Ísafold - 24.02.1892, Síða 3

Ísafold - 24.02.1892, Síða 3
63 Isaíljarðarsýslu (Jökulfjörðum) 30.jan.: »Tíðin fremur óatöðug frá nýjári. Hafís- hrakningur sást nýlega fyrir Yestur-Strönd- unutn, en þó hvergi neinn verulegur ís hjer nálægt norð-vestur-kjálkanum eun sjáanleg- ur. Afla má kalla í Aðalvík fremur góðan, ef gæftir væri, en sjaldan verður á sjó farið sökum umhleypinga. Nýja sveitaverzlun er verið að undirbúa i Vetur á Látrum í Aðalvík, líklega til hagn- aðar fyrir hreppstjóra Sljettuhrepps, sem býr á Látrum og hefir keypt borgarabrjef í því augnamiði. Svo er og von á nýjum gufubát á skrið hjer um sýsluna á næsta vori, og hækkar þá líklega heldur brún á okkur Strandamönnumn. Húnavatnssýslu vestanv. 9. febr.: •Tíðarfar hefir síðan á jólaföstu verið mjög óstöðugt; sumstaðar hjer í sveit því nær jarðlaust fyrir fannfergi og áfreða, og rosa- bloti, sem kom í gær, hefir að líkindum alstaðar farið með síðustu snöpin; en vonandi er, að það gjöri mönnum nú ekkert til, þótt jarðbannaskorpa haldist fram yfir sumarmál. Hey voru bæði mikil og góð undan blessuðu sumrinu, er leið, beztu snmri, er nokkur man, og auk þess hins lengsta, því sumarblíðan mátti heita fram yfir miðjan nóvember; hálfan mánuð af vetri fann jeg nýorðna biðukollu í brekkunni fyrir austan bæinn, en þá var um allt túnið mikill fjöldi af nýútsprungn- um sóleyjum, og ekki var annað að sjá og heyra á rjúpunum en að kominn væri reglu- legur vorhugur í þær; á hverjum morgni var krökt á hverjum húsmæni og garðspotta af rjúpu og rjúpnakarrarnir ropandi að státa sig engu miður en þegar þeir hafa mest við á vorin«. Skagafirði 3. febr.: »Síðan fyrir jól hefir veðráttan verið óstillt mjög, opt snarp- ar hríðir og byljir, og opt komið mikill snjór sem við og við hefir lítið eitt minnkað. Nú er mikill snjór og víða hagskarpt«. Beitugjörð- 4/6. ílaley frá Bay City í Massachusetts. skipstjóri á fiskiskonnortunni »The Devils Wing«, hefir, að því er segir í »Fiskeritidende« (og þau hafa tekið eptir tímaritinu «Scientijic Neivs«) lengi fengizt við það að finna upp beitu, er gerði sama gagn og síld, skelfiskur, fjörumaðkur o. fl., sem fiskur hænist að, með því að þess kon- ar beita er bæði afar-dýr og einatt torfeng- in, svo að opt hafa menn orðið að hætta veiðinni, þó að nógur fiskur væri fyrir, af því að beitu hefir brostið. Hann hefir gert margar tilraunir til þess og haft við ráð efnafræðinga og verkfræðinga, og er svo að sjá, sem honum hafi tekizt að finna upp einhlítaj aðferð til þess, og er hann nú í þann veginn að fá sjer einkaleyfi, til þess að tryggja sjer arðinn af uppfundning þess- arar allsherjar-beitu (mniversal baiU), og gerir hann sjer góðar vonir um, að eigi þurfi hann fratnar að sveitast við fiskiveið- ar, en geti lifað sem auðmaður og verði talinn með velgjörðamönnum maunkyusins. Fyrst og frernst ljet Haley sjer annt um að finna efnasamsetning, er væri sem mest í líking við þá beitu, er hver fiskur helzt tekur. jpví næst var að finna upp, hvernig þeim lit og þeirri lögun yrði komið á beitu- efnið, er væri sem mest tælandi fyrir hverja fisktegund. Aðalefnin í þessari alheims- beitu á að vera «kautschuk« og síldarlýsi, og á hún að hafa reynzt vel, jafnt fyrir þarsk, ýsu, heilagfiski, makríli, lax, ál o. s. frv. |>á er efnasamsetningin var fundin, varð það eigi miklum erviðleikum bundið að lita og laga beituna, svo sem hagan- legast þótti. það er gert á skipinu, jafn- óðum og veitt er, og höfð til þess lítil vjel s,em eigi er öllu stærri en vanaleg bjugna- vjel. Fyrst er settur hinn rjetti litur á beituefnið og síðan er það hnoðað, og er þá auðgert að gefa því þá lögun, er haga þykir, svo að það líti út sem smáfiskur eða sem fiskbiti eða sem skelfiskur eða sem ormur o. s. frv., eptir því hver fæða það er, sem hver fiskitegund sækist mest eptir. Nauðsynlegt er að lita og laga beituna á skipinu, jafnóðum og hi'm er hagnýtt, því að hún verður eigi eins góð og ginnandi fyrir fiskinn og heldur eigi hæfilegri seigju og mýkindum, ef hún geymist lengi. Meira hluta beitunnar má nota aptur, með því að lita hana og laga á nýjan leik.