Ísafold - 30.09.1896, Blaðsíða 2

Ísafold - 30.09.1896, Blaðsíða 2
270 eSa kaupa tvö gufuskip, hvort um 150—200 smálestir (brúttó) að stærð, til þess að þau væru vel sjófær. Ætti annaS þeirra að fara fram og aptur á milli Seyðisfjarðar og Isa- fjarðar suður fyrir land, en hitt á milli hinna sðmu hafna norður fyrir. Auk þessara aðal- ferða ættu bæði skipin að hjálpast að, þegar mikið væri að gjöra á einhverju vissu svæði, þannig að t. d. NorðlendingaskipiS væri látiS fara eina ferð Vestur og suður í Faxaflóa til þess aS sækja kaupamenn norður, og ef tím- inn ieyfði aSra ferð suður fyrir land til þess aS hjálpa til með fólksflutning austur. Vest- ur- og suðurlandsbáturinn mundi eiga fullt í fangi meS flutninga um svæði það, sem hon- um er ætlað. Bátar þessir ættu aS sjá urn innanlands-flutning á mönnum og vörum og einnig ættu þeir að mæta aSalskipinu á helztu höfnum landsins og komast í samvinnu við það með flutning á erlendri og innlendri vöru til og frá hinum minní höfnum landsins. Þessi hugmynd hefði opt komiö fram í ræðum og ritum, og kostnaðurinn við þessar umbæt- ur mundi verða talsvert minni en kostnaður sá, sem nú er ætlaður fjórðungsbátunum. Farstjóri sýndi oss' heilmikið safn af skjöl- um og uppdráttum, og kvaðst mundu koma með ýmsar rökstuddar tillögur fram fyrir al- þingi næsta ár. „Fögur Reykjavík'1. Eptirfarandi kvæSi er lausleg þýðing (eptir ónefndan höf.) úr ljóðabók hinnar góðkunnu skozku hefðarfrúr, Mrs. Disney Leith. Er meira en helmingur bókarinnar kvæSi um ís- land eða þýðingar á Ijóðum eptr ísl. skáld (Stgr.Thorst.,13; Bjarna Thorarensen; Hallgrím Pjetursson; Jónas Hallgrímsson; Grím Thom- sen; Hannes Hafstein; Þorstein Gíslason), eSa yrkisefnið tekið úr fornsögum vorum, einkum Njálu. Lofdrápa um Beykjavík er vorri þjóð ný- næmi. HöfuSstaSur vor hefir átt lengst af fremur öðru að venjast en lofi eða oflofi, hvort heldur er í óbundnu máli eða bundnu, það er aS segja á vora tungu; en að það sje ef til vill minna nýnæmi á aðrar tungur, virð- ast eptirfarandi ummæli votta, er standa í feröabók prófess. Andreas Heuslers frá Berlín, er ferðaðist hjer í fyrra sumar víða um land, komst upp á Snæfellsjökul, Langjökul og víðar: »Fegurra en Reykjavík á Island ekkert til, og hvort nokkursstaðar sje fegurri skipalega, því verða þeir að skera úr, sem farið hafa um allan jarðarlmött vorn«. O fögur fold er Skotland með fljótum, heiðum, skóg, Og fögur er mín eyjan1 hin kæra mitt í sjó, Og enn þá fegri blettum um heiminn hermt er frá, En hver mun, Reykjavíkin! þinn vænleik málað fá? Um hávetur snjóhrönn má hylja þína slóð, En hvergi skærra sumar má vekja skáldsins óð, Er hláfjærð hafsins hrosir og blómgast túnin græn Um bólin þín hýrleg, ó Reykjavíkin væn! Þín dýrð er sjórinn signdur og sjór þitt forðabúr, Hann sveipar þig og auðgar og er þinn verndarmúr, Og roðafögur Esjan á verði vakir nær Þjer, vegleg Reykjavíkin! og tignarhragð þjer ljær. Ó purpur’-lituð Esja og himinhnúkar hlá, Sem hæðið alla pentlist og dúfna fiðurgljá, Ó grænu, hýru hólmar, ó grágrjóts fjörusvið, Um góðhól Reykjavíkur sem hálsmen leggist þið. Þvi liðna heyrir frægðin þíns alþings fornöld frá, En fegurð þú ert sveipuð, er tíð ei vinnur á, Því rík er þin dýrðin, sem rænir engin hönd, Ó Reykjavík! og hún er: þín fjallasýn og strönd, 1) Wight. Þig útlent vald má heygja og fjóna’ und fótum sjer Og flaggið útlent hlakta á stöngum yfir þjer, En synir þinir geyma i geði þrótt og tryggð, Þeir geri aldrei skömm þjer, sem þeirra’ er móður- lyggð. Þú, »eldgömul lsfold!