Ísafold - 09.05.1894, Síða 1

Ísafold - 09.05.1894, Síða 1
Kemur út ýmist emu sinni eða tvisvar í viku. Ver?) árg (minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis B kr. eða l1/* doll.; borgist fyrirmibjan júlimán. (erlend- is fyrir fram). ÍSAFOLD Uppsögn(skriflog)bundin vilV Aramót. ógild nema komin s je til útgefanda fyrir l.októ- berm. AfgreiBslustofft blabs- ins er i Austurntrœti b Reykjavík, miðvikiidaginn 9. nxai 1894. XXI. árg. Gufubaturinn „ELIN“ fer þ J<-- frá Reykjavík til Borgarness maí 11„ 17. og '20.; júní 1., 5.. 9.. 19. og 25.; júli 3., 9., 18. og -30.; sépt. 4„ 11.. 17., 22. og 29.; oktbr. 2. og 6,— frá Borgarnesi til Reykjavíknr maí 11., 17. og 20.; júni 1 . ö.. 10.. 20 og 26.; júlí 4., 10., 19. og'30.; sept. 5, 12., 18., 22. og 30.; oktbr. 3. og 7. — frá Reykjavík til Kefiavíluu- tnaí 3., 12.. 19. og 24.; júní 3.. 7.. 22 og 28.; júlí5.; ágúst 9; sept. 6. og 13.; oktbr. 4. og 9, — frá Keflavík til Reykjavikur maí 4.. 10.12., 19. og 27 ; júni 4., 8.. og 23.; júlí 1. og 6.; ágúst 12.; sept. 7. og 13.; oktbr. 5. og 10. Sjá ab öðru aðaláætlunina. Þirtgmá! í sumar. III. 4. Innlendur brunabútasjóður. Það mál, um stofnun brunabótasjóðs, var fyrst borið Tipp á þingi 1891 (af Indriða Einarssyni), frumvarpið athugað þar vandlega og um- bætt í vel skipaðri nefnd í neðri deild og samþykkt þar til fullnaðar í einu hljóði (með 21 atkv.), en síðan fellt í einu hljóði(!) í efri deild. í fyrra (1893) bar Ólafur Briem málið upp aptur, nokkuð breytt. Það fjekk þá og mikið góðan byr í neðri deild, frumvarpið samþykkt þar með lítils háttar breytingum nær í einu hljóði, en -dagaði uppi í efri; var þó samþykkt þar við 1. umr. með 7 : 2 atkv. — Þetta er mjög mikilsvert mál, mun talið fullkomið nauð- synjamál fyrir landið von bráðar. Því það sannast, að það fer að verða frágangs- sök að vátryggja húseignir í erlendum fje- lögum, fyrir margra hluta sakir, nema kannske hjer í höfuðstaðnum; en magnlaus yrði innlend vátryggingarstofnun, ef Reykja- vík gengi undan. En óvátryggðar húseign- ir eru völt eign, svo mikið fje sem í þeim ’liggur, og má jafnfátæk þjóð sizt við því, að hætta svo reitum sínum. Yeðgengar •eru þær og eigi, og því fáum kleyft að koma þeim upp, en rækileg hýbýlabót eitt mikilsvert skilyrði fyrir góðum þjóðþrifum. Hugmyndin er, að landssjóður taki að sjer ábyrgðina fyrst i stað, meðan vátrygging- arsjóður er að safnast af árlegum iðgjöld- um, gegn endurgjaldi af þeim sjóði síðar. Það þýkir sumum ægileg áhætta fyrir landssjóð; en engan stuðning hefir sá ótti í undanfarlnni reynslu hjer, og annað er ■ hitt, að beri mikinn voða að höndum, t. d. að heill kaupstaður brenni, hlýtur lands- sjóður hvort sem er að lilaupa þar undir bagga, þótt engin lagaskylda knýi hann. Hættuná má og hæglega minnka mikið með því að endurtryggja nokkrar hinar stærstu huseignir erlendis. Að ganga skuli fyrir hvers manns dyr — hvers húseig- anda — áður en vátryggingarkvöðin sje á lögð og leitað þeirra samþykkis, nær engri átt og væri þvert ofan í það sem tíðkazt hefir annarsstaðar. Rjett skoðað horfir >kvöð sú til almennings heilla og hefir því viðlíka heimild fyrir sjer og skattar og gjöld til landssjóðs. 5. Varnarþing í skuldamAlum. Það hefir og verið á dagskrá á nokkrum þing- um undanförnum, en sætt megnri mót- spyrnu frá einstökum mönnum, einkum í efri deild. Hin áformaða rjettarbót í því atriði er það, að skuldunantur skuli eiga þar varnarþing, er skuld er stofnuð, eins og t. d. nú er í lögum, er málaferli verða út úr fasteign, að þá er varnarþingið í þeirri þinghá, þar sem fasteignin liggur. Þó skal þetta eigi ná til allra skulda, heldur að eins kaupstaðarskulda, bóka- og blaðaskulda og fáeinna annara. — Rjettast mundi, að láta það eins ná til kaupstað- arskulda. Þær yfirgnæfa svo langsamlega allar aðrar skuldir, eru svo margfalt meira mein en allt annað viðskiptaólag hjer, að við þær á ekki að horfa í beizka inntöku. En það mun almenningi þessi varnarþings- afbrigði finnast og því fara talsvert gæti- legar og samvizkusamlegar í lántökur en nú gerist. Því hjegómi er það, sem heyrzt hefir bæði á þingi og utan þings, að það sjeu kaupmenn, er almennt oti fram iánum, og því sje þeim maklegt að hljóta af því skell. Níu tíundu hlutar af verulegum kaupstaðarskuldum almennings eru stofn- aðar fyrir eptirgangsmuni lánþiggjanda, en ekki lánveitanda (kaupmanna). Hitt er eigi