Ísafold - 06.10.1897, Blaðsíða 1

Ísafold - 06.10.1897, Blaðsíða 1
K emur út ýmist einu sinnieða tvisv.i viku. Verð árg.(90arka minnst) 4kr., erlendis 5 kr.eða 1 1/í doll.; borgist t'yrir miðjan júlí (erlendis íyrir fram). tSAFOLD Uppsögn (sktitteg) i>undin við árainót, ógild nema komin sje tii útgefanda tynr 1. október AfgreiðslnstotH biaðsins er.i Ansturxtrœti 8. Reykjavík, miðvikudaginn 6- okt 1897- XXIV. Úrir. Nýlepn prentað: STUTT ÁGRIP AF PRJEDIKUNARFKÆÐI, HÖFUNDUR HELGI HÁLFDÁNARSON Rvík 1896. IV+ 84 bls. Verð: 60 aurar. Nýlega prentnft: HUGSUNARFRÆÐI. EPTIR EIRÍK BRiEM. Rvík 1897. 11 + 72 bls. Verð: 50 aurar. Glapstigir enn á ný. i. Stjórnmálahreyfingar. Karlmennska. Staðfesta. Iívað sem mönnum annars kann að þókn- ast að segja um stjórnarbótartilboðið í sumar, þá verður því ekkj neitað, að það bafi hleypt af stað sæmilega öflugum stjórnmálahreyfing- um vor á meðal. Sum blöðin standa á öndinni af ótta við það, að nú kunni að komast á einhverjir samn- ingar milli stjórnar og þjóðar, og beita öllu sínu afli til þess að girða fyrir þá, ganga ber- serksgang og bíta í skjaldarrendur. Nýtt blað er stofnað til þess að haldafram enn annari stefnu í stjórnarskrármálinu, en komið hefir til orða á fimm síðustu þingum, miðlunarstefnunni frá 1889, — stefnu, sem gerð mun verða að umtalsefni hjer í blaðinu áður en þessari grein er iokið, því að, eins og nú stendur á, er hún ekki annað en við- sjárverður glapstigur. Og svo eru enn tvö blöð hjer í höfuðstaðn- um, sem virðast hafa átt heldur örðugt með að átta sig á málinu og ráða við sig til fulls, hvernig þau ættu að taka í strenginn. Annað þeirra, »Fj.konan«, gerði sigumþing- tímann líklegt til fylgis við þann flokkinn, sem þiggja vildi tilboð stjórnarinnar. Eptir þingtímann fór svo að koma á það hik í meira lagi. Blaðið fór að auglýsa, að það mundi síðar skrifa eitthvað um málið. Svo færði það mönnum þær gleðifregnir, að innan skamms mundi það segja, með hverjum það ætlaði að verða. Og jafnframt hældi það sjer hvað ept- ir annað af þeirri karlmennsku, að segja ekk- ert ákveöið fyr en vilji þjóðariunar væri kom- inn í ljós — fyr en það vissi, hverjir yrðn ofan á! Hitt blaðið, sem valt hefir verið í rásinni, er »ísland«. Um þingtímann hjelt það fram þeirri kenningu, að ekki væri nema tveirveg- ir fyrir hendi: sá, »að vinna að algerðum skiln- aði íslands við Danaveldi, eða sá, að nota sjer sem bezt tilboð það, sem nú er komið frá stjórninni til að ná samkomulag>«. Eptir þing var það orðið eindregið með stjórnarskrár- breytingartilboði stjórnarinnar. Fám dögum síðar vildi það láta stjórnina koma tilboði sínu í framkvæmd án allrar stjórnarskrár- breytingar. Nú er það orðið með miðlunar- stefnunni frá 1889! Ef málshátturinn um gamanið, sem tilbreytn- inni fylgi, á við nokkuð að styðjast, er senni- legt, að vel liggi á blaðinu um þessar mund- ir. Ofundsjúkur maður mætti það samt vera, sem sæi ofsjónum yfir annari eins ánægju. II. Kynlegar neitanir. Það var þetta blað, sem gaf tilefni til grein- arinnar »Glapstigur í stjórnarskrármálinu« í 66. bl. ísafoldar. Það hefir svarað þeirri grein fyrir nokkru. Einna kynlegast í því svari eru staðhæfingar blaðsins viðvíkjandi sinni eigin afstöðu gagnvart. stjórnarskrár- málinu. Blaðið neitar því nú, að það hafi nokkuð »í Ijós látið um það, hvort það sje hlynnt eða andstætt frumvarpi Dr. Valtýs«. En rjettum þrem vikum áður en þessi neitun er dagsett, 18. ágúst siðastl., stendur í blaðinu grein um »ágreininginn í stjórnarskrármálinu«. Og nið- urstaðan í greinarlok er þessi: )}Við hefðum pví átt að nota það tilboð, sem nú er framkomið frá stjórninnw. Greinin er prentuð fremst í blaðinu, og til enn meiri áherzlu stendur undir henni fangamark ritstjórans sjálf: Þ. G. Sömuleiðis neitar blaðið því, að það hafi lagt móti þingrofi og aukaþingi heldur en hitt. Það hafði haldið því fram, og heldur því fram enn, að aukaþing sje allsendis ó- þarft til þess að korna fram því máli, sem eitt er tilefni til þess að nokkur hefir eptir aukaþingi æskt. Og blaðið spyr jafnframt: Hvers vegna ætti þá stjórnin að »vera að baka oss þann kostnað að óþörfu ?