Ísafold - 17.06.1896, Síða 2

Ísafold - 17.06.1896, Síða 2
 162 Þjóð vor á sem stendur nokkuð örðugt með að átta sig, og henni hættir við aS láta hug- fallast. ÞaServon; millibilsástandiS er venju- legast ískyggilegt. Þjóðin sjer hiS gamla vera aS hrynja, og hún sjer svo lítiS rísa á rúst- um þess. Hún sjer, að landbúnaðurinn er að "verða æ meiri og meiri örðugleikum bundinn, Hún sjer fislciveiðaviðleitni sína að allmiklu leyti ónytta. Hún sjer að innivinnan er aS leggjast fyrir óSal. Og erfiðleikarnir vaxa henni eðlilega þeim mun meira í augum, sem menn hafa vitanlega á hinum síðari áratug- um mjög almennt vanizt af þeirri sparsemi, sem áður tíðkaðist hjer á landi. En þetta millibilsstig hafa aðrar þjóSir stigið, og hafa klaklaust komizt inn á aðrar bi-autir. Það er engin ástæSa til að láta sjer vaxa í augum það sem fyrir hendi er, engin ástæða til aS ætla annað en þaS beri oss áfram til nýrrar og öflugri menningar. En vjer verðum að gera oss ljóst, að breytingamar eru fyrir hendi, aS vjer getum ekki haldið áfram á sama hátt og að undanförnu, þótt vjer viljum — getum það ekki með öðru móti en því, að sætta oss við megna apturfur og verða að aumingjum og viðundri veraldar. Þingmaðurinn í Grímstungu og Húnaflóa. Eptir alþm. Jón Jakobsson. II. (Niðurlag). Um kaupafólksílutninga þingmannsins með landskipinu skal jeg vera stuttorður, því fremur sem andmæli mín gegn fyrri grein hans í því efni standa að mestu ó- áreitt. Reikningur þingmannsins yfir þessi 300 manns er mjög fallegur —á pappírn- um. En hvarer vissan eða jafnvel líkindiu fyrir því, að skipið fái 300 manns til Skaga- strandar? Jeg man svo langt að ferðaá- ætlun hins sameinaða gufusk.fjelag3 var eitt vor í hinu bezta samræmi við kaupa- fólksþarfir Húnvetninga og Skagflrðinga. Skipið kom á Sauðárkrók í byrjun júlí- mánaðar rjett fyrir sláttarbyrjun, en hvað skeði? Auðvitað komu nokkrir með skip- inu, en samhliða komu einnig stórhópar af kaupafólki, sem heldur kaus landleið- ina, norður yfir Vatnsskarð niður að Víði- mýri, og voru þó Húnvetningar búnir að taka fullkomlega sinn bróðurpart af fólk- inu í leiðinni. Þetta er líka ósköp auð- skilið, því a.ð það er engin ástæða til að ímynda sjer að fólk hjeðan af' Suðuriandi, sem ætlar í sumarvinnu ekki lengri leið en t. d. norður í Húnavatnssýslu, kjósi fremur lengri ferð með skipum, sem koma víða við á leiðinni, en styttri ferð á hesti; sjóveg upp á Akranes og þaðan norður sveitir er ekki löng leið og þó enn styttri ef nota má gufubát upp í Borgar- nes, sem áður heflr mátt, og hesta hygg jeg, að eins sje hægt að fá til leigp uppi í Borgarfirði og á Mýrum eins og I Gull- bringusýslu. Hvað hestareikning kaupa- fólks snertir, þá hefir þingm. ekki gleymt aö hafa hann nógu háan, en hitt heflr hon- um láðst, að geta þess að kaupamenn og kaupakonur lána opt út hesta sína fyrir borgun að sumrinu, bæði vinnuveitendum sínum og öðrum, og fá á þann hátt höggv- ið skarð í leigukostnaðinn. Að hinu leytinu get jeg, þrátt fyrir svar B. S., alls ekki betur sjeð en að kaupa- fólki sje með þeirri strandferðatilhögun, sem nú er í ár, fullkoml. gefinn kostur á að nota skipin til ferða sinna, ef það vill. »Vesta« leggur af stað frá Reykjavik 11. júnf. 