Ísafold - 07.12.1892, Page 3
a75
»Böðvar Ólafsson sagðist mundu hanga
ásínulandi máske til voVS; hann vildijeto
fyrst upp stjórnarlánið, áður en hann
gengi frá landi sínu eða áður en hann
yrði að fara að horga það sem honum
hafði verið lánað, er hann settist að á
landi sínu 1890«.
»Þeir sem land taka (»nema!«) í Þing-
vallanýlendu, fá 300—500 (iollara lán að
byrja með búskapinn og eiga að fara að
endurborga það að 3 árum liðnum«.
— — Nú, það er svo seiti enginn að
segja, að þessar blessaðar skýrslur flytji
eigi heilagan sannieika bjer nm bil frá
upphafl til enda fyrir því arna, Þetta eru
ekki annað en nokkurs konar slysagöt;
en »ekki ein báran stök«, að þ«ssi kunnugi
náungi skyldi vera hjer staddur, og að
hann skyldi slysast til að reka ! þetta aug-
un undir eins og Skýrslurnar lomu fyrir
almennings sjónir.
En, sem sagt: slíkt rýrir eigi kosti kjör-
grips þessa, hinna giæsilegu »Hag(fcýrslna«,
1 augum rjetttrúaðra. Eða niuiiu slysa-
götin á kyrtlinum í Trier htfa rýrt
minnstu vitund átrúnaðalmenningsáhonum?
f Fiskisamþykktarfundurinn. Á hjer-
aðsfundinn á Yatnsleysu í fyrra dag, 5.
þ. m., sem átti að samþykkja íiskisam-
þykktarbreytingu meiri hluta sýslunefnd-
arinnar frá 3. f. m., um frjáisa löðabtúk-
un fyrir alla allt árið, komu 102 atkvæð-
isbærir menn. Þar af greiddu 4 — fjórir!
— atkvæði með breytingunni, en U8 á
mótiH
Breytingaruppþot þetta sýnir sig þannig
hafa verið ltið aumasta gabb og mirk-
leysu-hringl, sent dæmi eru til í allri sfgu
flskiveiðasamþykktanna, og er þá langt til
jafnað.
Af þessum 102, sem á fundinn komu.
voru 2 úr Rosmhvalaneshrepp, 6 úr Njarð-
vikurhrepp, 45 úr Yatnsleysustrandarlirepp,
31 úr Garðahrepp og 18 úr Bessastaða-
hrepp.
Hið gildandi ióðarbann á vetrarvertíð-
inni átti að vera himinhrópandi ójöfnuður
við Leirumenn öllum öðrum fremur, vegna
undanþágunnar fyrir sveitunga þeirra,
Garðmenn. Hvernig sækja svo Leirumenn
hjeraðsfundinn til þess að fá af sjer ijett
þessu »himinhrópandi ójafnaðaroki«? Það
kemur alls einn maður þaðan á fundinn, og
hann------hann greiðir atkvæði á móti
breytingunni! Hann vill íáta »ójafnaðar-
okið« haldast. Samur er auðvitað og því
fremur vilji hinna, sem heima sátu. Því-
likt fyrirtaks-»humbug«!
Garðmenn áttu líka að vilja endilega fá
þessa breytingu fram, af mannúð við sveit-
unga sína í Leirunni meðal annars. Þeir
sitja bara allir heima hjeraðsfundardaginn,
nema sýslunefndarmaður þeirra einn, sem
barizt hafði fyrir breytingunni á sýslu-
fundi og þurfti því að framfylgja at-
kvæði sínu einnig á hjeraðsfundinum.
Þó kastar ekki tólfunum fyr en kernur
til Reykvíkinga og Seltirninga.
A sýslufundinum 3. f. mán. báru að sögn
fulltrúar Reykvíkinga ailir þrír fram, að
breytingin væri almennur viiji manna þar
(og áSeltj.nosi) og talin mesta nauðsynjamál.
