Ísafold - 17.09.1892, Page 4
um er fyrir mikaelsmessu, en á landskuld
fyrir hvers árs fardagac. Sama regla heíir og
gilt áður, enda liggur það í hlutarins eðli, að
landskuldfellurí gjalddagaílok ábúðarárs, nema
gjalddagi sje fyrr áskilinn, og er því leiguliða
engin afbötun, þótt ábúð hans væri eldri en
lögin 12/i 1884.
1117. Jeg heíi ráðið til mín húsmann upp
á það að hann væri formaður fyrir mig, og
heíi jeg borgað honum meira en það uro-
samda. Nú heíir hann ráðið sig hjá öðrum
bæði umliðna haustvertíð og yiirstandandi
vetrarvertíð og heíir ekkert látið mig af vita
og setur svo skip og menn í landi. Hverju
varðar slíkt?
Sv.: Selctum og skaðahótum, ef kært er og
eigi hresta sannanir.
1118. Helir sýslumaður nokkra lagaheirnild
til að leyfa kaUpendum að strönduðum skips-
skrokk, að leggja af því timbrið hvar á land
er þeir vilja, og að það megi liggja þar svo
lengi sem þeim þóknast, þrátt, fyrir mótmæli
landeiganda? Eða getur eigandi þess lands,
tryggt embættismanni stöðu hans með láni á
landeign þeirri, er hann er þannig á opin-
berum tundi ályktaður rjettlítill að ?
Sv.: Sýslumanni er slíkt í rauninni óvið-
komandi, enda muu engum sýslumanni detta
í hug að «veita> þvílíkt «leyíi>, þvi að það
er ekkert leyíi, veitt af sýslumanni, þó að
sýslumaður láti í ljósi, að kaupanda strand-
viðar sje heimilt að láta hann liggja, þar til
er hentugleikar leyfa að sækja hann — en
forsómun í því efni getur valdið ábyrgð. Síð-
ari liður spurningarinnar er heimska. Jörðin
hlýtur að vera jafngott veð, þótt eigandinn
sýni enga meinsemi, hvað seldan strandreka
snertir.
1119. Ef stúlka svíkur unnasta sinn fyrir
enga orsök, varðar það ekki sektum?
Sv.: Nei’.
2 til 3 skólapiltax' geta fengið þjónustu
og kvöld- og morgunmatreiðslu fyrir væga
borgun í Þint/holtsstrœM S.
Jeg bið hvern þann sem vill mjer vel, með
að jeg fái vinnu, að hann komi til mín.
Einhver góður komi!
Þingholtsstræti 16. 16. sept. 1892.
Oddl. Brynjólfsson.
Kaupmenn hjer í bænum, sem vilja selja
fátækranéfndinni nauðsynjavörur handa
þurfamönnum næstkomandi vetur, eru beðn-
ir að senda hingað á skrifstofuna tilboð
sín um það með tilgreindu verði fyrir
næsta íimmtudag 22. þ. m. Yörur þær,
sem óskast keyptar eru: kornmatur, kaffi,
sykur, smjör, kol, steinolía og skæðaskinn.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 15. sept. 1892.
______Halldór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing.
Miðvikudaginn 28. þ. mán. verður á op-
inbeni uppboði, sem haldið verður í Glas-
gow (miðsalnum á fyrsta lopti) og byrjar
kl. 11 f. hád„ selt mikið og gott bókasafn
tilheyrandi dánarhúi Sigurðar fornfræðings
Vigfússonar, Sveins búfræðings Sveinsson-
ar o. fi. Skrá yfir bækurnar eru til sýnis
á skrifstofu bæjarfógeta.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 17. sept. 1892.
Halldór Danielsson.
Frá 1. október tek jeg undirritaður að
mjer, eins og vant er, allskonar viðgjörðir
og smíðar, sem að þilskipum lúta.
B. II. Bjarnason.
Til leigu 1. október 2 herbergi ásamt eld-
húsi og geymslurúmi á góðum stað í bænum.
Ritstjóri vísar á.
FJÁRMARK Jóns Þórðarsonar á Hliði er :
biti aptan hægra, stýft biti aptan vinstra-
Brennimark: J. Þórðarson Hliði.
Takið eptir!
í verzlun E. Þorkelssonar
Austui'sti'æti nr. 6. í Reylxjavík
eru nú til sölu fín gleraugu, mikið af
nikkel-úrkeðjum og kapselum, ljómandi
falleg gratulations-kort og myndir, tóbaks-
pípur (patent), tyrkneskt sigarettutóbak,
sigarettur og margar góðar tóbakstegund-
ir, Kína-Lífs-Elixír og ýmsar nauðsynja-
vörur, allt selt mjög ódýru verði móti
peninguin og góðu smjöri.
Viðgerð á úrum og klukkum ódýr og
vel af hendi leyst.
CF Takið eptir !
