Ísafold


Ísafold - 27.02.1897, Qupperneq 3

Ísafold - 27.02.1897, Qupperneq 3
47 Að plægja með hestum. Hinn 20. þ. ro. var haldinn aukafundur í Jarðræktarfjelagi líeykjavíkur, til þess að ræða um, hvernig nota mætti hesta, plóg og herfi meira en nú gjörist, viS jarðrækt í Reykjavík. Sigurður Þórólfsson húfræð. var frummælandi á fundin- um. Hann talaði um mannsaflið, hvað það væri d/rt í samanburði við dýraaflið og gufu- aflið, og kom með nokkur dæmi því til sönn- unar. Kvað hann allar siðaðar þjóðir leitast við að spara mannsaflið sem mest. Islending- ar væru eptirbátar annara þjóða í því sem öðru. Engra verulegra framfara í búnaðigæt- um vjer vænzt, á meöan að landsmenn hefðu ekki dáð í sjer, til að nota hin einföldustu og algengustu jarðyrkjutól, sem flestar siðaðar ])jóðir hefði um margar aldir notað við jarð- yrkju, svo sem plóg og herfi. Með skóflu, ristuspaða og torfljá kæmumst vjer ekkert á- leiðis að rækta jörðina, og það því fremur, sem vjer værum fámenn þjóð, og hefðum því litlum vinnukvöptum á að skipa. Þá talaði hann um plóginn. Gat þess, með- al annars, að hann væri ekki ný-uppfundinn; hann væri jafngamall verulegri akuryrkju. En mjög ófullkominn hefði hann lengi verið: gjörður allur úr trje, nema ristill og skeri. Forfeður vorir hefðu plægt með arðinum sáð- land sitt, eins og sögurnar bera með sjer. Arðurinn hefði verið hinn gamli ófullkomni plógur, sem endurbættur hefði verið á næst- liðinni öld, og enn þá væri til á stöku stöð- um í Norvegi, en mundi innan skamms líða þar undir lok, því járnplógurinn, eins og hann væri nú, margendurbættur, ræki hann frá völdum. En svo kæmi nú gufuplógurinn til sögunnar bráðum, því hann væri nú óðum að færast út. Því næst syndi hann, hver mismunur væri í því að vinna með plóg og herfi eða hand- tólum. A meðalgóðri jörð í sveit þyrftu 75 dagsv. til að sljetta dagsláttuna með hand- verkfærum. Hvert dagsverk metið 2 kr. 25 a.; eða dagsl. 168 kr. 75 a. En væri sljettað með plóg og herfi, yrði kostnaðurinn að eins 84 kr. 50 a., eða helmingi minna. I Reykjavík mætti gera það 90 dagsv. að sljetta dagsl. með handverkfærum á m/rlendi eða á nokkurn veginn grasi gróinni jörð. Hvert dagsv. metið 2 kr. 25 eða 202 kr. 50 aura sljettunin á dagsl. En með plógi, hestareku og herfi 60 dagsv.; 57 af þeim á 2 kr. 25, en 3 dagsv. plógmannsins á 3 kr. 50, og 6 hesta dagsv., hvert metið á 2 kr. Kostaði þá dagsl. 150 kr. 75 aura. Hann sagði, að víða væri jörðin því nær óplægjandi sökum bleytu og seigju. Þyrfti því að þurka jörðina áður en hún væri tekin til yrkingar. Það borgaði sig; því jörðin yrðifjrórri, og þyrfti því minni und- irburð, þegar sljettað væri, og gæfi þá af sjer hetra gras. Af því að jörð hjer væri víða gljúp, væru pípuræsi hentugust, og mundi það kosta um 70 krónur að þurka dagsláttuna með leirpípum, til grasræktunar. Garða sagði hann að mætti plægja, til mikils hagnaðar. Það mundi kosta hjer að stinga upp dagsláttu matjurtagarðs um 20 kr., en einungis 10 kr. væri hann plægður. Ekki taldi haun ráð fyrir fjelagið að eiga sjálft hesta til að lána fjelagsmönnum til plæg- ingar eða annara afnota við jarðyrkju. Það liefði svnt sig á meðan slíkt hefði viðgengizt, að það væri fjelaginn of d/rt. Fóðrið, fyrir utan hús og hirðingu, hefði kosrað 