Ísafold - 05.07.1898, Síða 1

Ísafold - 05.07.1898, Síða 1
Kemur nt ýmist einu sinni eða tvisv. i viku. Verð úrg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1 */a doll.; borgist fyrir miðjan jiili (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD. UpJ)sögn (skrifleg) bunain við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8. Reykjavík, þriðjuda^inn 5. júli 1898. XXV. árg. Fyrir 2 krónur geta NÝIR KAUPENDUR ísafoldar fengið hálfan yfirstandandi árgang blaðsins, f r á þvi i dag til ársloka 1898. 40 tölublöð, og að auki þ. á. SÖGUSAFN blaðsins sér- prentað ókeypis, þ. e. sem kaupbæti. EKKERT BLAÐ HÉR Á LANDI býður nánd- arnærri önnur eins VILDARKJOR. Forv(jripasafn opiðnivd.og ld. k 1.11—12. Landnbankinn opinn hvern virkan dag 1(1. 11—2. Bankastjóri við ll‘/s—l'/a.ann- ar gæzlustjúri 12—1. Landnbólcasafn opið hvern virkan dag kl. 12—2, og einni stundu lengur (til kl 3) md., mvd. og ld. til útlána. Seglskip eða gufuskip til fiskiveiða. Hr. |>orsteÍDn Egilsson lét í næstsíð- asta blaði uppi þá skoðun, að seglskipa- kaupin til fiskiveiða hafi verið »eymd- arúrræði«, með því að sú veiðiaðférð sé nú úrelt, og að lún úr laudsjóði til skipakaupa hefðu átt að vera bundin því skilyrði, að fyrir þau yrði keypt gufuskip. Málið er auðvitað mikilsvert mjög, eins og alt, sem að sjávarútvegi vorum lýtur, jafnmikill þáttur og hann er í atvinnu landsmanna. Fyrir því höfum vér farið þess á leit við fáeina af helztu útgerðarmönnum vorum, að láta uppi skoðun sína á þessu atriði, og þeir hafa góðfúslega orðið við tilmæl- um vorum, munnlega. Aðalatriðin í ummælum þeirra koma hér á eftir. HELGI HELGASON kaupmaður taldi enga von, að landssjóður hefði veitt lán til gufuskipakaupa, því að það væri fyrst nú, alveg nýlega, að nokkrum útgerðarmannihér hefði komið það til hugar, eða að minsta kosti væri örskamt síðan, að nokkur þeirra 'nefði farið að tala um það. Framar öllu öðru væri það við þau að athuga, að menn hér vantaði enn þekking á allri þeirri útgerð. Sams konar þekkingarskortur hefði orðið mönnum alldýr fyrst eftir að farið var að halda úti þilskipum, og það kenslu- kaup ættu menn nu ekki að þurfa að greiða, þegar gufuskipaútgerðin yrði tekin upp. En hjá því yrði komist því að eins, að menn gæfu sér tíma til að kynnast henni og hröpuðu að engu. Svo væri þess að gæta, að mikið fó stæði í gufuskipunum. Eitt gufuskip kostaði einar 60 þúsund krónur. En það gæfi að eins örfáum mönnum at- vinnu. Seglskip, sem keypt yrðu fyrir sömu upphæð, mundu veita atvinnu hundruðum manna. Gufuskipin gætu orðið gróði fyrir einstaka menn, en fyrir alþýðu manna yrðu þau ekki jafn-mikilsverð eins og seglskipin. Eftir fimm til sex ár gerði hann ráð fyrir, að gufuskip mundu fara að koma upp hér. þó mundi því að eins verða verulegur hagur að þeim, að unt yrði að selja útlendingum fiskinn hér við flóann, svo peningar vorir yrðu notaðir eingöngu til veiða, en ekki til að koma fiskinum á markað erlendis og selja hann þar. Flutningar til annara landa verði oss ávalt dýrari en Eoglending- um. TH. THORSTE1NSSON OG P. J. THORSTEINSSON. Jsafold var svo heppin að hitta hr. P.J.Thorsteinsson fráBíldudal.einhvern mesta útgerðarmann landsins, hjábróð- ur hans, hr. Th. Thorsteinsson. Skoð- un þeirra á málinu var mikið til sam- hljóða. Báðir gengu þeir að því vfsu, að á gufuskipum mundu fiskiveiðar aðallega atundaðar í framtíðinni. En Th. Th. lagði allmikla áherzlu á það, að sú breyting yrði að verða smátt og smátt og með góðum undirbúningi og nægri þekking á slíkum fyrirtækjum. Til þess að gufuskipaútgerðinni yrði sint nokkuð að rnarki, yrðu menn líka að geta selt þilskipin, sem þeir nú ættu, eins og Englendingar hefðu