir gjört í áætluninni, og kunnugir vita,
að ekki er um miklar torfærur að tefla á
því svæði, er hann liggur um. Mundu því
flestir hafa fortekið, að faðmurinn af hon-
um mundi geta kostað stórum meira en á
var ætlað, 4 kr., eða um 5,000 kr. vegurinn
allur. En raunin mun hafa orðið sú, að
vegurinn kosti þriðjungi meir, eitthvað á 8.
jþúsund, líklega nær 8 en 7 þúsundum.
Unnu að honum um 30 manna til jafnaðar
hjer um bil 80 daga virka, með 8 — 10 hest-
um og 4—5 vögnum, auk mikilla vinnutóla
annara (100 planka til að aka eptir o. s.
frv., m. m.). í stað-4 kr. kostaði vegurinn
10 kr. faðmurinn á einum kafla, eigi all-
stuttum, um 150 faðma, en á sumum köfl-
um öðrum 6—7 faðma. Lengd vegarins
alls er 1322 faðmar.
|>á er nú eigi tiltökumál, þótt slíkar á-
ætlanir standi engan veginn fyllilega heima.
En að svona stórkostleg skekkja skuli geta
átt sjer stað, það er eitthvað bogið, nú
þegar búið er þó í mörg ár að fást við slík-
ar áætlanir og leggja vegi eptir þeim. Ann-
aðhvort hlýtur svx iðn enn að vera í furðu-
mikilli bernsku hjá oss, eða þá að hjer er
um slysalega handvömm að tefla.
það mun ekki leyna sjer, að þetta, sem
síðar var nefnt, hafi hreppt vegargjörð þá,
er hjer ræðir um.
Eptir uppástungu Erl. Zak. átti vegurinn
að liggja nokkuð á snið upp frá brúnni út
á við upp undir fjallið. Með þeirri stefnu
mælti þegar það atriði, að þá styttist veg-
urinn með fjallinu nokkuð, en hann verður
að gjöra að akvegi fyr eða síðar, og er þá
hreinn gróði hver faðmur, sem sparast af
honum, að öðru jöfnu. því lengra en að
brúarveginum þarf eigi Jyófl-vegurinn með fjall-
inu ekki að ná nokkurn tíma; framhald hans
kemur eigi að notum nema örfáum bæjum
lengra upp með því. þar að auki var mik-
ið -jafnlent á þessu svæði, svo að hvergi
þurfti að grafa niður nje hækka upp svo
teljandi væri, til þess að fá veginn hæfilega
jafnsljettan. Loks hagar svo til, að þótt
vegurinn þannig lagður kæmi talsvert utar
saman við Ingólfsfjallsveginn heldur en ef
stefnt var þverbeint frá brúuni upp undir
fjallið, þá hefði hann samt eigi orðið hóti
lengri, heldur jafnvel nokkrum föðmum
styttri, 1300 faðmar í stað 1322. Og geri
maður 400 faðma langt bilið með fjallinu
milli þessara tveggja vegarstefna, þá er það,
að kjósa hina eystri, beint upp undir
fjallið, sama sem að láta landssjóð kosta
1722 faðma veg þar, sem komast mátti af
með 1300 faðma.
Hver stefnan gizka menn nú á að kosin
hafi verið á endanum?
Hver nema einmitt sú sem ver gegndi,
hin eystri, sem skapar landssjóði á að gizka
1732 faðma vegarlengd til laguingar að upp-
hafi og síðan til viðhalds um aldur og æfi,
í stað 1300.
Vitanlega getur svo staðið á og stendur
margsinnis svo á, að betri er krókur en
kelda, aö betri er meiri vegarlengd, vegna
miklu greiðara vegarstæðis þar og þar af
leiðandi kostnaðarminni að öllu samtöldu,
þrátt fyrir lengdarmuninn. En því fer svo
fjarri, að slíku væri hjer til að dreifa, að
eystra vsgarstæðið var eiomitt miklu ógreiðara,
miklu torfærumeira, sem sýnir sig bezt á
því, hve dýrt hefir orðið að leggja þar veg-
inn, um mikinn kafla af því að minnsta
kosti. jpar er sem sje mishæðótt, svo grafa
þurfi stórum niður veginn sumstaðar og
hækka upp þess á milli, en sumstaðar hvik-
syndis-dý og -fen, er gerði vegarvinnuna
afar-erfiða og kostnaðarsama.