Hvernig lýsir sjer sá »almenni vilji« á
hjeraðsfundi? Þannig, að þar lætur enginn
maður sjá sig til að fylgja honum fram,
ekki nokkur hi'æða! Og þó var það gert
fyrir fastleg tilmæli einmitt Reykjavíkur-
fulltrúanna, að hafa fundinn suður á Vatns-
leysu, nefnilega bœði til þess að hinir und-
irokuðu vesalingar syðra, Leiru- og Garð-
menn, ættu hægra með að fjölmenna á
fundinn, heldur en ef liann væri hafður í
Hafnarfirði að vanda (þeir hagnýttu sjer
líka það hagræði, eða hitt þó heldur!), og
til þess, að Hafnfirðingar og Alptnesingar
ættu óhægra en vant er með að neyta at-
kvæðafjölda síns, en þeir vissu menn að
vera mundu nýmæli sýslunefndarinnar
mótfallnir.
Það er sannarlega kátlega sköpuð skepna,
almenningsviljinn þeirra Seltirninga og
Reykvíkinga í þessu máli.
Ekki þurfti veðrinu um að kenna á
mánudaginn. Frægasta ferðaveður.
Það er sennilegt, að sýslunefndin fari að
hlaupa í gönur næsta daginn fyrir þannig
gerðan almenningsvilja!
Þetta ernú þriðji hjeraðsfundurinn, sem
haldinn hefir verið sama árið til breyting-
ar á hinni gildandi fiskiveiðasamþykkt,
hjer við Faxaflóa sunnanverðan.
Sex þurfa þeir að verða að ári, ef nokk-
urt skrið á að vera á »framförunum«.
Sbipstrand. Skonnert «Andrea« frá Flat-
ey, nm 40 smálestir ahslærð, skipstjóriBjarni
Thorarensen. eign hans (að */«) og J. Guð-
mundssonar verzlunar, sleit upp hjer á höfn-
inni föstudagskveldið 2. þ. m., í ofsa-norðan-
roki ogkalaidsbyi, og rak að landi skammt fyrir
innan «Batteri». Skipverjar, 4 alls, komust á
iand í skipsbátnum á streng, en mannfjöldi
fyrir að hjarga. Skipið festist á skeri í tjöru-
máli og brotnaði þar skjótt. Var nokkurt af-
drep, þar sem það bar að, og bætt við, að
ekki hetði orðið mannbjörg. ef munað hefði
fam föðmum á aðrahvora hönd. Vörur voru
í skipinu nokkrar og sendingar, er fara áttu
til Flateyjar, og skemmdist flest og glataðist
sumt.
Hrakniitgur. Kaupskip á leið til ísafjarð-
ar leitaði hjer hafnar í neyð sinni 1. þ. m.
rjett fyrir norðanhretið, talsvert laskað; hafði
misst bæði siglutrjen eða meiri part af þeim
og af rám og reiða; verið 7*/2 viku á leiðinni
frá Bergen ; heitir Randers, frá Randers, 100
smálestir. skipstjóvi S. P. Hansen og átti að
fara til Tangs-verxlunar á Isafitði með salt;
liggur hjer enn og óvíst, hvort hægt muni að
bgeta.
Aflabrögð. Róið var bjer í gær, eptir nál.
viVu landlegu. og reyndist tregt um afla, en
þó vel vart; eitt skip mun jafnvel hafa feng-
ið ttm 20 i hlnt.
I Garðsjó ágætis-afli i gær: eitt skip, úr
Vogum, fjekk t. d. 60 í hlut, þar af 20 af
þorski; annað frá Flekkuvík, um 70. Glögg
vitneskja ekki f'engin um aflaupphæð hjá al-
menningi. en hitt vist, að flestir íiskuðu mik-
ið vel. — Þetta frjettist með ferð að sunnan í
nótt.
Póstskipinu (Laura, Christiansen) legaðist
hjer A böfninni hálfan þriðja sólarhring, frá
því á föstudagsmorgun 2. þ. m. er það var
ferðbúið, og þangað t.il á sunnudagskvöld 4.
þ. m., sakir grimmdarhríðar á norðan og stór-
viðris. Farþegar allir veðurteptir úti í skip-
inu þennan tíma. Sunnudagskvöldið slotaði
nokkub veðrinu og birti yfir, en herti það
raunar aptur nóttina eptir. En hjart var af
tunglskini.