síður bæði vanhugsað mjög og vottur um ástæðulausa óvild til kaupmanna- stjettarinnar, að ætlast til að kaupmönnum hefnist fyrir lánveitingarnar með skulda- missihjá fjarlægumóreiðumönnum. Hefndin kemur sem sje ekki niður á þeim almennt, heldur á skilvísum viðskiptamönnum þeirra; það eru þeir, sem »borga gildið«, með því að greiða miklu meira fyrir vörur sínar en ella mundi, — ef minna væri um van- skil og vanskilamenn. Enn er á það að líta, að skuldunaut er raunar stórum mun kostnaðarminna að mæta — f kauptíð, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir — eða mæta láta fyrir sig á skuldarstaðnum, en að greiða ferðakostnað málfærslumanns heim til sín eptir skuldinni m. m. Rjett á litið er því rjettarbót þessi öllu fremur í al- mennings þágu en kaupmanna. Og það er til lítils að vera að fárast sí og æ um hið mikla kaupstaðarskulda-þjóðmein, en mega ekki heyra nefnt líklegt ráð til að draga úr þeim og almenningi hagvænlegt, heldur amast við því á allar lundir, eins og sumir gerðu á síðasta þingi með nauða- hjegómlcgum ástæðum og vanhugsuðum, eins og t. d. þeirri, að kaupmenn mundu, ef þeir fengju slik lög, rjúka til og stefna viðskiptamönnum sínum tugum og hundr- uðuin sarnan, hvað lítið sem þeir skulduðu þeim. Eins og nokkur kaupmaður með heilbrigðri skynsemi fari að baka sjer 25. blað. óvild almennings, sem hann á að lifa af viðskiptum við, með óþörfum lögsóknum. Enginn hygginn maður í þeirri stöðu beitir slíku fyr en í síðustu lög. Frú Sigríður Magnussen, fulltrúi Islands á friðarsamkomunni. Norskt blað í Chicago, Skandinaven, flutti í fyrra sumar svo látandi grein : »Það var einn af síðust dðgum friðar- samkomunnar (»Fredskongressen«). Það var einhver hátíðabiær yfir öllu, af því að menn vissu, að allt mundi bráðum á enda, þeir, sem nú daglega höfðu kynnzt hjer við, yrðu nú bráðum að skilja, og að lík- indum aldrei sjást aptur. En í hópinn var kominn nýr gestur: það var kona, að líkindum um fertugt, lág vexti, en fremur þrekin; á andliti hennar skein heilbrigðin sjálf. Það var kyrrðarleg hátign yflr konu þessari, hvar sem á hana var litið. Hver var hún, þessi kona? Hún var klædd sem konur af hennar þjóð. Sam- fellan var af svörtu klæði, með breiðum borðum af brandgulu silki, upphluturinn (Bistykke) af flöieli svörtu yfir hvítu líni, með gullvírs-baldýringu ríkulegri, belti með silfurpörum frá fornöld, og mátti það heita meistaraverk. Kona þessi hlaut að vera af Norðurlöndum. Það er allt annað efni í körlum og konum frá hinum sól- vermdu löndum. Hún reis á fætur og hjelt á pappír i hendi sjer. Málrómurinn var skír og skil- merkilegur, efni ræðunnar gagnort og skor- inort og minnti menn á sögumálið forna. Hún las um Island, hvernig hin danska stjórn reyndi að koma á hermannavaldi á hinu friðsama eylandi(!). Danskt herskip var á höfninni, það hafði lagafrumvarpið meðferðis. Ein hersveit (Regiment) af dönskum hermönnum var gengin á land. Islenzkar mæður grjetu(!), en karlmanna- lýðurinn hjelt fund á fund ofan, en Jfund- arforsetinn var »Islands bezti og fríðasti maður«, SvensonJ). Svo kom sá dagur, er setja skyldi alþingið í hátíðasal latinu- skólans í Reykjavík. Salurinn var innan skreyttur sem til hátíðahalds, en úti fyrir sat öll Reykjavík með hryggðarsvip(l). Tutt- ugu og fjórir danskir hermenn stóðu til beggja handa þar sem gengið var inn í latínuskólann. Kapelláninn las bæn- ina áður þingið var sett, og gat varla komið upp orði(!). Þá stóð upp stiptamt- maður (Guvernör) og las upp lagafrum- varp stjórnarinnar með slyjálfandi röddu(!). A meðan var dauðaþögn yfir öllum, en síðan spratt SvensonJ) á fætur og mælti: »í guðs nafni og þjóðarinnar mótmæli jeg laga- frumvarpi þessu!« Stiptamtmaður greip hendi til alþingisbjöllunnar, en Svenson upp aptur eins og örskot og mælti: »í guðs nafni og þjóðarinnar, ekkert ofríki gegn þessum friðsamlega mannfundi«. , . . A þessa tölu hlustuðu fundarmenn með mesta athygli, og þegar menn heyrðu að lagafrumvarp stjórnarinnar var eigi sam- þykkt, þá ljetti þeim heldur en ekki fyrir hjartanu. Danska stjórnin var svo hyggin, að gera ekki frumvarpið að lögum«. Þegar frú Magnússen lauk tali sínu voru tár í margs manns auga. Forsetinn, Alfred. Love, sneri sjer þá að hinum danska full- trúa, Niko Bech-Meyer: »Segið oss eitthvað frá íslandi«. Fornöld þess, mikilmennska

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.