Ísafold - 30.04.1892, Síða 1

Ísafold - 30.04.1892, Síða 1
Keraur út á miðvikudögum og laugardögum. Verft árg (um 100 arka) 4 kr., erlend- ia 5 kr.; borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Reykjavík, laugardaginn 30. apríl 1892- Uppsögn (skrifteg) bundin við áramót, ógild nema kom- in sje til útgefanda fyrir 1. októbermán. Afgreiðslustofa í Austurstrœti 8. í 35. blað XIX. árg. Ættjörð mín! |>eir segja jeg hafi hrópað fár Og heipt yfir þínar slóðir, — En brenni mín sál um eilíf ár Ef ann jeg þjer ekki, móðir! Að vísu gerði’ jeg galdraspil, Sem get jeg að niargan fæli; En óargadýr var aldrei til, Sem unui’ ekki sínu bæli. Hvað gekk mjer til? — Jeg veit ei vel, þó vildi jeg ekkert dylja; 'Gott ef það var ei gamla Hel, Sem glapti mjer sál og vilja. 'Gott ef jeg var ekki viti fjær Og volegri sturlun brenndur, Sem maður á bát, ef beljar sær Og bundnar sjer allar hendur. Gott ef það var ekki ofurást, Ó, lsland, á foldu þinni, Er sviplega í heiptarhlátur brást, Er Heljar jeg tæmdi niinni. 'Gott ef jeg eygði’ ekki ísa-vök Og ísland í gjánni miðri, Og heyrði mín gömlu, heilögu rök Sem hlátur í víti niðri. I ógnarheimum er engin trú, En eilífur þagnardraumur, 'Ginnungagap og Gjallarbrú Og aandur og heljarstraumur. Jpá fannst mjer eitt — og það frelsaði mig, Að freistað mín að eins væri, 'Og, fósturlandið mitt, fyrir þig Jeg forlög og þrautir bæri. En signið þið ykkur, þið guðsbörn góð, Jeg get ekki sannara talað, Og skiljið, að slíkan Islands óð Hafi’ óminnishegrinn galað. atth. Jochumsson. Um sýslu- og hreppamörk. Arlega heyrast umkvartanir, úr öllum áttum, um vanskil og illar heimtur á fje, og það ei að orsakalausu. Reyndar er nú komin nokkur lagfæring á í því efni, þar sem vfðast er farið að auglýsa í blöðunum óskilafje það, sem selt er á haustin. En þótt þetta spor sje stigið áfram til hins betra í þessu efni, þá er sauat mikið eptir er þyrfti að laga, til þess að fjárskil gætu orðið greiðari og betri, en hingað til hefur átt sjer stað. Að minni hyggju er bezta ráðið við slœm- um fjárskilum að taka upp sýslu- og hreppa- mörk. |>ótt jeg gangi að því vísu, að nokkrir og jafnvel margir, við fyrsta álit geti ekki fellt sig við þessa nýbreytni, þá þykir mjer það eðlilegt, því svo hefur það gengið, að flestar nýungar hafa fengið marga mótmælendur, þótt þær þyki ágætar, þegar þær eru komnar á, og þegar reynslan er búin að sannfæra menn um nytsemina. Jeg man það, að margir voru ekki lítið óánægðir, þegar peningabreytingin varð um árið. Jafnvel skynsömustu menn ljetu óá- nægju í ljósi og óttuðust, að breytingunní mundu fylgja margir erfiðleikar, en fáir kostir. Nú eru þær raddir þagnaðar. Sama má segja um bankann og seðlana hans. Sumir hjeldu, að sú stofnun setti landið á höfuðið, og seðlana skoðuðu þeir einskisvirði. Nót held jeg, að flestir sjeu kornnir á þá skoðun, að sú stofnun sje, með góðri stjórn, mjög þarfleg, og óánægjan með hana fer þverrandi. Ef sýslu- og hreppamörk kæmust á, mundi reynslan eptir nokkur ár sýna mönnum ó- kosti hinnar gömlu markatilhögunar og kosti hinnar nýju, sem vaninn nú að miklu leyti hylur. Jeg vil leyfa mjer að bera þá spurningu upp fyrir þá, sem eru sýslu- og hreppa- mörkum mótmæltir, hvort þeir haldi ekki, að öll rjettarstörf og fjárskil mundu ganga reglulegar og margfalt greiðara, ef aliir, sem að því starfa, kynnu allar markaskrár utan að? Minna mætti það ekki vera, því að sami maður getur verið eitt árið á vest- urlandi og annað á austurlandi. Jeg vona, að menn verði að svara spurningunni með jákvæði. þar sem það er ómögulegt, að almenning- ur geti lært allar markaskrárnar, svo sem fimmta hvert ár, þá væri ekki lítið unnið við það, að hver maður gæti þegar í stað sjeð, úr hvaða sýslu og hreppi þessi og þessi kind væri. Að sundurdráttur fjárins yrði við það margfalt rjettari, fyrirhafnarminni