gert; til þess þyrfti nokkurn tíma, og ganga mætti að vísu tapi á þessari sölu. P. J. Th. kvað sér kunnugt um, að það óttist þeir Englendingar, er stunda veiðar hér við land, mest af öllu, að Islendingar fari að taka upp gufuskipa- veiðarnar, hvort heldur sé með lóðum eða botnvörpum. þeir sjái það vel, að þá færi að verða örðugt að keppa við okkur, því að hér geti íslending- ar alt af haft við hendina beitu, ís, kol og sérhvað annað, sem til útgerð- arinnar þarf. Báðir voru þeir bræður samdóma utn það, að íslendingar eigi sjdlfir að flytja fisk sinn til útlanda, töldu eng- in vandkvæði á að keppa við aðrar þjóðir í því efni, ef tækin væru fyrir hendi. Ekki voru þeir síður sammála um það, að það væri hugarburður einn, að gufuskipaveiðarnar drægju úr at- vinnti landsmanna. því væri líkt far- ið og með vélavinnu alla. Alt af mætti veita mönnum næga atvinnu, ef veru- legur gróði væri í þeirn fyrirtækjum, sem menn hefðu fyrir stafni. Og auk þess ykist atvinna við fiskinn margfalt á landi, ef gufuskipaveiðin gengi að ósk- um, enda þótt færri raenn þyrfti á skipin. ÓNENFDUR ÚTGERÐARMAÐUR. Enn lét einn útgerðarmaður, mjög merkur og reyndur, uppi skoðun sína í örfáum orðum, en vildi ekki láta nafns síns getið. í aðalatriðinu var hann þ. E. samdóma, hugði, að menn mundu naumast hafa ráðist í þilskipa- kaupin síðustu áriu, ef menn hefðu, um það leyti, sem þeir stofnuðu til þeirra, haft jafnmikil kynni af gufu- skipaveiðum, eins og þeir hefðu nú. Og alveg vafalaust taldi hann það, að reka mundi að gufuskipaveiðum hjá oss. Mjög ríka áherzlu lagði hann á það, að þær veiðar drægju ekki út at- vinnu alþýðu, þó færri menn þyrfti á skipin. Auk vinnunnar við fiskinn í landi mundi áburðurinn, sem með gufuskipaveiðunutn fengist, ef fiskur- yrði jafnbarðan fluttur á land, verða jarðræktinni hér tíl stórmikilla fram- fara. ------- TRYGGVI GUNNARSSON bankastjóri tjáði sig vera alveg sömu skoðunar enn sem á þingií fyrra, og hefði hann þó hugsað málið mjög rækilega síðau. Seglskipa-kaupín og útgerð þeirra hefði verið í fyrra og væri enn eina ráðið til að forða binum mikla fjölda sjómanna, er áður hefðu stundað róðra á opnum bátum, frá skyndilegum at- vinnumissi og þar af leiðandi stórkost- Iegum bjargræðisvandræðutn. |>ví að þó svo væri, að smámsaman kynni að skapast ný atvinna handa svo og svo mörgum þeirra, ef tekin væri upp gufu- skipaveiði með tífalt færra fólki en þyrfti á seglskipin, þá mundi það eiga langt í land, miklu lengra en bjarg- þrota fátæklingar mættu við. Og að svo miklu leyti sem hin nýja vinna væri fólgiu í hirðingu og verkun gufu- skipaaflans á landi, þá væri það raun- ar engin atvinnubót, með því að sú vinna færðist þá að eins frá liðléttu skylduliði þilskipafiskimannanna, sem nú hefir hana, yfir á fullvinnandi sjó- rnenn, er þá kæmust ekki að annari vinnu, — hefðu ekkert að gera á hin örfáu gufuskip, er kæmu í stað seglskipa svo tugum og hundruðum skifti. Annan agnúann taldi hann féleysið. það þyrfti mikinn sæg fátæklinga til að komast yfir eitt einasta gufuskip, þótt studdir væru með svo frekri lán- veitingu, sem nokkurt vit væri í, en áhættan tneiri, ef eitthvað mistækist — hætt einu auganu, nema vel fari —, heldur en að sami hópurinn ætti mörg skip, er eigi kostuðu nema '/? hluta hvert um sig þess fjár, er eitt gufu- skip gleypti. Auðmenn einir væri fær- ir um að rfsa undir þeirri áhættu. þeirra væri það, að gera tilraunir hér með gufuskipaveiði áður en almenn- ingur færi að tefla á tvær hætturmeð svo afarkostnaðarsöm atvinnutæki. þá fyrst, er reynslan sýndi þeim, að sú aðferðin væri arðsamari, — þá fyrst, en fyr ekki, væri vit í fyrir fátækan almúga að reyna að klífa þrítugan