Ísafold - 30.04.1892, Blaðsíða 2

Ísafold - 30.04.1892, Blaðsíða 2
188 hjá 8 er sammerkt, og í opnunni eru þó ekki nema 66 mörk, en í allri sýslunni eiga 32 sammerkt af 415 markeigendum. Ef markabreytingin kæmist á, gæti enginn utanhreppsmaður tekið upp markið manns, þar sem nú fjöldi manna getur tekið það upp, án þess maður geti fengið nokkra vitneskju um það, fyrri en markaskrárnar eru prentaðar á ný, og eru dæmi til, að það hefur valdið töluverðum ruglingi og jafnvel, að hinn rjetti eigandi hefur misst eign sína fyrir það. Um kollótta fjeð er það að segja, að jeg er þeirrar skoðunar, að hægt veiti að marka það upp alveg eins og nú tíðkast. það verður aldrei meira kák en nú á sjer stað. Bezt væri að þurfa ekki að vera að soramarka, og til að losast við þá ófögru aðferð, er að mínu áliti bezt, að setja sýslu- og hreppa-brennimörk á pjötlu úr görfuðu skinni, og hinu megin brenni- mark eigandans. Pjötlu þessa mætti festa við traust band, sem dregið væri í gegn um eyrað, og ef umbúnaður væri góður, færi það sjaldan eða aldrei úr eyranu. Menn gætu líka haft hina mörkuðu skinnræmu í báðum eyrum, og til enn meiri tryggingar gætu menn brennimerkt kindina á klaufum. Með þessum umbúnaði hygg jeg, að eigand- inn þyrfti aldrei að missa eign sína, nema ófyrirsjáanlegt slys vildi til. Jeg hef ekki minnzt á hyrnt fje, því þess gjörist ekki þörf, þar sem hægt er að setja á það bæði hornamark og brennimark. Jeg hef hjer að framan bent á það helzta, er mjer virðist athugavert við það, að taka upp sýslu- og hreppamörk, og get jeg ekki sjeð neitt, sem verulega geti mælt á móti því, nema ef vera skyldi gamall vani og fastheldni við gömlu mörkin, en menn ættu að gjöra sjer það ljóst, hverju þ#ir sleppa og hvað þeir hreppa. Kostirnir við markabreytinguna hljóta að vera miklir, en ókostir hinir sömu og hafa verið með sumt, en verða miklu færri en nú eiga sjer stað. þetta vona jeg að hver skynsamur maður geti sjeð, ef hann hugsar nokkuð um málið. Kjörseyri, í marz 1892. PlNNUK JÓNSSON. Smápistlar um mjólkurgerð- Eptir Ólaf Ólafsson búfræðing. IV. þegar vjer komum nú í mjólkurhúsið, er þar margs að gæta; þar á allt að vera hreint og fágað og allt í röð og reglu. En hvernig er það nú almennt? Vanalega mun mjólkin vera sett upp í miður hrein eða vönduð trjeílát í búrinu, þar sem öllum búsafurðum er safnað, skyri, kjöti, slátri, sýru o. s. frv., er hver maður hlýtur að sjá, sem nokkuð hugsar um mjólkurgerð, að er mjög skaðlegt, ef fást á vönduð vara úr mjólkinni. Litlu betra er, eins og sum- Btaðar tíðkast á sumrin, að hafa mjólkina í hesthúsi eða öðrum óvönduðum útikofa, nema hvað hitinn er minni og jafnari og henni því síður hætt við að súrua. Mjólkurhúsið þarf að vera bjart og lopt. gott (ekki samt súgur), og hitinn sem jafn- astur árið um kring, heldur svalt en heitt og úr því efni gjört, sem hægt er að gjöra hreint. f>að er ekkert á móti því að hafa torfveggi, og jafnvel betra en margt annað, því með þeim getur hitinn orðið jafnastur, en sjálft mjólkurhúsið ætti að vera þiljað innan. Gólfið þarf að vera úr vatnsheldu efni, helzt lagt í sement, í fyrsta lagi til þess, að ýms óhollusta og skaðlegar lopt- tegundir komist ekki neðan frá, og í öðru lagi til þess, að það, sem niður hellist, sígi ekki niður, súrr i og ummyndist og síðan komi upp í annari mynd og skemmi svo loptið í mjólkurhúsinu. Eptir miðju gólfi er betra að hafa rennu, er gæti haft útrás undir vegginn og út, til þess að úr henni geti runnið það sem niður hellist á gólfið eða þegar gólfið er þvegið o. s. frv. Betra er en ekki að hafa fjalagólf, en það getur ekki orðið endingargott; það fúnar fljótt. Húsið þarf að vera það stórt, að nægilegt rúm sje fyrir mjólkina og mjólkuráhöld; en annað ætti ekki að vera í því. Mjólkurílát ættu, ef þau eru höfð úr trje, öll að vera úr hörðu trje (brenni eða eik) og mjólkurbyttur allar málaðar (trog ætti ekki að hafa). þegar þau eru máluð (þau þurfa að vera vel maluð, engar sprungur í málningunni; ef það er, er hún verri en eng- in) er hægra að þvo og hreinsa þau og súr gengur síður í þau. Betra en trjeílát álít jeg samt skálar og fötur úr galvaníseraðri járnþynnu, því bæði er þá hægra að þvo þau og svo er járnþynnan betri hitaleiðir en trjeð, mjólkin kólnar því fyr og sezt betur í þeim; þær fást nú orðið víða í verzlunum. V. í sambandi við þetta skal að endingu stuttlega minnast á þær aðferðir, er mest og bezt hafa þokað mjólkurgerð áfram ann- arstaðar seinni part þessarar aldar. Fram yfir miðbik þessarar aldar