Jeg undirskrifaður hefi fengið til sölu
mikið af gullstássi, svo sem armbönd,
brjóstnálar, krossa, úrfestar o. fl., allt mjög
fallegt og ódýrt.
Reykjavík 80. ágúst 1892.
Erlendur Magnússon.
5 Ringholtsstræti 5.
Veiðibann. Vjer undirskrifaðir fyrirbjóð-
um hjermeðalla rjúpnaveiði í löndum ábýlis-
jarða vorra. Hver sem gjörir sig sekan í því
að brjóta bann þetta, má tafarlaust búast við
lögsókn.
Hvalfjarðarströnd 12. september 1892.
Jón Teitsson Brekku,
Olafur Illugason Miðsandi,
Erlendur Jónsson Litlasandi,
Þorkell Þorláksson Þyrli.
Til leigu.
Næstkomandi vor óskast til leigu 3—4
herbergi ásamt eldhúsi í miðjum bænum.
Ritstj. vísar á.
Bókbandsverkstofa
Arinbjarnar Sveinbj arnarsonar
JEÍg“3 Skólastræti 3.
Vandað band og ódýrt.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 11-12
Landsbankinn opinn hvern virkan d. kl. IF/j-21/*
Landsbókasafnið opið hvern rúmh. d. kl. 12—2
útlán mánud., mvd. og ld. kl. 2—3
Málþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarf.
hvern rúmh. dag kl. 8—9,10—2 og 3—5
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. mánud. í hverjum
mánuði kl. 6—6.
'Veðurathnganir í Reykjavík.
Sept. Hiti (á Celsius) Loptþ.raæl. (millimet.) Veðurátt
á nótt. | um hd. fm. em. fm. em.
Mvd. 14. 6 745.9 0 b
Fsd. 15. — 2 G 761.2 756.2 Sa h h 0 b
Fd. 16. — 1 5 753.6 746.1 íSa h b S 0 d
Ld. 17. + 2 742.5 A h d
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
PrentBmiöja ísafoldar.
190
þess að rífa mig á hol og var svo hygginn, að jeg þrýsti
höfðinu sem fastast jeg mátti undir kverkar honum, svo
hann kæmi eigi kjaptinum við, og kreisti hann svo fast
að mjer, sem jeg mátti. Jeg fann, að með öðrum hramm-
inum veitti hann mjer sár mikið í mjöðmina. Með hin-
um hramminum fletti hann húð og holdi af öxlinni á
mjer. Jeg vissi, að líf mitt var í voða. Jeg liafði hægri
hendina til allrar hamingju lausa og í henni hjelt jeg á
rýtingnum, og ljet hann ganga sleitulaust inn í skrokkinn
á dólgnum og reyndi að hitta hann í hjartað.
Við veltumst þar um í grasinu, en jeg sleppti eigi
tökunum á »Efraim gamla« og þrýsti mjer fast upp að
honum. Við löðruðum báðir í blóði. Jeg tók eptir því,
að heit blóðbunan vall út úr vitum ófreskjunnar, og
hlakkaði yflr því með sjálfum mjer, að rýtingurinn minn
hefði þó getað skaddað eitthvert hinna æðri líffæra hans.
Þarna kútveltumst við á jörðunni svo sem kökkur,
og svo mikið var víst, að ekki var okkur báðum lift.
Aptur sletti björninn klónum um mjaðmir mjer og gleps-
aði i öxlina á mjer með tönnunum, og enn slíðraði jeg
rýtinginn í holdi hans«.
Warfield var orðinn gjörsamlega magnþrota og vissi
nú eigi aí sjer framar. Þá er hann raknaði við, lá hann
á grasbeð og hafði hnakk að hægindi, er buffalhúð var
191
yfir breidd. Búið var að binda sár hans og menn stóðu
á verði umhverfis hann.
Þá er fjelagar Warfields söknuðu hans, lögðu þeir
af stað að leita, og rákust á hest hans á flatneskjunni,
söðullausan og beizlislausan, en fengu þó eigi höndlað
hann. Þeir hjeldu áfram, unz þeir komu þar, er War-
field lá í öngviti, og björninn dauður við hlið honum.
Þangað var og hesturinn kominn aptur og stóð yfir hon-
um. Warfield var sár mjög, en gröri þó fljótt, enda
skorti eigi hjúkrun og aðhlynning.
Mikil glæfraför.
Eptir bardagann við Eckmúhl (1809) hjelt Napóleon
keisari (hinn mikli) liði sínu niður með Duná og veitti
eptirför Hiller markskálki, yfirforingja í liði Austurríkis-
manna, en Davout hershöfðingi varð eptir í Regensborg
og átti að hafa hemil á leifunum á liðí Karls erkihertoga,
er komast vildi austur um Bæheim til Vínar og koma
liði sínu þar saman við her Hillers. Hinn 7. dag maim.