Ísafold - 23.05.1894, Síða 4
116
Fundarboð.
Með því að jeg hefl áformað að bjóða
mig fram til þingsetu fyrir Reykjavík-
urkjördæmi fyrir næsta kjörtímabil,
þá leyft jeg mjer hjer með . að biðja
heiðraða kjósendur bæjarins að koma á
fund næstkomandi laugardag, 26. þ. m.
kl. 71/2 e. h. i fundarsal W. Ó. Breið-
fjörðs kaupmanns. Jeg mun þá skýra
frá skoðunum minum á ýmsum iandsmál-
um og taka þátt í væntanlegum umræðum.
Reykjavik 22. maí 1894.
Hannes Hafstein.
Uppboösauglýsing.
Miðvikudaginn 30. þ. m. verða erfðafestu-
blettirnir Hábœjartún sunnanvert við Kapla-
skjólsveg, tilheyrandi Guðmundi Jónssyni
í Hábæ, og Móabæjarblettur í Kaplaskjóli,
tilheyrandi Guðmundi Jónssyni fyrv. í
Móabæ, að undangengnu iögtaki, seldir til
lúkningar ógreiddum erfðafestugjöldum á
opinberu uppboði, sem haldið verður hjer
á skrifstofunni kl. 12 á hád.
Söluskiimálar verða birtir á undan upp-
boðinu og verða til sýnis bjer á skrifstof-
unni degi fyrir.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 21. maí 1894.
Halldór Daníelsson.
Uppboösauglýsing.
Þriðjudaginn 29. þ. m. verða ýmsir munir,
svo sem stofugögn, borðbúnaður, sængur-
fatnaður, eldhúsgögn 0. fl., allt tillieyrandi
dánarbúi fyrv. sýslumanns Eggerts Briem,
seldir við opinbert uppboð, sem haldið
verður í húsinu nr. 6 í Lækjargötu og
byrjar kl. 11 f. hád.
Söiuskilmálar verða birtir á undan upp-
boðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 22. maí 1894.
Halldór Daníelsson.
Hnakkar og söðlar.
Undirskrif'aður heíir til sölu hnakka, söðla,
töskur, ístaðsólar, beizlistauma og höfuðleður,
hnakkólar, svipuólar, gjarðir o. fl., allt vand-
að og með góðu verði.
Reykjavík 21/s ’94, Þingholtsstræti 9.
Daníel Símonarson.
Sundkennsla.
Bæjarstjórnin útvegar ókeypis sund-
kennslu í 3 vikur fyrir 18 hrausta og
nokkuð stálpaða drengi, sem gengið hafa
á barnaskólann 1 vetur. Fátækir drengir
ganga fyrir. Þeir, sem þetta boð vilja
nota, finni skólastjóra Morten Hansen fyrir
30. þ. m., og mun hann koma þeim á
framfæri. Kennsluna verður að nota stöð-
ugt og dyggilega meðan hún stendur yfir.
Sundpróf fer fram á eptir. .
Reykjavík 23. maí 1894.
Skólanefndin.
í ensku verzluninni
fæst:
Glycerin-kindabað.
Ensk ljáblöð (með fílsmynd).
Hveitimjöl. — Overheadmjöl.
Bankabygg og aðrar matvörur, góðar og
mjög ódýrar.
Fataefni. — Ljerept. — Fionelet og
margs konar álnavörur.
Niðursoðið kjöt og ávextir, og margar
aðrar vörur,
allar góðar og ódýrar.
Verzlun G. Zoega & Co.
Með skipinu »August« er nýkomið mik-
ið að leirtaui, svo sem:
Diskar, smáir og stórir.
Bollapör. Krukkur.
Mjólkurskálar.
Smjörkúpur úr glasi og leir.
Sykurker og rjómakönnur.
Þvottaskálar meö tilheyrandi krukkum.
Samkvæmt opnu brjefl 4. janúar 1861
og lögum 12. apríl 1878 er hjer með skor-
að á alla þá, er telja til skuldar I dánar-
búi fyrverandi sýslumanns Eggert Brierns,
sem andaðist 11. marz þ. á. hjer í bænum,
að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiptaráðandanum í Reykjavík áður en 6
mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu
þessarar innköllanar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 18. maí 1894.
Halldór Daníelsson.
S imkvæmt opnu brjefi 4. janúar 1861
og lögum 12. apríl 1878 er hjer með skor-
að á alla þá, sem telja til skuldar í dán-
arbúi Guðmundar Einarssonar tómthús-
manns frá Bala hjer í bænum, sein andað-
ist 5. marz þ. á., að lýsa kröfum sínum
og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í
Reykjavík áður en liðnir eru 6 mánuðir
frá síðustu birtingu þessarar innköllunar.
