Ísafold - 26.11.1892, Page 1

Ísafold - 26.11.1892, Page 1
Kemur út á miövikudögum og liiugardögum. Yerb árg. (um 100 arka) 4 kr., erlendis ð kr.; borgist fyrir miðjan júlimánuð. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin viD áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. októ- bermán. Afgroiöslustofa i jLusturatrœti 8. XIX. árg. Reykjavík, laugardaginn 26. nóv. 1892. 92. blað. * ‘/J&ís 5$%? Kristján Þorgríinsson, knupmaður, ÍO Kirk,iustr. 10, selur ódýrastan s e g ídúk , f œri, ló ð ar ön gla , netag arn, og fleira, scm sjávarútveg hentar, enn fremur þ a kj á r n af ýmsum lengd- um, þakkili, vatnsfötur, kolaskrínur, waterproofs- kápur (ótal tegundir), s erv ant a, o. fl., allt komið beint frá verk- smidjunum og selt fyrir þeirra reikn- ing. § %) Útlendar frjettir. flestum þjóðum, en hvorttveggja mest svo orðið af umliðnum styrjöldum og vaxandi herbúnaði. Ástand Európuþjóðanna bend- ir þeim á veg apturhvarfs og betrunar. Ríkjaskuldir álfu vorrar nema ekki minna en 117 miljörðum franka. Svo nýlega í frönsku blaði talið. í ársborgun og leigu- gjald ganga 5V4 miljarðs. Hjer eiga Frakk- ar undir mestu að rísa, eða 31 miljarð franka. Á Rússland koma 18, England 173/4, Ítalíu ll'/.i, Austurríki og Ungverja- land 7V4 og á Þýzkalandi 9 miljarðar. Hin minni (15) ríki eiga samtals að svara til 103/4 milljarðs. Hjer verður þó þess að minnast, að þegar Englendingar eru lrá skildir, eiga engir svo til efna og auðs að taka sem Frakkar. Kaupmannaliöfn 7. nóv. 1892. Veðrátta. Hún er í betra lagi íflestum löndum vorrar álfu, og að svo komnu hefir frosta ekki kennt á Norðurlöndum. Kólera. Nú kallað, að hún mun innan ■ skamms vera til hvíldar gengin í vorri álfu, en margir læknar ætla og spá, að hún risi upp aptur með vorinu til nýrrar og verri atgöngu og mannskæðis. I Hamborg vann hún á bjer um bil 8,000 manna, en af henni sýktust allt að 18,000. Friðarhorf. Þó hvergi sje dregið úr útgjöldum til hers og varna á sjó og landi, en víða meira beiðzt — einkum á Þýzka- landi — segja allir höfðingjar og vitring- ar þeirra, að um friðinn þurfi ekki að ugga, að minnstakosti ekki fyrst um sinn, og sumir spá heiðríkju friðarins í 2—3 ár, eða lengur. Sama heflr Bismarck látið í ljósi við gesti sína fýrir skömmu, en hann er mótfallinn hinum nýju heraukakvöðum sam- bandsráðsins. Ástæður hans í stuttu máli þessar: Þeir, sem menn helzt tortryggja, og gusturinn stendur af, Frakkar og Rúss- ar, munu nú að engu flana, heldur hugsa vandlega fyrir sjer, áður en þeir hætta sjer út í nýja styrjöld. Frökkum líður nú mæta-vel, og friðurinn er alþýðunni kærst- ur, og þeim ekki miður, er þjóðveldinu stýra, því þeir vita, að veg þeirra er þá lokið, þegar nýr hernaðargarpur kemur heim úr stríði með nýja kórónu frægðar og sigurs á höfði. Rússar kjósa líka friðinn, og keisari þeirra flestum fremur, þó hjer sje til ófrið- ar ötullega undir róið; en það er hjer bót í máli, að allir skynberandi menn vita, hvað hjer brestur á til fulls vígbúnaðar, en að óáran og pest hefir til muna dregið fjör úr fólkinu og búið ríkinu margar hömlur. Hitt er auðsætt, að öllum hlýtur að óga við afleiðingum nýrrar styrjaldar, kyrking alls þrifnaðar hjá þeim, sem ósigurinn bíða og binum líka að miklu leyti. Framlaga- ■ og skuldabyrðin er þegar þung orðin hjá Danmörk. Hjeðan ekkert nýnæmislegt að segja. Enginn veit enn, hvort svo tekst með »bræðsluna« á þinginu. eða samruna hægrimanna og hinna nýju bandaliða þeirra (Böjesensliða), að lögmætum íjárhagslögum sje að fagna með vorinu. í höfuðborginni ný stofnun reist og vígð, en það er reisulegt skólahús handa lyfsala- efnum. Friðrik konungsefni gistir bróður sinn í Aþenu, en þar hefir nýlega staðið silfur- brúðkaup þeirra Georgs konungs og Olgu drottningar. Frá