Ísafold - 29.05.1897, Page 2

Ísafold - 29.05.1897, Page 2
142 Akvæðin í tilskipun 4. maí 1871 um við- auka við tilskipun 5. janúar 1866 um fjár- kláða og önnur næm fjárveikindi á Islandi, að því er virðing eða mat snertir á þeim kind- um, sem skera ætti, og skaðabætur fyrir nið- urskurð, finnst mjer ekki geta verið til fyrir- stöðu þessu; því að um það leyti árs ætti ekki að þurfa að bæta, þó að skornar væru nokkr- ar kindur á stöku bæ, en vonandi, eptir því sem að undanförnu hefir verið, að hjá engum þurfi að skera margt; kæmi það fyrir, að skera þyrfti hjá einhverjum fjáreiganda, t. d. 10 af 100 eða meira, ætti hreppsfjelag að bæta hon- um lítið eitt, án þess að matsgjörð eða annan kostnað þyrfti að við hafa. Mýrum, í april 1897. Jón Hallsson. * * * Tillagan um að skera kláðakindur, er vart verður við innan um annað heilbrigt fje við haustskoðanir eða snemma vetrar, er í sjálfri sjer fremur hyggileg en hitt, með því að sjaldn- ast er mikill skaði að skera nokkrar kindur af mörgu fje í haustholdum eða áður en farið er að eyða í það innigjöf, — hefði ekki höf. bætt því við, að það eigi að vera til þess að komast já að tvíbaða; því það er hætturáð, vegna þess, að það eru ekki einungis þær kind- ur, sem kláði er kominn út á við skoðun, er hinu fjenu stendur háski af, heldur ekki síður hinar, sem enginn kláði finnst á, þegar skoðað er, en har.n kenmr svo upp skömmu síðar, þrátt fyrir hið eina ónóga bað, án þess að því sje veitt eptirtekt í tíma. Getur með þeirri aðferð gengið svo koll af kolli allan veturinn, að allt af sje verið að smáskera öðru hvoru, eptir því sem kláðinn kemur fram, með því að hann fær ávallt tóm til að sýkja frá sjer. Það er tóm skammsýni, að vilja sneiða hjá að tvíbaða hvar sem nokkurs kláða verður vart eða grunur er um hann. í stað sparnaðar leiðir slíkt til aukins kostnaðar, margverknað- ar og tryggingarleysis. Að öðru er þetta þörf hugvekja hjá hinum heiðraða höf. Ekki mun af veita, þótt brýn- ingin sje árjettuð bæði einu sinni og tvisvar, og þótt það væri 10 sinnum. Biflíuijóðin og Dagskrá í Dagskrá I, 80—81 stendur svar gegn grein minni um Biflíuljóðin og Dagskrá hjer í blaðinu. Þetta svar er ekki annað en órökstuddar staðhæfingar og sleggjudómar, eins og hver getur sjeð, sem vill bera saman greinar okkar beggja, og er því í raun rjettri ekki svara vert. Það er að eins eitt atriði, sem/jeg finn ástæðu til að fara um nokkrum orðum. Dagskrá hafði í hinum firstu grein- um sínum fundið að því, að sjera Valdimar á einum stað hafði forsetninguna á sem rímorð. Gagnvart þessu síndi jeg fram á, að slíkt væri altítt hjá hinum bestu íslensku skáld- um, og tók íms dæmi úr Passíusálmunum og kvæðum Jónasar Hallgrímssonar. Dagskrá segir nú, að Passíusálmana sje ekkert aðmarka, því að hún telur »Hallgrím gamla« með »ó- fullkomnum fortíðarskáldum«. Dagskrá um það! Enn á Jónas Hallgrímsson minnist »skráin« ekki einu orði, enn segir að eins, að slík vísuorð (o: með á sem rímorð) »sjáist varla í vönduðum kveðskap nútímaskálda«. Eitt af tvennu! Annaðhvort telur Dagskrá ljóðmæli Jónasar ekki með »vönduðum kveð- skap«, eða hann er að hennar dómi orðinn of gamall til að teljast með »nútímaskáldum«. Jeg ætla þá að gera Dagskrá það til geðs, að tína nokkur dæmi úr kvæðum þess manns, sem nú er talinn mestur rímsnillingur allra hinna ingstu skálda, Þorsteins Erlingssonar. I »Þirnum« hans má finna mörg dæmi þess, að forsetningar eru hafðar sem rímorð, t. a. m. í kvæðinu um Rask þrisvar sinnum (Þirn- ar 6.