290 kr. handa 2 hestum 1894, en fyrir vinnu þeirra hefði fengizt um 100 kr; og líkt mundi það hafa verið hin árin, sem fjelagið hefði átt hestana. Mundi því hagfeldast að leigja 2 hesta til plægingar að vorinu, meðan plæg- ingar stæðu yíir, hjá einhverjnm í Reykjavík, eða þar í nánd, sem ætti góða hesta og vel alda. Það, sem fjelagið ætti einkum að gera, væri að kenna mönnum að nota hagfeld verkfæri til þess að ljetta undir með vinnunni, að vinna sem mest með sem minnstri fyrirhöfn. Þó ekkert annað væri unnið með því að brúka Plóg og herfi, en að ljetta af mönnum því þrælastriti, að pæla upp og berja í sundur jörðina með reku, þá væri mikið unnið. Það /<eri spor sem stígið væri í menningaráttina. Hitt væri skræiingja-vinnulag, sem þyrfti að *e8'gjast niður sein fyrst. Nokkrar umræður urðu á fundinum um þetta. Voru flestir því samdóma, að nauðsyn- legt væri að brúka hesta, plóg og herfi í fje- laginu, að svo miklu leyti sem kostur væri á. j>Slagverk« og gott neyzluvatn. Tvö nauðsynja- og velferðarmál fyrir höfuðstaðinn hafa keppt um fyrirrúmið á síðustu bæjar- stjórnarfundum. Annað var að fá »slagverk« svo kallað í klukkuna í dómkirkjuturninum, þ. e. umbúnað til að láta hana slá; gizkað á að það mundi kosta 700 kr., en hefði sjálf- sagt komizt upp í 1000 kr. Hitt var að fá gert svo við brunnana hjer í bænum, eptir tillögu hjeraðslæknis, að úr þeim fengist n/ti- legt neyzluvatn og hættulítið fyrir lieilsu bæjarmanna. Mátti eigi á milli sjá lengi vel, hvort málið fengi meiri byr, klukkuglingrið eða hitt. Svo lauk þó, að hringingartólið hlaut ekki nema 4 atkv. (Magn. Benjamínss., Halldór Jónsson, II. Kr. Friðriksson og dr. J. Jónassen), en marin fram ofurlítil fjárveiting til undirbúnings hitiu málinu, viðgerðinni á vatnsbólunum. Það leynir sjer elcki á öðru eins og þessu, að það var rneira en lítill glæpur að vilja fá hjeraðslækninn inn í bæjarstjórnina í vetur! Sútaö leður og skiim af öllum tegundum. Normalkaffi, Kartöflumjöl, Haframjöl, Hrisgrjón, neftóbak skorið og óskorið- Kvenn- vetrarskór, Danzskór, Buchwalds- tauin ágætu fást hjá Birni Kristjánssyni. Þeir heiðruðu bæjarmenn og aðrir, sem gera ætla vorpöntun hjá mjer, eru vinsamlega beðnir að gera pantanir sínar fyrir 20. marz. Eyðublöð undir pantanir fást hjá mjer. Reykjavík 27. febr. 1897. Björn K rist.jáiisson, Bakari. Duglegur maður einhleypur og reglusamur, sem nokkuð kann til bakaraiðnar, getur fengið góða atvinnu. Ritstj. vísar á. Baðliúsið í Reykjavík. Upp frá þessu verður það að eins opið 2 daga í viku frá morgni til kvelds, miðvikudaga og laugar- daga, — og er kvennfólki ætlaður tíminn kl. 5—8 á miðvikudögunum —; en hina dagana fram til hádegis fyrst um sinn. Með því að baðstjórastaðan er nú laus, eru þeir, sem hana vilja taka að sjer, beðnir að gefa sig fram sem fyrst við undirritaðau for- mann fjelagsins (hjeraðsl. Guðmund Björnsson) eða við ritstjóra ísafoldar. Reykjavík 25. febrúar 1897. G. Björnsson. Samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861. er hjer með skor- að á alla þá, sem telja til skuldar í dánarbúi Árna Eyþórssonar kaupmanns, sem andaðist hjer í bænum 2. þ. m., að 1/sa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í Reykja- vík áður 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birt- ingu