Noregi og Svíariki. Norður- leitaskip Friðþjófs Nansens er nú reist og á flot komið. Lengd milli stefna um þil- far er 39 franskar mælistikur eða metrar (1 metir lítið yfir 38 þuml.); breiddin mesta 11 mælistikur. Kjölurinn af álmi frá Am- eríku, allt annað af eikarvið timbrað. Þegar skipið rann af bakkastokkum,fh 1 aut það nafnið »Fram«. Fyrir skírninni stöð kona Nansens. Þingmenn Svía sitja nú á aukaþingi, og eru þar rædd herbótanýmæli. Meðal ann- ars gert ráð fyrir, að 90 dögum verði var- ið til vopnaburðarnáms, í stað 42. Her- bótunum fylgir kostnaðarauki, sem talinn er til 3,562,000. kr. Vant þykir enn að vita hvernig nýmælunum reiðir af, en við er búizt, að mikill hluti annarar deildar mælist til, að alþýðunni verði þægt á móti með útfærslu kosningarrjettar. Látin er Anna Charlotte Leffler, ein af merkari skáldkonum Svía. Eptir hana liggja mörg leikrit og skáldsögur. Hún átti nú heima 1 Napóli og var þar gipt í- tölskum hertoga, Cajanello að nafni, og prófessori í stærðafræði við háskóla þeirr- ar borgar. England. John Morley hefir sett nefnd til að rannsaka málstað þeirra leiguliða á Irlandi, sem enskir landsdrottnar hafa vik- ið burt af jörðum sínum, og til að flnna hvað tiltækilegast mundi til að leiguliðarn- ir kæmust aptur í bólfestu sína. Sögulegra tíðinda frá þinginu verður að biða þangað til i lok janúarmánaðar, þeg- ar viðureignin byrjar um heimastjórnar- (Home Rule)- nýmæli Gladstones fyrir ír- land. Charles Dilke er nú meðal þingmanna, en hefir áður setið í ráðaneyti Giadstones. I ræðum og ritum liafa álit lians jafnan þótt mikils metandi, þar sem hann átti við utanríkismál Englands. Fyrir mánuði síð- an mæltist honum svo í gildi, að Rosebery, ráðherra utanríkismálanna, gæti vel í sumu fetað feril Salisbury lávarðar, en bezt mundi að þoka sjer heldur frá en að þrl- veldasambandinu; hitt ekki síður: að gera sem fyrst lyktir á hersetunni á Egiptalandi og koma sjer saman við Frakka í öllu sem það land snertir. Hinn 6. október andaðist fyrirtaksskáld Englendinga, Alfred Tennyson, 83 ára að aldri. Fyrir 8 árum gaf drottningin hon- um lávarðarnafnbót, og hvílist hann með- al þeirra höfuðskörunga, sem leg hafa hlot- ið í Westminsterkirkjunni. Um hann heflr landi vor dr. Jón Stefánsson ritað snildar- ritgjörð í dönsku blaði, og má bæði ætla og óska, að hann sjái sjer færi á að flytja löndum sínum þann fróðleik á íslenzku. Þýzkaland. Höfuðtexti blaðanna eru nú heraukalögin, en mjög ósýnt enn, hver forlög þeirra verða á þinginu. Allir horfa í kostnaðinn: ársútgjöld til hersins aukin um 64 miljónir marka, en framlög í bráð allt að 66 milj. og 800 þús. marka. Þar að auki kallar Bismarck og fylgiblöð hans kostum hersins spillt, ef það gengur frám, sem í ráði er haft um breyting á undir- búningi hermannanna. Bismarck gengur nú meir og meir í ber- högg við stjórnina og hennar fylgisliða, og þegar hann hrekur áburð þeirra um glap- ræði eða ósannsögli, þá vitnar hann til leyndarskjala stjórnarinnar í Berlín, og seg- ir þar finnast sönnur fyrir öllum framburði sínum, en margt sje í hirzlum sjálfs hans. Hinn 31. október voru 375 ár liðin frá því er Lúther festi upp greinirnar (95) móti syndlausnarsölunni í hallarkirkjunni í Wittenberg. Þann dag fór fram vígsla kirkjunnar, sem nú stóð endurskreytt ept- ir vandlega viðgerð. Hjer var viðstaddur Yílhjálmur keisari, drottning hans og fleiri Lútherstrúar-höfðingjar. Borðliald í »Lúth- ershúsi« og þar drakk keisarinn af bikar Lúthers og fór orðum um, að andi evan- geliskrar trúar hjeldi mönnum til umburð- arlyndis i trúarefnum, og trúarjátningin sjálf minnti á samband allra kristinna manna, þrátt fyrir það margvíslega, sem hefði valdið aðskilnaði þeirra

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.