« Blaðið kann að telja þetta meðmæli með aukaþing- inu. En í þeim skilningi á sínum eigin orð- um fer það þá alveg vafalaust einförum. Ennfremur neitar blaðið því, að það hafi lagt það til, að skipaður yrði fyrir Island sjer- stakur ráðgjafi án allrar stjórnarskrárbreyting- ar. Samt leggur blaðið f hverri greininni eptir aðra áherzlu á það, að stjórninni geti ekki verið nein alvara með það áhugamál sitt, að breyta stjórnarháttum Islands, ef hún ekki geri þetta, og geri hún það ekki, sje ástæða til að tortryggja hana og gera sjer í hugar- lund, að hún hafi ætlað »að teygja alþingi út á glapstigu!« Það væri ekki undarlegt, þó að lesendur blaðs- !l 72. blað. ins spyrðu, hvað þessar vöflur og vífilengjur eigi að þýða, hvers vegna blaðið sje að þver- neita því, er hverjum heilvita manni, sem á það lítur, hlýtur að vera deginum ljósara. III. Ráðgjafinn á alþingi. Þegar vjer nvi snúum oss að verulegum atriðum í þessu svari blaðsins en hinum óskiljanlegu neitunum þess, verður seta ráð- gjafans á alþingi fyrst fyrir oss. Vjer höfð- um bent á það, sem annars allir vita, að stjórnarskráin heimilar ekki ráðgjafanum að sitja á þingi, beldur að eins landshöfðingja eða þá öðrum manni í forföllum hans. A þessu skýra stjórnarskrárákvæði byggðum vjer þá skoðun, að ráðgjafinn gæti ekki á þinginu mætt án stjórnarskrárbreytingar. Þessu svarar blaðið á þá leið, að landshöfðing- inn sje ekkert annað á alþingi en umboðsmað- ur ráðgjafans með bundnu umboði, »boðflytj- andi« hans eða »boðberi«. Og þar sem ráð- gjafinn hafi rjett til að senda þinginu slíkan umboðsmann til þess að semja fyrir sína hönd, þá hljóti hann að hafa rjett til að mæta þar sjálfur og semja við þingið. Öllu meiri misskilningur á stöðu landshöfð- ingja er illhugsandi. Heyrði þá höf. greinar- innar aldrei neitt minnzt á það í sumar á þingi, »að færa valdið út úr landinu«? Eða botnaði hann ekkert í, hvað fyrir þeim mönn- um vakti, sem komu með þá mótháru gegn þeirri stjórnarskrárbreyting, sem <im var að ræða? Vitaskuld er landshöfðiuginn »boðflytjandi« ráðgjafans á alþingi. En hann er miklu meira. Stjórnarskráin ákveður honum með þingsetu sinni þýðingarmikinn þátt í löggjöf landsins. Hann hefur ráðgjafar-atkvæði bæði á þingi og gagnvart stjórninni, getur haldið fram við hvorutveggja þann málspart sjálfstæðum skoð- unum og hefur líka þrásinnis gert það, og verið þeim ósamdóma á víxl. Hann hefur í einu orði mikilsverð afskipti af og áhrif á löggjöf þjóðarinnar, því meira verð, sem hann er æðsti embættismaðurinn, sem hjer er bú- settur. Og þess vegna er það, að þeir menn eru til, sem ekki vilja einu sinni missa þessi afskipti landshöfðingja af löggjöfinni, þetta vald hans til að hlutast til um hana á báðar hendur, þótt þeir fái í staðinn ráðgjafann sjálfan á þingið, ef sá ráðgjafi á að vera hú- settur erlendis. Það kemur ekki þessu máli við, hvort þeir menn kjósi hyggilega eða ekki. Ágreiningurinn við þá hlýtur eingöngu að vera fólginn í skoðanamun um það, hverja þýðingu þaðmundi hafa, að fá ráðgjafa, sem mætti á þinginu — með öðrum orðum: hvað vjer hreppum með hreytingunni, en ekki hverju vjer sleppum.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.