þessarar innköllunar. Bæjarfógetinn í Reykjavík 25. febrúar 1897. Halldór Danielsson. Samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skor- að á alla þá, er telja til skuldar í dánarbúi ekkjunnar Guðrúnar Gísladóttur (frá Elliða- vatni) sem andaðist hjer í bænum 31. f. m., aðl/sa kröfum sínum og sanna þær fyrir skipta- ráðandanum í Reykjavík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu þessarar inn- köllunar. Með sama fyrirvara er skorað á erfingja hinnar látnu að gefa sig fram og sanna erfðarjett sinn. Bæjarfógetinn í Reykjavík 25. febrúar 1897. Halldór Danielsson. Hjer með tilkynnist sóknarmönnum í Reykja- víkursókn, að reikningshald dómkirkjunnar í Reykjavík er falið á hendur amtsskrifara Þor- keli Þorlákssyni, og verða þeir, sem greindil dómkirkju eiga gjöld að greiða, að snúa sjer í því skyni til nefnds amtsskrifara sem reikn- ingshaldara kirkjunnar. Suðuramtið, Reykjavík 25. febr. 1897. J. Havsteen. Undirritaðan reikningshaldara dómkirkjunn- ar er að hitta hvern virkan dag kl. 3—4 e. h. í Ingólfsstræti No. 7. Reykjavík 26. febr. 1897. I»oi‘kell Þorláksson. Brúðamunír þeir er haldið var lotterí um á »Kvennfjelagstombólunni« 13. og 14. þ. m., fjellu á töluna 8. Handhafi þessa lott- eríseðils er beðinn að snúa sjer til Olafíu Jó- hannsdóttir Skólavörðustíg Nr. 11. Herbergi með stofugögnum, í miðjum bæn- um, vill einhleypur, reglusamur piltur fá leigt nú þegar. Ritsj. vísar á. JARPT MERTRYPPI, veturgamalt, mark: blaðstyft fr. h., er í óskilum hjer í bænum, og er skorað á eigandann að vitja þess inn- an 14 daga og borga áfallinn kostnað fyrir hjúkrun þess og þessa augl/singu. Bæjarfógetinn í Reykjavík 26. febr. 1897. Halldór Daníelsson. Á næstkomandi vori fæst Ibúð í Barnaskólabási Seltirninga. Lysthafendur snúi sjer til brepps- nefndarinnar. Uppboðsauglýsing. Þriðjudaginn 9. marz næstkomaudi verður í Kirkjustræti 10 selt við opinbert uppboð talsvert af góðum sauðamör, saltað flesk frá Danmörku, bækur, kassar, tunnur, og margt fleira. Enn fremur verður selt á uppboðinu hlutabrjef í baðhúsi Reykjavíkur. Uppboðið byrjar kl. 11 f. m., og verða sölu- skilmálar augl/stir á undan uppboðinu, Langur gjaldfrestur. ltvík, 25. febr. 1897. Kristján Þorgrímsson. Jörðin Reykjahvoll í Mosfellssveit fæst keypt og til ábúðar í vor. Semja má við á- búandann. Með því að bú Finns kaupmanns Finnssonar hjer í bænum hefur í gær verið tekið til skipta- meðferðar sem þrotabú eptir kröfu skuld- heimtumanna hans, er hjer með samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 skorað á alla þá, er telja til skuldar hjá nefndum kaupmanni, að 1/sa kröf- um sínum og sanna þær fyrir skiptaráðand- anum í Reykjavík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu (3.) birtingu þessarar inn- köllunar. Bæjarfógetinn í Reykjavík 19. febr. 1897. Hallúór Daníelsson. Verzlun W. Fischers Nýkomið með sLiaurat. Baðmeðul ágæt með ísl. notkunarfyrirsögn. Steiuolíuofnar, steinolíumaskínur. Olíukápur, Olíubaxur, Olíusvuntur. Margarine, mjög gott. Reyktóbak, sjerstaklega gott, margar tegund- ir, sem ekki hafa flutzt hingað áður. Whisky ágætt, tvær tegundir. Sardínur, Anchovis. Svínslæri, reykt. Kirsibersaft, Hindbersaft. Pickles.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.