Ísafold - 09.02.1895, Blaðsíða 3
39
hjá fyrir landssjóð að kippa útúr viðskift-
nnum nokkru af seðiaupphæðinni, þar til
alt jafnaði sig.
Þá gerir meistarinn eigi lítið úr tapi
landssjóðs, ef bankinn legðist niðr (sjá 32.
gr. bankalaganna). Þessu skal eg fljótlega
svara: Hvað kostaði landssjóð þessi hálfa
miljón króna í seðlum ? Alls ekki ákvæð-
isverð seðlanna, heldr eingöngu tilbúníngr
þeirra. Hvað f»r landssjóðr nú árlega
í vöxtu hjá bankarium af seðlunum? 5000
kr. Hve mikið vex viðlagasjóðr bank-
ans árlega sökum seðlanna? 10,000 kr.
Hve mikið á nú landssjóðr að greiða, ef
bankinn hætti, sem annars er eigi minsta
útlit til? Alt það geymslufé er menn eiga
hjá bankanum og síðan alla seðla þá er
sPyrjast uppi. Hvað ' fær svo landssjóðr í
aðra hönd? Allan viðiagasjóðinn, sem var
i síðustu árslok orðinn 119,377 kr., svo og
allar eignir og kröfur bankans í verðbréf-
um og skuldabréfum. Það yrði sannarlega
góðr skíldíngr fyrir landssjóð, og þó fengi
hverr maðr sitt.
Arnljótr Ólafsson.
íPj.konan* með hirðuleysið. í Fjallkon-
6. tbl. 4. þ. m. er grein með fyrirsögn: >Hirðu-
laus jj'elagsstjórn«. Stjórnarnefnd Þjóðvina-
fjelagsins er borið þar á brýn, að það sje
hirðuleysi hennar að kenna, að fjelagsmenn í
Kaupmannahöín haii eigi verið búnir að fá
bækur sínar 14. t. m. En hún er ekki svo
sek sem sagt er. Hinn 14. júní voru bækurn-
ar sendar hjer frá Reykjavík í kassa til Khafn-
ar. I/isti yíir fjelagsmenn átti að hafa verið
látinn í kassann, en af því jeg siðar var eigi
viss um að það hefði verið gert, þá var til
frekari vissu sendur annar listi til Khafnar
15. október yíir þá, sem bækurnar áttu að fá.
Þegar bækurnar komu til Khafnar, vildi svo
óheppilega til, að herra Nikuiás Runólfsson,
sem jeg ætlaði að biðja fyrir útbýting bók-
anna. var kominn á leið til íslands. Jeg tal-
aði við hann í ágústmánuði hjer í Reykjavík’
og lofaði hann mjer að taka þetta að sjer,
þegar hann kæmi heim til sín. Herra N.
Runólfsson er áreiðanlegasti maður og virtur
af öllum, er þekkja hann, svo jeg skil ekki,
hvað þvi veldur, að tjelagsmenn voru eigi
búnir að fá bækurnar, og vil jeg biðja þá vel-
virðingar á því.
Það er eðlilegt, að >Sunnanfari«, sem er gef-
xnn út í Khöfn, minnist á þessa bókavöntun^
Vegna fjelagsmanna þar, en mjer virðist að
‘^■i-konan* hefði getað, öllum að skaðlausu,
leitt þaj) m4l hjá sjer. Ritstjórinn átti hægt
að fá upplýsingar hjá 4 stjórnarnef'ndar-
mönnumi aem ^úa fáa faðma frá húsdyrum
hans, um, hvort dómur hans um liirðuleysi
fjelagsstjórnarínnar var á rökum byggður.
Samvizkusamir menn láta sjer annt um, að
hlaupa eigi bæ trá bæ með ranga dóma um
aðra.
Rvík 14. febr. 1895.
^r■ Gunnarsson
(forseti Þvfl.),
Ai-nessýslxx (Eyrarb.) 15- jan.: Grafreitur
fyrir Eyrarbakkasókn var vígður 27. nóv. f. á.
— hef skrifað yður það áður, en það brjef
xnun hafa misfarizt — af' sóknarprestinum,
sifa Óiafi Helgasyni, sem um leið jarðsöng þar
kinn fyrsta mann, Jón Jónsson bónda írá
Litlu-Háeyri, hálf'sjötugan að aldri. Athöfnin
fór fram um hádegi og byrjaði þannig, að
likið var borið í kirkjuna, var leikið á har-
xnonium sorgarlag. Var síðan sunginn sálm.
