Ísafold - 25.02.1899, Blaðsíða 2
46
aðrar þjóðir að liggja ekki á liði sínu
og taka þátt í þessari stórkostlegu
yfirlýsing una brennheitan áhuga þjóð-
anna á friðarmálinu.
Svo er til ætlast, að fulltróar ensku-
mælandi þjóðanna verði 20—lð karl-
menn og 5 konur. I Lundúnum eiga
7 að bætast við, fulltrúar frá smá-
ríkjunum: Sviss, Belgíu, Hollandi,
Danmörk, Svíþjóð, Noregi og Portúgal.
Frá Lundúnum verður haldið til Par-
ísar. þar og í fleiri stórbæjum Prakk-
lands á að halda fundi fyrir almenn-
ingi, veita svo 10 frönskum fulltrúum
viðtöku í hópinn, og að lokum finna
forsetann og ráðgjafa hans að máli.
Næsti áfanginn verður til Berlínar;
þar er von á 10 fulltrúum þýzkum og
góðum viðtökum hjá keisaranum. þá
til Vínar og Buda-Pesth og þar á eftir
suður í Bóm. I Austurríki og Ung-
verjalandi eiga 10 fulltrúar að bætast
í hópinn og eins á Ítalíu. þ>á verða
þeir orðnir 67 að tölu.
Frá Bómaborg verður svo haldið
beint til Pétursborgar.
Stead býst við, að þessar aðal-tillögur
verði fyrir friðarþingið lagðar :
1. Vopnahlé, »guðs friður«, er standi
5 eða 10 ár.
2. Að þjóðirnar auki ekki herbúnað
sinn á þeim tíma.
3. Alþjóða-samningur þess efnis, að
komi deilur upp, meðan á vopnahlénu
stendur, skuli málsaðilar skyldir til að
skora á aðrar þjóðir að leita um sættir,
áður en friðurinn sé rofinn.
Um þriðja atriðið er ef til vill mest
vert. Stead gerir ráð fyrir, að ef til
ófriðar hefði dregið með Bretum og
Frökkum í sumar út af Fashoda-málinu.
I stað þess að þjóðirnar hefðu svo að
kalla umsvifalaust rofið friðinn, mundu
þær, ef þessi samningur hefði verið
kominn í gildi, hafa fengið sér sátta-
semjendur, Frakkar, Bússastjórn, Bret-
ar, stjórn Bandaríkjamanna. Ef
sáttasemjendur hefðu ekki getað komið
sér saman, hefðu þeir getað fengið sér
oddamann, t. d. forseta svissneska
lýðveldisins og orðið ásáttir um, að
hans úrskurði skyldi hlíta. Ef þá
annaðhvort Bretar eða Frakkar, eða
hvorirtveggja, hefðu talið úrskurðinn
með öllu óviðunandi, þá—en fyr ekki —
hefði þeim verið heimilt að rjúfa frið-
inn. Með þessu yrði að minsta kosti
tafið að mun fyrir friðslitum, ástríðu-
öldurnar fengi tíma til að kyrrast,
og því ríki, sem ekki vildi í raun og
veru leggja út í ófrið, mundi gerður
kostur á að jafna málin á einhvern
sæmilegan hátt, áður en í harðabág
slægi.
Landbúnaðurinn og fjársalan.
Eftir
Sigurð Sigurðsson frá Langh.
III.
En það, sem nú gerir mesta skó-
kreppuna, er skortu.r á peningum og
þar af leiðandi skortur á ýmsu öðru,
jafnvel hinu nauðsynlegasta, sem lífið
þarfnast, svo sem fæði. Flestir telja
því mest liggja á að leita einhverra
ráða til að bæta verzlunina, og útvega
markaði fyrir íslenzkar búsafurðir.
En jafnhliða því eða um leið þarf
að setja á fót lánsstofnun, sem láni
bændum eða félögum fé með vægum
kjörum og gegn sjálfskuldarábyrgð (&-
byrgð félagsins) eða veði í því, sem
lánið er notað til, t. d. ef það eru
hús o. fl.
Einna tilfinnanlegastur hnekkir
fyrir búnaðinn var það, er tók fyrir
sölu á lifandi peningí til Englands.
Fjársöluvandræðin hafa með öðrum
orðum hálf-steypt búnaðinum, og
nærri gereytt allri framfaravon hjá
Iandsmönnum.
