Ísafold - 22.05.1897, Blaðsíða 2

Ísafold - 22.05.1897, Blaðsíða 2
134 Jeg veit að Kaupfjelag Reykjavíkur hefir skipt við kaupmann þar á staðnum, eins og »Dagskrá« vill vera láta; en jeg hefi eklci ny- lega sjeð skyrslur um starfsemi þessa fjelags nje nokkurn samanburð, er syni, að viðskipta- menn þess hafi eins mikinn eða meiri hag á viðskiptunum við það í samanburði við við- skipti einstakra manna við kaupmenn í Reykja- vík, eins og menn hafa í kaupfjelögunum út um landið í samanhurði við viðskipti við kaupmenn á þeim stöðum. Það væri fróð- legt að fá skýrslur um þetta. Raunar er nú ekki því til að dreifa, að vorir innlendu kaupmenn geti enn sem komið er tekið að sjer viðskipti við kaupfjelögin með sama móti og núverandi umboðsmenn þeirra. Kaupmenn hafa hingað til ekki selt sauðfje erlendis; þeir hafa haft til þess umboðsmenn eins og kaupfjelögin. Jeg sje engan gróðaveg við það fyrir bændur, að kaupmenn annað- hvort kaupi fjeð af þeim, eins og þeir hafa gjört og jafnan gefið minna fyrir en kaupfjelög- in, sem og er eðlilegt — eða þá tækjn fjeð af bændum í umboði og feagju það svo öðr- um umboðsmanni til sölu. Það virðist mjer vera að eins til að fjölga milliliðum milli fram- leiðanda og neytanda. Og menn eru þó allt af að tala um að fækka þeim. »Dagskrá« segir, að markaður kaupfjelag- anna sje bundinn; en hún segir það ekki satt, sem betur fer. Þegar kaupfjelögin sitja í skuldum við umboðsmenn sína ár frá ári, má segja, að þetta sje að nokkru leyti satt, en þó ekki að öllu leyti, nema sannað sje, að skuldirnar sjeu svo miklar, að fjelögin geti ekki losað sig úr þeim með góðu móti. En engu slíku hefir verið til að dreifa nokkur undanfarin ár. Fjelögin hafa víst flestöll verið alvegskuldlaus á nýjári hverju við umboðs- mennina næstl. 3 ár, og þá er markaður þeirra alveg óbundinn. Þeim er þá fullkomlega hægt og heimilt að taka sjer hvern þann viðskipta- mann á nýjári, sem þeim lízt bezt á. Og vorir innlendu kaupmenn eru allt af við hönd- ina, ef þeir treysta sjer til að bjóða betri kjör en fjelögin geta fengið annarsstaðar. »Dagskrá« segir líka að verzlun kaupfjelag- anna sje einokun. Þá versnar nú sagan. Það er annars mjög einkennileg einokun, sem kaup- fjelagsmennirnir verða fyrir. Þeir græða 25 —35°/0 árlega á viðskiptum sínum í fjelögun- um, til móts við þá verzlun, sem þeir eiga kost á hjá kaupmönnum, — vorum innlendu kaupmönnum. — Og kaupfjelögin og umboðs- menn þeirra verzla í frjálsri samkeppni við alla kaupmenn landsins, og þeir og þau aptur við alla kaupmenn heimsins, því mark- aður vor er opinn öllum þjóðum. En það er einokun samt, segir Skráin. »Dagskrá« segir, að kaupfjelögin sjeu milli- bilsástand milli selstöðuverzlunarinnar gömlu og innlendrar kaupmannaverzlunar. Það er spádómur, sem jeg vona — eptir öllum líkum — að aldrei rætist. Fyrst og fremst sýnast kaupmenn vorir ekki mjög líklegir til að verða innlendir í raun og veru, að fáeinum undan- teknum. Flestir þeirra pota sjer til kóngsins Kaupmannahafnar, þegar þeir eru orðnir svo efnaðir, að þeim þykir það fært. Vera má að þetta komi af staðháttum vorum. Jeg skal ekki ræða um það; en svona er það. I öðru lagi — og það skiptir mestu máli — er sú stefna að ryðja sjer til rúms í öðrum löndum, að gera milligöngu kaupmanna milli framleiðanda og neytanda að