Ísafold - 09.12.1891, Blaðsíða 4
392
TAKIÐ EPTIR!
í verzlun JÓNS þÓBÐABSONAB fæst
*llt af nýtt, saltað og reykt kjöt. Bnn
fremur fást í sömu verzlun margs konar
nýjir fatalitir, sem ekki litast upp.
"Verzlun N. Zimsens í Revkjavik kaupir með
háu verði falleg blá kattarskinn.
cýatnacfu'Z'
fea Undirskrifaður selur alls konar skó-
ffl fatnað með mjög vægu verði.
^ Barna-ristarskór, á kr. 1.50, 1.75, 2.75
| og 3.00.
X, Beimaðir barnaskór, frá 1 kr. 40 a. til
& til 3 kr. 50 a.
|L Fjaðraskór og hnepptir barnaskór, frá 4
2^ kr. til 5 kr.
S; Kvenn-fjaðra9kór, mjög vandaðir, sem
=. seljast eptir máli, kosta að eins 7
§, kr. 30 a. og 7 kr. 50 a. Karlmanns-
a" skór 7 kr. til 10 kr.
J- Jeg bið þá heiðruðu bæjarbúa og aðra,
|*sem vilja fá skó hjá mjer, að koma í
§" tíma.
o Reykjavík, Skólav.stíg 6, 7/,2 ’91.
Björn Leví Guðmundsson.
Samkvœmt 20. gr. skiptalaganna 12. apríl
1878, sbr. op. br. 4. jan. 1861, er hjer með
skorað á alla þá, er telja eiga til skulda í
dánarbúi Ólafs tómthúsmanns Hreinssonar,
sem andaðist í Paris hjer á eyju 28. maí f. á.,
að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiptaráðanda, áður en liðnir eru 6 mánuð-
ir frá síðustu birtingu þnssarar innköllunar.
Erfingjar ábyrgjast eigi skuldir.
Skrifstofu Vestmannaeyjasýslu, 10. okt. 1891.
Jón Magnússon.
Tombóla.
Samkvæmt þar til fengnu leyfi amtsins
hefur tLestrafjclag Alptnesinga« ákveðið að
halda tombólu þann 28. desembr. n. k. til
ágóða fyrir nefnt fjelag- Tombólan verðui
haldin í barnaskólahúsi Bessastaðahrepps
og byrjar kl. 10 f. h. Ennfremur er ákveð-
ið að danz8kemmtun fram fari að aflokinni
tombólunni. það eru því vinsamleg tilmæli
vor til allra, og sjerstaklega þeirra, sem
unna bókmenntum, að þeir styrki þessa
tombólu vora með gjöfum annaðhvort í
peningum eða munum, og erum við undir-
skrifuð fús til að veita þeim móttöku.
Bessastaðahreppi 8. desbr. 1891.
Jón þórðarson Guðjón Erlendsson
Magnús þorsteinsson Sveinn Gestsson
Jón Tómasson Sigurður Jónsson
Jón Hallgrímsson Margrjet þorláksdóttir
Guðleif Erlendsdóttir Ólafur Gíslason
Soffía Einarsdóttir Guðfinna Jónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir.
DUGrLEG- og hreinleg stúlka getur fengið vist
á næstkomandi krossmessu hjer í bænum, fyrir
gott kaupgjald. Kitstj. vísar á staðinn.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu Kristjáns Ó. þorgrímssonar
og að undangengnu fjárnámi 13. f. m. verða
200 smáfiskar í salti, tilheyrandi Ólafi Jóns-
syni í Vesturgötu, nr. 40, seldir við opinbert
uppboð, sem haldið verður miðvikudaginn
16. þ. m. kl. 12. á hád.,— til lúkningar
skuld eptir scett að upphæð kr. 16,83, ásamt
aðfara- og sölukostnaði.
Söluskilmálar verða birtir á undan upp-
boðinu.
Bæjarfógetinn í Beykjavík 8. desbr. 1891.
Halldór Daníelsson.
DIVANBORÐ, vandað, pólerað, úr birkivið,
fæst með góðu verði. Ritstj. vísað á.
MEIEKI-OSTUK góður fæst í
verzlun 11. Helgasonar
Pósthússtræti 2.
Skrifstofa fyrir almenning
10 Kirkjustræti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h.
Undertegnede Repræsentant for
Oet Kongelige Octroierede Almindelige
Brandassurance Oompagni
for Bygninger, Varer, Effecter.Creaturer og
Höe & &, stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modta-
ger Anmeldelser om Brandforsikring for
Syslerne Isafjord, Bardastrand, Dala.Snæfells-
nes og Hnappadal, samt meddeler Oplysning-
er om Præmier etc.
N. Chr. Gram.
Bókbandsverkstoí'a
ísafoldarprentsmiðju (Austurstræti 8)
— bókbindari þór. B. þorláksson —
tekur bækur til bands og heptingar.
Vandað band og með mjög vœgu verði.
