Ísafold - 22.02.1896, Page 3
43
í dag og »Egill« væntanlegur. — Heilsufar
manna bæði í bænum og grenndinni, þar sem
jeg veit til, hið bezta, og yfir höfuð stendur
hagur almennings hjer við sjdinn mjög vel,
og mun eigi hafa staðið eins vel í nokkur
undan farin ár.
Sýslumaður okkar og bæjarfógeti, A. V.
Tulinius, fór skömmu fyrir jólin alfarinn tU
Eskifjarðar, og sakna hans margir hjeðan,
enda má svo að orði kveð.a, að við sjeum t.íð-
an sýslumanns- og bsejarfógetalausir. Raunar
fekk hann einn af borgurum þessa bæjartjelags
til að gegna embættisstört'um, á sina ábyrgð;
en það er ónógt. Hjer þart opr, á valdsmann-
inum að halda, ekki síður en verið hefir.
Kirkjusmiðinni hjer þokar smátt áfram, og
eru messur alhsjaldgæfar; þó hjelt cand. theol.
Magnús Jónsson hjer aptansöngva á aðfanga-
og gamlaárskvöld. og var það vel sótt. Talað
hefir verið um að hann hjeldi tramvegis uppi
guðsþjónustugjörð, meðan kirkjan er ekki kom-
in upp; vill bæjarstjórnin leggja fje fram, og
verður þá hús bindindisfjeiagsins notað til
Jþess.
Svo langt er hugmyndin um nýja blaðið
hjer komin, að talað er um að fá Þorstein
Erlingsson hingað fyrir ritstjóra þess, og ef
til vill andlegan leiðtoga fólksins! og verður
þá líklega byrjað á blaðinu í vor. Nýlega
fengum við þann »gleðilega boðskapc hingað
austur, að herra Einar Benidiktsson ætlaði að
fara að gefa út meira en lítið blað í Reykja-
vík og fengum jafnframt »bragðið« af fyrir-
lestri hans í »Fj.-konunni«, sem »forsmekk
©ptirkomandi gæða!« Þegar nú þessi 2 blöð
hætast við þau, sem nú eru, er hætt við að
islenzk alþýða hafi ekki við fleiri að gera.
Hjer hafa verið leiknir sjónleikir í vetur
og halda liklega áfram, en heppnazt hefir það
eins og von var á. Fólk hjer er ekki enn þá
leikið í þeirri list, frekara en sumstaðar ann-
arsstaðar á landinu. En húsrými til þeirra
hluta er betra en víðast annarstaðar.
Otto Wathne kvað ætla með konu sína nú
með »Cimbria« eða »Agli« til útlanda, en
þó ekki alfarinn, eins og altalað var í vetur,
enda var hann um áramótin kosinn hjer í
-bæjarstjórn.
Þrjátíu ára minning. Þann 23. nóv. f.
á. voru liðin 30 ár síðan Þorsteinn lceknir
Jónsson settist að í Vestmannaeyjum og hefir
hann stöðugt síðan verið hjeraðslæknir þar.
I tilefni af því færðu Eyjamenn honum á-
varp og sungu honum kyæði þann dag, og
þökkuðu honum eigi aðeins góða embættis-
faerslu um þennan langa tíma, heldur ogtyrir
það, hver máttarviður haun hefði verið fyrir
hag eyjanna með framsýni sinni, reglusemi
°g dugnaði, og hve skemmtandi og fræðandi
hann jafnan hefði verið, í fámenni sem fjöl-
menni.
Þorsteinn læknir Jónsson er fæddur 17
nóv. 1840 að Miðkekki í Flóa. Foreldrarnir
bláfátækir, en Guðm. heitinn Thorgrímsenkom
honutn til menpta. Stúdent varð hann 1862
og tók læknispróf hjá Hjaltalín 1865, hvort-
tveggja með 1. einkunn. Var svo skipaður
læknir í Vestmannaeyjum og fjekk veitingu
fyrir því embætti 1867. Hann var þingmað-
ur Eyjamanna 1887 og 1889. Sem dæmi þess,
hver nytsemdarmaður hann hefir verið ísinni
sveit, má geta þess sem fá dæmi munu til,
að hann hefir fengið því framgengt, að hrepps-
nefndin hefir lagt nokkurt fje í viðlagasjóð og
sett á vöxtu, þegar bærilega hefir látið i ári.