hatnarinn til þess. Slíka reynslu vant- aði enn að mestu eða nær öllu leyti; vottaði jafnvel engan veginn vel fyrír, það lítið sem reynt hefði verið í þá átt. Dæmi botnverpinganna ensku sýndi, að þeim þætti ekki svara kostnaði að veiða nema verðmætustu fisktegundirn- ar, flatfiskinn; hinu fleygðu þeir. Gufu- skipaútgerðin væri svo afarkostnaðar- söm með öllu og öllu. Og flatfiskin- um treystu þeir sór þar að auki því að eins til að græða á, að þeir kætni honum jafnharðan á markaði, glæ- nýjum hér um bil. Islenzkum gufu- skipaflota þyrfti því nauðsynlega að fylgja hraðskreitt flutningaskip, til þess að koma aflanum á markaði erlendis jafnóðum, og það hleypti kostDaðinum enn fram að miklutn mun. Hitt væri mjög hæpið, hvort kleift væri að hafa gufuskipaútgerðarkostnaðinn upp úr þorski, fluttum fyrst hér á land og söltuð- 43. blað. um og verkuðum til útflutnings. En þá eina fisktegund gætum vér gert os* von um að geta aflað til langframa. Flatfiskurinn (koli m. m.) þryti á fám árum, þar sem þorskfiskimiðin héldust oft jafngóð öld eftir öld. Seglskipakaupin frá Englandi þessi síðustu missiri taldi hann hin mestu happakaup og sýnan gróðaveg, beztu 8kip keypt fyrir þ—þ þess fjár, er kostað hefði að smíða þau fyrir fám árum. Ekkigæti verið síður hagur að fá þessi 'atvinnutól fyrir gjafverð en önnur. það hlyti að vera sami hag- urinn ems og að’fá 100 kr. hest fyrir 20—30 kr. Vér mættum eigi láta það villa oss, að stórauðugir Englendingar skiftu um seglskip fyrir gufuskip; auk hins mikla auðmagns væri orsökin sú, að þeir mættu til að geta aöað í botnvörpu sína jafnt í logni og hvassviðri; ann- ars gæti þeir eigi fengið fullfermi á svo stuttum tíma, sem þyrfti til þess að koma hinutn dýra afla, flatfiskinum, nógu nýjum á markaði. Slíkt næði eigi til þorskveiðanna hér. --- m 9 m------- Gjörspilt lýðstjórn. IV. það var viðkvæðið í borgarastyrjöld- inni (1861—65), þegar venð var að herskrá Svertingja undir merki sunu- anmanna, að þeir væru fullgóðir í fall- byssukjaftana. Lögreglan í New York lítur nokkurn veginn sömu augum á aðkomna borgara í óþverragjótunum þar í borginni. Ekki svo sem fallbyssu- mat, heldur sem sauði til rúningar, — ræfla, sem kreista megi eftir vild og ekki eigi tilkall til neinná réttinda ut- an þeirra, að lengja nafnaskrár kúgara sinna. Lögreglustigamennirnír gengu að vísu allvasklöga fram að þröngva þarlendum mönnum til fjár, þótt snjall- ir séu og ekki uppnæmir fyrir hverj- um meðaibófa. En taumlaus varð í þeim græðgin, þegar þeim var hleypt á hinn aðkomna lýð. Völd höfðu þeir viðlíka og tyrkneskir höfðingjar í Ar- meníu og neyttu þeirra viðlíka mis- kunnarlaust. Satt er það að vísu, að þeir brytjuðu ekki lýðinn niður. það var ekkert tilefni til þess kyns öfga. Tyrk- ir mundu jafnvel ekki vera að slátra gjaldfærum mannfénaði sínum, ef hann gerði sig eigi sekan í þeirri ósvinnu, að æskja sér frelsis. Engin byltingar- hugsun flýgur þeim nokkurn tíma í hug, vesalings-görmunum, er byggja öngstrætasmugurnar í New York; fyrir þeirra sjónum er lögreglan þar holdi klædd ímynd hinnar amerísku stjórnarskipunar. Að baki henni stend- ur öll stjórnin — bæjarstjórnin, ríkis- stjórnin og sambandsstjórnin. það sem lögreglan segir, stendur óbifan- legt. Útlendingurinn, fátækur, fáfróð- ur og vinum sneiddur, hefir engin önn- ur úrræði en að hlýða. Eitt viknið frammi fyrir Lexownefnd- inni, John Collins, lýsti aðförum bófa- samkundu þeirri, er kend var við Ess- extorg, og komið hafði á gagngerðri hryðjustjórn þar í því nágrenni. »Eg hafði átt þar heima í 19 ár« mælti hann, »og þeir komu til mín í gær- kveldi og báðu mig að hjálpa sér.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.