Tvíloplað íbúðarhus með 8 herbergj-
urn, auk kjallara, geymslulopts og skúrs,
fæst keypt eða leigt á Eyrarbakka í næst-
komandi fardögum. Túnblettur og kál-
garður getur fylgt t.il leigu, ef óskað er.
Litlu-HAeyri á Eyrarbakka 21. nóv, 1892.
Jón Sveinbjörnsson.
Skófatnaður
með niðursettu verði fæst hjá undir-
skrifuðum:
Karlmanns-fjaöraskór frá 6,50—9 kr. mjög
vandaðir,
kvenn-fjaðraskór m.jög vandaðir 6,75—7 kr.
Barna-ristarskór 1,20—3,75 kr.
Hvergi skuluð þjer fá eins ódýran og
vandaðan skófatnað og hjá mjer, komið
því og kaupið eða pantið yður skó fyrir
jólin. Aðgerðir seldar með niðursettu verði.
Virðingarfyllst
Björn Leví Guöimmdsson.
Skólavöröustíg nr. 6.
Proclama.
Samkvæmt opnu brjefl 4. jan. 1861 og
lögum 12. apríl 1878 er hjer með skorað á
þá, er telja til skulda í dánarbúi veitinga-
manns Teits Olafssonar frá Búðareyri á
Seyðisfirði, er ljezt 17. ágúst þ. á., að
bera fram kröfur sínar og sanna þær fyrir
undirrituðum skiptaráðanda áður en 6
mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar.
Sömuleiðis er skorað á þá, er skuldir
eiga að greiða til dánarbús þessa.að gjöra
skilagrein fyrir þeim til skiptaráðanda, áður
en ofannefndur frestur er liðinn.
Skrifstofu Norburmúlasýslu 19. okt. 1892.
Einar Tliorl acius.
Uppboðsauglýsing.
Eptir beiðni Þorl. 0. Johnsons kaup-
manns verður opinbert uppboð haldið
þriðjudaginn 13. þ. m. í vörugeymsluhúsi
ltonsúls N. Zimsen og þar seldur alls
konar búðarvarningur, svo sem hattar,
Ijerept, sjöl, skirtutau o. fl. Uppboðið
byrjar kl. 11 f. hád.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 6. des. 1892.
Halldór Daníelsson.
Stran d u ppb oð.
Laugardaginn 10. þ. m., kl. 12 á hád.,
verður opinbert uppboð sett og haldið á
sjávarbakkanum fyrir neðan Sölvhól í
Skuggahverfl, til þess að selja hæstbjóð-
endum liið strandaða skonnert skip Andrea
frá Flatey, með rám, reiða, seglum, köðl-
um og öðru tilheyrandi, svo og nál. 100
tunnum af steinkolum, 5 föt af steinolíu o.fl.
Söluskilmálar verða birtir á undan upp-
boðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 6. des. 1892.
Halldór Daníelsson.
Nýlegt liús, á góðum stað, fæst keypt með
góbum borgunarskilmála; semja má við Eyjólf
Ófeigsson snikkara.
Með brjeíi dagsettu 12. nóv. 1891, til for-
manns í stjórn Sparisjóðs Rosmhvalaness, höf-
um vjer undirskrifaðir sagt okkur úr þeirri
sparisjóðsstofnun.
Kotvogi 15. nóv. 1892.
Ketill Ketilsson. Hákon Eyjólfsson.
M. J. Bergmann.
HJALLKONAKí öll frá byrjun fæst
keypt. Nákvæmar á afgreiðslustoíu ísaf.
Beckers Verdenshistorle í bandi er til
sölu með góðu verði. Ritstjóri vísar á.
Nokkrir góðir hásetar geta fengið skip-
rúm á þilskipi á næstkomandi vetrar- og vor-
vertíð. Þeir, er kynnu að vilja sinna þessu,
eru beðnir ab snúa sjer til verzlunar W.
Fischers í Reykjavík.