Ísafold - 22.05.1897, Blaðsíða 3

Ísafold - 22.05.1897, Blaðsíða 3
135 musterum þessa lands. En siðast en ekki sizt ber að lofa hann og vegsama fyrir smekkvisina og mannúðina o. s. frv. í niðurlagi pistlanna um frúrnar A. og N., um leið og jeg leyfi mjer að fullyrða, að ekki gefi slikt að lita i bókmenntum vorum allt ofan frá ddgum Leirulækjar-Eúsa og enda þó lengra væri leitað Hefði jeg hugmynd nm, að meðmæli min hefðu nokkurt gildi, mundi jeg mæla með því, að ritsnillingi þessum yrði veittur sá heiðnr, að hljóta fyrstum allra ritlaun þau fyrir listaritverk, sem ákveðín eru með erfða- skránni hans Alfreds Nobels. En eitt er að vilja, annað að geta. Yerð jeg því að láta mjer nægja að biðja alla landa mína, alla fyrir einn og hvern einstakan sjer í lagi, að taka undir með mjer og syngja: 0, að jeg hefði 18 munna, að yrkja lof um Hannes minn. Lesandi «1‘jóðólfs*. Uppboð á timbri o. fl. Mánudagimi 24. þ. mán., kl. 12 á hádegi, verður við opinbert uppboð, sem haldið verður hjá Iðnaðarmannahúsinu hjer í bænum, selt töluvert af timbri, tómar tunnur, o. fl. tilheyr- andi Iðnaðarmannafjelaginu. , Fjelagsstjórnin. Nýtt íslenzkt smjör fæst í verzlun Jóns pórðarsondr. Vel mjólkandi og vel feit kýr, káljlaus, fæst keypt siðast í júní í Bankastræti 7. Vinnukona, dugleg og hirðusöm, vöu barnapössun, inni- vinnu og matreiðslu, getur strax fengið vist í kaupstað. Nánari upplýsingar fást hjá hr. Jóni Norðmann, er semur um vistarráðin. Allir þeir, sem ætla að verzla í Kaupfje- lagi Framfarafjelagsins, er áríðandi að mæti sunnudag 23. þ. m., kl. 4 e. hád. í Fram- f arafj elagshúsin u. Nefndin. Öllum þeim, er veittu mjer hjálp í hinni löngu sjúkdómslegu manns rníns sáluga, Jóns Magnússonar, og nú síðast við útför hans, votta jeg mitt innilegasta þakldæti. Digranesi 19. maí 1897. Ásbjörg porláksdóttir. Flensborgarskóiinn. Þeir, sem ætla að sækja um skóla næsta vetur, hvort heldur til að hlýða kennslu í gagnfrceðaskólanum eða kennaradeildinni, verða að hafa komið skriflegri beiðni um það til undirskrifaðs fyrir ágústmánaðarlok í sumar. I skólahúsinu verður 10 piltum veitt ókeypis húsnæði; þeir, sem vilja njóta þeirra hlunn- inda, verða að taka það sjerstaklega fram í umsóknarbrjefum sínum, að þeir æski þess. Ef einhver umsækjandi getur ekki fengið aðgöngu vegna rúmleysis, verður honum til- kynnt það skriflega, en þeir, sem ekkert svar fá, eiga að koma 1. október í haust. Flensborg 19. mai 1897. Jón Þórarinsson- Til verzlunar W. fISCHERS í Reykjavík kom í dag Kalk. Cement. r Agætar kartöflur. Mikið af nauðsynjavöru, og alls konar annari vöru. Nýprentað og nýkomiðíbókaverzlun Sigf. Bymundssonar Brúökaupslagið eptir Björnstjerne Björnson, í íslenzkri þýðingu eptir Bjarna Jónsson frá Vogi- Kostar í kápu 60 aura. Bók þessi verður send öllum útsölumönnum Bóksalafjelagsins með fystu ferðum. Ný búð. Nýjar vörur. IVý álnavörubúð verður opnuð í Ensku verzluninni 16 Austurstræti 16 á mánudaginn þann 24. þ. mán. Inngangur um austurdyrnar. ÞAR FÆST: Kjólaefni — Svuntuefni —- Fataefni. Hálfklæði — Yfirfrakkaefni. Sirz, margar tegundir, falleg og ódýr. Hvítt ljerept og óbleikjað ljerept, margs konar. Flonel og Flonelet — Tvisttau, margs konar. Silkiflauel — Bómullarflauel — Plyss. Gardínuefni, margar tegundir. Ullarsjöl •— Herðasjöl. Regnkápur handa konum og körlum. Prjónaðar treyjur og vesti — Lífstykki. Borðdúkar—Servíettur—Rúmteppi hv.og mislit. Yasaklútar - Handklæði - Regnhlífar-Sólhlífar. Ullarnærbuxur og nærskirtur. Blúndur — Pique — Sængurdúkur. Nankin — Fóðurefni — Ermafóður. og margt fleira, sem of langt yrði að telja upp. W. G. Spence Paterson. í ensku verzluninni 16 Austurstræti 16 fæst Gólf-vaxdúkur — Borð-vaxdúkur — Hefiltann- ir — Sporjárn — Þjalir —Sagir — og margt fleira af hinum alþekktu ensku smíðatólum. Emailleraðar kasserollur, katlar, o. fl. Bolla- bakkar — Gólfteppi — Gólfteppaefni. Bollapör, diskar, krukkur, skálar, könnur þvottastell, tarínur, sósuskálar, kartöfluföt, sykurker, rjómakönnur, smjörkúpur og alls- konar leir- og gler-vörur. Kaffibrauð og kex, margar nýjar tegundir. Nauðsynjavörur alls konar — Nýlenduvörur Lemonade alþekkta — Benvorlich Whisky — Niðursoðið kjöt — Ananas — Perur — Sar- dínur — Reyktóbakið fræga — Rjól — Skraa- tobak — Hindber — Jarðarber, og fleiri Sylte- tau-tegundir. Allar vörur góðar og ódýrar. W. G. Spence Paterson. »LEIÐARYISIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.med. J. Jónas- sen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. Vasaklútur, ' lykill og peningabudda með peningum í hefir týnzt á götunum. Ritstj. vísar á eigandann. „Vesta‘‘ til Austfjarða. Samkvæmt ferðaáætluninni fer eimskipið »Vesta« frá Reykjavílt 10. júní suður fyrir land til Austfjarða. Auk þess kemur það við á þessum höfnum til þess að taka farþega austur: Akrancsi, Hafnarfirði oj Keflavík. Skipið kemur á þessar hafnir miðvikudaj- inn þ. 9. júní eða seinna, ef skipið hefir tafizt. Heitt vatn geta farpegar fengið á skipinu tvisvar á dag ókeypis. Eimskipaútgerð hinnar íslenzku landsstjórnar D. Thomsen farstjóri. Brúkuð frímerki keypt háu verði, þannig: 3 a. gul kr. 2,75 16 a rauð kr. 15,00 5 - blá — 100,00 20 - lifrauð...— 40,00 5- græn — 3,00 20 - blá - 8,00 5- kaffibrún— 4,50 20- græn.... — 14,00 6- grá — 5,00 40- — ....— 80,00 10- rauð — 2,50 40- lifrauð...— 12,00 10- blá — 8,00 50- ... 40,00 16- kaffibrún—- 14,00 100- ... 75,00 Allt fyrir hundraðið af óskemmdum, þokka- legum og stimpluðum frímerkjum. Ef þess verður óskað, fást 2/s hlutar borgunarinnar með eptir-tilkalli. Annars verður borgun send með næstu póstferð. Olaf Grilstad, Trondhjem, Norge. Þeim, sem ganga vilja í nýstofnað fjelag til eflingar hjólreiðum, er hjer með boðið að koma á fund á »Hotel Island« næsta mánudag kl, 5 e. hád. til að ræða og samþykkja lög þess, kjósa stjórn þess o. s. frv. Reykjavík 22. maí 1897. Guðm- Björnsson- Pálmi Pálsson- H- Andersen. G Finnbogason. Whisky Einkaumboð á íslandi Whisky fyrir eina af hinum elztu og beztu Whisky-verksmiðjum á Skotlandi hefir Tlior Jensen, sem því selur bæði í stór- og smákaupum ýmsar ágætar Whiskv-tegundir með Whisky óvanalega lágu verði. Whisky Fineste Skandinavisk Export KaffeSurrogat er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibætir, sem nú er í verzlaninni. Fæst hjá kaupmönnum á íslandi. F. Hjorth & Co, Khöfn. Veðurathuganir íReykjavík, eptir Dr. J. Jónassen maí Hiti (A Celsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt 6» h*»m. | um v>ru m. ■ í. Ld.15 + 5 + 7 746.8 756.9 Svhvd V h d Sd. 16. + 6 + 7 759 5 762 0 V h b V h b Md.17. 4- 4 + 8 772.2 774.7 V h b O b Þd. 18. + 5 + 9 772.2 767.1 Sa h b Sahvd Mv.19. + 6 + 8 767.1 767.1 0 d 0 d Fd.20. + 7 + 10 767.1 764 6 Sa h h Sa h d Fd. 21. + 6 + i0 764.5 764.5 Sahvd S h d Ld. 22. + 7 7(54.5 S h d Hefir verið við sunnanátt umliðna viku meb talsverðri úrkomu og hlýindum svo jörð het'ur óðum. I morgun (22.) rjett logn, sunnanvaii dimmur.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.