Bæjarfógetinn i Reykjavík 18. maí 1894.
Halldór Daníelsson.
3 stofur og eldhús í björtum og lopt-
góðum kjallara í miðjum bænum er til
leigu nú þegar. Ritstj. vísrr á.
Normal-kaffi
frá verksmiðjunni »Nörrejylland«
er, að þeirra áliti, er reynt hafa,
hið bezta kaffi í sinni röð.
Normal-kaffi er bragðgott, hollt
og nærandi.
Normal-kaffi er drýgra en venju-
legt kaffi.
Normal-kaffi er að öllu leyti eins
gott og hið dýra brennda kaffi.
Eitt pund af Normal-kaffi endist
á móti U/2 pd. af óbrenndu kaffi.
Normal-kaffi fæst í flestum búðum.
;0f Binka-útsölu hefir: Thor E. Tulinius.
Strandgade Nr. 12
Kjöbenhavn C.
NB. Selur að eins kaupmönnum.
í Reykjavíkurapóteki fæst:
Akvavit fl. 1,00, Cognac fl. 1,25, Whisky
fl. 1,90, Sherry fl. 1,50, Portvín, hvítt, fl. 2,00,
do. rautt fl. 1,65, Madeira fl. 2,00, Malaga
fl. 2,00, Pedro Ximenes fl. 3,00, Rínarvín fl.
2,00, Champagne fl. 4,00. Vindlar: Renomé
1 hndr. 4,50, Nordenskiöld 1 hndr. 5,50,
Donna Maria 1 hndr. 6,50, Brazil Flower
1. hndr. 7,40.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiftja tsafoldar
50
honum með, — það var þá fyrst, er hann veitti því eptir-
tekt, að hjer var eitthvað óvanalegt á ferðum. Hann
virti fyrir sjer krásina og gat ekki varizt þess að kýma
dálítið.
»Nú-nú, hvað er það þá, kona? Komdu bara með
það! Hvað er það, sem þig munar 1?«
»Hvað mig munar í? Hvernig stendur á því, að þú
spyr um það?«
»Hm, eins og það muni vera tilgangslaust, að þú
gæðir mjer svona vel í dag! Og svo hvað þú heldur þjer
til í dag! Jeg skal ekki bera á móti því, að það fer
þjer dável. Þú er þó raunar allt af lagleg kona og þokka-
leg. Hana-nú, komdu nú með það! Hvað er það þá,
sem þjer leikur hugur á?«
Húsfreyja hafði stokkroðnað. Hún hafði ekki ætlazt
til, að málið væri hafið með þessum hætti.
»Það er satt, að jeg þurfti að tala um nokkuð við
þig«, mælti hún og var stirt um mál; »en það er ekki
svona auðhlaupið að því«.
»Jæja, taktu þjer þá gott tóm til þess. Það er helgi-
dagur í dag, og jeg hefi tekið eptir þvf, að fólk er sjald-
an vant að bregða sjer til að deyja á helgum degi.. .Nú,
það hlýtur að vera eitthvað ekki smávægilegt, fyrst þú
átt svona örðugt með að stynja því upp«.
»Heyrðu, maður minn góði, þú mátt til að lofa mjer
51
að hafa frið til að segja það sem mjer býr í brjósti, og
þú verður líka rjett einu sinni að reyna að setja þig í
spor giptrar konu«.
»Konunnar minnar, vonandi?«
»Og þú mátt ekki taka fram í fyrir mjer ! .. Nú-nú; á
jólunum núna erum við búin að vera 18 ár í þessum sömu
hýbýlum«.
Læknirinn ýtti frá sjer diskinura, lagði frá sjer tóbaks-
pípuna, sem hann var nýbúinn að kveikja í, og stóð upp.
»Ef þú ætlar að fara að tala um að flytja hjeðan, þá
fer jeg heldur mína leið undir eins. Það er ekki til nokk-
urs hlutar fyrir þig að færa það í tal«.
»Mjer dettur alls ekki í hug að koma upp með
það«, mælti húsfreyja 0g þreif í ermina á manni sinum.
»Þjer er óhætt að vera kyrr þess vegna. Það sem jeg
var að velta fyrir mjer, er það, að þegar maður hefir
verið svona lengi i sama húsnæði og aldrei gert hót við
það, þá er engin furða, þó að það sje farið að líta miður
vel út«.
»Jeg kann nú vel við það«, anzaði læknirinn 0g lit-
aðist um ánægjulega.
»En þú kynnir þó enn betur við það, ef gert yrði al-
mennilega við það einhvern tíma. Líttu nú bara á gólfi ð!
Jeg er að berjast við að laga það, en farfinn festist ekki
á gömlum, gagnslitnum við«.