miklu leyti óþarfa. Menn eru farnir að leitast við að ljetta þeirri fyrirhöfn af kaupmannastjettinni, og hafa hana sjálíirá hendi í samlögum, til þess auðvitað að njóta sjálfir þess hagnaðar, sem af þessu leiðir. Til- raunir þær, sem gerðar hafa verið, og sem telja má að komizt hafi fyrst á rjettan rek- spöl á Englandi 1844 með Roohdale-fjelaginu, hafaheppnazt svo vel, að flestum, sem til þekkja, mun nú sjáanlegt, að kaupmenn hljóta smám- saman að sleppa miklu af því verzlunarvaldi, sem þeir hafa áður haft, og gefa það í hend- ur samlögum framleiðanda og neytanda sjálfra. Kaupfjelagsmennska vor, sem að vísu er enn- þá stórgölluð og ófullkomin, mun smámsaman færast í rjett horf, en trauðla leysast upþ við búðarborð kaupmanna. Auðvitað er þetta líka spádómur, en fyrsti fjórðungur næstu aldar sýnir líklega hver hjer verður langsjeðastur. Vörukaup öll í V. D. næstl. ár voru ná- lægt 89,900 krónur, og ef maður reiknar lík- an hag í öllu fjelaginu og keniur fram við samanburðinn, sem hjer er sýndur, þá nemur það 31,995 krónum, sem fjelagið hefir grætt á viðskiptunum á þessu ári, þrátt fyrir það, að fjelagið verður að borga háa vexti til um- boðsmanna sinna, þar eð það á engan verzl- unarhöfuðstól. Þessa upphæð hefðu því fje- lagsmenn getað lagt í stofnsjóð til vörukaupa næsta ár, ef þeir hefðu tekið þá stefnu, og verið þó alveg jafnvel staddir að öðru leyti eins og aðrir á fjelagssvæðinu, sem verzlað hafa með jafnmikla upphæð við kaupmenn. Og hvað myndi svo leiða af því, ef menn legðu þann hagnað, sem menn hafa af fjelags- verzluninni, eða meiri part hans, til hliðar nokkur ár. Því er auðsvarað. Innan fárra ára gætu þessir menn keypt allar sínar nauð- synjar fyrir borgun út í hönd, rekið verzlun sína sjálfir, og notið alls þess hagnaðar, sem kaupmenn nú hafa af verzluninni við þá. Olafsdal, 17. apríl 1897. Torfi Bjarnason. Flensborgarskólinn- Þar hafa verið 35 nemendur síðastliðinn vetur, í kennara- deildinni 7 (af þeim 3 kvennmenn), og í gagn- fræðaskólanum 28 (af þeim 4 kvennmenn). Þessir tóku kennarapróf: 1. Finnbogi Jóhannsson: dável í verklegu, dável í bóklegu. 2. Helgi Guðmundsson: vel til dável í verkl., dável í bóklegu. 3. lngunn Daníelsdóttir: dável í verklegu, dável til vel í bóklegu. 4. Jakobína Jakobsdóttir: vel til dável í verk- legu, vel til dável í bóklegu. 5. Kristján Sigjusson: dável til ágætlega í verklegu, dável í bóklegu. 6. pórey Árnadóttir: dável í verklegu, dável til ágætl. í bóklegu. Burtfararpróf frá gagnfræðaskólanum tóku 14: 1. Sigríður Ólafsdóttir, dável 4- (5.44); 2. Bjarni Jónsson, dável + (5.42); 3. por- leifur Helgason, dável + (5.23); 4. Gunnar Egilson, dável + (5.21); 5. Guðmundur Arna- son, dável + (5.21); 6. Gunnlaugur Jómsson, dável (5.11); 7. Sigurður Bjarnason, dável + (4.79); 8. Úlafur Guðjónsson, dáv. + (4.61); 9. Steingrímur Torfason, dável + (4.61); 10. Guðni porláksson, vel + (4.48); 11. Runólfur porsteinsson, vel + (4.44); 12. Helgi Eiríksson, vel + (4.27); 13. Eirikur Beck, vel (4.13); 14. Sigurjón Gunnarsson, vel (3.96). Prófdómendur í kennaradeildinni voru þeir skólastjóri Morten Hanseti í Reykjavík og síra Jens Pálsson í Görðum. Húnavatnssýslu vestanv. 