í verzlun Eyþórs Felixsona
fæst ágætt íslenzt smjör fyrir 60 aura pd.
og tólg fyrir 35 aur. pd.
LEIÐABVÍSIB TIL LÍFSÁBYBGÐAr,
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 1—9
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 12—9
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—9
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Málþráðarstöðvar opnar 1 Rvík og Hafnarf. hvern
rúmhelgan dag kl. 8—9, 10—2 og 3—5,
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 5—3
eðurathuganir í R.vík, eptir Dr. J. Jónassen
des. Hiti (á Uelsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt.
á nótt. um hd. fm. em. fm. em.
Ld. 5. -4-10 4-11 751.8 756.9 0 b 0 b
Sd. 6. 4-14 4- ö 756.9 756.9 0 b 0 b
Md. 7. 4- 9 4- 4 756.9 756.9 0 b 0 b
þd. 8. Mvd. 9. 4-13 4-13 4- 9 756.9 749.3 754.4 0 b N hv b 0 b
Logn og heiðrikt veður alla undanfarna daga
með talsverðu frosti; norðanveður til djúpanna,
opt hvass. í morgun (9.) nokkuð hvass hjer á
norðan, bjartur.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Brentsmiðja Isafoldar.
226
hans voru þeir Jón og Guðmundur, er sig kölhiðu Bergmann,
af Setbergi vestra, því að þar voru þeir fæddir, og Sigfús
hinn þriðji. Jón Steinsson var vitur og hvass að skilningi,
on fjörmaður mikill og lítt iðinn að námi; Ljet faðir hans
hann fara utan til námsæfinga; sóaði hann þá mjög fje sínu,
en vann lítið á. |>ó hefir jafnan í almennum sögnum verið,
að hann væri læknir með ærnum yfirburðum, og eitt sinn
ljeki hann það, að hann skæri bóg af hvítum sauð og græddi
við svartan, og svörtum sauð og græddi við hvítan. Og enn
er það ein sögn um Jón, að hann skæri lambfulla á á kvið-
inn, fengi náð lambinu lifandi, og græddi ána, svo hún lifði.
það var eitt sinn, að Benidikt Bech kom til Hóla; fund-
ust þeir Jón Steinsson og áttu tal saman. Kom svo, að í
kappræðn slóst, er þá fylgdi opt kapp mikið, og er Jóni þótti
Benidikt all-orðhvass, segja menn hann mælt hafa:
•Ekki verður þú jafn-stæltur, Benidikt, þegar selurinn
rífur þig«; en Benidikt þá svarað: »Ei mun ég þó drepa
mig sjálfur*.
Jóu Steinsson lagði mikla ást á konu þá, er f>órunn hjet,
þórðardóttir, fátæks bónda og lítilla manna, og Oddnýjar Jóns-
dóttur, prest Eyjólfssonar á Yöllum í Svarfaðardal. f>au bjuggu á
koti því á Víðidal í Staðarfjöllum, er þúfnavellir heita; hafði sá
bær lengií eyði verið, síðan í Svartadauða, að almæli eru, og enn
ér það kot í eyði, sem fleiri á Víðidal, og sagt það yrði litlu
síðar eu þórður bjó þar. þórunn dóttir þeirra Odduýjar var
fríð sýuum; var henui komið af Sigríði móðursystur siuni og
manni hennar, Jóni presti Grímssyni á Hjaltabakka, til Hóla
nð nema hannyrðir; en það segja sumir, að haldin væri hún
227
þar sem griðkona ein. Tókust brátt kunnleikar með þeim
Jóni biskupssyni og kvað hann um hana mansöngsvísur, er
týndar munu vera. Er þetta þar í:
Hún stóð
Hýr í fögrum ranni,
Hugði’ eg að ’enni bezt;
Svipgóð,
Sú kann bæta manni
Sorg og hugarins brest;
þýtt fljóð,
þarflegt kunni flest.
Kom svo, að hann vildi fá hennar, og vakti það mál
við foreldra sína, en þvert nei var fyrir, helzt af móður hans,
Valgerði biskupsfrú (Jónsdóttur, prests á Staðarhrauni, Guð-
mundssonar); varð hún æf og ljet þegar flytja þórunni nauð-
uga á brautu. Var hún þó þunguð af Jóns völdum. En
sagt er, að biskup ljeti miklu hóglegar, og það hygði Jón
í fyrstu, að lagast mundi síðar. En sagt er hann kvæði þá
saknaðarkvæði til þórunnar litlu síðar, allviðkvæmt; er þetta
sagt niðurlag einnar vísu í því:
Nú er ei hugurinn heima,
Hef eg til hennar frjett.
Valgerður frú tók nú að leita kvonfangs Jóni syni sín-
um, og hugði hann mundi með því hyggja af þórunni, og er
sagt, að þá hafi honum verið heitin mær ein göfug, fyrir
umsýslu móður hans, en ei vitum vjer að nefna hana eða
hvar helzt hún var. Segja sumir, að Jón tæki eigi þvert