Ísafold - 05.02.1895, Side 1

Ísafold - 05.02.1895, Side 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisv. í viku. Verð árg. (80 arka rninnst) 4kr., erlendis ð kr. eða 1 '/2 doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skrifleg' bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8• Reykjavík, þriðjudaginn 5. febrúar 1895. 6. blað. XXII. árg. Eptirmæli. Hinn 27. júlí BÍðastliðinn andaðist að heimili sínu Snjallsteinshöfða í Holtaprestakalli merkiskonan Margrjet Teitsdóttir, á 73. ári. Hún fæddist 182a að Snjallsteinshöfða, og hafði allið þar allan sinn aldur. Hún giptist 1842. eptirlifandi manni sínum, hinum góð- kunna dugnaðar- og sómamanni Magnúsi Jónssyni frá Brekkum í As- bæjarsókn; hafði hún þannig lifað með honum í hjónabandi á 53. ár, áttu þau hjón 20 börn, þribura einu sinni, en nú lifa að eins 9 af þeim; en þau eiga þrjátíu og þrjú barnabörn, og eitt barnabarna-barn sitt hef- ur þeim auðnazt að sjá. prátt íyrir hina miklu ómegð *var afkoma hjóna þessara ailtaf góð og blómgaðist bú þeirra æ meir eptir árum, og var heimili þeirra að siðustu eitt af hinum efnabeztu og fyrirmyndlegustu að öllu leyti, og bendir þetta til, að hjer sje fallin frá sú kona, sem nokkuð var í varið, enda er það mála sannast, að Margrjet sál. var framúrskarandi kona útbúin miklu atgerfi til líkama og sálar. Táp og fjör, atorka, iðjusemi. hagsýni, ráðdeild og reglusemi einkenndu hana jafnan, i einu orði: hún var búkona hin mesta. Á blómaárum sínum var hún há og þreklega vaxin, og „sópaði af henni með fyrirmannlegu fasi“. Engin oflætis-kona var hún þó, því hún gat sjer hið bezta orð fyrir jafnlyndi og stillingu og „heyrðist aldrei öðru hærra“ segja kunnugir. Drenglunduð, trygg og vinföst var hún umfram marga aðra og átti þar margur trausts að leita, sem hún var. Af gestrisni þeirra hjóna fer mikið orð, enda bar margan að garði þeirra, því fjölfarinn vegur liggur svo að segja um hlaðið þar, en öllum var með kostum tekið og mikilli rausn, velvild og allri fyrirgreiðslu. Margrjet sál. var hin bezta eiginkona og samtaka manni sínum í allri búskaparsnilld, enda voru samfarir þeirra hinar beztu, og móðir var hún ágæt börnum sinum, og í sambandi við það verður þess að geta, að hún var sjerlega vel kristin og trúuð kona, er unni heitt sinni gömlu göðu trú, og ól börn sin upp með hinni mestu umhyggju og kostgæfni í öllum góðum siðum, og bera börn hennar, þau, er eptirlifa, greinileg og fögur merki þess. Til merkis um veglyndi og hjálpfýsi hennar má telja það, að hún (eða þau hjón) tók og uppól að mestu leyti 6 umkomulaus börn, ásamt sínum mikla hóp, og öllum, sem bágt áttu, var hún hjálpandi með ráð og dáðum, og yfir höfuð var hún og heiraili hennar svo, að flestir sem til þekktu. og þeir voru margir, minnast hennar og þess með virðingu og kærleikshug. Að slíkum konum er skaði og söknuður, en þeirra er einnig gott að minnast og það verður aldrei of loflega gjört; mætti hin yngri og komandi kynsJóð kvenna vorra taka sjer til fyrirmyndar nokkuð af þvi góða, er látin góðkvendi höfðu til að bera. Nú búa börn hinnar látnu, 2 synir og dóttir ein, á Snjallsteins- höfða, með veg og sóma, og hinum sama snilldarbrag, og í horninu hjá þeim er hinn háaldraði virðulegi ekkill, faðir þeirra, og ber með stakri prýði harm sinn og hærur. (Ö. F.) Klemens Jónsson sýslumaftur í Eyjafjarðarsýslu og bayarfógeti á Akureyri Gjörir vitanlegt: að með því að ástæða þykir til að álíta, að eptirnefnd veðskuldabrjef fasteigna, sem eru yfir 20 ára gömul og sem finnast óafmáð í afsals- og veðmálabókum Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar, sjeu eigi lengur í gildi, þá stefnist hjermeð samkvæmt 2.