ör. 450 og að því loknu flutt líkræðan og sung-
tnn sálm. nr. 463. Þá var aptur leikið sorg-
arlag; líkið borið í kirkjugarðinn og sunginn
sálm. nr. 107. Þar næst lýsti sóknarprestur-
inn vigslunni með snjallri og hjartnæmri ræðu
og lagði út af þessum orðum Krists: >Jeg er
upprisan og lifið« og >Grát þú ekki«. Að
lokinni vígslunni var sungið versið nr. 600,
þá sálm. nr. 606, líkið jarðsungið og að síð-
ustu sunginn sálm. nr. 610.
Kirkjugarðurinn er ferhyrndur völlur, 60
álnir í horn og garðurinn hlaðinn úr grjóti.
Hann er 21/* alin á hæð og 2 álnir á þykkt, nema
sú hliðin, sem að sjónum veit; þar er hann 2*/»
alin á þykkt. Stendur hann austast á Bakk-
anum, fyrir framan Mundakot, lítið eitt fyrir
innan sjógarðinn. Uppi yíir sáluhliðinu er
klukka í umgjörð.
Kirkjugarðinum hefir hin nýja sóknarnefnd
skipt í 4 ferhyrnda reiti. Frá sáluhliðinu, sem
er á vesturhliðinni, liggur 3 álna breiður gang-
stigur yfir garðinn til austurs. Annar stígur
jafnbreiður liggur um miðjan garðinn frá
norðri til suðurs, og loks 3 álna breiður gang-
stígur umhverfis alian garðinn að innan.
Athöfnin fór að öllu leyti mjög hátíðlega
fram, enda var veður hið blíðasta, stillilogn
og ljett lopt. Viðstaddir voru um 500 manns.
Til þess að skipti á Stokkseyrarsókn sjeu
fullgjör, vantar samþykki landshöfðingja. Að
því fengnu verður öllu skipt jafnt: eignurn,
skuldum og tekjum íyrir yfirstandandi tekju-
ár.
Eyrarbakkasókn á að ná yfir að eins þorpið
Eyrarbakka með Óseyrarnesi.
Af þvi, sem til tíðinda hefir borið síðan,
skal jeg fyrst minnast á flutnmg á efni i
í Þjórsárbrúna. Er það nú allt, sem ætlast
var til að dregið yrði á sleðum, komið upp að
brúarstæðinu, og töluvert af hinum smærri
stykkjum, sem kliftæk eru og átti að reiða
upp eptir að sumri, er nú búið að draga vel
áleiðis.
Skemmtanir, sem hafðar hafa verið hjer í
vetur, eru sjónleikirnir >Schapins hrekkja-
brögð«, >Nei« og nætursýningin úr >Æfintýri
á gönguför«. Varað því góð skemmtun,eink-
um þó >Nei« og nætursýningunni.
Fjdrpestin hefir verið með skæðasta móti
hjer eystra í haust. Hefir hún drepið mjög
margt á sumum bæjum i ofanverðri sýslunni,
svo sem t. d. á Fjalli á Skeiðum er sagt að
sjeu dauðar 116 kindur yfir bæinn.
Heilsufar fólks hjer á Eyrarbakka er með
lakara moti; liggja hjer margir í taugaveiki
og barnaveiki. Úr barnaveiki eru nýdáin 3
börn og úr taugaveiki 1 maður, Árni Álfsson
skósmiður, efnilegur maður á þrítugsaldri.
Bankastellu-farganið úr Cambrigde-
meistaranum hefir naumast nokkurn tima
fengið röksamlegra nje snjallara svar en
þetta blað flytur nú, f'rá hinum ágæta hag-
fræðing og mikla skarpleiksmanni (A. Ó.).
En skjótast mun honum, þótt skýr sje, ef
hann býst við, að hugvekja þessi muni
draga nokkuð úr austri meistarans; hon-
um ljettir aldrei meðan lif hans endist, og
meðan til eru hjer blöð, sem leika það
gráa gaman, að spotta lesendur sína með
því að bera á borð fyrir þá ár eptir ár hið
takmarkalausa lokleysuraus hans um þetta
raál, þó að þeir, sem fyrir tjeðum blöðum
ráða, viti mjög vel, að þar er ekki nokk-
ur heil brú í. Það er alveg hið sama og
ef þeir Ijetu einhvern steinblindan sjer-
vizkupoka fylla hjá sjer hálfa árganga
með endalausum röksemda-barningi fyrir
þvl, að jörðin væri alls eigi hnöttótt, held-
nr flöt eins og pönnukaka.