En hverjum gátu orðið svona mislagðar
hendur í eigi meira vandamáli en þetta
virðist hafa verið?
Svo ógeðfelt sem það er að hallmæla
manni á bak, en svo má það heita, að rita
um hann ámæli á honum ókunna tungu í
fjarlægu landi, þá verður að segja hverja
sögu eins og hún gengur. Sagan er þá sú,
að það var hinn danski verkfræðingur, v.
Ripperda, er Kaupmannahafnarstjórnaraeild-
in hafði útvalið til umsjónar af sinni hálfu
við Olfusárbrúarsmíðið í sumar, — það var
hann, er rjeð þessari óhappabreytingu á
vegarstefnunni, mældi hinn nýja veg og sagði
fyrir um alla tilhögun á honum. Hafði
landshöfðingja að sögn verið boðin hans
liðveizla til að segja fyrir um vegagjörð þar,
sem hann næði til frá brúnni í sumar,
kostnaðarlaust, með því að hann hafði fullt
kaup frá öðrum hvort sem var. Hefir
landshöfðingi að líkindum eigi þótzt mega
eða viljað hafna svo góðu boði, þar sem
hann hafði og engan lærðan verkfræðing
sjer við hönd.
Hvað hann hefir haft fyrir sjer, er hann
hafnaði vegarstefnu Erlendar, og færði sig
svona langt austur á við, af jafnlendi á ó-
sljett land, fenjótt og dýjótt, mun flestum
óljóst. þ>ví látum svo vera, að honum hafi
Verið talin ranglega trú um, frá mönnum,
er af sjerplægnisástæðu var ekki sama
hvar vegurinn var, að hann lægi miklu
fremur undir vatnságangi og snjóa á vetr-
um á vestari staðnum, fram hjá Árbæ, þá
var honum eigi ofætlun, að sjá hið rjetta,
að sjá það sem kunnugum ber saman um,
að álíkt er um snjóþyngsli og þ. h. á báð-
um stöðunum, en jafnlendið og sjerhvað
annað, er áður hefir talið verið, mælti með
Árbæjarvegarstefnunni. f>ar við bættust
svo býsna miklar hallajafna-reikningsvillur
hjá honum, er aukið hefðu enn kostuaðinn
mikið, ef þær hefðu fengið að standa.
Loks sparaðist þó nokkur hundruð króna
kostnaður fyrir það, að horfið var frá veg-
arstefnu hans, er niður eptir dró, niður fyrir
mýrina, eptir að landshöfðingi var búinn að
sjá hana, þegar hann kom austur að vígja
brúna, og leizt eigi betur á en svo, að sögn;
enda kom hinn útlendi verkfræðingur eigi
nærri verkinu upp frá því.
Tvö — þrjú þúsund krónur er reyndar
eigi mikið fje í sjálfu sjer, og vitaskuld er
alls eigi við að búast, að ekki vilji til því
líkur halli við og við á nokkuð stórum fyr-
irtækjum, er sjá má eptir á, að hægt hefði
verið að komast hjá. En það er mikið fje
þar, sem lítið er af að taka og ekki meiri
en aðalupp’næðin er: allur kostnaðurinn til
þessa ofurlitla vegarspotta.
Lærdómurinn, sem leiða má út úr þessu
óhappi, þessari handvömm, — hann er sá,
sem ísafold hefir margsinnis vikið á, hvílík
ráðleysaþað er.aðætlasjer að bjargast að föng-
um til með verkfróða aðstoð við mannvirki
á almennings kostnað, 1 stað þess að hafa
hjer fastan, vandlega valinn verkfræðing,
útlendan eða innlendan, mann, sem ekki
þarf að fara hót eptir annara sögusögn, og
hefir von bráðara í huganum greinilegt yfir-
lit yfir, hvernig vegir eigi að liggja um
landið, og framfylgir því, svo eigi þurfi að
vera að hlaupa í vegargjörð hingað og þang-
að að handa hófi, án þess að vita, hvernig
þeir molar falla í aðalbygginguna, nje ann-
að, sem vita þarf og leggja niður fyrir fram,
eigi nokkurn tíma að fást sæmileg trygg-
ing fyrir því, að vegabótafje landsins sje