—það hefir verið tekið fram, sem og satt er, að skyldi þetta reynast áreiðanlegt, mundi að því verða stórmikil framför í fiskiveiðum. Uppboðsauglýsing Samkvcernt tilmcelum sýslumannsins í Skaga- fjarðarsýslu sem skiptaráðanda í dánarbúi Guðmundar sál. Sigfússonar frá Beynistað, auglýsist hjer með, að hálf jörðin Skottastað- ir í Bólstaðarhlíðarhreppi hjer í sýslu, sem er eign nefnds dánarbús, verður seld við 3 opinber uppboð, sem haldin verða um hádeg- isbil, tvö hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar að Kornsá í Vatnsdal, laugardagana 27. apríl og 7. maí nœstkomandi, en hið þriðja á jörð- inni sjálfri laugardaginn hinn 21. maí næst eptir. Kaupanda veitist 6 mánaða gjaldfrestur. Söluskilmálar verða birtir á uppboðsþingunum. Skritstolu Húnavatnssýslu 6. febr. 1892. Lárus Blöndal. SJÓNLEIKIR. Föstudaginn þann 26. þessa mán. verða að forfallalausu leiknir í fyrsta sinni Víkingarnir á Hálogalandi, eptir Benrik Ibsen. Reykjavík 93. febrúar 1892. Forstöðunefndin. S K O ! Bækur, bókband, smíðar, viðgerðir o. fl., lána jeg hjer eptir ekki öðrum en þeim, sem hafa fastan viðskiptreikning við mig, og borga mjer skilvíslega, að minnsta kosti einu 8Ínui á ári. Sóleyjarbakka í febr. 1892. Einar Brynjólfsson. Verzlun Eyþórs Felixsonar selur: saltfisk nr. 2 ágætlega góðan fyrir 10 kr. vætt- ina — minna sje mikið keypt í einu gegn peningum. £W HÚS TIL SÖLU, ágætt, með góðum og stóruin kálgarði og mikilli lóð, á góðum stað í bænum. Sömuleiðis gott túnstæði á 3. dagsláttu að stærð. Borgunarskil- málar góðir. Runól/ur Runól/sson (bókbindari) 60 þangað, er hann hafði eytt æskudögum sínum, tóku að vakna hjá honum endurminningar um hið fyrra líf hans. Opt var hann stundum saman á gangi á þilfarinu, og fór þá svo sem í draumleiðslu um æskustöðvar sínar. þær hafði hann orðið að flýja fyrir víg hins sænska varðsveitarforiugja. f>að víg hafði hatin vegið fyrir sakir unnustu sinnar, Grjetu vesalingsins, er hann hafði untiað svo heitt og heitbundizt svo fast, en síðan eigi sjeð nj0 ha.ft afspurn af. . 1’erðin til Amsterdamms gekk mjög vel. f>á er þangað kom, blöktu fánar á hverju skipi til virðingar við hann, og á öllum strætum borgarinrtar var krökkt af mönnum, er fýsti að líta bitin ágæta kappa og orðlagða sjógarp. Bigi hafði hann langa viðdvöl í Amsterdammi, heldur fór sem tíðast norður í Haag, þar sem stjórnin hafði aðsetur. þar var hon- um tekið með hátíðlegri viðhófn og margs konar virðingarhót- um. Daglega sat hann á ráðstefnu með æðstu mönnum stjórnarinnar og stjórnöndum hins volduga verzlunarfjelags, er veitti honum að gjöf dýrmæta gullfesti til merkis um lotning- arfyllst þakklæti sitt. Niss de Bombell var fengió stórhýsi eitt til íbúðar. En þá er hann kom heim þangað á kvöldin af ráðstefnum eða frá hátíðahöldum, þá þótti honum þar eitt- bvað snautt og tómlegt. J>að skorti eitthvað á, að sæla hans v®ri fullkomin. Eigi hafði hann lengi dvalið í Haag, áður en hann hafði fastráðið íneð sjer, hvað gera skyldi. Hann ritaði örstuttan brjefmiða. Síðan sendi hann eptir einkanlegum vini sínum, frísneskurn farmanni, er hann hafði fyrir nokkru skipað yfir- stýrimann á aðmírálsskipi því, er hann var fyrir. þessutn vini 57 irnir í Ammsterdammi höfðu sett afarhátt verð á kryddvarn- ing sinn og stefna þeirra var sú, að láta hann halda lagi um aldur og æfi. þá er þeir höfðu ákaflega miklar birgðir af pipari, kanelberki og kryddnegulnöglum í varnmgsbúrum sín- um, svo að horfur voru á, að það mundi eigi haldast í verði, þá Ijetu þeir eigi undan með það, að lækka verðið, svo að meira seldist af vörunni, þó að það hefði getað orðið ábata- vænlegra, heldur tóku þeir það þá einatt til bragðs að brenna upp þessar kryddvörur, svo að hörgull yrði á þeim, og nam það stundum miljónum gylina, er þeir ónýttu svo af þver- höfðaskap og öfugum hagnaðarhugmyndum. A fyrsta fjórðungi átjándu aldar hafði hið hollenzk-ind- verska verzlunarfjelag einkum fyrir stafni að auka veldi sitt á eynni Celebes. Gjörði það út þangað leiðangurslið og her- skipaflota. Fioti þessi lá ferðbúinn að kalla við eyna Texel og beið byrjar, þá er síldardugga sú, er Niss Ipsen var á, kom til Amsterdamms. |>á er Niss Jpsen hafði dvalið nokkrar vikur í Amster- dammi og fátt haft að iðja, lenti hann í klóm á »sálnaveiður- um«, en svo kallast þeir menn, er hafa þá atvinnu að hremma menn og nauðga þeim til þess að gerast sjómenn, er eigi fást svo margir á skip, 8em þurfa þykir, af frjálsum vilja, sem opt vill verða. |>essir sálnaveiðarar seldu Niss Ipsen til Indlands-flotans, er enn var manna vant. Niss Ipsen var þegar tekinn í hásetatölu, því að hann kunni nokkuð til sjómennsku, og ljet hann sjer það vel lynda. Hann reyndist vikaliðugur og ósjerhlífinn, og hinn ötulasti í hvívetna, og ávann haun sjer brátt hylli yfirmanna sinna.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.