Ísafold - 27.09.1893, Page 2

Ísafold - 27.09.1893, Page 2
262 ar, danskar, amerískar o. s. frv., og þá rekur að því, að þær eru fæstar fram- kvæmanlegar. Þessar forsagnir taka þeir úr bókum; sjáifir hafa þeir ekkert reynt og ekkert gjört, og fer svo líkt og manni, er aldrei hefir numið ieikfimi, en ætlar að kenna hana eptir bók. Hann myndi eigi geta sýnt sjálfur, hvernig að skyldi fara, og hvað yrði þá úr leikfimiskennslunni? En — föðuriandsvinir ætla þessir menn að verða samt sem áður. Til að koma skuidinni af sjer og jafnframt komast hjá að styggja almenning með álösunum, þá kenna þeir hinum svo nefndu »höfðingjum« um allt saman. Þeir kúga og sjúga — segja þeir. Þar at kemur fjeleysið og framkvæmdarieysið. Þessum nátttröllum. höfðingjum, er sjálfsagt að_fækka, svo eitt- hvað sje hægt að gjöra. Frelsið og fram. farirnar þverfóta ekki fyrir þessum höfð- ingjum. Það er ekki hlaupið að því, að víkja þeim úr vegi. Helzta ráðið þykir það vera, að »skamma« þá, sem kallað er. Það er prjedikun, sem alþýða skilur. Það er hægt að halda uppi heilum her af frjetta- blöðum með því móti. En nú segja marg- ir, að litið verði ágengt þrátt fyrir allt þetta brauk og braml. Þegar svo föður' landsvinirnir sjá, að þeir geta engu til vegar komið um það að verða ódauðlegir, þá snúa þeir stundum við biaðinu og taka þá að skjalla höfðingjana, og er þá síðari förin argari þeirri fyrri; þeir lenda í hinni óvirðulegu vistarveru, er »Oddborgaraskur« heitir, Þar er »ærið rúm á botni«, eins og skáldið kveður. í þessum askinum sitja nú nokkrir álit legir nrjenn, sem ætluðu að verða föður landsvinir og ódauðlegir menn. Nú fá þeir »skell fyrir skillinga«. Þeir haí'a misst alþýðuhyllina, er áður bar þá. á höndum sjer. Þetta tvennt, að afla sjer alþýðuhylli með skjalli og að lenda í askinum, eru í raun og veru tvær leiðir til að afla sjer daglegs brauðs. Þriðja leiðin er það, að láta hvern og einn njóta sannmælis, hvort sem hann er hátt settur eða lágt. Þá götuna vilja fæstir ganga, því að það gefur svo lítið af sjer, og þótt það takist opt og einatt mætavel, þá er fyrirhöfnin svo mikil, að »sívilíserað« fólk getur ekki »útstaðið« hana. Jeg heyri marga segja, að i »Oddborg- araski« sjeu tómir höfðingjar. En það er ímyndun ein. í aski þeim eru menn af öllum stjettum. Þar er margur bóndason- urinn, til dœmis að taka. Aptur á móti eigum vjer marga atkvæðamikla og ár- vakra, sjálfstæða embættismenn, sem aldrei hafa þar komið. Það fylgir eigi fremur einni stjett en annarri, að þær vilja eiga sem bezta daga, hafa sem minnst fyrir lífinu. Af hverju öfundar bóndinn prestinn sinn ? Er það ekki af því, að presturinn hefir meira fje með höndum, getur klætt sig betur og skyldulið sitt og haft þægilegra húsnæði og viðurværi ? En ef hóndinn svo kemst í askinn með prestinum, er hann þá ekki þakklátur hamingjunni? Yill hann rífa sig þaðan aptur? Varla, ef vel fer um hann. En það er þó einmitt ágirndin og fjárdrátturinn, sem embættismönnum er borið á brýn, að þeir hafi fram yfir aðrar stjettir. Hvað hafa ekki prestarnir fengið að heyra og hinir »hálaunuðu«? En vilja ekki flestir vera hálaunaðir, ef þeir ann- ars kæmist upp á það pallborðið? Mjer er til efs, að bóndinn yrði linari í fjár- kröfunum en einbættismaðurinn, ef báðir stæðu jafnt að vigi. Og opt á hjer heima það sem skáldið kveður: »Margur öfundar-auga renndi á annars hag, en þó um skör; opt er það gull í annars hendi í eigu sjálf's ei þykir spjör; því eigin kjör þjer láttu lynda lukkan sig einatt dulum bjó—. Gæfu við sig með gulli hinda grátandi sá jeg einn — og hló«. Það er ekki auðgjört, að ná með sóma nafnbótinni: föðurlandsvinur. Það getur enginn eigingjarn, hugsunarlaus, Ijettúðar- fullur maður. Það eru ótal torfærur á vegi hvers þess manns, er að því marki keppir. Einn þröskuldurinn er áhugaleysi, viljaleysi almennings. Nokkrir þeir, sem mikið ætla að vinna, vilja eins og skipa fólki að vilja. En — eins og einhver hefir sagt, — þá er enginn skipunarháttur til af sagnorðinu að vilja. Það er ekki hægt að skipa: viltu, heldur spyrja, leita hófanna, hvað fólk vilji. Þegar sumir föðurlands- vinirnir komast að raun um þenna sann- leika, þá hætta þeir við allt saman með þessum orðum: »Hvað ætli vjer sjeum að leggja oss í iíma fyrir annað eins rusl eins og þetta fólk er«. Þetta segja þeir auðvitað í sinn hóp. En jeg hefi aldrei getað skilið, að það gæti farið saman, að elska föðurlandið, en fyrirlíta fólkið. Og þó veit jeg margan telja