Hefir hreppnurr á þann hátt safnazt 2000 kr.
sjóður, og eru 500 kr. af honum í Söt'nunar-
sjóðnum. Þakka menn það þessari ráðdeild
hans, að ekki hefir þurft að taka .hallærislán
í eyjunum, þótt hallæri hafi komið.
Sögussfn ísafoldar. Því verður hag-
að þannig þetta ár, að það fylyir blaðinu,
jprentað sjer jafnóðum,, til kaupendanna i
heilum örkum, er þeir þurfa að halda sam-
an til árslokanna og fá þá titilblað við
þgð og yfirlit. Þar með sparast rúm í
blaðinu, og svo þurfa þeir, sem vilja eiga
sögurnar sjer í bók, ekki að k’.ippa þær
neðan af blaðinu.
Fyrsta öt k þ. á. Sögusafns fylgir þessu
tbl., upphaf sögunnar Sjöunda þrepið,
sem er mjög merkileg níhilistasaga.
Miðvíkudagana 26. þ. m., 11. og 25. n-
m. verður húseign dánarbús Sigurðar Fr.
Sigurðssonar við Norðurstíg hjer í bænum
eptir kröfu Kristjáns kaupmanns Þorgríms-
sonar, að undangengnu fjárnámi 20. þ.m.,
samkv. lögum 16. des. 1885, sbr. lög 16.
sept. 1893, boðin upp og seld hæstbjóðanda
við 3 opinber uppboð, sem haldin verða
kl. 11 f. hád. 2 hina fyrstnefndu daga á
skrifstofu bæjarfógeta og hinn siðastnefnda
dag í húsinu sjálfu, til lúkningar veðskuld
að upphæð kr. 400,81, auk aðfararkostn-
aðar.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstofu
bæjarfógeta degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Bæjarfógetinn í Reykjavik 22. febr. 1896.
Halldór Danielsson.
Uppboðsauglýsing.
Laugardagipn 29. þ. m. kl. 11 f. hád.
verður uppboð haldið i húsinu nr. 3 í Að-
alstræti til að selja stofugögn, þorðbúnað,
bækur, sængurfatnað, íverufatpað o. fl.,
allt tilheyrandi dánarbúi borgara E. Eg-
ilssonar. Söluskilmálar veröa birtir áður
en uppboðið byrjar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 22. febr. 1896.
Halldór Daníelsson.
Til heimalitunar
viljum vjer sjerstaklega ráða mönnum til
að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa
verðlaun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram, bæði að gæðum og iitarfegurð.
Sjerhver, sem notar vora liti, má örugg-
ur treysta því, að vel muni gefast.
í stað hellulits viljum vjer ráða mönn-
um til að nota heldur vort svo nefnda
»Castorsvart«, því þessi litur er miklu feg-
urri og haldbetri en nokkur annar svartur
litur.
Leiðarvísir á íslenzku i'ylgir hverjum
pakka.
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á
íslandi.
Bnchs Farvefabrik.
Studiestræde 32.
Kjöbenhavn K.
For Frimærkesamlere.
Enhver, der sender mig 100 godt blandede
islandske Frimærker, faar sendt retur 150
udenlandske Frimærker alle forskjeilige.
Mönsters Frimærkehandel.
Kjöbenhavn.
Selt óskilafje í Austur-Barðastrandarsýslu
haustið 1895.
í Geirdalshreppi.
1. Veturgamall geldingur, m.: stúfrifað h.
gagnh. v.
2. Hvitkollótt gimbrarlamb. m.: sneitt fr.
biti apt, h.; hvatt v.
3. Hvítkollótt gimbrarlamb, m.:',’ tvístýft fr.
h.; stúfrifað, biti apt. v.
1 Reykhólahreppi.
1. Hvítt geldingslamb, m.: gagnb. h.; 2 bitar
fr. v.
