Ísafold - 17.09.1892, Síða 1

Ísafold - 17.09.1892, Síða 1
Kemur út á mi(!)vikudögum og laugardögum. Yer?) árg. (um 100 arka) 4 kr., erlendis B kr.; borgist fyrir miöjan júlímánuö. 1SAF0LD. Uppsögn (skrifieg) bundin viö áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. októ- bermán. Afgroiöslustofa i Au8tur8trœti 8. XIX. árg. Heyásetning og fjárfækkun. Hinar mikln og tíðn áminningar í blöð- nm og búnaðarritum nú hin síðari árin tim gætilega heyásetning, afskipti löggjaf- ■arvaldsins af því máli og vaxandi menn- ingar- og mannúðarhugur almennings hefir borið þann ávöxt, að gapaleg ásetning og þar af leiðandi harðÝögismeðferð á skepn- um og jafnvel horfeliir er orðið fátíðara ■en áðnr gerðist. Hugöunarhátturinn hefir vissulega breytzt til batnaðar í því ofni hjá öilum fjöldannm. En mest er undir því komið, að þessi nýi og betri hugsunarháttur sje nógu stað- fastur til að standast megnar freistingar. Freistingin til að setja djarft á vetur hefir lengi ekki verið jafn-rík og ein- mitt nú. Fyrst og fremst heyskaparbrestur feyki- mikill, og hitt þó þaðan af verra, að lítil sem engin von er um fjármarkaði í haust •og jafnlitil von um nýtiiega fjársölu á blóðvelli; helzt útlit fyrir, að bændur fái þriðjungi eða jafnvel helmingi minna fyrir skepnur sínar hjá kaupmönnum en í með- «.lári, og það að eins í vörum, í stað þess að annars hefir fjársalan á fæti verið aðal- peningalind landsmanna í býsna-mörg ár. Það eru geigvænleg umskipti, þetta og annaö eins, og voðaleg freisting fyrir bændur að fleygja ekki fjárstofni sínum út fyrir hálfvirði, heldur tefla að fornum vanda á tvær hættur með líf þeirra vetr- ■arlangt, í von um að betratakivið að ári, æða með öðrum orðum: »að setjaáguð og gaddinn«. Nú reynir á, livort sannfæringin um skaðsemi djarflegrar ásetningar fyrir efna- -hag þjóðarinnar er nógu rótgróin og stað- föst. Ilvort almenningi er nógu fastloga Innrættur sá óyggjandi sannlciki, að aldrei lifnar efnahagur þjóðarinnar við að marki nje að staðaldri fyr en horfellisósóminn leggst alveg niður. Hvort almenningi skilst það til hlítar, að hyggileg heyásetning samsvarar hjer á landi vátrygging þeirri, er aðrar þjóðir eru fyrir löngu komnar upp á að varðveita með efni sín og þær eiga mest og bezt auðsæld sína að þakka. Allt er betra en að hafa bústofninn í sýnni hættu fyrir heyskorts sakir. Betra að láta mikið af honum.í kaupstað fyrir lítið verð og það upp í skuldir, ef Sv0 vill verkast. Betra að farga til heimilis miklu meiru en þörf virðist; það er góð fæða, ef vel er með farið, og útgengileg þegar fram á kemur fyrir fiskæti frá sjó eða annað. Sauðfje er ótrúlega ílj'ött að komast upp aptur. Það þekkja líka horfellismennirnir og hugga sig viö það; en það er skræl- ingjahuggun hjá þeim; því aldrei verður Reykjavík, laugardaginn 17. sept. 1892. aptur tekin hin voðalega fjársóun, sem í því felst, að skepnaii fellur til ónýtis, ept- ir að eytt hefir verið í hana vetrarlangt heyforða þeim, er til var, og allri fyrir- höfn að hirða hana. Hitt., að farga henni í haustholdum, það er engin fjársóun,— það er þvert á móti hyggileg fjárafneyzla, svo framarlega sem eigi er full trygging fyrir nægum fóðurbirgðum handa henni vetrarlangt. Það getur í hæsta lagi orðið nokkur gróðatakmörkun eða ábataskerð- ing. En slík ábataskerðing er margfalt ákjósanlegri en sá meira en tvísýni gróða- hnikkur, að setja skepnur »á guð og gaddinn«, að ógleymdri þeirri guðlausu harðýðgismeðferð; er slíkt getur leitt yfir saklausa guðsgjöf. Bókarfregn. Landfræðissaga íslands. Huc/myndir manna um Island, náttúruskoðun og rannsóknir. Eptir Porvald Thorodd- sen. Fyrra hepti. Rvík (ísaf.prentsm.) 