« ei hug mjer hverfur úr, 0g haf sje okkar millum sem ástar-vörður trúr; Þið dveljið þar ógleymd,unz duptvist minni’ eglýk, Þú drottninglegt ísland og fögur Reykjavik! Landskjálfíarnir 1784. Það ætla menn verið hafa langmesta land- skjálfta hjer á landi, frá því er það bygöist, aðra en þá í sumar; en glöggur og áreiðan- legur samanburður þar í milli fæst eigi fyr cn fengnar eru nákvæmar skýrslur úr landskjálfta- sveitunum, einhvern tíma í haust; það er nú verið að safna þcim og meta skaðann. Glöggasta og rjettasta frásögnin af land- skjálftunum mun vera sú, er hinn ágæti fræði- maður dr. Hannes biskup Finnsson hefir skrá- sett í ritgerð sinni um mannfækkun af hall- ærum í 14. bindi Lærdómslistafjelagsritanna. Landskjálftarnir hófust 14. ágúst, og urðu þá mestir eða ollu mestu tjóni í Biskupstung- um, á Landi, í Holtum efri (Holtamanna- hreppi, sem nú er), á Skeiðum og ofarlega í Grímsnesi. Annan dag eptir, 16. ágúst, fór voðinn yfir Flóann, Olfus og Grimsnes neðan- vert. Landskjálftarnir hjeldu áfram, fyrst daglega og xnargir á dag, en síðan 2—3 í hverri viku, fram yfir jól, en gerðu ekki veru- lega skaða eptir þessa fyrstu daga (14. og 16. ág.), — »brutu og skemmdu enn meir hús«, stendur þar að vísu, en það mun hafa verið það sem áður var bilaö, og ekki er að minnsta kosti nefnt nokkurt eitt einasta bæjarhrun eptir þessa fyrstu daga tvo. Litlar urðu skemmdir austan Rangár ytri, miklu minni en nú; engra getiö á Rangár- völlum eða í Hvolhreppi nje í Landeyjum, en í Fljótshlíð löskuðust hús á 3 bæjum og sum fjellu alveg, og í MiSmörk, austan Markar- fljóts, fjellu 2 liús, og 2 löskuðust í Holti undir Eyjafjöllum. Að vestanverðu tók fyrir skemmdir, er kom að Hellisheiöi, eins og vant er, og lítiö varð um þær í Grafningi, Þing- vallasveit og Grímsnesi vestanverSu. — Það er ekki með tjóni tcljandi, þó að 1 hús brotn- aði í Kalmannstungu, 1 í Reykholtsdal og 1 í Kjós; það hafa verið ofan komnir kofar hvort eð var, eins og nú t. d. að 1 hús fyrir víst fjell á Ingunnarstöðum í Brynjudal, og lausa- sagnir um likt miklu fjær. Fyrir verulegu tjóni urSu í Rangárvallasýslu að eins 3 vestustu sveitirnar, sem nú eru, en þó varS ekki stórtjón nema í einni þeirra: Holtamannahreppi, sem nú er; þar fjell al- hýsi á 23 bæjum af 39, og 94 hús á hinum bæjunum 16, og 50 hús lömuöust svo, að lá við falli; Hagakirkja fjell —- var auðvitað moldarkirkja. Líklega er tjónið nokkuð minna í þeim hreppi nú. Þá fjellu 3 bæir í Holt- um neðri, er mun vera sama og Áshreppur nú, auka einstakra húsa allvíða; það er held- ur meira nú. Loks segir, að annað eins hafi fallið á Landi, þ. e. 3 bæir, m. m., og er þaS enginn samjöfnuður við það sem nú gerðist þar. Mun mega gizka á, þegar Rangárvellir og Hvolhreppur bætast við, að tjónið hafi 1784 íþeirri sýslu varla verið meira en þriðj- ungur á við það, sem oröiö hefir í sumar. Hins vegar er sennilegt eða vonandi, að í Árnessýslu sje tjónið minna nú en 1784. Þá gjörfjellu þar 69 bæir, en »gagnspilltust« 64, og 372 »fengu stórskaöa«. Enn fremur er í sóknaskjú-slunum talið að 1459 hús hafi »falh ið í grunn«, en þar við