Ísafold - 22.02.1899, Blaðsíða 3

Ísafold - 22.02.1899, Blaðsíða 3
43 Skipa- Virð.verð Ábyrgð 1811 3j kr kr í fyrsta flokki 16 160,735 101,133 í öðrum flokki 16 123,045 76,116 samtals ~32 283,780 177,249 jpriðja flokks skip engin í ábyrgð. Tekjur félagsins árið sem leið voru: kr. a) Inngangseyrir fyrir 10 skip 1574 b) Aukaáb.gjald af skipum . . 780 c) Ábyrgðargjald í vetrarlægi af 21 skipi.............. 905 d) Sjótrygging á 32 skipum frá 14. marz til 31. ágúst . . . 3541 6800 Abyrgðargjaldið er fyrir l. flokks skip 2°/. um 5J mánuð, frá 14. marz til 31. ágúst, en -£°/o hækkun fyrir hvern hálfan mánuð, er skipunum er haldið úti eftir 31. ágúst eða þau lát- in fara út á fiskiveiðar fyrir 14. marz. Fyrir 2. flokks skip er ábyrgðar- gjaldið hærra. Ráðgerða breyting á 15. og 18 gr. félagslaganna var hætt við eftir nokkur- ar umræður. Samþykt var að nota að eins þessi 3 vetrarlægi fyrir skip í ábyrgð félags- ins: Hafnarfjörð, Eiðsvík og ferneyj- arsund. Loks var samþykt að verja alt að 300 kr. til að kaupa fyrir efni til við- gerðar á skipum. Formaður félagsins, bankastjóri Tr. Gunnarson, er ganga átti úr stjórn þess að þéssu sinni, var endurkosinn með öllum atkvæðum. Varamaður í stjórnina var kosinn Eriðrik kaupmað- ur Jónsson; endurskoðunarmenn skóla- stjóri Markús F. Bjarnason og kaup- maður Th. Thorsteinsson; virðingar- menn skipa endurkosnir þeir Helgi kaupm. Helgason og August Flygen- ring skipstjóri, og hinn þriðji kosinn f>orsteinn |>orsteinsson skipstjóri. Guðbpandur Finn- bogason konsúll lézt í nótt. Meir en lítil eftirsjá í þeim manni. Lögfræðislegur leiðarvísir ísafoldar. Margir hafa látið i ljósi, að þeir söknuðu mjög hins lögfræðil. leiðar- visis, er blað þetta flutti áður mörg ár, en hlé hefir orðið á nú um nokkur missiri og kunnugt er um, að fjölda manna þótti sér koma að góðu haldi. Fyrir þvi hefst hann aftur í þessu blaði, og mun baldið áfram að staðaldri eftir atvikum og rúmi i blað- inu. Lögfræðilegur leiðarvísir. 15G4. Eg hefi verið húandi i N-hrepp, en hregð búi, og ræðst í húsmensku í sömu sveit. Þarf eg að ssekja um húsmensku- leyfi til breppsnefndar ? Sv.: Já; svo mæla lög fyrir, þótt þeim muni raunar örsjaldan vera beitt, er svo stendur á. 1565. Hefi eg eigi lagaheimild til að gefa 1/4 af eigum mínum að mér látnum, þó eg eigi skilgetin börn, og þó það sé gagnstætt vilja konu minnar. Sv.: Jú, 'li af húshelming spyrjanda. 1566. Og hvernig fer ef gjöfin —hefði eg tiltekið hana í krónulali — skyldi reynast meira en */4 af eigum dánarhúsins ? Sv.: Þá færist hún niður í '/4 hús- helmingnum. 1567. Er ekki maðurinn minn skyldur að lögum að horga allar þær skuldir, sem eg kann að komast í án hans samþykkis i bú- skap okkar ? Sv.: Nei. 1568. Er iðnaðarmönnum leyfilegt að af- hendaásunnudögumhluti, sem þeir hafa gjört við, og taka við borgun fyrir ? Eða þá nýja bluti með sama hætti ? Sv.: Nei, hvorugt leyfa lög, þótt við- gangist. 1569. Mér er hygð ábýlisjörð mín hréflega til 6 ára. og lengur, ef um semdi; svo liða þessi 6 ár og fram yíir veturnætur 7. árs algjörlega umtalslaust á báðar liliðar; þá er mér hygt út; er eg lagalega skyldur að víkja af jörðunni, þar eg hefi staðið i full- um skilum 0g uppfylt alla skilmála, er á- húðarbréfið um getur ? Sv.: Nei, ekki úr þvi landsdrottinn lief- ir látið spyrjandann hyrja 7. ábúðarárið umtalslaust og ekki gefið.honumnýttbygg' ingarhréf. 1570. Fóstursonminn,tengdasonurog eghöf- um allir haft samtíund með samþykki lilut- aðeigandi hreppstjóra; er það ekki lögum samkvæmt?. Sv.: Jú, nema um fóstursoninn. 1571. Og ef svo er, hefir þá blutaðeigandi hreppsnefnd vald til að leggja á þá sér- stakt aukaútsvar ? Sv.: Já; það er sitthvað, aukaútsvar og tiund. 