Ísafold - 06.07.1895, Page 1

Ísafold - 06.07.1895, Page 1
Kemur út ýmist einu sinni eðít tvisv. i viku. Verð árg.(80arka minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa 1 */» dolí.; borgist fyrir miöjan jóli (erlendis íyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skriíieg) bundin viö Aramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.oktober. Afgreiðslustofa blaðsins er i' Austurstrœti 8. XXII. árg. H. Chr. Hansen, stórkanpmaðm (Rör holmsgade 3) í Kanpmamiahöfn, byrjaði ís- lenzka umboðsverzlun 1882, tekur að sier innkaup á vörum fyrir ísland, selur einnig Islenzkar vörur í Kaupmannahöfn og Leith. Kaupir íslenzk frímerki fyrirhæsta verð. "»;>"»;>"»■;> "»-;',V»;>.v;>'»';>1 Stjórnarskrármálið. Stjórnarskrármáliö er að því leyti að komast i nytt horf á þinginu, að fyrir báð- ar deildir hefir verið iögð tillaga til þings- ályktunar, sem flutningsmennirnir ætlast til aö verði samþykkt í staS stjórnarskrár- frumvarps Tillagan byrjar á yfiriysing um það, að þingið haldi fast við sjálf- stjórnarkröfur íslands, eins og þær hafa komið fram á undanförnum þingum, og á- skorun til stjórnarinnar um að taka þær til greina. En sjerstaklega er skorað á kana að hluta.st til um: 1. að löggjafar- og landstjórnarmálefni, er heyra undir hin sjerstöku mál íslands, verði eptirleiðis eigi lögð undir atkvæði hins danska ríkisráðs eða borin upp i því; 2. aö gjörö verði með ný)um stjórnar- skipunarlögum breyting á ábyrgð hinnar itóðstu stjórnar íslands sjerstöku mála, þann ig, að neðri deild alþingis geti ávallt, er ástæða þykir til, og fyrir sjerhverja stjórn- arathöfn, er til þess gefur tilefni, komið fram ábyrgð beinleiðis á hendur hjer bú- settum, innlendurn manni, er mætiáalþingi; 3. að stofnaður verði sjerstakur dóm- stóll bjer á landi, skipaður innlendum mönnum (landsdómur), er dæmi í málum þeim, er neðri deild alþingis eða konung ur lætur höfða gegn hinum æðsta stjórn- anda hjer á landi. Eins og hverjum þeim hlýtur að liggja í augum uppi, sem nokkuö hefir kynnt sjer stjórnarskrármál vort á þingi. er ekki að ræða nm neina stefnubreyting með þess- ari þingsályktunar tillögu. Flutningsmenn hennar finna vitanlega eins vel eins og nokkrir aðrir til þeirra óþolandi galla, sem eru á stiórnarfyrirkomuiagi voru og þeirr ar nauðsynar, er til þess ber, að úr þeim verði bætt. En þeir vilja, að þingið láti sjer nægja að þcssu sinni, að draga frnm aðalágreiningsatriðin. kjarnann í þeim breytingum. sem þjóð og þ>ng heimtar, í stað þess að snmþykkja heila stjórnarskrá, með öllum þeim aukaatriðum, sem að sjálfsögðu eru i benni, og hafa litla þyð- ingn i samanburði við kjarnann sjálfan o: alinnlenda stjórn með fullri ábyrgð fyrir alþingi. Enginn vafi er á þvi, að þings- ályktnnar tillagan hefir mikið fylgi i báð- um deildum þingsins,ekkióliklegt, að meiri hlutinn í þeim báðum sje henni meðmælt- ur, þótt það sjáist ekki til fulls fyr envið atkvæðagreiðsluna í næstu viku. Enjafn- Reykjavik, laugardaginn 6. júli 1895. vitanlegt er hitt, að nokkrir þingmenn — vjer látum ósagt hve margir — sjá enga aðra leið farandi fyrir þingið en þá, að samþykkja nú — og hver veit hvað lengi — sama stjórnarskrárfrumvarpið, sem tvö síðustu þing hafa þegar samþykkt og stjórnin afdráttarlaust neitað að taka til greina. Um aðalatriðið, kjarnann, þörf þ.jóðarinnar á alinnlendri stjórn og rjettinn til hennar, er enginn ágreiningur. Hitt er ágreiningsatriðið, hvernig þingið eigi að beita sjer, hvor aðferðin sje vænlegri til sigursælda. og heppilegri, þegar hliðsjóner höfð af öðrum málum, sem þinginu er ætlað að fjalla um. Með þingsályktunar-tillögunni mælir með- al annars það, að hún girðir fyrir langa stælu um stjórnarskrána í sumar. Því að vel verða menn að gæta þess, að því fer ijarri, að þingmenn sjeu einhuga um það stjóruarskrárfrumvarp, sem samþykkt hef- ir verið á tveimur síðustu þingum. Það er áreiðanlega ríkt í huga ailmargra þing- manna, að það frumvarp þurfi að taka æði-miklum breytingum til þess að verða ákjósanleg stjórnarskrá. Og þeim dylst það vafalaust, að það sje skylda sín að heimta þing eptir þing það sem þeir