Ísafold - 26.06.1895, Qupperneq 2
214
Þingmálafundir.
Vestmannaoyingar (tundur 16. júni, boð-
aður af þingmanni þeirra, Dr. Valtý Gub-
mundssyni, fundarstj. hjeraðsl. Þorst. Jónsson)
ályktuðu með 29 : 8 atkv., að skora á alþingi,
að samþykkja ekki stjórnarskrárfrumvarpið í
sumar, en samþykktu þar á móti með 32:2
atkv., að alþingi færi þess á leit með þings-
ályktun, að Island fengi sjerstakan íslenzkan
ráðgjafa, sem ætti sæti á alþingi og mætti
þar. Fundurinn lýsti óánægju sinni með sam-
göngur á sjó. eins og þær væru nú, og fól
þinginu að gera umbætur i því efni. IJm
menntamál urðu nokkrar umræður, en engin
ályktun gerð. Fundurinn var mótfallinn af-
xámi dómsvalds hæstarjettar í ísl. málum.
nema dómendum væri fjölgað í landsyfirrjett-
inum; vildi láta stytta sveitfestistimann úr
10 niður í 5 ár. Þvi var hreift á fundinum,
að nauðsynlegt væri að endurskoða rjettar-
farsreglurnar og breyta þeim. Til Þingvalla-
fundar þótti fundinum ekki ástæða til að senda
mann að þessu sinni.
Borgfirðingai’. Tveir þingmálafundir
haldnir þar, af þingmanninum, lector Þórh.
Bjarnarsyni, annar á Akranesi 10. júní — f'und-
armenn um 20 — og hinn á Grund í Skorra-
dal 22. júní — fundarmenn um 40 —. Með ó-
breyttu stjórnarskrár-t'rumv. í sumar voru 20
atkv. á Grundarfundinum og 10 á Akranesi,
en 5 þar með áskorun frá þinginu til stjórn-
arinnar um, að hún legði fyrir þingið frv. til
endursk. stjórnarskrár. Gufubátastyrk vildu
.menn auka láta að miklum mun á báðum
fundum, um nokkurra ára bil, en losa sýslu-
fjelög við styrk til þeirra; sömuleiðis hent-
xigra gufuskipasamband við útlönd; enn frem-
ur vildi Grundarfundurinn láta. landssjóð
Styrkja gufubát á Borgarfirði, sem gengi upp
í árnar, og að sem fyrst yrði haldið áfram
lengra vegagerð vestur frá Kláffossbrúnni á
Hvítá. Grundarfundurinn vildi láta hækka
búnaðarstyrk upp í 40,000 kr. á ári, með því
að fjárveitingin til búnaðarfjelaga hefði gert
meira gagn en nokkur annar styrkur úr lands-
sjóði; sömul. að landssjóður greiddi kostnað
við eitrun refa, og að grenjavinnslukostnaður
væri færður af sveitarsjóðum á sýsiusjóði, en
andvirði óskilafjár rynni aptur í sýslusjóð.
Báðir fundir vildu láta þingið gera eitthvað
til að afstýra bráöapestartjóninu. Sami fund-
ur vildi láta auka styrk til alþýðufræðslu og
stotna lagaskóla, en þó skyldi fyrst farið fram á,að
styrkurinn til ísl. stúdenta við Khafnarháskóla
færist heim að nokkru leyti til nemenda við
bina innlendu embættaskóia, en einkarjettur
ísiendinga afnemist að miklu leyti við Khafn-
arháskóla. Báðir fundir voru með holdsveikra-
spítalastofnun, Grundarf. með landsspítala,
sjerstaklega fyrir »tuberculose« og holdsveiki.
Fátækra- og sveitarstjórnarlöggjöf vildi Grund-
arf. láta taka til meðferðar á næsta þingi, en
•hinn setja milliþinganefnd í það mál. Meiri
hluti atkv. var með því á Grundarf., að af-
numdar verði gjafsóknir embættismanna, að
Ijett verði gjöldum á jafnaðarsjóðum, eptir-
launalögin frá síðasta þingi tekin upp aptur,
aukið úrskurðarvald sáttanefnd.a i skuldamál-
um, borgaralegt hjónaband samþykkt, söfnuð-
um leyft að veija um umsækjendur alla, þing-
fararkaup fastákveðið til nokkurra ára, t. d.