Þá munu og fylgismenn meistarans, ef
nokkrir eru enn, sitja við sinn keip, að
hætt er við, eptir sem áður, þó að þeir
lesi þessa hugvekju, svo ágætlega sem hún
er samin og sannfærandi fyrir hvern skynj-
andi mann. Þvi aðtrúþeirra á, að meist-
arinn hafl rjett fyrir sjer, stafar svo sem
ekki af rækilegri íhugun málsins eða rann-
sókn eða bankfræðilegri þekkingu, heldur
af óljósum náttúruhvötum, sumum skiljan-
legum, en sumum óskiljanlegum, — t. a. m.
engan veginn œtíð af því, að bankinn hafi
hjálpað þeim um lán í neyð þeirra og far-
ið síðan fram á einhver skil einhvern tima
fyrir dómsdag.
Likíð af manninum, vinnumanni G. Zoega
kaupmanns, Sigurði Sigurbssyni, fannst í morg-
un hjer í Tjörninni norðanverðri í ísnum rjett
við land, horn af flik á honum meira að segja
komið upp úr ísnum.
Leiðarvísir ísafoldar.
1526. Eru ekki þeir, sem útskrifazt hafa af
Möðruvallaskólanum, og lausir vilja verða,
skyldir, samkvæmt lögum 2. fetir. 1894, til þess
að kaupa lausamennskuleyli og ieysa leyfis-
brjef hjá hlutaðeigandi lögreglustjóra, sem og
að öðru leyti að fullnægja skilyrðum þeim,
sem sett eru í tjeðum lögum?
Sv.: Með því að þeir naumast virðast verða
taldir með vinnufólki, nema í reglulegri
vinnumennsku sjeu, munu þeir eigi verða
skyldaðir til að leysa lausamennskuleyfi.
1527. Er það rjett af hreppsnefnd, að leggja
á mig sveitarútsvar, þar sem jeg er ekki svo
gamall, að jeg sje talinn verkfær, og vinn þar
að auki kauplaust hjá foreldrum mínum?
Sv.: Rjett getur það verið þess vegna, ef
ástæður spyrjanda að öðru leyti eru svo vaxn-
ar, að nefndin jafnar á aðra menn í sveitinni,
sem líkt stendur á fyrir.
1528. Jeg hefi haldið ómaga fyrir mann og
ætlaði hann að borga mjer meðgjöfina, en
vegna veikinda, og þar af leiðandi atvinnu-
missis, gat hann ekki staðið í skilum. Get
jeg nú ekki fengið meðgjöfina frá þeim hreppi,
sem maðurinn er sveitlægur í?
Sv.: Jú, ef ómaginn er skylduómagi hins
veika, og hann með engu móti getur staðið
straum af honum sjálfur.
1529. Ber ekki sáttanefndarmönnum borgun
fyrir að ferðast á sáttafund og reyna til að
koma sætt á, þó ekki sættist, og ef þeim ber
borgun fyrir það, hvaðan eiga þeir að hafa
hana ?
Sv.: Jú, úr amtsjafnaðarsjóði.
1530. Sýslumaður skipar hreppstjóra með
öðrum aðstoðarmanni, að gjöra almenna fjár-
kláðaskoðun í hreppnum, mót sanngjarnri
borgun, en hreppsnefndin býðst til að gjöra
það fyrir alls enga borgun, svo ekki þurfi að
leggja það gjald á hreppsbúa. Er rjett af
sýslumanni að neita þvi?
Sv.: Já, eptir lögum 5. jan. 1896, 1. og 2-
gr., eiga hreppstjórar að hafa þennan starfa á
höndum ásamt þeim aðstoðarmönnum, er
amtmaður tilnefnir.
1531. Hefir hreppsnefnd vald til að fara 1
búðarreikninga hreppsbúa sinna, að þeim forn-
spurðum, og taka út úr þeim eptir vild sinni.
Og ef slíkt tiltæki er óleyfilegt, hvað segist
þá á slíku ?
Sv.: Nei. Sektir.
1632. Er það rjett aðferð af hreppsnefndar-
oddvita, að láta meðnefndarmenn sína endur-
skoða hreppsreikninga?
Sv.: Já, sbr. tilsk. 4. mai 1872, 20. gr.
1532. Er ekki rjett að reikna tiundir til
prests og kirkju eptir >Leiðarvísi« Sig. Krist-
jánssonar, og er ekki rangt að reikna tíund-
irnar út eptir sama mælikvarða ?
Sv.: Fasteignartiund skal reiknuð eptir
Gizurarstatútu 1096, 1. gr., en lausafjártiund
eptir tíundarlögunum 12. júlí 1878.