2. Hvítt geldingslamb, m.: stýft og 2 bitar
fr. h.
3. Hvítt geldingslamb, með sama marki.
4. Hvítt gimbrarlamb, m.: beilrilað b.; blað-
stý.'t apt. gagnb. v.
5. Hvítt hrútlamb, m.: fj. apt. h.; sneitt fr.
fj. apt. v.
6. Svart hrútiamb, m.: sneitt fr. fj. apt. h.;
sneitt fr. fj. apt. v.
7. Hvitt brútlamb, með sama marki.
8. Svartbosótt hrútlamb, m.: sneitt f'r. gagn-
bitað h.; hvatt v.
9. Svart hrútlamb, m.: stýft oggagubitað h.
10. Golsótt gimbrarlamb, m : sýlt og biti apt.
h.; sýlt og biti apt. v.
11. Hvítt gimbrarlamb, m.: biti apt. h.; blað-
stýft apt. v.
12. Hvítt hrútlamb, með sama marki.
13. Hvítt geldingslamb, markleysa á báðum
eyrum-
14. Hvíthyrnd ær, m.: stýft og gagnb. h.;
stýft og biti fr. fj. apt. v. Brennimark :
Samúel.
15. Hvítkollótt gimbur, veturg,, markleysa á
báðum eyrum.
16. Hvítkollóttur hrútur, veturg., markið á
bægra eyra likast stigi fr. og apt., og blað-
stýf't fr. biti apt. v.
17. Hvitt gimbrarlamb, m.: hamrað b.; hvat-
rifað v.
í Gufudalshreppi
1. Grátt geldingslamb, m.: sneift apt. h.; sýlt
lögg apt. v.
2. Þrjú lömb, með óla;silegum mörkum á báð-
um eyrum.
I Múlahreppi.
1. Lamþ,, m.: sneitt apt., vaglsk. fr. hd sneitt
apt. vaglsk. fr. v.
2. Lamb, m : gat h.; beilr. v.
í Flateyjarhreppi.
1. Hvítkollótt ær, m.: biti fr. b; sýlt v.
2. Hvíthyrnt lamb, m.: sýlt biti fr. h.; sneitt
apt. biti fr. v.
Rjettir eigendur geta vitjað andvirðishins
selda fjár, að frádregnum kostnaði, til hlutað-
eigandi hreppsnefndar innan júlímánaðarloka
þ. á.
Skrifstofu Barðastrandasýslu 21. jan. 1896.
Páll Einarsson.
Prjónavjelar.
Undirskriíáður hefir eins og hingað til
aðalumboðssölu fyrir ísland á hinum vel
þekktu prjónavjelum Simon Olsens og
eru vjelar þessar að líkindum þær beztu
sem fást.
Af vjelum þessum eru nú hjer um bil
40 í gangi hjer á landi, og hefi jeg ekki
heyrt annað en að öllum hafi reynzt þær
mjög vel.
Yjelarnar eru brúkaðar hjá mjer, og fæst
ókeypis tiisögn til að læra á þær. Þeir,
sem ekki nota tilsögnina, fá eptirleiðis vjel-
arnar 10 krónum ódýrari.
Vjelarnar sendast kostnaðarlaust á allar
þær hafnir, sem póstskipið kemur við á.
Nálar, fjaðrir og önnur áhöld fást allt af
hjá mjer, og verðlistar send,ast, ef þess er
óskað.
Áreiðanlegir kaupendur geta fengið borg-
unarfrest eptir samkomulagi.
Pantanir óskast sendar hið fyrsta til
P. Nielsen
_____________________Eyrarbakka._________
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu
brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað á
alla þá er telja ti! skuldar í dánarbúifyr-
verandi setts sýslumanns Sigurðar Pjeturs-
sonar á Eskifirði, að lýsa kröfum sínum
fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu og sanna
þær áður 12 mánuðir eru liðnir frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar.
Skiptaráðandinn i Suöurmúlasýslu
Eskifirði 11. jan. 1896.
A. V. Tuliuius.