6 ára. Líkt hljóð í Akranesf. í þessum mál-
um flestum. Akranesf. æskti sjerstaklega ekki
einungis breytingar á kirknatekjunum, heldur
einnig gagngerðrar breytingar á gjöldum til
presta. Grundarf. óskaði að lokum, að alþingi
legði ekki gjöld á sýslusjóðina að sýslunefnd-
um íornspurðum. Eitthvað af atkv. var fyrir
því, að senda mann á Þingvaliafund, og eptir
nokkrar atrennur kosinn, með 12 atkv., mað-
ur, er til þess bauðst, Stefán hreppstj. Guð-
mundsson á Fitjum.
Árneslngar. Fundur 24. júní að Hraun-
gerði; þar voru báðir þingmenn sýsiunnar og
34 kjörnir menn úr öllum hreppunum, auk um
20 annara. Fundarstj. Tr. Gunnarsson alþm.,
skrif. síra V. Biietn.
Um stjórnarskrármálið voru allir fundar-
menn á því, að landið ætti að fá full lands-
rjettindi sín viðurkennd og þar með full fjár-
forráð og sjálfsforræði í öllum innlendum mál-
um með ábyrgð fyrir alþingi; sömul. um það,
aö æskilegt væri, að stjórnarskránni yrði breytt
i þá átt. En þá skildu leiðir: sumir (síra M.
Helgason, síra Ól. Ólafsson, Sig. búfr. Sigurðs-
son o. fl.) vildu óbreytt frumvarpsform áfram
í sUmar, en aðrir (þingmennirnir báðir, síra St.
Stephensen, faktor P. Nielsen) að málið hvíli
sig um tima. Eptir langar umr. frumvarpsleiöin
samþ. með 22 :6 atkv.; hinir greiddu eigi at-
kv., og höfðu þó allir fundarmenn atkv.rjett.
Nýjan lækni vildi fundurinn hafa í uppsýsl-
una, iáta skipa milliþinganefnd til að endur-
skoða fátækralöggjöíina, samþykkja frumv.
stjórnarinnar um holdsveikraspitalastofnun,
takmarka eptiriaun, fá stofnaðan lagaskóla og
leggja árlega fje úr landssjóði í háskólasjóð,
að allir umsækjendur um prestaköll skyldu
hafðir í kjöri, og að sýslunefndir fengi vald
til að gera laxveiðisamþykktir.
Gufubátaferðir á fjörðum og beinar gufu-
skipaferðir tii útlanda vildi fundurinn láta
styrkja ríflega, og lýsti jafnframt óánægju
sinni yfir framkomu danska gufuskipafjelags-
ins. Seladrápsmálinu frestað til frekari und-
irbúnings undir alþingi 1897. Með öllum þorra
atkv. skorað á alþingi að skora á stjórnina,
að setja Skúla Th. aptur inn í embætti sitt(i),
en tillaga um launamississkaðabætur úr lands-
sjóði felld með atkv.fjölda.
Til Þingv.fundar kosnir (af hinum kjörnu
hreppafulltrúum) síra Magnús Helgason og
Sig. búfr. Sigurðsson, og til vara Jónas hreppstj.
i Hrauntúni.
Gloppóttur Þingvallafundur. Þessi
7 kjördæmi vita menn nú að alis eigi hafa
á neinn hátt kosið f'uiltrúa á Þingv.íund:
Snæfellsness, Húnavatns, Skagafjarðar,
Suðurmúla, Austur Skaptafells, Vestur
Skaptafells og Vestmannaeyja. Auk þess
hafa ýms kjördæmi kosið alveg óformlega,
nefnil. að eins með einhverju hrafli at-
kvæ^a á þingmálafundi, en ekki með tvö-
földum kosningum eptir hreppum, eins og
fundarboðendur höfðu fyrir lagt. Það
sleifarlag kórónaði svo nefndur þingmála
fundur í Borgarnesi í fyrra dag, fyrir út-
hreppa sýslunnar að eins, þar sem kosinn
var til Þingv.fundarfulltrúa af 4—6 mönn
um á fundi fjarverandi maður, Ásgeir Ey-
þórsson verzlunarstjóri í Kórunesi, er svar-
aði svo, er honum kom fregn um þann
frama, að hann kvaðst ekki fara eitt fet!
Lik varð niðurstaðan hjá Barðstrending
um.
Verða þannig fyrir víst 9 kjördæmi af
21 alveg fulltrúalaus á þessum Þingv.fundi!
Póstskipið Laura (Christiansen) kom
hingað í gær norðan um land og vestan>
og með henni fjöldi farþega, þar á meðal
nokkrir þingmenn: Pjetur Jónsson frá
Gautlöndum, Jón A. Hjaltalín skólastjóri,
Klémens Jónsson, síra Sigurður Stefánsson
og síra Sigurður Jensson. Enn frernur sira
Matthias Jochumsson, skólastj. Torfi Bjarna-
son í ÓlafsdaJ, kaupm. J. Vfdalin, Friðbj.