—7. bls.): 1. »og mirkviðrin umliðnu 'úldunum frá<(, 2. »en hamingja íslands þá eigði þig hjá<(, 3. »það blóð, sem þeir þjóð vorri útsugu af<(. í »Arfinum« tvisvar (Þirn- ar 7.—8. bls.): 1. »og vínið þar bjartara skál- unum á«, 2. »níðingahnúarnir gengu honum á((. í »Lágnætti« (Þirnar 13.—15. bls.): sex sinnum, þar á meðal er þessi indisfagra og vel orta vi'sa: Sljettu bæði og Horni hjá heldur græðir anda, meðan hæðir allar á aftanklœðum staDda. Og svona gæti jeg haldið áfram. Jeg hef hjer bent á 11 dæmi að eins á 15 firstu blað- síðunum í kvæðasafni Þorsteins. Ef Dagskrá er ekki ánægð með Þorstein, þá get jeg bent henni á eitt skáld, sem jeg vona, að liún taki gott og gilt og álíti eftirbreitnisvert í alla staði. Þetta skáld er Einar Benediktsson. í Sunnanfara (I, 18.—20. bls.) er prentað kvæði eftir hann um hvarf sjera Odds frá Miklabæ. Þar koma fyrir sex dæmi þess, að forsetning er höfð sem rímorð: 1. »í lifandi mindumýuþ einblína á(( (Hvarf II 2 5—8); 2. »Ei gleimir neinn þess svip er hann sá | sjónum heiftar sig bregða á(( (Hvarf III 21—*); 3. »Bót er, að skamt er bœjar til | blasa við hurðir og stafnaþil« (Hvarf III 61—2), 4. »Þá er hast- arlega Ijóra á(( (Hvarf IV 35); 5.—6. »Svo næsta dag, þegar dirum frá | dagbröndum verður skotið, | liggja handvettir klerksins hlaðinu ú, \ höttur og keiri brotið«. í Skúta- hraun eftir sama höfund (Sunnanf. III 73.— 75. bls.) standa þessi vísuorð: »Grafir birgj- ast. Götu ifir | gnapa mindir þess sem lifir«. Jeg held, að ekki sje til eitt einasta íslenskt skáld á þessari öld, sem ort hefur nokkuð að vöxtunum, að ekki megi finna lijá honum mörg slík dæmi. Að segja, að slíkt »sjáist varla í vönduðum kveðskap nútímaskálda«, er því sama sem að segja, að enginn vandað- ur nútímakveðskapur sje til. Jeg hef verið svo langorður um þetta atriði, af því að mjer finst það vera óþarft verk að vera að reina að leggja fleiri höft á íslenskan kveðskap, enn á honum eru. Að öðiu leiti vísa jeg til hinnar firri greinar minnar, sem stendur óhrakin. Ritdómar Dagskrár um rit Gests Pálssonar og Biflíuljóðin sína það ljóslega, að höfundi þeirra væri ekki vanþörf á að setjast á skóla- bekkina hjá einhverjum fagurfróðum manni og læra að skrifa ritdóma. Að fara til mín í þeim erindum væri auðvitað að »fara í geitarhús ullar að leita«. Jeg get sagt með Sveinbirni Egilssyni: »Skaparinn ekki það skin gaf mjer, skáldskap að dæma sem vera ber, enn bitt bann mjer gaf, svo gjörla jeg þekki, hvort grautur er soðinn eða fullur með kekki«. lteikjavík 28. maí 1897. Björn M. Ólsen. Vestmannaeyjum 25. mai. »Dudman, enski lóðafiskimaðurinn frá Grimsby, sem heldur sig stöðugt hjer við Eyjarnar við lúðufiski, og oss er að góðu einu kunnur, góðvild og greið- vikni, kom hingað i fyrra kvöld og færði oss sild fyrir lítið verð og blöð til 17. þ. m. Vertíðarhlutur hjer til 11. maí varð hæstur 450 af þorski og um 100 af ýsu, meðalhlutur 260 —270 af þorski og um 70—80 af ýsu og öðru; síðan nokkur stútungsafli; í gær og i dag góð- fiski bæði á færi og lóð (síldbeita frá Dudman); einn fjekk í gær 56 í hlut á lóð, þar af 16 þorsk og löngu, hitt ýsu. 1 hretinu frá 1.