mundu eiga örðugt með að sætta sig við, ef feng- jst, enda er eigi auðvelt að sjá, hvert er- indi annað þeir eiga á þing fremur en að halda þar fram sannfæring sinni að þvíer landsmál snertir. Þess er þvi engin von, að stjórnarskrArfrumvarpið yrði samþykkt á annan hátt en þann, að samþykktinni yrði samfara alvarlegar aðfinningar af hálfu merkra þingmanna og megn óánægja. Og allir, sem kunnugt er um, hvernig til hagar á alþingi fslendinga, vita, að slík óánægja mundi ekki áhrifalaus að því er til annara þingmála kemnr, heldur mundi benni verða samfara stöðugnr ófriður og sundrung — auk þess sem stjórnarskrár- umræðurnar, sem að ölium likindum yrðu mjög langar, mundu eyða tímanum tilfinn anlega frá öðrum nauðsynjamálum þings- ins. Það annað mælir með þingsálykt- unar-tillögunni, að enginn vali er á því, að almennur þjóðarvilji er því andstæður, að frumvarpið sje tekið fyrir á þessu þingi. Þeir sem ekki hafa látið augu sín blindast af Þjóðvillu moldviðri nje fengið suðu fyrir eyrun af hugsunarlausu varafleipri frelsisgjálfrara, þeir hafa eðlilega veitt því eptirtekt, hve eindregin mótmæli hafa komið úr ýnisum hinum heldri kjördæmum lands- ins gegn því að frumvarpið kæmi fram á þingi að þessu sinni. Og þá er Þingvall arfundurinn góð bending i þá átt. Til þess fundar var vitanlega stofnað í því skyni einu, að stappa stálinu i þingmenn með að samþykkja frumvarpið enn á ný. Þeir einir tóku þátt í kosningum til hans, 57. blab. sem vildu höggva í sama farið; aðrir ljettt þær hlutlausar. Það er því sannarlegæ ekki að undra, þótt sá fundur kæmist að þeirri Diðurstöðu í stjórnarskrármálinu, sem hann komst. En að ekki skyldi verða unnt, þrátt fyrir allar áskoranirnar og stóra orðin, að fá nokkurn mann á hann úr jafn-mörgum kjördæmum og raun varð á, og að hluttakan í kosningum til hans skyldi verða jafn neyðarlega óveruleg eins og hún varð, það bendir óneitanlega á eitthvað annað en að þjóðin sje sólgin f að fá þetta frumvarp samþykkt enn eintt sinni á þinginu. Allar líkur eru jafnvel til þess, að undirtektirnar hefðu orðið- drjúgum fjörugri og almennari, ef einhverjir málsmetandi menn hefðu tekið sjer fyrir hendur, að stofna til Þingvailarfundar í því skyni, að stía frumvarpinu út af þingi.. Þá er og eigi ástæðulaust að hata hlið- sjón af því, hvor leiðin, þingsályktunar- leiðin eða frumvarpsleiðin, er vænlegri til samkomulags við það vald, er vjer eigum að sækja rjett vorn í hendur á. Það dylst nú víst engum, að frumvarpsleiðin er alls engin samkomulagsleið. Það er demon- straiion, eins og þingmaður Reykvíkinga komst nýlega að orði, og ekkert annað, að samþykkja stjórnarskrárfrumvarpið. Þingsályktunin þar á móti er tilraun til samkomulags. Með henni eru útilokuð um stundarsakir öll hin óverulegri atriði, sem menn geta hugsað sjer á ýmsan veg, og ekki þykir ástæða til að gera að kapps- máli, en að eins haldið aðalatriðunum, er vjer sem sjálfstæð þjóð eigum heimting á, og engin sanngirni er f, frá neinu sjónar- miði, að oss sje synjað um. Vjer skulum vitaskuld ekkert um það segja, hver árangur verður, að því er til stjórnarinnar kemur, af þingsályktuninni, ef hún verður samþykkt, eða hvort hann verður nokkur, Vjer erum þar ekki góðu vanir, svo sem kunnugt er. En með öllu fer það í gagn- stæða átt við almenna lífsreynslu, ef lakara reynist að leita samninga með lipurð og ofurlítilli tilbreytni — einkum ef tilbreytnin gengur í þá átt að fækka deiluatriðunum og skilja hið óverulega frá þvi verulega — heldur en að höggva sí og æ í sama farið jafnharðan seni synjað er af hinum máls- partinum. Ekki er það nema saDngjarnt, að jafn- framt sje bent með fám orðum á það, sem mælir með því, að frumvarpið verði enn samþykkt á þessu þingi. Það er sjálfsagt fyrst og fremst sú ánægja, sem landsmenn vafalaust hafa af því, að eyða svo sem 20,000 krónum til aukaþings að sumri. Vitaskuld mun enginn maður hafa svo skarpa sjón, að hann geti komið auga á neitt verulegt gagn af því þinghaldi. En það er ævinlega ánægjulegt að vita lög- gjafa sina sitja á rökstólum og ráða ráðum

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.