£og. 3. gr. í lögum 16. september 1893, um sjerstaka heimild til, að afmá veðksuldbindingar úr veðmálabókunum, handhafendum að eptirfylgjandi veðbrjefum Hvenær veðbrjef- ið er útgefið Hvenær þinglesið Veðsetjandi Veðhafandi Eyrir hvaða upphæð Hin veðsetta fasteign 5. júlí 1805 10 júlí 1805 Guðm. Oddson, Reykjum Hans hátign konungurinn 84 rdl. 6 sk. Reykir s. d. s. d. E. Jónsson, Brimnesi Sami 56 — 98 — Brimnes 8. d. s. d. Ólafur Bergson, Kálfsá Sami 40 — 35 — Kálfsá s. d. s. d. Bergur þórðarson, Hring- Sami 319 — Vemundarstaðir og Skeggja- brekka s. d. s. d. Jón Jónsson, Ósbrekku Sami 57 — Ósbrekka 7. júní lb06 7. júní 1806 þorgr. Jónsson, Siglunesi Jón Sigurðss. Böggverstöð. 63 — 10 hndr. úr Gunnólfsá ■30. sept. 1845 12. ágúst 1846 f>. Daníelsson Hið opinbera fyrir Stefán Tekjur af stærri Jónsson Eyjafj.s. jörðum Syðri-Gunnólfsá 3. marz 1848 8. ágúst 1849 Sira M. öigurðss. Gilsbakka Jústitskassinn 200 rdl. Ytri-Gunnólfsá 20. jan. 1854 28 maí 1854 Jón Sigurðsson Vallahreppur 300 — 11 hndr. úr Ósbrekku 30. desbr. 1859 1860 Friðrik Jónsson, Grund Páll þorvaldsson 100 — 3 hndr. úr Hrúthól s. d. 1860 Grímur Magnússon Gudmannsverzlun 117 — 57 sk. Hólkot 1. sept. 1873 1874 Páll þorvaldsson Eyfirzka ábyrðarfjelagið 500 — Lón til þess að mæta á hinu venjulega manntalsþingi þóroddstaðahrepps, sem haldið verður í þinghúsi hreppsins vorið 1896, á þeim degi, sem síðar verður tiltekinn og auglýstur, til þess þar og þá að koma fram með skuldabrjef það, er hver kann í höndum að hafa og sanna heimild sína til þess; ef enginn innan þess tíma eða á stefnudegi kemur fram með neitt af fram^ 'greindum skuldabrjefum mun með dómi verða ákveðið, að þau hvort fyrir sig beri að afmá úr veðmálabókunum. Til staðfestu er nafn mitt og embættisinnsigli. Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu Akureyri 3. nóvember 1894. KÍ. Jónsson. __________________________________________________________(L. 8.)___________________________________________________________ Klemens Jónsson sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og- Ijæjarfógcti á Akureyri Gjörir kunnugt: Að með því að ástæða þykir til að álíta, að eptirnefnd viðskuldabrjef fasteigna, sem eru yfir 20 ára gömul og sem finnast óafmáð í afsals- og veðmálabókum Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar sjeu ekki lengur í gildi, þá stefnist hjer með samkvæmt 2. og 3. gr. í lögum 16. september 1893, um sjerstaka heimild til að afmá veðskuldbind- ________________ingar úr dómsmálabókunum, handhafendum að eptirfylgjandi veðbrjefum: Hvenær veðbrjefiðl er útgefið Hvenær * pinglesið Veðsetjandi Veðhafandi Fyrir hvaða upphæð Hin veðsetta fasteign. 25. maí 1805 27. maí 1805 Jóh. Gruntvig Siglufirði Hans hátign konungurinn 66 rdl. 64 sk. Vatnsendi 6. maí 1805 s. d. Jóhann Kroyer ibid Sami 302 rdl. Höfn 5. júlf 1805 10. julí 1805 þorg. Jónsson þóroddstað Sami 34 rdl. Hvanndalir 27. mai 1805 27. mai 1805 Styrbjörn þorkelsson Sami 106 rdl. 64 sk. Hóll 8. apríl 1805 11. júlí 1805 Peter Berich Siglufirði Faktor Joh. Hemmert 96 rdl. 34f sk. Saurbær 1. janúar 1846 15. sept. 1850 Thaae Örum & Wulff 22000 rdl. Verzlunarhús á Siglufirði 7. nóvbr. 1870 1871 Ljörn Skúlason Th. Daníelsson 150 rdl. 1£ hndr. úr Siglunesi 23. septbr. 1872 1873 þorleifur þorleifsson Eyfirzki ábyrgðarsjóðurinn 100 rdl. 2 hndr. úr Siglunesi 1. septbr. 187? 1874 Jóh. Jónsson í Höfn Sami 500 rdl. £ Hóll s. d. 1874 Arni Gíslason Sami 200 rdl. 8 hndr. úr Skardal til þess, að mæta á hinu venjulega manntalsþingi Hvanneyrarhrepps, sem haldið verður í þinghúsi hreppsins vorið 1896 á þeim degi, sem síðar verður tiltekinn og auglýstur, til þess þar og þá, að koma fram með skuldabrjef það, er hver kann í höndum að hafa og sanna heimild sína úil þess; ef enginn innan þess tíma eða á stefnudegi kemur fram með neitt af framangreindum skulda- brjefum, mun með dómi verða ákveðið, að þau hvort fyrir sig beri að afmá úr veðmálabókunum. Til staðfestu er mitt nafn og embættisinnsigli. Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu, Akureyri 3. nóvbr. 1894. Kl. Jónsson, (L. S.).

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.