sig og vera talinn föðurlandsvin, sem það gjörir. Mjer þykir líklegt, að sú f'öðurlandselskan sje nokkuð sjálfselskublandin. Þá er það fjeleysið, sem mörgum aftrar. Hann sjer, hvað gjöra þarf, en hann hefir ekki fje til að framkvæma það. Jeg tala lijer ekki um stórþjóðaleg fyrirtæki, sem hjer geta aldrei orðið annað en orðin tóm, heldur fyrirtæki, sem eittlivert vit er í, sem ekki eru ofvaxin kröf'tum vorum, ef vjer leggjumst á eitt. En nóg dæmi eru til þess, að margt þarfaverkið hefir verið unn- ið af fjeJitlum mönnum, hafi þeir að eins verið »einlægir við kolann«. Hins vegar er það víst, að víl og barlómur hefir drep- ið niður mörgu nýtu áformi, það er: vald- ið því, að aldrei hefir verið byrjað. Það hefir opt bjargað skipshöfn í sjáv- arháska, að f'ormaðurinn eða einhver ann- ar hefir verið öruggur og óhræddur; á sama hátt hefir það orðið mörgu sveitar- fjelagi til framfara, að einn eða fáir menn í þvi hafa sjeð, að þar var fært, sem öll- um öðrum þótti ófært fyrir sakir fjelagsins. »Hví skal ei bera höfuð hátt í heiðurs-fátækt, þrátt fyrir alit?« Bjarni Jónsson. Mútu-fylgi. í snyrtimannlegri(l) grein. í síðustu »Fj.- konu« um ritstjóra ísafoldar, undirskrifaðri af »þingmanni«, virðist mergurinn málsins helzt vera sá, að það sje ósvinna af ísa- fold að tala öðruvísi en lofsamlega um aÞ þingi og allar þess gjörðir, vegna þess, að- útgefandi blaðsins hafi miklar tekjur aF viðskiptum við þingið og þiggi þannig aF því miklar velgjörðir. Velgjörðirnar eru nú þær, að útgefandi ísafoldar hefir í mörg ár sem umráðandi hinnar langstærstu og afkastamestu prenÞ smiðju landsins haft á hendi mestalla prent- un fyrir þingið, fyrir umsamið kaup, eins. og lög gjöra ráð fyrir, og fengið þetta kaup skilvíslega goldið, sem nærri má geta_ Það er nú eigi vandi að gera velgjörð úr slíkum vinnusamningi á annan bóginn eða úr kaupum og sölum yfir höfuð, nema öðrum hvorum málsaðila sje eitthvað íviln- að sjerstaklega. Yerkmaðurinn skoðar eigí vinnueigandann sem velgjörðarmenn sinn,. þó að ha.nn gjaldi honum umsamið kaup.. Bóndi skoðar eigi kaupmann sem velgjörð- armann sinn, þó að hann f'ái út á vörur- sínar, og kaupmaður eigi bónda sem sinn velgjörðamann, þó að hann svíkist eigi um að borga það sem hann tekur út. Hvorutveggju munu skoða sig sem jafn- snjalla samningsaðiia, er hvorugur standi í neinni sjerstaklegri þakklætisskuld við- hinn, ef báðir halda samning sinn blátt áfram og annað ekki. Yiðskipti ritstjóra ísafoldar og þingsins. eru nú þau, að þegar hann fyrir mörgum árum tók að sjer fyrnefnd prentunarstörf^ þá gerði hann það fyrir mikið minna en áður tíðkaðist. Hann gerir það fyrir sama. verð enn, þó að vinnulaun hafi held- ur hækkað en lækkað síðan. Prentun- inni var áður vanalega ekki lokið f'yn en fullu missiri eptir þing eða jafnvel ekki fyr en eptir 8—10 mánuði. Síðan hefir hún verið búin 2—4 mánuðum eptir- þinglok. Aður voru samningar hvergi nærri ætíð haldnir að því er kemur hraða á vinnunni. Síðan hefir enginn misbrestur á því orðið. Nú kunna menn að ímynda sjer, að eigi að síður kynni einhver mikila háttar velgjörð eða ívilnun frá þingsins. hálfu að felast í þessum viðskiptum, þann- ig löguð t. d., að aðrir hafi boðizt til aö' leysa verk þetta af' hendi fyrir minna, en því boði hefði verið hafnað til þess »að- hlynna að« útgefanda ísafoldar. En eng- inn mun neitt til þess vita. Og það er ó- hætt að fortaka, að það hafi nokkurn tíma átt sjer stað, af þeirri einf'öldu ástæðu, að enginn annar hefir getað gert slíkt tilboð. Til þess að leysa þingprentunina af hendi þarf sem sje miklu miklu meiri mannafla og margfalt meiri áhöld en aðrar prenb smiðjur hafa eða svarað getur kostnaði f'yrir þær að haf'a. Nú er spurn: ef hjer ætti við að tala um velgjörð á aðra hvora hliðina, hvorum megin mundi þá óhlutdrægur dómari vilja hafa hana? Annar málsaðilinn leysir af hendi verk, sem aðrir hafa engin tök á að gera, þ. e. afkasta því eins fljótt eða nægilega fljótt, og hann setur minna upp- á það en áður var fáanlegt, þó að hann sje að því leyti til einn um liituna, en hinn greiðir blátt áfram hið umsamda kaup og annað ekki. En gerum nú ráð fyrir þvi, sem allir- sjá að fjarri fer, að hjer væri einhverri í- vilnun til að dreifa, gjöf eða hlunnindum: frá þingsins hálf'u, úr hvers vasa væri þá gjöf sú tekin ? Ur vasa þingmanna sjálfra?' Nei; úr vasa þjóðarinnar, gjaldenda. Það- er með öðrum orðið, að færi þingið að

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.