'Kemur við á Skagaströnd, Blönduós og Bbrðeyri 19. og 20. júni; aptur þann 22. sept. kemur Vesta á alla þessa sömu staði og til Reykjavíkur þ. 2. okt. Vilji einhverjir vera lengur fyrir (norðan, þá er þeim innan handar að’bíða þar til Thyra kemur 28. sept. til Skagasti an l r o? fara með henni til Reykjavíkur (komudagar í Reykjavík 6. október). Þótt komið sje nokkrufyrirsláttarbyrjunað vorinu.þá hygg jeg, að með því sje engu spillt, því svo þekki jeg vinnutólkseklu 1 Norðurlandi, að það er ekki til neins að bera það á borð fyrir mig, að kaupafólk ekkii eigi nokkurnveginn vissa atvinnuvon þar við vorverk í júnimánuði. En hvað það snertir að skipið, sem tekið getur kaupafólk, fari austur en ekki vestur fyrir land þá bið jeg þingmanninn að gætaþess, að það eru fleiri en Húnvetningar, sem þurfa að lifa Þingeyjarsýsla á t. d. miklu örðugra með að draga að sjer vinnukrapt af suðurlandi en Húnavatnssýsla, en sömu heimtingu á hjálpinni; fyrir hana er austurleiðin miklu álitlegri, fyrir Húnavatnssýslu aptur vestúr- leiðin, en skipið er ekki nema eitt ogörð- ugt verður að gjöra tvo mágana úr einni dótturinni. Þá kem jeg að síðustu að þvi atriði í greinum þingmannsins, sem mjer þykir einna kynlegast. Jeg hefði aldrei trúað því, ef jeghefði ekki sjeð það svart á hvítu, að nokkur Norðlendingur mundi verða til þess að lýsa óánægju sinni yfir marzferð landskip3ins. Jeg. álít þá ferð aðalkostinn við hina nýju landskipsáætlun og hjelt satt að segja að í norðurlandi mundi hvert mannsbaru geta litið þA ferð rjettu auga, þessa ferð, sem aðallega er gerð fyrir norð- urland. Jeg ætla, þar til jeg reyni annað verra, að ímynda mjer, að þingmaðurinn i Grím3tungu sje eina skynsemigædda veran milli Langaness og Hörns, sem eigi vilji sjá skip fyrir norðurlandi í marz- mánuði. Marzferðin var sett á ferðaðætlun landskipsins af mönnum, sem vissu að norðurland er það olbogabarn hinnar ís- lenzku náttúru, sem ætíð getúr átt von á að sjá hungursvofuna standa fyrir dyrum, fái það ekki byrgðir að vetrinum, áður en »landsins forni fjandi« lokar ströndum þess fyrir öllum aðflutningum. Það var skyida farstjórnarinnar að koma i veg fyrir að sumarið 1896 gæti orðið annað eins og sumarið 1882 í tilliti til bjargarskorts og þá skyldu leitaðist hún við að uppfylla. Jeg. efast ekki um að hr. B. S. muni eptir þvl sumri og þeim bjargarskorti, sem þá var á norðurlandi, þegar hafis hindraði því nær alla vöruflutninga í þann landsfjórð- ung þar til komið var fram yfir hðfuðdag. Mjer kann nú að verða svarað því, að þótt lándskipið komi að vetrinum til norður- landsins, þá sje í fyrsta lagi óvist, hvort sú ferð verði notuð til að flytja nauðsynja- vörur í þenna landsfjórðung og öðru lagi sje tvísýnt, hvort skipið geti komizt inn á norðurhafnir sökum íss. Til þessa liggja gþð svör og. gegp. Hvort kaupmenn I þessum landsQórðungi nota marzferðina