1892. (2+) 238 bls. 8. Rit þetta, er sæmt hefir verið að meiri hluta verðiaunum af gjafasjóði Jóns Sig- urðssonar, er gefið út af hinu íslenzka Bók- menntafjelagi. Það hefir, sem vænta má, að geyma margvíslegan fróðleik, erlendan og innlendan, landfræðislegan og söguleg- an o. s. frv. Sjerstaklega útlistar höf. hug- myndir manna um Island og Islendinga á fyrri tímum eða lýsingar þar á, sem nátt- úrlega eru meira og minna mengaðar öfg- um og ósannindum, og gefaþví tiltölulega lítinn sanninda-arð. En segja verður hverja sögu svo sem hún gengur, og verður eigi hjá því komizt í slíku riti, að tilfæra marg- ar öfugar hugmyndir, sem lítið eða ekkert er á að græða út af fyrir sig. En engan veginn er þó þýðingarlaust að sjá, hversu öfugar hugmyndir myndast og æxlast, unz þær verða að víkja fyrir öðruin rjettari. Ritið lýsir afarmikilli víðlesni og ákaflegu ritþoli höfundarins. Hann nefnir mjög marga höfunda, er minnast á ísland, og lýsir að öllum jafnaði æfiferli hvers þeirra, að því er kostur er á. Hann kemur og allmjög við verzlunarsögu og menningar- sögu landsins. Ritið er mjög ljett og lipurt skrifað og furðulega skemmtilegt aflestrar. Ritinu (hepti þessu) er skipt í 3 kafla, en hverjum kafla í nokkrar (alls 12) grein- ar. Fyrirsagnir kaflanna eru þessar: 1. Frásagnir um Island á undan lundnámi (1.—3. gr., bls. I.—20.). 2. Ilugmyndir manna um ísland fyrir siðaskiptin (4.—10. gr., bls. 21.—145.). 3.. Siðaskiptin. Níðrit um ísland. íslcndingar rakna við (11.—12. gr., bls. 14P>.—238.). Má þar af ráða um efni ritsins; en til þess að sýna gjör fram á hinn fjölbreytilega fróðleik þess, skal drepa á hinar einstöku greinár. 74. blab. 1 1. gr. eru sagnir um Ihule. Nafnið Thule (Thyle, Tíli) á kyn sitt að rekja til Pyþeas’s frá Massilíu, er uppi var 1100 ár- uin fyrir fslands byggð, en svo hefir hann nefnt eitthvert kynjaland lengst norður i höfum. Frásagnir hans um Tíli voru sið- an teknar upp í fornaldarrit Grikkja og Rómverja og siðar upp í miðaldarit, með ýínsum breytingum og viðaukum, og er svo að sjá, að menn sunnan úr heimi, er bárust norður í höf, hafi ætlað, að livert það land, er lengst var í norður frá átt- högum þeirra, mundi vera Tíli hinna fornu höfunda og hafi heimfært athuganir sínar þar til. Þá er Norðmenn höfðu fundið ís- land, varð sú ætlan almenn, að það mundi vera Tíli, og svo hafa íslendingar í forn- öid sjálfir ætlað (Landn., upph.). Arngrim- ur lœrði varð einna fyrstur til þess (1610) að mótmæla því, að Tíli í fornritum suð- rænna manna væri ísland. Þó varð það eigi brátt almennt viðurkennt, og enda Pórður Porláksson (síðar biskup í Skálholti) hjelt J>ví fram (1666), að Tíli væri ísland. Nú eru allir skynberandi menn komnir af þeirri skoðun, enda sýnir höfundurinn fram á, að slíkt er fjarstæða, að ísland hafi þekkzt og að þar liafi byggð verið, áður en iandið fannst af Norðmönnum. í 2. gr. eru fornar sacjnir um ísland’ áður en það fannst. í sjálfu sjer hafa engar sagnir getað verið til um það áður. En í sagnaritum frá miðöldunum er ísland nefnt í sögum, er eiga að hafa gjörzt löngu fyrir byggð íslands. Þannig er í Breta- sögum (í Hauksbók) nefndur Malvasíus Tíle konungur eða íslands. Á slíku er auð- vitað engar reiður að henda. Svo er og ísland nefnt í ýmsum latínskum brjefum, er snerta rjettindi erkistólsins í Hamborg og Brimum, en þau eru sjálfsögð falsbrjef og er ætlun ýmsra manna, að Aðalbert erkibiskup í Brimum (f 1072) hafi falsað þau. 3. gr. er um það, er írar finna ísland. Það er kunnugt af íslendingabók og Land- námu, að þá er Norðmenn tóku að byggja ísland, voru þar fyrir kristnir menn írskir, er þeir nefndu papa, og voru þaðan dregin ýms örnefni, er sum hafa haldizt enn, en sum eru týnd, svo sem Papós, Papey, Papýli, en sams konar örnefni koma fyrir á Orkn- eyjum og á Hjaltlandi. Sú sögn styrkist af frásögn Ducuiis munks (825), þar sem hann minnist á viðtal við klerka nokkra, er fyrir 30 árum (n. 795) hafi haft vetur- setu á Tíli. Lýsing hans á Tíli kemur lieim við ísland, og hefir höf. (Þ. Th.) sýnt fram á, að kristnir menn frá vestureyjum muni fyrstir hafa fúndið landið á 8. öld og flýð jiangað fyrir yfirgangi norrænna víkinga og tekið sjer þar bólfestu, og hafi þá samgöngur verið milli íslands og vest- urlanda, en byggð liafi verið mjög strjál, endá stukku papar aptur þaðan á öndverðri landnámstíð. t

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.