er að athuga, að þar- með er talið sumt af föllnum húsum á hinum gagnspilltu eða stórskemmdu bæjum, og gerir það auðvitað rugling í tölunum. Auk þessara 1459 föllnu húsa nefna skýrslurnar 212 nærri fallin og 330 stórskemmd. Þetta eru háar tölur aö vísu; en þó sízt. fyrir að synja, að þær verði eins háar nú. Því að ekki gjörfjellu 1784 í neinni sókn fleiri en 7 bæir mest, nema einni (Klausturhóla: 14); víðast ekki nema 1—4, og í sumum (10 sókn- um) alls enginn, þar á meðal Stóra-Núps, Kaldaöarness o. fl., þar sem nú hefir fallið fjöldi bæja; í Arnarbælissókn gjörfjellu þá að eins 3 bæir, en 4 gagnspilltust, og kveður sjálfsagt miklu meira að skemmdum þar í þetta sinn. Það er einkum Grímsnesið, sem miklu harðara hefir orðið úti þá en nú. Fjórar kirkjur í Árnessýslu »fjellu í grunn«: Reykja- dals (nú lögð niður), Hraungeröis, Laugardæla og Villingaholts, en 7 stórskemmdust. Þær hefðu að öllum líkindum fallið eins margar nú eða stórskemmzt, ef þær hefðu verið af torfi, eins og þá. Landslcjálftinn 14. ágúst (1784) varð um dagtíma, »milli nóns og miömunda, þá flestir. voru heim af engjum komnir til máltíðar; varð þvi stórfjöldi manna undir húsahruninu, sem með annara hjálp urðu að grafast út xxr rústunum. Margir komust lífs af, sem fyrir- manna sjónum sýndist eins og, upp á ýmis- legan máta, gripnir hefðu verið úr dauðans lclóm með guðs sjerlegri forsjón; einar 3 manneskjur ljetu lífið, og sú fjórða fékk. lít- inn skaða af marningu«. — Er þetta all-líkt því sem nú geröist, nema hvað nú kom fyrsti landskjálftinn um og eptir háttatíma. Líklega hefir þá eins og nú síðari hviðan (16.) ekki komið mönnum alveg eins á óvart og sú fyrri, og þorri manna því legiö í tjöldum þá. Lán var það í óláni nú, hve veðrátta var blíö og hagstæð vikum saman eptir að landskjálftarnir hófust, en þá (1784) »komu stór-rigningar, svo það sem fólk neyddist til að klöngra upp af húsum, var til kostnaðar, en engrar frambúðar; hlaut þó strax um slátt- inn að gerast«. Landspjöllum og öðrum vegsummcrkjum eða umbrotum í jarðveginum er með svipuöu móti lýst og nú. Fjöll ljeku á reiöiskjálfi. Moldarlög í hallanda brustu í sundur og runnu ofan á jafnsljettxx. Vestan í Vörðufelli á Skeiö- um, milli Hurðarbaks og Framness, voru ept- ir landskjálftann 14. ágúst taldar 36 nýjar skriður, þótt fáar væru þær stórar, vegna landslags þess, sem þar er. Gamlir hverir hurfu sumstaöar og nýir komu upp a.nnars- staðar. í Haukadal í Biskupstungum (þar sem Geysir er m. m.) voru einir 3 hverir á undan landskjálftunum, en 35 á eptir; margir- þeirra þornuðu smám saman upp aptur. Víða komu sprungur í jöröu. Flóð og vatnsdældir þornuðu upp, en harðvelli yarð að mýri. »Mað- ur, sem var í mýri að skera heytorf, sökk, meðan á landskjálftanum stóð, ýmist í vatn- inu upp undir knje, eða stóð á þurru«. Strandasýslu sunnanv. 20. sept.: Heyskap- artíminn, sem nú er á enda, heiir verið fremur óhagstæbur að því er vebráttu snertir. Um túnasláttinn var að visu allgób tíð og nægi- legir þurkar til þess ab töður hirtust hjer al- staðar vel, en síðan engjasláttur byrjabi hafa, ekki komið nema 3 þerridagar, sem teljandi eru, 4.—6. þ.m. Reyndar var áður húið að- hirba talsvert af illa þurru útheyi, sem all- mikill hiti hefir hlaupið í. Síðan um höfubdag

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.