Stungið hefir verið upp á því, að
breyta búnaðinum þannig, að leggja
meiri stund á kúpeningsrækt, og fram-
leiða meira smjör. f>etta er nú sjálf-
sagt að gera, að svo miklu leyti sem
því verður við komið. En nú vita
það allir, að mörg héruð landsins eru
betur fallin til sauðfjárræktar en uaut-
peningsræktar, og að í þeim héruðum
eru víða allmiklir erfiðleikar á að
fjölga kúm, svo aðnokkuru nemi. f>að
mundi að minsta kosti taka lang-
an tíma, ekki sízt eins og nú er
öllu komið. Af þessu leiðir, að fjár-
ræktin er og hlýtur að verða fyrst
um sinn það, sem gefur mestan arð
af sér eftir tilkostnaði í mörgum
sveitum landsins. En að þetta geti
breyzt smátt og smátt er annað mál;
en aðalskilyrðið fyrir því er þó það,
að menn geti selt það, er þeir eiga,
og fengið það nokkurn veginn borgað,
og helzt í peningum. Geti bændur
ekki selt t. d. það af sínu fé, er þeir
mega missa og þarfnast, öðru vísi en
að láta það til kaupmanna með hálf-
virði, þá vænti ég ekki skjótra breyt-
inga. Verzlunin er Iífæð þjóðarinnar;
á henn: byggist að miklu leyti vel-
vegnan hennar og máttur til að gera
eitthvað, sem manntak er í.
Aftur á móti eru stórar, víðáttu-
miklar sveitir, sem eru ef tíl vill bet-
ur fallnar til nautgriparæktar, og
geta að minsta kosti orðið það með
fullkomnari jarðrækt. Að vísu má
alstaðar gera jarðabætur; en það er
svo afar-mismunandi, hve mikinn
kostnað þær hafa í för með sér, og
á það verður að líta. En enginn
gerir miklar jarðarbætur með tvær
hendur tómar, og sízt fljótt. Hér ber
því að sama brunni, að það er að
miklu leyti undir verzluninni komið,
hve greitt gengur að auka jarðrækt-
ina og fjölga kúnum. Auk þess ber
þess að gæta, að ekkier nóg að fjölga
kúnum; jafnhliða því þarf að bceta
smjí’rverkunina, og útvega markað
fyrir smjörið. Markaður á smjöri inn-
anlands mun reynast takmarkaður
af þörf og eftirspurn, ef smjörgerð
eykst til muna, og þegar svo er kom-
ið, er sjálfsagt að leita fyrir sér um
markað erlendis.
En afleiðingin af því er sú, að þá
erum vér neyddir til að gjör-breyta
því fyrirkomulagi, sem nú er.
Vér þurfum aldrei að búasc við, að
íslenzkt smjör seljist t. d. á Englandi,
svo nokkru nerni, öðru vísi en með
því móti, að komið sé á fót mjólkur-
búum, enda eru þau skilyrði fyrir
betri smjörgerð.
IV.
J>að sést á því sem nú hefir sagt
verið, að aðalskilyrði fyrír umbótum
búnaðarins er, að verzlunin batni, og
að hægt sé að selja íslenzkar bús-
afurðir með þolanlegu verði, og helzt
fyrir pcninga.
Að því er fjárverzlunina snertir, þá
er vandi að segja nokkuð um hana,
ekki sízt fyrir þá, sem eru óverzlunar-
fróðir.
Eigi að síður vildi ég leyfa mér að
gera fáeinar athugasemdir henni við-
víkjandi; en ég tek það aftur fram,
að það eru að eins athugasemdir.
Sumir halda því fram, að vér eigum
sjálfir að borða alt vort sauðakjöt, og
fást svo ekki um annað. f>etta er
nú að vísu gott og blessað, en sá er
galli á gjöf Niarðar, að það reynist
ógerandi í framkvæmdinni, eins og
öllu er nú komið.
Víst er um það, að fjárverzlunin
var um hríð rekin lengra en góðu
hófi gegndi; það hefir með öðrum orð-
um verið »verzlað of mikið«, eins og
Torfi í Ólafsdal hefir sagt (»Búnaðar-
ritið»). En að benda mönnum nú á,
að þeir eigi sjálfir að borða kjötið,
er vægast sagt ófullnægjandi, þegar á
alt er litið. Til þess að sýna, að
þetta er blátt áfram óhugsandi, þarf
eigi annað en benda á peninga-vand-
ræðin, og alt það óhagræði, er þau
hafa í för með sér. Bændur þurfa
peninga til að borga með útgjöld sín;
en þeir þurfa einnig peninga, beinharða
peninga, til þess að geta eitthvað gert,
er aftur gefur af sér peninga eða
peningavirði. Til þess að gera jarða-
bætur þarf peninga. Bændur þarfnast
peninga til þess að geta eignast hent-
ug og góð annboð og jarðyrkjutól.
|>eir þarfnast peninga til þess að
bæta húsakynnin og gera þau þægi-
leg o. fl. |>að er í stuttu máli: þeir
þarfnast peninga til þess að geta lif-
að.