—11. þ. mán. var hjer opt á nóttum 2—4* frost, en nú grænkar jörð óðum. Sauðburður gengur vel til þessa«. Að engu hafandi- HirðisbrjefiS Ben. Sveinssonar, sem minnzt er á í síðasta bl. (»Athugasemdir um sjálfstjórnarmálið«) hafði fengið þann dóm á þingmálafundi Austur- Skaptfellinga á Hólum í Nesjum 20. þ. m., að það væri að engu hafandi. Þetta voru hinir helztu kjósendur sammála um íþví kjördæmi, eptir rækilegan lestur og íhugun »málaflækju- skjalsins«. »Svo bregðast krosstrje« o. s. frv. Það hafa góðir menn eptir »Þjóðvilja«-Skúla, þeir sem blað hans lesa, að hann sje nú líka horfinn frá frumvarpsleiðinni í stjórnarskrár- málinu, eða að minnsta kosti frá benedikzka frumvarpinu, og vilji í þess stað láta þingið hamra á fráskilnaði íslenzkra sjermála við ríkisráðið danska, með þingsályktunum þing eptir þing, ef á þarf að halda. Með öðrum orðum: hann er orðinn greinilegur »tillögu- maður«; skilnaðurinn við ríkisráðið var eitt höfuðatriðið hjá tillögumönnum á síðasta þingi. Frnmverpingum er hann að minnsta kosti al- veg tapaður að svo stöddu, eptir þessum bók- um, — hvað lengi sem það stendur. »Svo bregðast krosstrje sem önnur trje«, stynur yfirhershöfðinginn. Söngkennslan i barnaskólunum hjer á landi. Það er ekki mikill siður, að drepiö sje niöur penna til að minnast á söngkennsluna í barna- skólunum hjerna. Það mætti margur ætla, að hún væri meira en viðunanleg, svo ekki gæti kom- ið til mála, að|gera hana betri en hún er. En þvi er nú alls ekki svo varið. Af hverju kemur það þá, að enginn minnist á hana? Vilja menn enga kennslu hafa i þeirri grein eða eru þeir á- nægðir með allt i þeim sökum ? Jeg veit ekki. Segi hver til sin. Það eitt er vist, að söngur er ekki hátt settur hjá þeim, sem lögunum eiga að stýra, þvi að ekki hefir þeim komið til hugar að gera hann að skyldunáms- grein i barnaskólunum, og þó hefir líklega enginn þeirra óbeit á söngskemmtunum, sem fara vel fram. En hvers vegna gat þeim ekki skilizt, að til þess að söngurinn verði að iþrótt, þá þurfi að kenna undirstöðuatriði þeirrar íþróttar. Skóla- lögin eru samin af mönnum, sem skemmta sjer vel við söng yfirleitt, en þeir hafa ekki rennt grun i það, hvað til þess þarf að kunna að syngja, heldur ætlast til að söngurinn yrði kenndur og lærður af handahófi; og svo er um fleiri nytsam- ar námsgreinar. Löggjöfin ber, satt að segja, vott um þekkingarskort og áhugaleysi á þeim hlutum. Það er sagt og með sönnu, að vjer íslendingar sjeumj]velfaf“guði gefnir til að nema iþróttina þá að syngja. Og mikið er sungið sumstaðar, þó að kallað sje, aðdiver syngi með sinu nefi, og lífs- nauðsyn er að giæða sönglega þekkingu manna, því ekki er það svo margt, sem örvar og gleður alþýðu manna hjer á landi. Það er rjett að minnast á frændur vora Svía í þessu sambandi. Þeir hafa lengi verið taldir fremstir i röð söngþjóðanna, og þeir vitanú bæði, hvernig á að kenna söng og hvað hann er nyt- söm list. En svo' miklir söngmenn, sem Sviar eru og hafa verið, þá vantar þó á, að þeir sjeu komnir nógu

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.