og fljót- legri, en nú á sjer stað, er svo ljóst, að jeg efast ekki um, að öllum greindum mönnum geti skilizt það. þeir, sem sendir eru árlega í utansýslu- og hrepparjettir, gætu bezt borið um það, hvert hagræði það væri fyrir þá, að þurfa ekki að hafa í huganum nema eitt eða tvö mörk, í staðiun fyrir þann markasæg, er þeir nú þurfa að muna. Ekki væri það heldur lítilsvert fyrir þá menn, er stjórna rjettarhöldum. f>að mun vera fyrirskipað í mörgum eða flestum fjall- skilareglugjörðum, að rjettarstjóri, eða annar, er hreppsnefndin kveður til þess, skuli sjá um, að fje sje ekki rangt dregið í dilka. Já, maðurinn sá veit, hvað hann á að gjöra, ef hann vill trúlega gegna starfi sínu; því að mínu áliti er slíkt alveg óframkvæmilegt fyrir nokkurn lifandi mann, þar sem rjettir eru meira en að nafninu; nema því að eins, að hann hafi fjölda manna með sjer, og geti látið bera saman við markaskrár mörk á fje í hverjum dilki, þegar sundurdráttur er hættur. Ekki er ólíklegt, að talsvert langur tími útheimtist til þess, og því getur enginn neitað, að umsvifaminna og fljót- legra væri að þurfa ekki að gæta nema að að eins sýslu- og hreppamörkum. Ef markabreytingin kæmist á, yrði ekki hætt við, að úrtíningsfje það, sem geymt er til skilarjetta, yrði eins margt og nú á sjer ár- lega stað, í sumum sveitum, þar sem það skiptir hundruðum, og náttúrlega sætir mis- jafnri meðferð, og ef til vill týnir töl- unni. En það er ekki einungis í rjettunum, er sundurdráttur fjárins yrði auðveldari og fljótlegri og af því leiðandi minni flækingur á skepnunum, heldur ætti það sama sjer stað á hverjum einasta bæ á öllu landinu, þar sem nokkurt fje er. f>á kæmi og sjaldn- ar fyrir en nú, að kindur væru reknar í öfuga átt, skepnunum til kvalar, en eigend- um til skaða. Jeg býst við, að margur muni verða mót- fallinn þessari áðurnefndu markabreytingu, á meðan að menn hugsa ekki rækilega um það, sem mælir móti og með. Helztuókostir breytingarinnar munu taldir, að mörkin verði of náin, og að ekki verði hægt að marka upp kollótt fje, sem sje víðs vegar aðfengið eða flutt til á milli sýslna og hreppa. Enginn efi getur Ieikið á því, að sýslu- mörk geta verið hvert öðru ólík, þar sem ekki þarf að hafa sýslumörlt fleiri en 6—8 á öllu landinu, því 2 eða 3 og jafnvel 4 mjög fjarlægar sýslur geta haft vel sama markið. Um hreppamörkin má líkt segja, þótt undirben sjeu; þau geta verið mjög ólík hvert öðru, því undirben eru svo mörg og geta verið svo margvíslega sett, að slíkt væri of langt að telja upp. Jeg er eins sannfærður um það, að ekk- ert er hægra en að finna nægilega mörg ólík mörk fyrir hvern markeiganda í hverj- um hreppi. Að það hljóti að verða námerktara en nú á sjer stað, er bara ímyndun og ekkert annað. f>ar sem herra |>órður Guðmundsson á Hálsi segir í ísafold 5. tbl. þ. á., að hann hafi eigi getað gjört markaskrá fyrir sinn hrepp öðru vísi en svo, að víða hafi ekki skilið nema eitt undirben »lítíð«, þá á jeg ekki gott með að skilja það; því jeg hygg að öll undirben geti verið stór og lítil. f>að er undir þeim komið, sem marka; einn hefir t. d. bitann stóran, en annar lítinn, og svo getur verið með öll undirben. f>að er heldur ekki nýtt, að eitt undirben skilji mörk; jeg þarf ekki annað en gæta að mörkum að eins í tveimur hreppum, í markaskrá, er jeg hef við höndina, til að sannfærast um það. í öðrum hreppnum eru 59 markeigendur og hjá 13 af þeim skilur eitt undirben. í hinum er 165 mark- eigendur, en hjá 59 af þeim skilur undir- ben. Að menn í spmu sýslu þurfi að eiga ná- merktara, þótt markabreytingin kæmist á, en áður hefur viðgengizt, er ekki að óttast. Jeg þarf ekki annað en fletta upp einni opnu í markaskrá, þeirrar sýslu er jeg bý í, til að sjá, að eitt undirben skilur hjá 11 og

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.