En á hinn bóginn er nauðsynlegt
að minka fjársöluna, ef það er auðið,
án þess að hnekkja öllum umbótum
og eðlilegum framförum.
Margir hafa gert sér góðar vonir
um, að takast mætti að fá markað
fyrir lifandi fénað í Belgíu eða Frakk-
landi. Eg er ekki fær um að geta
skýrt það atriði; en eins og nú horfir,
þá tel ég litlar líkur til, að hægt sé
að fá þar viðunanlegt verð fyrir sauð-
fé frá Islandi. Fyrst og fremst mun
féð þykja rýrt, og í öðru lagi er það
fjarlcegðin, sem hefir svo mikil áhrif í
því efni, og gerir fjársöluna þar afar-
erfiða. Vegalengdin og fjarlægðin
gerir það að verkum, að vér vitum
lítið um, hve nær hentast er að koma
með fé þangað, og þó að vér aldrei
nema vissum það, þá er svo margt
annað er hefir áhrif á það mál, og
aftrað fær því, að hægt sé að komast
þangað með fjárfarm á hentugum
tíma. Veðrátta er óstöðug að haust-
inu, ferðin tekur langan tíma,
féð leggur af, og flutningskostnaður-
inn hlýtur því að verða all-tilfinnan-
legur. það er því að mescu leyti
undir tilviljun komið, hvernig féð selst,
eða hvort það selst vel eða illa.
jpá hefir verið stungið upp á því,
að fita féð og selja það svo til Eng-
lands. Eg tel mjög vafasamt og hæp-
ið, að það mundi svara kostnaði fyrir
oss. jpótt tilraunir í Noregi í þessa
átt hafi tekist viðunanlega, þá er
jafnt sem áður óvíst, að það mundi
reynast hagur á Islandi að gera
svipaðar tilraunir.
Strandasýslu miðri 31. jan.:
Arið sem leið var að vísu ekkert harð-
indaár hér um slóðir, en ekki heldur hag-
sældarár og má fremur teljast meðal
hinna lakari.
Veturinn i fyrra var meðalvetur, en vor-
ið ákaflega kalt, og gekk því fénaður
fremur illa fram. Var unglambadauði ó-
dæmamikill á mörgum bæjum við sjó, og
mun það hafa orsakast af óhollri fjöru-
beit, kulda og gróðurleysi að vorinu, frem-
ur en fjöruheit að vetrinum, sem víða er
um kent; en þar er sem víðar óleyst rann-
sóknarefni fyrir dýralæknana. — Pé gekk
víða illa úr ullu um vorið og reyndist
ullin venju fremur létt. Kendu hændur
því alment um, að fé hafði verið haðað
haustinu áður, sógðu, að baðið þvægi alla
sauðfitu úr ullinni(!!). En þeir, sem
halda fram böðunum, segja, að ullarlos á
fénu og léttleiki ullarinnar siðastliðið vor
sé óviðkomandi böðunum, og stafi af vor-
kuldanum og megurð á fénu. Reynslan
mun skera úr, hverir réttara hafa fyrir
sér, því að héðan af munu þó einhverir
halda áfram árlegum höðunum.
Sumarið var kalt og votviðrasamt. Hey-
skapur varð fram undir það í meðallagi og
nýting allgóð, því þerriflæsa kom ávalt öðru
hvoru, svo hey hröktust eigi að mun. Kál-
garðar brugðust algerlega. Fé reyndist
létt og rýrt til fiálags, einkum hið vetur-
gamla. Verzlun var óhagstæð, og kaup-
menn gengu með harðasta móti eftir skuld-
um, einkum er það kom í ljós, að haust-
afli hrást algerlega á Steingrimsfirði, en
honum höfðu margir treyft um of og
hleypt sér í skuldir til að auka útveg sinn,
þvi að góðfiski hafði verið undanfarandi
ár.