til að afla sjer bjargræðis fyrir skiptavini sína, það er á þeirra ábyrgð, enn ekki farstjórnarinnar, enda ber jeg engan kvíð- boga fyrir slíku og þessa árs reynsla er búin að sýna, að sú ferð verður notuð að maklegleikum, þar sem Vestu bauðst meiri farmur en hún gat tekið á móti. Hvað hitt atriðið snertir, þá sýnir margra ára reynsla að bafíshættan í marz er því minni, því ver sem vorar og því verra sem sumarið er. í öllum verstu ísárum nú um mikinn árafjölda hefir isinn aldrei orðið landfastur við norðnrland fyr en í aprílmánuði, 1882, einhverju því versta ísári, sem liðið heflr yflr landið á þessari öld, ekki fyr en siðast í apríl, enda mjög óvanalegt, að hafís hindri skípagöngur á Norðurlandi fyrír aprílmánaðar byrjun. Hvað þörfiaa á skipi um þennan tíma snertir, þá virðast kaupmenn á Skagaströnd og B önduósi líta talsvert öðrum augum á hana en þingmaðurinn þeirra í Grimstungu, því þegar jeg kom norður í Skagafjörð um daginn, þá lágu á Sauðárkrók 70 tons af vörum til Skagastrandar, nær því ein- göngu kornvörur og aðrar nauðsynjar, sem »Egill« hafði flutt þangað úr »Vestu« frá Akureyri, enda var sagt, að vörubyrgð- ir mundu þá ekki hafa verið miklar á Blönduós. Þörfin á vöruskipi til norður- landsins að vetrinum er mikil fyrir alla og ekki sízt fyrir borgara og smákaup- menn, sem ekki geta búið sig svo út með vörur að haustinu, að þær nægi til vors- ins; um og eptir miðjan vetur fer opt að brydda á ýmislegum nauðsynjavöruskorti í kaupstöðum norðanlands og eptir þvi sem fram á líður verður vðruskorturinn almennari og á vorin má opt sjá kaup- staði mjög snauða að nauðsynjavöru. Skipsþörfin til norðurlands síðari hluta vetrar er því œtið mikil, en í verstu haf- ísárum hrein og bein lífsnauðsyn. Hvað snertir hættuna við þessa marzferð, sern sumum kann að vaxa í augum, þá er hún víst litlu eða engu meiri í marz en í okt- óber og nóvember, þvf Vanalega er miklú betra í sjó ura þetta leyti vetrar en I okt- óber og nóvember og dagur einnig orðinn lengri, þótt frost og hríðar kunni að vera nokkru meiri en fyrri hluta vetrar. Hr. B. S. rekur að síðustu endahnútinn á grein sína með því að vitna til reynslunnar í vetur um að marzferðin ekki borgi sig. Þetta hefði B. S. ekki átt að gjöra, þvf reynslan I vetur sannar einmitt það sem B. er að reyna að hrekja; ef maður yflr höfuð getur sagt að eins árs reynsla sanni nokkuð, þá sýnir reynslan I vetur, 1. að marzferðin er þörf, þar sem hún hefir bsett úr vöruskorti; 2. að hún gefur fullad farin og þar af leiðandi borgar sig; 3. sannar hún það sem vjer vissum áður, að marz er einkar hentugur tími til að flytja vðr- ur til norðurlands, áöur en íshroði eða íshella I apríl nær að tefja eða aftaka samgöngur við þennan landsfjórðung. Bil- un stýrisins á Eyjafirði I 5 þuml. þykkúm lagís og bezta veðri kemur mftli þessu ekkert við; það var óhapp, slys, og þar með er allt sagt, þvf að óhöppin ogslysin eru ófyrirsjáanlég og þess vegna verðttr aldrei mögulógt að trOða þeím inn í syndáre-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.