var mjólk- urgerð viðast hvar á mjög lágu stigi. Voru þá allvíðast, eins og hjer er enn á landi, ómáluð trjeílát notuð til að setja mjólk upp í. Af því loptslag í flestum löndum er heitara en hjer, var það miklum erfiðleikum bundið, að halda mjólkinni nógu lengi ósúrri. f>á hún er súr orðin, er, sem víst flestar sveitabúkonur vita, öll von úti í það sinn um að fá meiri rjóma úr henni; ennfremur er erfitt að ná súrnum aptur úr ílátunum, þá hann einu sinni er kominn í þau. Eptir miðja öldina, er öllu tók að fleygja áfram, varð mjólkurgerðin einnig að vera með; þá fóru einstöku menn, bæði vísindamenn og búmenn, að gefa sig eingöngu við mjólkur- gerð. Fyrsta breytingin var, að mjólkin var sett upp í ílát úr járnþynnu, aflöng, stór um sig, en grunn; fannst það brátt, að það var öllu betra en trje. þó varð þessi að- ferð aldrei mjög almenn. Árið 1864 kom maður nokkur, Schwarz að nafni, sænskur að ætt, með þá nýlundu, að setja mjólkina upp í djúp, en fremur mjó ker úr galv- aníseraðri járnþynnu, og setja þau niður í vatn, er kælt var með klaka, ef með þurfti, svo þar væri aldrei heitara en 1—4°. þetta sætti allmikilli mótspyrnu í fyrstu, því mörgum þótti útriilegt, að fituagnirnar gætu á svo stuttum tíma sem hann til tók (12— 24 kl.stundum) komizt svo langan veg, eins og þær þyrftu að fara, sem væru í hinu neðsta mjólkurlagi við botninn, og upp á yfirborðið. Ker þessi voru 17—20 þuml. á dýpt og 7—12 þuml. á vídd, öll jafn víð. Schwarz tókst sarr.t brátt að sannfæra mót- stöðumenn sína, og eptir nokkur ár var þessí aðferð hans orðin að heita mátti almenn á öllum stærri mjólkurbúum. Með því að kæla mjólkina þannig, var hægt að halda henni ósúrri langan tíma. —• Súrinn í mjólkinni orsakast af ósýnilegum smákvikindum, er sveima um í loptinu, en sje hitinn minni en 5°, geta þau eigi þrifizt °g tímgast. — Ekki einungis varð mjólkinni haldið ósúrri í sterkasta sumarhita með þess- ari aðferð, heldur settist hún einnig langt um fyr og betur, eins vel á 24 kl.-stundum og áður á 36—48 kl.-stundum. Meðan bytt- ur voru eingöngu notaðar, var opt á sumr- um ómögulegt að fá viðunanlega mikið smjör lir mjólkinni. þurfti þá opt 40 pd. af mjólk og þar yfir í 1 pd. af smjöri, í stað 25—28 pd. — J>ar að auki þurfti ekki eins vandað eða stórt mjólkurhús og miklu minni fyrir- höfn með að halda ílátum hreinum, og loks varð þessi aðferð í alla staði kostnaðarminni í lengdinni. Að öðru leyti vísast til ritgjörð- ar Sveins búfr. Sveinssonar í Andvara 2. ár »Um mjólkurgerð«; þar er þessari aðferð lýst all nákvæmlega. þó þetta væri mikil framför, þar smjör og ostur varð jafnari og betri vara, þá var þó ekki hjer látið staðar nema, með því líka ýmsir annmarkar komu einnig í ljós við þessa aðferð, svo sem erfiðleikar að vera vel birg- ur af ís, þá vetrar voru frosta- og snjóalitlir. jþegar klakann þraut, varð að brúka hina eldri aðferð (byttur), en þar við jókst kostn- aðurinn, þegar þurfti að vera birgur af áhöldum til beggja aðferðanna (klaka, bytt- um). Einnig var ekki jafn hægt að fá alla mjólk til að setjast jafn vel með þessari nýju aðferð; einkum átti þetta sjer stað á haustum og framan af vetri, meðan kýr voru óbornar, eins ef mjólkin var til muna farin að kólna, áður en hún var sett upp, en við- því má gjöra með því að hita mjólkina apt- ur til 25—30°. Eptirmæli. t Síra Stefán Thorarensen var fæddur að Stórólfshvoli 10. júlí 1831. þar, i Stórólfs- hvolsþingum, var þá faðir hans prestur, síra Sigurður Gíslason prófasts þórarinsson- ar í Odda ((1807), bróður Stefáns amtm. þórarinBSonar; en kona síra Sigurðar, móðir síra Stefáns, var frændkona hans Guðrún ’Vigfúsdóttir sýslumanns þórarinssonar á Hlíðarenda (11819), bróður þeirra Stefáns amtmanns og Gísla prófasts; var Guðrún systir Bjarna amtmanns Thorarensens. Níu vetra fluttist Stefán með foreldrum sínum að Hraungerði í Flóa, kom í Beykjavíkur- skóla 1847, útskrifaðist þaðan 1853 og tveim árum siðar (1855) af prestaskólanum með I. einkunn, vígðist s. á. 7. okt. aðstoðar- prestur föður síns að Hraungerði, en fjekk Kálfatjörn 1857, þjónaði því brauði nær 30 ár og bjó alla þá tíð rausnarbúi á Kálfa- tjörn, unz hann fjekk lausn frá prestsskap sakir heilsubrests vorið 1886, og fluttist þá til Reykjavíkur. Hann var tvíkvæntur, fyrst Bannveigu Sigurðardóttur, kaupmanns í Reykjavík, Bjarnasonar riddara Sivertsen, er andaðist 1856, og síðan systur hennar, Steinunni, er lifir mann sinn. Hvorttveggja, hjónabandið var barnlaust.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.