Haustveðrátta var hin hezta fram yfir
vcturnætur; en eftir 12. nóvember brá til
megnustu ótíðar með útsynnings-ofviðrum
og fannfergju, svo að allur fénaður kom á
gjöf; um sólstöðurnar gerði blota, og komu
þá upp snöp á stöku stað, en víðast hélzt
hagleysið, þangað til nú í fyrstu viku
þorra að góða hláku gerði.
Sakir aflaleysisins og hinnar óhagstæðu
verzlunar voru margir með lakasta móti
undir þenna vetur búnir með bjargræði,
og er ekki útlit fyrir, að hót verði á því
ráðin, því að matvörulaust er sagt að sé
í öllum nálægum kauptúnum.
Það kom til orða i haust, að reist yrði
á vori komanda íshús i Húsavík við Stein-
grimsfjörð, og félag sett á laggir í því
skyni; en fremur mun vera dauft yfir þeim
félagsskap, og Htill áhugi og trú á því
máli alment; má vera að fiskileysið i haust,
hafi dregið kjark úr mönnum.
Eitt spor var þó stigið í framfaraáttina
í þessu bygðarlagi síðastliðið ár: það, að
allmargir menn tóku upp þann sið í haust,
að hirða hross til dtu; hefir það verið
óþekt hér áður, og stöku menn telja slíkt
athæfi ganga næst algerðu guðleysi, en
þeir eru langsamlega í minni hluta, og
þeim, «em reynt hafa þessa nýbreytni, fell-
ur hún svo vel, að þeir undrast það mest,
að þeir skuli ekki hafa fyrir löngu tekið
uppiþenna gamla og góða sið forfeðranna,
og varpað frá sér hinni heimskulegu hjá-
trú og hindurvitnum gegn hrossakjötsátinu,
sem kostar þjóðina ógrynni fjár á hverju
ári.
Nú um nýjársleytið var stofnað hér
verzlunarf'élag, sem nær yfir nyrðra hluta
sýslunnar inn að Bitru. Félagið heitir:
»Verzlunarfélag Steingrímsfjarðar*; er það
pöntunarfélag með líku sniði og Halafé-
lagið, sem það er afspringur af. — En
jafnhliða því er söludeild með kaupfélags-
sniði, sem félagið lieldur uppi; hefir hún
fyrir veltufé kaupfélagssjóð þess, en hann
skapast af 4°/o, sem lagðir eru á alla að-
flutta vöru. Hver félagsmaður er skyldur
til að leggja þegar í kaupfélagssjóð í
minsta lagi 10 kr., og svo árlega 4°/o af
allri verzlun sinni við félagið, og allan á-
góða af verzlun sinni v>ð söludeildina, unz
hann hefir eignast jafnmikla fúlgu í kaup-
félagssjóði (stofnsjóði) og nemur árlegri
verzlun hans við félagið að meðaltali síð-
ustu árin.
1 nótt og í morgun varð hér vart við
landskjdlftakipp, all-snarpan, eftir því sem
hér gerist.
V eðiii'atliiigaiiir
í Reykjavík eftir landlækni Dr. J. Jónas-
sen.
® cr Hiti (á Celsius) Loftvog (millimet.) Veðurátt.
A nótt|um hd Ard. síðd. árd. | síðd.
18. 0 0 741.7 746.8 sv h d| Sv h d
19. — í + 1 736.6 736,6 s h d a h d
20. 4- 3 + 5 736.6 751.8 Sa hvd Sa hvd
21. + 5 + 5 751.8 749.3 Sa hvd Sa h d
22. + 2 0 746.8 746.8 v h d o b
23. 0 + 3 7Ö1.8 749.3 o d o d
24. -I- 4 f 6 744.2 746.8 o d Sa h d
Undanfarna viku verið við suður og
landsuður oft með mjog mikilli rigningu
og hlýindum, sem bezt á vordegi.
Lausn frá embætti
hefir landshöfðingi veitt 21. þ. mán.
séra Vilhjálmi Briem í Goðdölum
sakir heilsubrests og með lögmæltum
eftirlaunum.
Gufuskipið »Colibri«
leggur á stað aftur í dag til Eng-
lands og hefir ís fyrir seglfestu, —-
fyrsta tilraunin til að koma þeirri
vöru á útlendan markað. Með skip-
inu siglir konsúll D. Thomsen.
Veðurblíðan
söm og áður; líkara miklu vori en
vetri.
Fiskafli
nokkur suður í Garðsjó. Beykvík-
ingur einn kom þaðan í gær með 70
í hlut eftir fáa róðra.