10. maí: Eptir mjög hagstæðatíð i allt vor (optast logn og þur- viðri) brá til norðanáttar með frosti laugardag 1, maí. Daginn eptir var norðan-stórhríð með mikilli fannkomu og frosti. Síðan hefir norðan- átt haldizt, opt hvöss og jafnan frost og snjó- gangur. Áður en tiðarfar hreyttist, var all-víðast húið að sleppa fje. Þó hafa engir skaðar til muna orðið í þessu byggðarlagi; vantar á sumum bæjum 2—3 kindur. Margir munu vera orðnir heylitlir, því vegna þess, hve heyin voru slæm, hefir mikið þurft að gefa af þeim. Ekki er hey- leysi samt almennt, en einkum mun víða vera skortur á góðu heyi, sem að gagni komi handa lambám, ef tíðin helzt svo, að þeim þurfi lengi að gefa. Siðari part vetrarins og í vor hefir fjárkláð- ans orðið vart á mörgum bæjum, þó hvergi hafi mikið að honum kveðið, og enginn samjöfnuður við það, sem verið hefir. Sje hugsað til að út- rýma kláða, dugir fráleitt annað en baða tvisvar með hæfilegu millihili, og einnig ríður á að hað- meðulin sjeu vel valin. Hjer í grennd var því nær eingöngu baðað úr karbólsýru, hlandaðri þannig, að 1 pottur var hafður á móti 40—50 pottum vatns og 1 pd. grænsápu. Þetta reyndist mjög vel og varð hvergi tjón að. En á stöku hæ í Húnavatnssýslu hafði kreólín verið notað og er kláðinn sagður á þeim baéjum engu minni en undanfarin ár. Horfellissögur berast nú víös vegar að nokkiiö'. Mjög illa látið af úthreppum Borg- arfjarðarsýslu, einkum sumum bæjum í Skil- mannahreppi. A einum bæ í Þingvallasveit, Stíflisdal, hjá Jóni bónda Asmundssyni, var að sögn skilríks manns meira en 40 fjár dautt úr hor í öndverðum þessum mánuði, og lcýrn- ar 3 hjer um bil reisa. Landskjálftar. »Tvívegis hefir orðið vart við landskjálfta hjer í vor«, er skrifað úr Hrútafirðinum 10. þ. m.; »fyrra skiptið 25. apríl kl. nær 8 e. h., og í hitt skiptið 3. maí kl. 5.6 e. h. Heyrzt hefir hingað, að land- skjálfta hafi orðið vart á Blönduós hina sömu daga«. Fyrri landskjálftans er ekki getið í brjefum norðan Vatnsskarðs. En um hinn síðari, 3. maí, er getið í brjefi úr Eyjafirði, og sagt, að hann hafi verið töluverður. Dálítil hræring snörp hafði fundizt á nokkrum bæjum í Olfusi 11. maí um kveldið. Aílabrögð- Engin vera í þeim hjer um flóann. Þó að örlítið lifni við í bili, hverfur það óðara aptur. Vetrarvertíðarhlutir urðu í Þorlákshöfn sem hjer segir: hæst 1040, minnst 460; meðal- hlutur um 700, þar af hjer um bil 2/s þorsk- ur. Drukknan Th. Amlie’s. Skipið, hvala- báturinn, sem þeir Amlie og hans fjelagar drukkn- uðu með á leið hingað til lands snemma í f. m., hjet »Jarlinn*, að því er kunnugur maður skýrir frá, en ekki »Elliði«; — hát með því nafni á L. Berg við Dýrafjörð. Jón Olafsson, f. ritstjóri, talar í Gr.-T.-húsinu annað kveld kl. 8*/2 og segir frá Ameriku. »Guðspjall aldamótanna«. Vegnaminog allrar hinnar islenzku þjóðar leyfi jeg mjer að flytja hinum dágöfga og stóræruverðuga smekk- manni, gagnrýni, »genealog« og ritstjóra Hannesi Þorsteinssyni, stjúpföður »Þjóðólfs«, mitt veika þakklæti fyrir allt hans þýðingarmikla bókmennta- starf í blaði því, þar sem hann reisir sjer á föstu- degi hverjum hvern lofköstinn eptir annan, sem aldrei mun fyrnast og timans tönn aldrei vinna á. Fyrst og fremst þakka jeg honum þó fyrir ferða- pistlana, þetta framúrskarandi listaverk, guðspjall aldamótanna, sem verðugt væri að greypast gullnu letri á silfurspjöld, er hengt væri upp í öllum

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.