1572. Er eg löglegaskyldur að tiunda naut- grip þann, sem er tæplega ll/2 árs á vor- hreppaskilum ? Sv.: Já, sé hann það sem málvenjakall- ar »tvævetur«, t. d. alinn fyrir jól annan vetur áður. 157.3. Þarf eg leyfi hreppsnefndar til að búa á 1,2 hndr. jarðar ? Sv.: Nei. Hitt og þetta. Oceanic heitir nú stærsta skip í heimi, smíSað í fyrra, og er 682 fet á lengd og ber 30,000 smálestlr. »Great Eastern«, báknið, er smíöað var fyrir meira en 40 árurn og ekkert varð við ráðið að kalla fyrir stærð, var 22 feturn styttri, og fleytti ekki nema 27,000 smálestum. Salt saman við brennivíu eða salmí- akspíritus er gott ráð til að ná úr fitu- blettum; þurfi að kæla glerílát fljótt eða leirílát, er bezt að gera það í söltu vatni; dökkur vefnaður upplitast ekki, ef hánn er þveginn í söltu vatni; ryð- blettum og blekblettum gengur bezt að ná burtu, ef helt er á þá sítrónuvökva með salti saman við og nuddaðir veh Orðvar svertingi var spurður fyrir dómi, hvort hann héldi að maöur nokk- ur, er grunaöur var um þjófnaS, væri ófrómur. »Ekki fullyrði eg neitt um þaS«, svaraSi svertinginn; »en hitt veit eg, að væri eg hani, þá færi eg að gala, ef eg sæi hann koma«. Ættingjuni og vinuin tilkynnist, að faðir okkar elskulegur, Arni Einarsson frá ‘Vestmannaeyjum, andaðist hér í Reylrjavík sunnu- daginn 19. þ. m. Jarðarförin fer fram 25. þ. m. kl 11‘/2. Keykjavik 21. febr. 1899. Einar Árnason Jón Árnason Undirskrifaður hefir til leigu frá 14. maí 2 rúmgóð herbergi með eldhúsi og geymsluplássi. Guðmundur Matthiasson. jP| r sem tekið hefir í misgripum hrún- V Q leitt sjal á Thorvaldsens-skemtun- n Q inni, er beðinn að koma því til skila I afgreiðslu Isaf. Hér með tilkynni eg ættingjum og vinum, að maðurinn minn elsku- legur, konsúll og kaupmaður Guðbrandur Finnbogason andaðist í nótt kl. 12£ eftir stutta legu. Reykjavík 22. febr. 1899. Eouise Finnbogason, fædd Zimsen. SAMEININGIN«, mánaðarrit til stuðnnigs kirkju og kristindómi Islendinga, gefið út. af hinu ey. lút. kirkjufjelagi í Vesturheimi 0g prentað í Winnipeg. Ritstjóri JónBjarna- son. Verð i Vesturheimi 1 doll. árg., á Is- landi nærri því helmingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að prentun og allri útgerð. Þrett- ándi árg, byrjaði i marz 1898. Fæst í hóka- verzl. Signrðai' Kristjánssonar í Reykjavik og hjá ýmsnm bóksöluin viðsvegar nm land allt* 1871. Júbilhátíð 1890. Hinn eini ekta BRAMALIFSELIXIR Wleltííigarhoilur horð bitter essenz. Allan þann árafjölda, sem almenningur hefir við haft bitter þenna, hefir hann áunnið sjer mest álit allra matar-lyfja og er orðinn fræg- ur um heim allan. IJann liefir hlotið hin hæstu he/ðursverðlaun. þá er menn hafa neytt Brama-lífs-Elixírs, færist þróttur og liðugleiki um allan líkamann, fjör og framgirni í andann, og þeim vex kœti, hugrekki og vinnuáhugi; skilningarvitin skerpast og unaðsemda lífsins fá þeir notið með hjartanlegri 'ánœgju. Sú hefir raunin á orðið, að enginn bitter samsvarar betur nafni sínu en Brama-lífs-elixír; en hylli sú, er hann hefir komizt í hjá almenningi, hefir valdið því, að fram hafa komið ýmsar einkis- verðar eptirstælingar, er vjer vörum við. Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá þeim verzlunum, er söluumboð hafa frá vorri hendi, sem á íslandi eru : Akureyri: Hr. Carl Höepfner. Sauðárkrókur: Gránufjelagið. — Gránufjelagið Seyðisfjörður: —- Borgarnes: — Johan Lange. Siglufjörour: - ■Dýrafjörður - - N. Chr. Gram. Stykkishólmur: N. Chr. Gram. Húsavík: — Örum & Wulíf. Vestmannaeyjar: I. P. T. Bryde. Keflavík : — H. P. Duusverzlun Vík pr. Vestmanna- — Knudtzon’s verzlun. eyjar: Hr. Halldór Jónsson. Reykjavik: — W. Fischer. Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Raufarhöfn: Gránufjelagið. Gunnlaugsson. Einkenni: Blátt Ijón og gullinn hani á glasmiðanum. Mansfeld-Búllner & Lassen, hinir einu sem húa til hinn verðlaunaða Brama-IJfs-Elixir Kaupmannahöfn, Nörregade 6. ..........11 ii nfi iiiniiiiii'iiiii'iiiiiiiiiiiiiiriMiniirnTiiniiiiiTHHiiiBWiiiiinniBy, 1111111111TI Uppboðsauglýsing-. Að undangenginui fjárnámsgjörð verður mánudagana hinn 27. þ. m., 6. og 13. n. m. kl. 12 á hádegi opin- bert uppboð haldið í húsi Jóns Pét- urs Jónatanssonar í Hafnarfirði til lúkningar veðskuid til Landsbankans, að upphæð kr. 360 með óborguðum vöxtum frá 1. okt. f. ár. Hin 2 fyrstu uppboðin fara fram hér á skrifstofunni, en hið þriðja í húsi því, er selja á. Söluskilmálar verða til sýnis á hinu 1. uppboði. Skrifst. Kjósar-og Gullbrs. 13. febr.'99. Franz Siemsen. Kvininlierreds- Tóvinnuvélar. Rosendal — Noregi bjóðast til að vinna, fyrir þá -er óska, alls konar tóvinnu úr ull og tuskum í vönduð fataefni með ýmsum litum og gerð, kjólatau, klúta, rúmteppi, gólfteppi o. fi. Verksmiðjan hefir margar og fullkomnar vélar og getur því skilað dúkum fljótt og velunnum. Leiðarvísir með verðlista fæst hjá uudirrituðum umboðsmanni verksmiðj- unnar, sem einnig hefir til sýnis margs- konar sýnishorn af fata- og kjólaefn- um. Ullarsendingum er veitt móttaka. Húsavík 20. jan. 1899. J. Á. Jakobsson. Proclama. þar sem Jón Jónsson frá Bala á Kjalarnesi hefir framselt bú sitt til opinberrar skiftameðferðar sem gjald- þrota, þá er hér með samkvæmt fyr- irmælum laga 12. apríl 1878 sbr. op. br. 4. jan. 1861 skorað á alla þá, sem til skuldar telja í búi þessu, að gefa sig fram og sanna skuldir sínar fyrir undirrituðum skiftaráðanda innan 6 mánaða frá síðustu birtingu auglýs- ingar þessarar. Sýslumaðurinn í Kjósar og- Gullbringusýslu 15. febr. 1899. Franz Siemsen. Proclama. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu br. 4. jan. 1861 er hér með skor- að á alla þá, sem til skuldar telja í dánarbúi Jóns Péturssonar á Blikalóni í Presthólahreppi, er andaðist 23. des. f. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir undirskrifuðum skiftaráðanda innan 6 mán. frá síðustu birtingu aug- lýsingar þessarar. Skrifst. þingeyjarsýslu 30. des. 1898. Steingrímur Jónsson. í Austurstræti Nr. 1 (áður »Veltan«) eru neðanskráðar vörur til sölu með meiri og minni afslætti, eftirþví, hvað mikið er keypt í einu: Salt, sauða- og nautakjöt, flesk, sýr- óp, línur og »toug«, sjóföt (stíg- vél, vetlingar, o. fl.), fiður, smá- fiskur og ýsa, rúgmjöl, over- headsmjöl, bankabygg, og grjón, (hrís, sago-, hafrar), hrís- og byggmjöl, svo og margt annað fleira gegn peningaborgun út í hönd. Hér með tilkynni eg keiðruðum vinum og viðskiftamönnum þá sorg- arfregn, að faðir minn elskulegur H. Th. A.Thomsen kaupmaður andaðist í Kaupmh. 8. þ. m. Verzlunum þeim, sem um lang- an tíma hafa verið reknar í Reykja- vík og á Akranesi undir nafni föð- ur míns sáluga, verður haldið á- fram undir sama nafni, og án nokk- urrar breytingar, og vona eg, að heiðraðir skiftavinir sýni verzlunun- um sömu velvild og sama traust, sem að undanförnu. Reykjavik 19. febr. 1899. D, Thomsen. Björn Bjaniarson sýslumaður í Dalasýslu. Gjörir kunnugt, að eign dán- arbús Indriða heit. Gíslasonar, hálf jörðin Hvoll og hálft Hvolssel í Saur- bæjarhreppi í Dalasýslu, verður seld við 3 opinber uppboð; verða hin 2 fyrstu haldin á skrifstofu sýslunnar föstudagana 28. apríl og 5. maí, en hið þriðja á Hvoli föstudaginn 12. maí; öll um hádegi. Uppboðsskilmálarnir verða birtir við uppboðin. Laugardaginn 13. maí um hádegis- bil verður alls konar lausafé, þar á meðal alls konar skepnur, selt við op- inbert uppboð á Hvoli. Skrifstofu Dalasýslu, 7. febr. 1899.- Björn Bjarnarson. Utgef. og ábyrgðarm. Björn Jónsson. Meðritstjóri: Einar Hjörleifsson. ísafoldarprents miðja.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.