Steinsson bóksali á Akureyri, Stef'án kenn-
ari Stefánsson á Möðruvöllum, sira Stefán
M. Jónsson á Auðkúlu, sira Halldór pró
fastur Bjarnarson í Presthólum, og ýmsir
fleiri.
Gufuskip Jelo, um 200 smál., skipstj.
Paulsen, kom hingað í fyrra kveld, og
með því kaupm. Björn Kristjánsson, —
hlaðið ým.iuin vörum frá Hamborg til
pöntunarfjelaga þeirra, er hann er fyrir.
Ætlar bráðlega suður í Garð, upp í Borg-
arfjörð og vestur á Hvammsfjörð.
Fáein orð
um ínyndir af nokkrum íslenzkum
merkismönnum.
í »Sunnanfara« — IV., 12. júní Í895 —
er nýprentuð andlitsmynd Sigurðar Breið-
fjörðs og grein, sem myndinni fylgir.
I grein þessari segir meðal annars svo:
»til eru enn gamlir menn, sem muna Sig-
urð Breiðfjörð, og hafa þeir af þeim, sem
mynd þessi hefir verið sýnd, sagt, að hún
líktist Sigurði«.
Jeg er einn af þeim gömlu mönnum, sem
muna Sigurð, og kemur mjer því til hug-
ar, að segja fáein orð um þetta efni.
Sumarið 1828 kom jeg í Vestmannaeyj-
ar og dvaldist þar hálfs mánaðar tíma.
Þá átti Sigurður Breiðfjörð þar heima.
Jeg hafði heyrt hansgetið og kunni nokkr-
ar af vísum hans; var mjer því forvitni á
að sjá hann og heyra og gerði mjer ferð
til hans einn góðan veðurdag. Jeg talaði
við hann timakorn, þótti maðurinn nokk-
uð einkennilegur og festist þá mynd hans
í huga mjer. Jeg var þá á 16. ári, en hann
mun hafa verið um þrítugt. Mig minnir
nú, að jeg sæi hann nokkrum árum síðar
í Kaupmannahöfn, en þori eigi aö fullyrða
það. En á árunum 1840—1844 sá jeg Sig-
urð hjer í Reykjavlk nokkrum sinnum og
átti tal við hann. Af þeirri viðkynning,
sem jeg þannig hafði af honum, þykist jeg
hafa — jeg vil eigi segja vel glögga, en —
nokkurn veginn glögga mynd Sigurðar í
huga mínum. Og verð jeg þá að játa, að
mjer líkar alls eigi þessi andlitsmynd hans
i »Sunnanfara«; því betur sem jeg virði
hana fyrir mjer, því fráleitari flnnst mjer
hún vera. Hún minnir mig á andlit Hott-
entottans í Erslevs landafræði, en ekki á
Sigurð Breiðfjörð. Hann var, að því er mig
minnir, meðalmaður á vöxt, nokkuð lot-
inn í herðum hin síðustu ár æfinnar; hann
var jarpur á hár, skegg lítið eða ekkert,
brúnamikill, andiitslitur fremur dökkur en
bjartur, á svipinn var hann og þekkilegur
og einhver höfðingjabragur yfir andlitinu.
Þegar jeg nokkrum árum seinna sá Jón
sýslumann Thóroddsen, minnti augnaráð
hans mig stundum á augnaráð Sigurðar.
Þegar þess er jafnframt gætt, er segir i
»Sunnanfara«, að andlitsmynd sú, er lijer
ræðir um, sje prentuð eptir blíantsuppdrætti,
er Helgi Sigurðsson gerði, ekki með Sig-
urð Breiðfjörð lifandi eða dauðan fyrir
augum sjer, heldur eptir því sem Helga
minnti að Sigurður hefði verið í andlits-
falli, þá getur eingirm búizt við, að sú
mynd geti tekizt vel, sem þannig er til
orðin. Að Helga tókst betur, þegar hann
gerði myndina af Jónasi Hallgrímssyni,
sem er f'raman \ ið Ljóðmæli hans, er mjög
eðlilegt, því að sú mynd er, að því erjeg
veit framast, tekin af Jónasi nýdauðum á
Friðriksspítala ; þó er það eigi þann veg
að skilja, að rnjer þyki mynd Jónasar v«l
gerð; jeg sætti mig svona við hana, og
það er heldur ekki meira.
En úr því jeg fór að minnast á þessar
tvær myndir, Sigurðar og Jónasar, vil jeg
geta hjer um nokkrar fieiri myndir af ís
lenzkum mönnum. Sumar þeirra eru fram-